Morgunblaðið - 08.04.2006, Page 59
eptlistamenn heimsins í dag. Á sýning-
unni vinna þau með ólík þemu úr æv-
intýrum sagnaskáldsins mikla, H.C.
Andersen. Hluti sýningarinnar fer einnig
fram í porti Hafnarhússins. Sýningin
stendur til 5. júní.
Nýlistasafnið | „Our House is a house
that moves“ er alþjóðleg sýning 12 lista-
manna. Sýningarstjóri er Natasa Petresin.
Listamennirnir eru að fjalla um hreyfingu
og hvernig hún umbreytir heiminum stöð-
ugt. Til 30. apríl.
Ráðhús Reykjavíkur | Sautján félagar í
Fókus, félagi áhugaljósmyndara, sýna á
ljósmyndasýningunni Fegurð í Fókus í
Tjarnarsal til 9. apríl.
Safn | Kristján Steingrímur Jónsson sýnir
nýleg verk sín á grunnhæðinni. Sýning
bandarísku listakonunnar Roni Horn held-
ur áfram á öllum hæðum. Til 9. apríl. Op-
ið mið.–fös kl. 14–18 og lau.–sun. kl. 14–17.
Ókeypis inn.
Safn | Sýning myndlistarmannsins Krist-
jáns Steingríms, Teikningar, hefur verið
framlengd til 15. apríl.
Saltfisksetur Íslands | Fríða Rögnvalds-
dóttir með málverkasýninguna Vinir og
vandamenn til 1. maí. Opið alla daga frá
11–18.
Seltjarnarneskirkja | Málverkasýning
Kjartans Guðjónssonar er opin alla daga
kl. 10–17, nema föstudaga og stendur til
7. maí.
Skaftfell | Sýning á afrakstri hinnar ár-
legu vinnustofu á vegum Listaháskóla Ís-
lands og Dieter Roth Akademíunnar
stendur nú yfir í Menningarmiðstöðinni
Skaftfelli. Þátttakendur sýningarinnar eru
útskriftarnemendur frá myndlistardeild
LHÍ ásamt erlendum listnemum. Til 29.
apríl.
Skúlatún 4 | Sýningin Spúl í auga í Skúla
í Túni, Skúlatúni 4, þriðju hæð. Unnur
Mjöll sýnir nýtt verk í kjölfar velgengn-
innar með verkið Bombaðu þessu í grím-
una á þér.
Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldu-
konur í íslenskri myndlist fjallar um ævi
og verk tíu kvenna sem voru nær allar
fæddar á síðari hluta 19. aldar. Þær nutu
þeirra forréttinda að nema myndlist er-
lendis á síðustu áratugum 19. aldar og
upp úr aldamótum. En engin þeirra gerði
myndlist að ævistarfi.
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndir hol-
lenska ljósmyndarans Rob Hornstra eru
afrakstur af ferðum hans um Ísland.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn alla daga kl. 10–17, nema
mánudaga. Hljóðleiðsögn, margmiðl-
unarsýning, minjagripir og fallegar göngu-
leiðir í næsta nágrenni. Sjá nánar á
www.gljufrasteinn.is
Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl.
10–18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum
söguna frá landnámi til 1550. www.saga-
museum.is
Veiðisafnið - Stokkseyri | Uppstoppuð
veiðidýr ásamt skotvopnum og veiði-
tengdum munum. Opið alla daga kl. 11–18.
Sjá nánar: www.hunting.is
Þjóðmenningarhúsið | Samsýning 19
myndlistarmanna; Norðrið bjarta/dimma,
lætur mann lyfta brúnum. Þjóðminjasafn-
ið – svona var það andar stemningu lið-
inna alda. Handritin, ertu ekki búin að sjá
þau? Fyrirheitna landið, fyrstu vesturfar-
arnir, hverjir voru það? Veitingar, búð.
Þjóðminjasafn Íslands | Í Þjóðminjasafni
Íslands er boðið upp á fjölbreytta fræðslu
og þjónustu fyrir safngesti. Þar eru ný-
stárlegar og vandaðar sýningar auk safn-
búðar og kaffihúss. Hlutverk safnsins er
að auka og miðla þekkingu á menningar-
arfi Íslendinga frá landnámi til nútíma.
Opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17.
Leiklist
Halaleikhópurinn | Halaleikhópurinn sýnir
Pókók í leikstjórn Vilhjálms Hjálmarssonar
í kvöld kl. 20, Hátúni 12, 105 Reykjavík.
Halaleikhópurinn er blandaður leikhópur
sem starfar undir kjörorðunum „Leiklist
fyrir alla“. Nánari uppl. er að finna á
www.halaleikhopurinn.is og í síma
552 9188.
