Morgunblaðið - 04.05.2006, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.05.2006, Blaðsíða 19
SUMIR hafa upplifað ýmislegt sem talið hefur verið að komist nálægt því að deyja og lifna við aftur. Þ.e. að fara út úr lík- amanum, sjá mikið ljós eða upp- lifa mikinn innri frið. Á vefnum forskning.no er fjallað um fyr- irbærið og því haldið fram að rótina að þessum upplifunum megi rekja til ástands fólks þegar það sefur. Vísindamenn við Háskólann í Kentucky í Bandaríkjunum báru saman svefnvenjur fólks sem hafði upplifað fyrirbærið og þeirra sem ekki höfðu haft nein kynni af „dauðaupplif- unum“. Óljós mörk milli svefns og vöku Í ljós kom munur á hópunum tveimur, m.a. þannig að margir þeirra sem höfðu orðið fyrir upplifuninni höfðu einnig skynj- að mjög óskýr mörk á milli draumsvefns og vöku. Rannsóknin leiddi í ljós að 60% fólksins sem hafði reynt sitt hvað í þessum málum hafði upplifað að svefn og vaka runnu saman og þá þannig að fólkið var algjörlega lamað þegar það vaknaði eða að vöðvarnir urðu skyndilega óvenjuveikir. Sumir heyrðu eða sáu hluti sem ekki áttu sér stoð í raunveruleik- anum þó þeir væru í raun vak- andi. Í samanburðarhópnum höfðu aðeins 24% upplifað eitthvað svipað. Að mati forsvarsmanns rannsóknarinnar, Kevins Nel- son, getur þetta bent til þess að truflanir á REM-svefni, þ.e. draumsvefni, geti haft áhrif á hvort fólk upplifi sig í ástandi nálægt dauða. Svefnástand þessa fólks og háttur þess á að vakna getur gert það móttæki- legra fyrir truflunum á REM- svefni, að mati Nelsons.  RANNSÓKN Morgunblaðið/Þorkell Yfirnáttúrulegt eða svefntruflanir? Hver er stefna stjórnmálaflokkanna í málefnum fjölskyldunnar? www.verndumbernskuna.is fimmtudaginn 4. maí kl. 15:00 - 17:00 í húsi Íslenskrar erfðagreiningar Opinn fundur Börnin í fyrsta sæti Fundarstjóri Kristján Kristjánsson, fréttamaður Ávarp foreldris Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður Fulltrúar stjórnmálaflokkanna: Björn Ingi Hrafnsson Framsóknarflokki Dagur B. Eggertsson Samfylkingunni Hanna Birna Kristjánsdóttir Sjálfstæðisflokki Ólafur F. Magnússon Frjálslynda flokknum Svandís Svavarsdóttir Vinstri hreyfingunni-grænu framboði Daglegtlíf maí Urtasmiðjan er fjölskyldufyrirtæki áSvalbarðsströnd, sem var stofnað1992. Við vinnum vistvænar ognáttúrulegar snyrti- og heilsuvör- ur úr íslenskum jurtum og náttúrulegu hrá- efni,“ segir Gígja Kjartansdóttir Kvam sem er hugurinn og höndin á bak við Urtasmiðj- una. Vörulínan ber nafnið Sóla og byggir framleiðslan á gömlum hefðum, sem og nú- tíma þekkingu og rannsóknum á holl- ustumætti jurtanna. „Ég er fædd og uppalin í sveit og hafði, sem barn, alltaf ofboðslega gaman af blóm- um. Ég lærði tónlist í Þýskalandi og starfaði þar í sex ár, þegar ég kom heim kynntist ég manninum mínum, norska tónlistarmanninum Roar Kvam, og byggðum við okkur hús í landi foreldra minni að Fossbrekku á Sval- barðsströnd og unnum sem tónlistarkennarar á Akureyri. Þegar tími gafst spáði ég í jurt- irnar og allt sem í þeim býr; kraftinn, orkuna og hollustuna. Ég las mikið bókina Apótekið hennar Hildigerðar, en Hildigerður var þýsk nunna sem var uppi á 11. - 12. öld og skrifaði ótal bækur um lækningarmátt jurta. Í þessari bók skrifar hún um ýmsar jurtir sem líka uxu í túnfætinum hjá mér, ég fór þá að prófa mig áfram í smyrslagerð og fannst árangurinn framar vonum. Þetta spurðist út og fram- leiðslan óx og óx með árunum. Ég hafði þetta sem áhugamál með minni tónlistarkennslu. Svo fór þetta að verða svo mikið að ég vissi ekki hvort ég væri Gígja í tónlistarskólanum eða Gígja í Urtasmiðjunni þannig að ég hætti sem tónlistarkennari, enda búin að starfa við tónlist alla mína starfsævi, og ákvað að helga mig Urtasmiðjunni hér eftir, það var fyrir um fimm árum.