Morgunblaðið - 18.05.2006, Page 1
STOFNAÐ 1913 134. TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Eldað á
pólska vísu
Aneta Rabas gefur uppskriftir
að pólsku góðgæti | Daglegt líf
Evróvisjón | 20 síðna blaðauki um söngvakeppnina Silvía Nótt getur ort
Viðskipti | Goldman Sachs og orðsporið Með markaðsmálin í blóðinu
Íþróttir | Barcelona Evrópumeistari Fóru flatt fyrir Hollendingum
Opið til 21 í kvöld
Gjafadagar
í KringlunniTUGÞÚSUNDIR manna söfnuðust í gærsaman við þinghúsið Kristjánsborgarhöll íKaupmannahöfn og víðar í Danmörku til að
mótmæla fyrirhuguðum breytingum á velferð-
arkerfinu. Fela þær m.a. í sér að eftirlauna-
aldur hækkar og námslán skerðast.
Verkalýðsfélög, félög námsmanna og kenn-
ara og fleiri samtök efndu til mótmælanna, en
stjórn Anders Fogh Rasmussens hyggst
leggja tillögurnar fram á þingi á næstunni þótt margir
efist um að fyrir þeim sé nægur meirihluti.
Tillögurnar eru meðal annars þær, að eftir-
launaaldurinn verði færður úr 65 árum nú í 67
á árunum fram til 2025 og einnig að niður-
greidd námslán verði skert. Er til dæmis gert
ráð fyrir, að geri fólk hlé á námi að loknu stúd-
entsprófi, skerðist námslánin töluvert og á
það að hvetja fólk til að ljúka námi á sem
stystum tíma.
Skólamenn benda á, að þetta muni verða til
að letja fólk til að snúa sér aftur að námi eftir
einhvern tíma á vinnumarkaði. Auk þessa er
stefnt að því að minnka rétt fólks til að hætta
að vinna sextugt á skertum eftirlaunum. Á að hækka
aldursmarkið í 63 ár.
Gegn breyttu velferðarkerfi
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
AP
Gazaborg. AFP, AP. | Forseti Palestínu,
Mahmoud Abbas, gaf í gær öryggissveitum
þjóðarinnar skipun um að koma sér fyrir á
mikilvægum stöðum á Gazasvæðinu. Var um
að ræða svar við aðgerðum Said Siam, innan-
ríkisráðherra stjórnarinnar, sem sendi nýjar
öryggissveitir sínar á svæðið fyrr um daginn.
„Abbas hefur sagt liðsmönnum öryggis-
sveitanna að hafna öllum skipunum sem ekki
koma frá honum,“ sagði embættismaður sem
ekki vildi láta nafns síns getið. Siam ákvað í
apríl að stofna nýju sveitirnar og koma liðs-
menn þeirra úr ýmsum sveitum herskárra
Palestínumanna. Abbas, sem hefur yfirum-
sjón öryggismála á sinni könnu, taldi það
ganga gegn stjórnarskránni að stofna um-
ræddar sveitir en sagðist sætta sig við hug-
myndina ef sveitirnar yrðu eingöngu til að-
stoðar hefðbundnu öryggislögregluliði.
Siam er úr röðum Hamas eins og aðrir
ráðherrar en Abbas er úr Fatah, gamla
valdaflokknum sem tapaði í þingkosningun-
um í vetur. Mikill rígur er á milli fylkinganna
og tveir Hamas-menn voru skotnir úr laun-
sátri aðfaranótt miðvikudags eftir deilur við
Fatah-liða.
Andstæðar
fylkingar á
Gazasvæði
Nýju-Delhí. AFP. | Hæstiréttur í Indlandi úr-
skurðaði í gær að nóg væri að fórnarlamb
nauðgara bæri vitni um glæpinn, þá skyldi
dæma sakborninginn þótt niðurstöður
læknisrannsóknar væru ekki ótvíræðar. Al-
mennt væri ástæðulaust að rengja frásögn
þess sem nauðgað væri.
„Komi ekki neitt í ljós við rannsókn á öll-
um gögnum nauðgunarmáls sem bendi til
þess að fórnarlambið sé mjög líklegt til að
ljúga afbroti upp á sakborninginn ætti rétt-
urinn að öllu jöfnu ekki að hika við að taka
vitnisburð konunnar gildan,“ segir í úr-
skurðinum. Rétturinn bendir á að í lögum
sé ekki litið svo á að fórnarlamb nauðgunar
sé þátttakandi í glæpnum. Þess vegna sé
óþarft að styðja framburð konunnar með
frekari vitnisburði, t.d. lýsingu læknis.
