Morgunblaðið - 18.05.2006, Page 2

Morgunblaðið - 18.05.2006, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 1 HÆST Í REYKJAVÍK Í Reykjavík er vöruverð í mat- vöruverslunum umtalsvert hærra en í höfuðborgum hinna Norður- landanna, að því er fram kom í verð- könnun sem Verðlagseftirlit ASÍ lét gera í verslunum í Reykjavík, Kaup- mannahöfn, Stokkhólmi, Ósló og Helsinki dagana 9. og 10. maí síðast- liðinn. Mótmæla breyttu kerfi Tugþúsundir Dana mótmæltu í gær á útifundum í Kaupmannahöfn og víðar tillögum um breytingar á velferðarkerfinu sem ætlunin er að leggja fram á þingi. Hægristjórn Anders Fogh Ramussen forsætis- ráðherra vill meðal annars hækka eftirlaunaaldurinn og lækka náms- lánin. Varkár spá Greiningarfyrirtækið Credit Sights fer varlega í að spá lækkun á tryggingaálagi á skuldabréfum ís- lensku bankanna sem eru til skamms tíma. Fyrirtækið segir að ekki muni koma á óvart þó sveiflur verði áfram á þessum markaði á næstu vikum. Prodi kynnir nýja stjórn Ný ríkisstjórn vinstri- og miðju- flokka undir forystu Romanos Prod- is var kynnt á Ítalíu í gær og er hún sextugasta og fyrsta stjórnin í land- inu frá lokum síðari heimsstyrjaldar 1945. Níu flokkar eiga aðild að stjórninni. Ýmsar aðgerðir Á fundi Sivjar Friðleifsdóttur heilbrigðisráðherra og stjórnenda Landspítalans var ákveðið að grípa til ýmissa aðgerða m.a. til að draga úr útskriftarvanda spítalans og fjölga starfsfólki. Spítalinn hefur staðið frammi fyrir mikilli manneklu undanfarið. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Umræðan 28/36 Fréttaskýring 8 Bréf 37 Úr verinu 15 Minningar 38/43 Erlent 16/17 Hestar 49 Minn staður 18 Myndasögur 50 Höfuðborgin 19 Dagbók 50/53 Akureyri 20 Víkverji 50 Landið 20 Staður og stund 52 Austurland 21 Leikhús 54 Daglegt líf 22/25 Bíó 58/61 Menning 26, 54/61 Ljósvakamiðlar 62 Forystugrein 32 Veður 63 Viðhorf 34 Staksteinar 63 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                 ! " # $ %              &         '() * +,,,                             BENEDIKT S. Lafleur, formaður Sjósundfélags Íslands, ráðgerir að synda yfir Ermarsund í sumar, sem er 32 km leið. Takist það verður hann fyrstur Íslendinga til að synda yfir Ermarsund. Benedikt hefur þegar skráð sig til sundsins á tímabilinu frá 30. ágúst til 5. september næstkom- andi. Hann fer til Englands 7. júní til að kynna sér aðstæður og und- irbúa ferðina. Tvenn samtök í Eng- landi annast skráningu slíkra Erm- arsundsferða, skipulagningu þeirra og útvegun fylgdar- og aðstoðar- manna. Uppfylla þarf ákveðin skil- yrði og fylgja ströngum reglum til að sundið fáist viðurkennt. Þessi at- riði lúta m.a. að öryggisþáttum, framkvæmd sundsins og hvernig sundmaðurinn nærist á sundinu. Hann má t.d. ekki snerta bátinn heldur verður að rétta honum mat- inn í háfi. Engum Íslendingi hefur tekist að synda alla leið yfir Ermarsund, en Eyjólfur Jónsson sundkappi gerði tilraunir til þess, að sögn Bene- dikts. Í eitt skiptið var Eyjólfur kominn nær alla leið þegar hann lenti í óhagstæðum hafstraumi sem bar hann af leið. Benedikt kvaðst vilja þreyta sund yfir Ermarsund í margþætt- um tilgangi. „Þetta er leið mín til að vekja athygli á sjósundinu. Hug- myndin er að þetta verði hluti af stærri verkefnum, bæði kvikmynd um sögu sjósunds á Íslandi og von- andi bók líka. Einnig hef ég hug á að efna til áheitasöfnunar og er í viðræðum við tvenn hjálparsamtök. Ég hafði í huga að leggja barátt- unni fyrir sakleysinu lið – gegn mansali, klámvæðingu og öllu sem vegur að sakleysinu. Mér finnst sjórinn hafa táknrænt gildi. Hann er hreinsandi fyrir sálina, hefur góð áhrif á ónæmiskerfið og er mikil forvörn.