Loftkastalinn | Stúdentaleikhúsið setur
upp verkið Animanina. Verkið er frum-
samið. Höfundar eru meðlimir Stúdenta-
leikhússins og Víkingur Kristjánsson, sem
jafnframt leikstýrir. Söngur og dans,
dramatík og furðulegheit. Miðasala: sími
552 3000 e-mail: midasala@loftkastal-
inn.is Vefsíða: www.studentaleikhusid.is
Skemmtanir
Kópavogur | Hermann Ingi spilar á
Shooters í kvöld.
Kringlukráin | Hljómsveitin Sixties í
kvöld. Stuðið hefst kl. 23 báða dagana.
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveitin
Spútnik spilar í kvöld, húsið opnað kl. 22,
frítt til miðnættis.
Uppákomur
Kaffi Hljómalind, lífrænt kaffihús | Kiirt-
an (möntrusöngur) og hugleiðsla mun
fara fram á kl. 10.
Fyrirlestrar og fundir
Krabbameinsfélagið | Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga og aðstandenda
þeirra, heldur fund í Skógarhlíð 8 í
Reykjavík, 11. apríl kl. 20. Dagskrá: End-
urhæfing fyrir krabbameinssjúka hjá
Landspítalanum í Fossvogi. Alís Frey-
garðsdóttir iðjuþjálfi og Margrét Gunn-
arsdóttir sjúkraþjálfari kynna nýjungar í
starfseminni.
Norræna húsið | Heimssýn, hreyfing
sjálfstæðissinna í Evrópumálum, boðar til
almenns fundar um evruna og íslensku
krónuna í Norræna húsinu kl. 14.30. Hag-
fræðingarnir Illugi Gunnarsson og Bjarni
Már Gylfason flytja erindi og taka síðan
þátt í pallborðsumræðum. Fundurinn er
öllum opinn.
ReykjavíkurAkademían | Umræðufund
um málefni innflytjenda verður 8. apríl kl.
12–14. Hver er stefna íslenskra stjórn-
valda í innflytjendamálum? Hafa íslenskir
stjórnmálaflokkar stefnu í málefnum inn-
flytjenda? Fyrirlesari: Eiríkur Bergmann
Einarsson stjórnmálafræðingur.
Fréttir og tilkynningar
Ferðaklúbbur eldri borgara | Færeyjaferð
Ferðaklúbbs eldri borgara árið 2006
verður dagana 30. maí til 9. júní. Skrán-
ing er hafin og lýkur 10. apríl. Uppl. í síma
892 3011.
GA-fundir (Gamblers Anonymous) | Er
spilafíkn að hrjá þig eða þína aðstand-
endur? Sími GA-samtakanna (Gamblers
Anonymous) er 698 3888.
Kvennakór Kópavogs | Kvennakór Kópa-
vogs heldur kökubasar í Garðheimum, frá
kl. 11. Úrval af tertum fyrir páskana.
Frístundir og námskeið
Orkuveita Reykjavíkur | Fylgst verður
með Ragnari Reykás frá því hann vaknar
að morgni og þar til hann fer að sofa.
Hvað gerist þegar Ragnar burstar tenn-
urnar á morgnana? Hvernig verkar raf-
hlaðan í gemsanum hans? Afrakstur
þessarar samvinnu er „raunveru-
leikaþáttur“ sem opinberaður verður með
tali, myndum og tilraunum. Fer fram 8.
apríl kl. 14–16.
Börn
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Listasafn Reykjavíkur og Edda útgáfa
bjóða börnum og foreldrum þeirra á Kjar-
valsstaði kl. 14 í tengslum við opnun sýn-
ingarinnar og útgáfu bókarinnar Skoðum
myndlist. Ilmur Stefánsdóttir, einn lista-
manna á sýningunni, býður börnum að
vera með í listasmiðju. Sýningaröðin
stendur til 3. desember.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 59
MENNING
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Félagsheimilið Gjábakki | Krumma-
kaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 13–16
opin myndlistarsýning. Mán. 10. apríl
kl. 14–15 er Herdís Jónsd., hjúkr-
unarfræðingur frá Heilsugæslu Efra
Breiðholts, með viðtalstíma. Alla
virka daga kl. 9–16.30 er fjölbreytt
dagskrá, en hún fellur niður á hátíð-
ardögum í næstu viku. Allar uppl. á
staðnum og í síma 575 7720.
www.gerduberg.is.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Leikfimi kl. 11.30. Tréskurður kl. 13.
Brids kl. 13. Boccia kl. 13.
Hæðargarður 31 | Það eru allir alltaf
velkomnir í félagsstarfið í Hæðargarði
31. Fastir liðir eins og venjulega. Upp-
selt í menningarferðina í Skálholt.
Munið páskabingóið 11. apríl. Byrjað
að selja kl. 13. Glæsilegir vinningar.
Allar upplýsingar í síma 568 3132 og
á asdis.skuladottir@reykjavik.is.