Um 80% allra nauðgara í Indlandi sleppa
við dóm vegna skorts á sönnunum, lélegra
vinnubragða lögreglu við rannsóknina eða
hiks fórnarlambanna við að kæra. Dómar-
arnir sögðust gera sér grein fyrir þessari
staðreynd; oft þegðu indverskar konur um
nauðgun af ótta við að kalla hneisu yfir sig
og fjölskylduna.
Fórnarlömb
nauðgara séu
ekki rengd
„ÖKUMENN þessara hjóla hafa verið að aka í
grasi grónum brekkum og eru t.d. mikið í Mar-
ardal í Henglinum þar sem mikið er um hjólför.
Eins eru komin mjög mörg ný hjólför innan
Reykjanesfólkvangs og ég sé ekki betur en að
svæðið komi mjög illa undan vetri hvað það
varðar. Við sjáum mjög leiðinlegar skemmdir
t.d. við Sandvík á Reykjanesskaga,“ segir Andr-
és Arnalds, fagstjóri hjá Landgræðslu ríkisins,
um mjög aukinn utanvegaakstur torfæruhjóla.
„Manni blöskrar nú að sjá slóðir eftir þá bók-
staflega úti um allt. En enginn segir neitt. Að-
haldið er ekkert fyrir utan það litla sem ratar í
fjölmiðla,“ segir hann.
Snorri Jóhannsson, bóndi á Augastöðum í
Borgarfirði, segir að í fyrra hafi verið níðst á
gömlum uppgrónum árfarvegi á leiðinni fram á
Arnarvatnsheiði. „Þar var farið á hjólum í
fyrra og djöflast í farveginum eins og í keppn-
isbraut.
Þetta er virkilegt vandamál og það sem ég
hef séð til, þá eru þetta ekki krakkabjánar held-
ur rígfullorðnir menn á sumum þessara hjóla,“
segir Snorri. | Miðopna
Morgunblaðið/RAX
Vélhjólamenn hafa hringspólað sér til skemmtunar í nýgræðingnum í Sandvík. Landgræðslan sáði á sínum tíma í sandhólana og græddi upp svæðið.
Hringspólað í nýgræðingnum
Torfæruhjólamenn valda skemmdum á viðkvæmum gróðri í Sandvík
Í REYKJAVÍK er vöruverð í mat-
vöruverslunum umtalsvert hærra
en í höfuðborgum hinna Norður-
landanna, að því er fram kemur í
verðkönnun sem Verðlagseftirlit
ASÍ lét gera í verslunum í Reykja-
vík, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi,
Ósló og Helsinki dagana 9. og 10.
maí.
Ráku Reykjavík og Ósló þar lest-
ina og eru dýrustu borgirnar, en þar
kostar vörukarfa með algengum
undirstöðumatvörum 4.767 kr. og
4.613 kr. Í Stokkhólmi reyndist
karfan hins vegar ódýrust og var
verð hennar þar 2.488 krónur.
Verðmunurinn reyndist mestur á
kjöti, ostum, eggjum og mjólkur-
vörum, öðrum en drykkjarmjólk, en
hann mældist minni á grænmeti og
ávöxtum. Í Reykjavík voru egg t.d.
mun dýrari en í hinum borgunum
og kostaði kílóið hér rúmar 400
krónur, en ríflega 300 krónur í Ósló,
240 kr. í Kaupmannahöfn, 210 kr. í
Stokkhólmi og 150 kr. í Helsinki.
„Sláandi“ munur
„Niðurstöðurnar eru í takt við
aðrar kannanir og samanburð,
þannig að þetta kemur ekki veru-
lega á óvart og staðfestir þennan
verulega mun. En hann er veruleg-
ur og sláandi,“ segir Henný Hinz,
verkefnisstjóri hjá Verðlagseftirliti
ASÍ. Hún segir landbúnaðarvör-
urnar skera sig sérstaklega úr.
Matur dýrastur í Reykjavík
Matarkarfan tvöfalt dýrari en í Stokkhólmi samkvæmt könnun ASÍ
Vöruverð | 24
♦♦♦
Evróvisjón, Viðskipti og Íþróttir