“ Benedikt undirbýr sig fyrir þol- raunina með ýmsum hætti. Hann segist synda mikið, bæði í sjó og sundlaug. Einnig hleypur hann, hjólar, gengur og reynir að stunda þríþraut – hjólar, hleypur og syndir í sjó. Þá gætir hann að mataræðinu og er með kort í tveimur líkams- ræktarstöðvum. Hann kveðst hafa átt góð samskipti við fyrirtæki sem hafa styrkt hann í kjölfar Vest- fjarðasundsins í fyrra. Sjórinn í Ermarsundi getur verið yfir 20 stiga heitur í lok ágúst og jafnvel hlýrri á yfirborðinu. Sam- kvæmt reglum mega sundmenn- irnir smyrja líkama sinn, sem auð- veldar sundið. Benedikt segir þetta snúast mikið um úthald og að geta fært sér hafstraumana í nyt. Því er mikilvægt að hafa góðan fylgdar- mann. Að sögn Benedikts eru menn nokkuð mislengi að synda yfir Ermarsund, allt frá tæpum sjö klukkustundum og upp í sólarhring. „Ég er ekki mjög hraðsyndur og þarf að búa mig undir að vera upp undir sólarhring í sjónum. Maður vill frekar einsetja sér að komast þetta en að gefast upp og hætta,“ sagði Benedikt. Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson Benedikt S. Lafleur undirbýr sig fyrir þolraunina með ýmsum hætti. Hyggst synda yfir Ermarsund Benedikt Lafleur vekur athygli á sjósundi og styður sakleysið Eftir Guðna Einarsson gudna@mbl.is ÍSLENSK erfðagreining greindi frá því í gær að fyrsti sjúklingurinn hefði hafið þátttöku í þriðja og síð- asta fasa prófana fyrirtækisins á nýju lyfi sem ætlað er til forvarna við hjartaáföllum. Prófanirnar fara fram í Bandaríkjunum og reiknað er með að 3.400 hjartasjúklingar muni taka þátt í þeim. Í frétt frá fyrirtækinu er haft eft- ir Kára Stefánssyni forstjóra að um mikilvægt skref sé að ræða, bæði fyrir fyrirtækið sem og lyfjaiðnað- inn almennt. Þetta væri í fyrsta sinn sem þekking á líffræðilegum orsökum algengs sjúkdóms sem fengist hefði með erfðarannsóknum skilaði nýju lyfi í síðasta fasa lyfja- prófana. Niðurstöður erfðarann- sóknanna verða einnig notaðar til að auka næmi lyfjaprófananna og segir Kári líkur á að þær skili já- kvæðum niðurstöðum. Markmiðið sé að þróa og markaðssetja ný lyf við algengum sjúkdómum á grunni uppgötvana á sviði erfðafræði. Prófanirnar munu einkum bein- ast að svörtum hjartasjúklingum með erfðabreytileika sem vísinda- menn Íslenskrar erfðagreiningar hafa sýnt fram á að auki verulega hættu þeirra á hjartaáföllum. Þátt- takendur munu taka 500 mg af lyf- inu eða lyfleysu tvisvar á dag. Kannað verður hvort færri hjarta- áföll, heilablóðföll, innlagnir vegna hjartakveisu eða bráðrar kransæða- víkkunar verði meðal þeirra sem taka lyfið en þeirra sem fá lyfleysu. Lengd lyfjaprófananna mun ráðast af fjölda sjúkdómstilfella meðal þátttakenda. Bráðabirgðagreining verður gerð á niðurstöðum þegar prófanirnar verða hálfnaðar. Próf- anirnar fara fram samkvæmt sér- stöku samkomulagi (e. Special Protocol Assessment, SPA) við Bandaríska lyfjaeftirlitið (FDA). Lyfjaprófanir á nýju hjartalyfi eru hafnar ALCOA, ríkisstjórnin og Húsavíkur- bær hafa undirritað viljayfirlýsingu um áframhaldandi rannsóknir á fjár- hagslegri hagkvæmni nýs álvers á Norðurlandi með 250.000 tonna framleiðslugetu á ári, að því er segir í sameiginlegri