Morgunblaðið - 08.04.2006, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 61
STEMNINGUNNI á tónleikum
belgísku rokksveitarinnar dEUS
verður ekki lýst auðveldlega. Í sem
fæstum orðum var hún rosaleg;
70.000 Íslendingar í Aþenu eða
annað eins á úttroðnum Laug-
ardalsvelli gætu ábyggilega ekki
framkallað önnur eins fagnaðarlæti
– þrátt fyrir að gestir Nösu hafi
verið meira en hundrað sinnum
færri. Fylgispekt Íslendinga við
þessa hljómsveit hefur að mestu
farið framhjá undirrituðum og því
var upplifunin sem því fylgdi að sjá
svo marga svona ánægða og svona
spennta enn sterkari.
DEUS eru á sínu fimmtánda
starfsári og hafa nýlega gengið í
gegnum þó nokkrar mannabreyt-
ingar. Þær hafa þó ekki hindrað
drengina í að ná gríðarlegum þétt-
leika í spilamennsku sinni og ótrú-
legu öryggi. Tónlist dEUSar er ein-
hverskonar rokkbræðingur sem
sækir í grugghefð tíunda áratug-
arins til jafns við framsæknari pæl-
ingar annars vegar og poppaðri
ballöður hins vegar. Það eru ekki
margar rokksveitir starfandi í dag
með fastan rafmagnsfiðluleikara,
en dEUS gátu státað af einum slík-
um. Framvörðurinn Tom Barman
hálf-syngur og hálf-talar sig síðan í
gegnum flest lögin einsog sönnum
sjálfumglöðum töffara sæmir með-
an gítarleikarinn Mauro Pawlowski
myndar skemmtilegt (og nauðsyn-
legt) mótvægi við kokhreysti Barm-
ans í yfirveguðum svalleika sínum.
Þeir félagar eru augljóslega vel
skólaðir í sviðsframkomu. Barman
var hæfilega hrokafullur, horfði til
himins og lét hljóðnemann (eða
hljóðnemana tvo) finna fyrir hverju
einasta orði. Pawlowski var ávallt
svalur en leyfði sér að missa stjórn-
ina í hávaðasömustu köflunum. Þá
sveiflaði hann gítarnum til og frá
og ljósameistarinn undirstrikaði
hraða hreyfinganna með því að
blikka sviðsljósunum í heild. Raun-
ar er ástæða til þess að lofa ljósa-
manninn sérstaklega. Skuggar
dönsuðu stríðsdans á sviðinu og
ljóskastarar vörpuðu ljósi á aðal-
leikara hvers lags fyrir sig. Hver
einasta breyting sem varð í hljómi
laganna var feitletruð með breyt-
ingum á lýsingu. Þetta var áhrifa-
mest þegar að dEUS beittu því
snjalla bragði að breyta fyrir-
varalaust úr hægri rokkballöðu yfir
í kraftmikinn rokkhávaða, kannski
ekki nema í örfáar sekúndur, einn
eða tvo takta.
DEUS voru bestir þegar þeir
voru sem kraftmestir. Flottustu
lögin innihéldu langa kafla þar sem
allir hljómsveitarmeðlimir börðu
hljóðfæri sín til óbóta. Þeim tókst
líka vel upp þegar þeir skiptu
söngnum niður á hvor annan, oft á
skemmtilegan „kall og svar“ máta.
Þar þótti mér Pawlowski flottastur,
röddin hrjúf og útlifuð. Að sama
skapi voru Belgarnir afskaplega
óspennandi þegar þeir skrúfuðu
niður í sér og gerðu tilraun til þess
að spila „fallega“ tónlist. Eyra
dEUSar fyrir hlýjum popplaglínum
er ekki gott og þetta olli því að
fyrsta lag þeirra eftir uppklapp
reyndist einn af lágpunktum ann-
ars ágætra tónleika.
Ljós og skuggar
TÓNLIST
Tónleikar
DEUS á Nasa, fimmtudagskvöldið 6. apr-
íl. Mammút hitaði upp. Hr. Örlygur stóð
fyrir tónleikunum.
dEUS Atli Bollason
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„DEUS voru bestir þegar þeir voru sem kraftmestir. Flottustu lögin innihéldu langa kafla þar sem allir hljómsveit-
armeðlimir börðu hljóðfæri sín til óbóta,“ segir meðal annars í tónleikadóminum.
Breska rokksveitin RollingStones kemur fram á tón-
leikum í Shanghai í dag. Verður
þetta í fyrsta skipti sem sveitin
kemur fram í Kína. Tvívegis áður
hefur staðið til að Rolling Stones
héldi tónleika þar í landi, en í
fyrra skiptið, fyrir aldarfjórðungi,
komu þarlendir embættismenn í
veg fyrir það og árið 2003 breytti
sveitin áætlunum sínum vegna
bráðalungnabólgufaraldurs, sem
kom upp í Asíu.
Kínversk stjórnvöld hafa sett
strangar reglur um það sem
hljómsveitin má segja og gera.
Hefur sveitinni verið bannað að
flytja lög á borð við „Honky Tonk
Woman“, „Brown Sugar“ og
„Let’s Spend the Night Together“
vegna þess að textarnir þykja of
dónalegir. Þegar safnplata sveit-
arinnar, Forty Licks, kom út í
Kína, voru aðeins 36 lög á plöt-
unni en fjögur lög voru fjarlægð
vegna dónalegra texta.
Fólk folk@mbl.is