“ Byrjaði með vallhumal Gígja framleiðir nú u.þ.b 18 vörutegundir m.a. andlitskrem, nuddkrem, hand- og fótaá- burð, húðmjólk og ýmsar nuddolíur en í byrj- un framleiddi hún aðeins Græðismyrsl úr vallhumli. „Amma mín bjó alltaf til smyrsl úr vallhumli og notaði bæði á menn og skepnur og þess vegna byrjaði ég á vallhumlinum. Þetta Græðismyrsl hefur slegið rækilega í gegn en inniheldur nú ýmsar fleiri græðandi jurtir. Fólk notar það á sár, ljót ör, exem og ýmislegt slíkt, það er mikill græðikraftur í þessu smyrsli.“ Gígja notar ekki aðeins íslenskar jurtir í framleiðslu sína heldur kaupir hún líka jurtir sem eru lífrænt ræktaðar hérlendis og er- lendis. „Ég verð að flytja inn jurtir sem vaxa ekki hér en eru góðar heilsu- og græðijurtir. Auk jurtanna eru öll hráefni, grunnur og bindiefni náttúruleg og vistvæn og olíurnar eru að stórum hluta jurta Omega olíur. Við notum ekkert úr dýraríkinu og engar jarðolíur eins og parafinolíur eða vaselín og rotvörnin er náttúruleg, framleidd úr jurtum. Ég fylgist með hvað er að gerast í þessum málum erlendis og hvaða náttúrulegu efni eru að koma ný, ég er ennþá að læra og prófa mig áfram,“ segir Gígja. Góðar við margs konar kvillum Gígja og fjölskyldan nota sumartímann til að tína villtu íslensku jurtirnar. „Við notum bílskúrinn undir hrávinnsluna, vinnum jurt- irnar og göngum frá þeim þar. Svo erum við með húsnæði á Svalbarðseyri undir fram- leiðslu, áfyllingu og pökkun.“ Gígja segir vörur frá Urtasmiðjunni fást í heilsuvöruverslunum og einstökum apótekum og svo er útflutningur í undirbúningi. „Vör- urnar frá Urtasmiðjunni eru ekki lyf en geta hjálpað gegn margskonar kvillum og við að bæta líðan,“ segir Gígja en henni finnst vera vakning hjá Íslendingum gagnvart því að nota náttúrulegar snyrtivörur. „Vörurnar eru t.d. góðar fyrir ofnæmisfólk, það var nú hluti af því að ég fór út í þetta að ég þoli ekki sjálf mörg af þessum kemísku efnum sem eru í snyrtivörum.“ Gígja sér ekki eftir því í dag að hafa hætt í tónlistinni og farið í jurtirnar. „Nú er tónlist- in mitt áhugamál, hún nærir sálina og það er gott að hlusta á hana meðan ég dunda mér í jurtunum.“  HEILSA | Urtasmiðjan er fjölskyldufyrirtæki á Svalbarðsströnd Amma bjó til smyrsl úr vallhumli Morgunblaðið/Árni Sæberg Gígja skreppur stundum til Reykjavíkur og kynnir Sóla-vörurnar frá Urtasmiðjunni. Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is ÞAÐ ER enn hættulegra að tala í far- síma undir stýri en áður var talið. Á fréttavef Aftenposten er greint frá stór- aukinni slysatíðni vegna þessa í Banda- ríkjunum. Fram kemur að í nær átta af tíu umferðaróhöppum eiga bílstjórar sem eru annars hugar hlut að máli en áður var talið að þetta hlutfall væri fjórðungur. Þetta leiddi stór bandarísk rannsókn í ljós en niðurstöðurnar byggj- ast á mörg þúsund klukkustundum af upptökum úr eftirlitsmyndavélum og gögnum frá yfir 200 bílstjórum. Slysa- valdarnir eru fleiri en farsímar því auk þess að tala í farsíma, fiktar fólk í MP3 spilaranum og les jafnvel tölvupóst á yf- ir 100 km hraða á klukkustund. Hættan á að keyra á þrefaldast ef maður er að slá númer inn í farsímann sinn undir stýri. Og hættan er enn meiri þegar bíl- stjórinn er að teygja sig eftir hlut sem er á hreyfingu inni í bílnum, þ.e. níföld.  RANNSÓKN Ekki tala í farsíma undir stýri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.