Kirkjustarf
Grensáskirkja | Fundur verður hald-
inn í safnaðarheimilinu mánudaginn
10. apríl klukkan 20. Spilað páskaegg-
jabingó. Stjórnin.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Jesú
konur kl. 10–12. Morgunverður, lof-
gjörð, predikun og bæn. Allar konur
eru hvattar til að koma, það verða
vitnisburðir frá konum sem hafa
gengið með Jesú í mörg ár. Bæna-
stundin kl. 20 fellur niður.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
SÆNSKI kammerhópurinn Svan-
holm Singers heldur tónleika í
Salnum í Kópavogi í dag kl. 17. Efn-
isskráin samanstendur af sænskum
og norrænum þjóðlögum, auk nýrri
tónlistar. Einnig verður flutt nýtt
lag eftir einn kórmeðlima, Stefan
Engström.
Kórinn Svanholm Singers var
stofnaður árið 1998 og komst fljótt í
röð fremstu karla-kammerkóra
Svíþjóðar. Kórinn hefur fengið
mörg fyrstu verðlaun á alþjóð-
legum kóramótum, nú síðast í mars
2005 í Madetoja-hátíðinni í Finn-
landi. Kórinn hefur oft farið í tón-
leikaferðir erlendis og síðastliðið
sumar fór hann í sína fimmtu ferð
til Japan.
Kórinn samanstendur af 20 kór-
félögum og eru þeir á aldrinum 22
til 29 ára. Stjórnandi kórins er
Sofia Söderberg Eberhard.
Svanholm Singers í Salnum
www.svanholmsingers.nu
FRANSKI listamaðurinn Serge
Comte opnar samsýningu í Kling og
Bang galleríi í dag ásamt listakon-
unum Andreu Maack og Unni Mjöll
S. Leifsdóttur sem eru betur þekktar
sem listteymið Mac n’ Cheese. Sýn-
ingin ber heitið Smaack my Cheese
og inniheldur meðal annars tvær risa-
stórar andlitsmyndir á veggjum gall-
erísins af listakonunum sem Serge
bjó til úr þúsundum smárra límmiða.
Í kjallaranum er svo að finna eftirlík-
ingu af hægri hönd franska lista-
mannsins, úr osti. Serge er frekar
þekktur listamaður í heimalandi sínu
Frakklandi en hefur búið meira og
minna hér á landi frá árinu 1997 og
haldið hér þó nokkuð margar sýn-
ingar.
Listrænt rán
Upphaflega var Serge beðinn um
að halda einkasýningu í Kling og
Bang en á einhverjum tímapunkti
voru ungu listakonurnar tvær komn-
ar í verkefnið. „Ég fann ákveðna
tengingu á milli þeirra verka og
minna. Þannig að ég bauð þeim að
taka þátt í sýningunni sem endaði á
því að þær tóku algjörlega við stjórn-
inni. Sú hugmynd varð til að þær
myndu bókstaflega ræna sýningunni
frá mér. Ég sagði þeim að þeim væri
frjálst að biðja mig að gera hvað sem
er á þessari sýningu.“ Þær vissu að
hann hefði að undanförnu fengist við
andlitsmyndir þannig að þær skipuðu
honum að búa til risastórar andlits-
myndir af þeim sjálfum. „„Úr
hverju?“ spurði ég og þær svöruðu að
myndirnar yrðu að vera úr litlum
kringlóttum límmiðum sem notaðir
eru til að merkja seld listaverk,“ segir
Serge sem bjó til tvær risastórar and-
litsmyndir að þeirra tilmælum án
minnstu mótmæla. Og eins og vald-
miklir yfirboðarar horfa andlit
stúlknanna, sem prýða veggi gallerís-
ins, niður til áhorfandans á afar
áhrifaríkan máta.
Hönd listamannsins
„Ég er ofurseldur þeirra valdi,“
segir Serge. Til að undirstrika hið al-
gjöra vald sem listakonurnar ungu
hafa yfir listsköpun Serge liggur til
sýnis eftirlíking af hægri hönd úr osti
en hún á að tákna hægri hönd Serge,
þá hönd sem hann notar við sína list-
sköpun. Upp úr hendinni stendur
ostahnífur úr stáli sem Andrea hann-
aði. Serge segir að verkið eigi að
tákna á ýktan hátt það þegar ungir
listamenn taka við af þeim eldri.
„Þema sýningarinnar felst í því að
huga að yngri listamönnum. Að vissu
leyti snýst hún um það að deila og
veita öðrum tækifæri. Það er alltaf
erfitt fyrir unga listamenn, hvort sem
það er hér á Íslandi eða annars stað-
ar, að koma sér á framfæri. Mér
finnst að listamaðurinn eigi að vera
örlátur og gefa öðrum pláss,“ segir
hinn undirgefni listamaður að lokum.
Myndlist | Serge Comte ásamt Mac n’ Cheese í Kling og Bang
Ungar listakonur taka yfir
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Límmiða-portrett af Unni Mjöll Leifsdóttur í Kling og Bang-galleríi.
Morgunblaðið/Ásdís
Serge Comte ásamt yfirboðurum sínum, þeim Andreu Maack og Unni Mjöll
Leifsdóttur.