fréttatilkynningu iðnaðarráðuneytis, Alcoa og Húsa- víkurbæjar í gær. Viljayfirlýsingin fylgir í kjölfar samkomulags frá því í mars sl. um staðarval fyrir hugsanlegt álver á Bakka við Húsavík. Hún kveður á um þá vinnu sem Alcoa, ríkisstjórnin og Húsavíkurbær skuldbinda sig til að inna af hendi svo unnt verði að komast að niðurstöðu um hvort Alcoa reisir álver á Bakka. Hagkvæmnirannsóknin skiptist í þrjá áfanga og lýkur þeim hverjum um sig í október 2006, mars 2007 og júní 2008. Samkvæmt yfirlýsingunni verður hægt að byggja álverið í áföngum en með því móti yrði hægt að hefja framleiðslu ef orka kynni að verða fáanleg fyrr en ráðgert hefur verið. Orkuþörf álversins verður um 3.500 gígavattstundir á ári eða um 400 megavött. Samhliða viljayfirlýs- ingunni sem ríkisstjórnin, Alcoa og Húsavíkurbær undirrituðu mun Alcoa semja við Landsvirkjun um raforkusölu og við Landsnet um orkuflutning. Fyrsta og öðrum áfanga mun ljúka með áfanga- skýrslum sem og ákvörðun um hvort haldið verði áfram í næsta áfanga. Samkvæmt þriðja áfanga mun Alcoa skila Skipulagsstofnun skýrslu um mat á umhverfisáhrifum álvers á Bakka, ljúka útreikningum á fjár- hagslegri hagkvæmni álversins og staðfesta áframhaldandi þátttöku sína í verkefninu. Viljayfirlýsing um álver á Húsavík VALGERÐUR Sverrisdóttir iðnað- arráðherra segir að samstaða sé um það meðal ráðherra ríkisstjórnarinn- ar að gera þurfi ákveðnar breytingar á frumvarpi hennar um Nýsköpunar- miðstöð Íslands til að liðka fyrir af- greiðslu þess. „Það er ekki verið að tala um neina kollsteypu í þessu sam- bandi heldur einungis ákveðnar breytingar,“ segir hún en vill aðspurð ekki upplýsa um það í hverju breyt- ingartillögurnar felist. Þær séu þó ákveðið skref í þá átt að reyna að ná sátt um málið. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að starfsemi Byggðastofnunar, Iðn- tæknistofnunar og Rannsóknarstofn- unar byggingariðnaðarins sameinist undir merkjum nýrrar Nýsköpunar- miðstöðvar Íslands. Frumvarpið var afgreitt úr ríkisstjórn fyrr í vetur, og er það nú til meðferðar í iðnaðarnefnd þingsins. Allir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins í nefndinni hafa hins vegar lýst yfir efasemdum um frumvarpið. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins fundaði meirihluti iðnaðar- nefndar með formönnum stjórnar- flokkanna í síðustu viku þar sem frumvarpið var rætt. Engin niður- staða um lausn náðist á þeim fundi, eftir því sem Morgunblaðið kemst næst. Valgerður upplýsti hins vegar í gær að forystumenn stjórnarflokk- anna hefðu sammælst um ákveðnar breytingar á frumvarpinu, eins og áð- ur sagði. Hún segir að þær breyting- artillögur verði lagðar fyrir iðnaðar- nefnd. Ekki hefur verið ákveðið, samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins, hvenær næsti fundur iðnað- arnefndar verður. Valgerður Sverrisdóttir Sammála um breyt- ingar á frumvarpi ALCOA Fjarðaál sf., Afl – Starfs- greinafélag Austurlands, Rafiðnað- arsamband Íslands og Verkalýðs- félag Reyðarfjarðar skrifuðu í gær undir vinnustaðarsamning sín á milli. Samningurinn gildir frá 1. júní 2006 til 30. nóvember 2010 og nær til þeirra starfsmanna Alcoa Fjarðaáls sem munu vinna við framleiðslu- og viðhaldsstörf í álveri fyrirtækisins á Reyðarfirði. Alcoa Fjarðaál hefur þegar ráðið um 50 manns til starfa. Um 140 verða ráðnir á árinu. Samningar Alcoa í höfn ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.