Morgunblaðið - 18.05.2006, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 18.05.2006, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heilbrigðisverkfræði er nýlegt svið innan verkfræðinnar og það sem hvað mestur vöxtur hefur verið í á undanförnum árum. Í heilbrigðisverkfræði er fengist við verkefni sem tengjast lækningum, s.s. þróun gerviliða og gervilíffæra, einnig verkefni sem tengjast upplýsingakerfi mannslíkamans, rekstur heilbrigðiskerfa og margvísleg önnur verkefni. Heilbrigðisverkfræðingar starfa iðulega í hópum með læknum, sjúklingum, framleiðslufyrirtækjum og markaðsfólki og eru gjarnan í hlutverki þess sem brúar bilið á milli þessara aðila. HEILBRIGÐIS- VERKFRÆÐI - verkfræði framtíðarinnar Allar nánari upplýsingar á www.ru.is og hjá námsráðgjöfum í síma 599 6200. OFANLEITI 2, 103 REYKJAVÍK • HÖFÐABAKKA 9, 110 REYKJAVÍK SÍMI: 599 6200 www.ru.is F A B R IK A N 2 0 0 6 UMHVERFISRÁÐHERRA, Sig- ríður Anna Þórðardóttir, og sveit- arstjórn Bláskógabyggðar undir- rituðu í gær nýtt aðalskipulag Þingvallarsveitar. Skipulagið gild- ir frá 2004 til ársins 2016. Að sögn Sveins Sælands, oddvita Blá- skógabyggðar, er í skipulaginu lögð megináhersla á náttúruvernd og ásýnd svæðisins. Skipulagið hefur verið tilbúið frá því í nóvember sl. Ástæðan fyr- ir því að það hefur ekki verið stað- fest fyrr er að í vetur hefur verið unnið að reglugerð um vatnsvernd svæðisins og ráðuneytið vildi ekki undirrita skipulagið fyrr en ljóst væri að reglugerðin og skipulagið stönguðust ekki á í neinum atrið- um. Takmörkuð uppbygging á sumarhúsum leyfð Það mál sem einna helst var deilt um við gerð skipulagsins var uppbygging sumarhúsabyggðar. Í dag eru um 500 sumarhús á svæð- inu og um 190 óbyggðar sumar- húsalóðir. Niðurstaðan varð sú að leyfa takmarkaða uppbyggingu á sumarhúsabyggð á 2–3 stöðum. Öll frekari uppbygging verður á láglendi og eru settar skýrar regl- ur um stærð lóða og fleira. Skipulagið gerir ráð fyrir að Gjábakkavegur verði endurbætt- ur í nýju vegstæði. Miðað er við að vegurinn verði lagður í samræmi við tillögu Vegagerðarinnar. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur lagt fram tillögu um aðra veglínu, en náttúruverndarsamtök hafa mótmælt henni. Það mál verður því áfram til umræðu þó að þetta nýja skipulag hafi verið stað- fest. Sveinn Sæland sagði við undir- ritun skipulagsins að það væri ekki nokkur vafi á því að Þing- vallasveit geymdi helstu náttúru- perlur og söguminjar landsins, sem bæri að vernda af fremsta megni. Jafnframt væri ljóst að eft- irspurn eftir útvist og orlofsdvöl á svæðinu væri mikil og færi vax- andi. „Verkefni sveitarstjórnar, að móta aðalskipulag þar sem sjón- armið verndar og nýtingar fara saman, var því mjög vandasamt. Meginleiðarljós sveitarstjórnar við mótun stefnunnar var að vernda lífríki og ásýnd svæðisins en jafnframt, eins og framast var unnt, að gæta sanngirni og jafn- ræðis gagnvart landeigendum sem lýst höfðu áhuga á að byggja og nýta sína landskika.“ Aðalskipulag Þingvallasveitar til ársins 2016 staðfest Áhersla lögð á náttúru- vernd og ásýnd svæðis Morgunblaðið/Þorkell Nýtt aðalskipulag Þingvalla gerir ráð fyrir að Gjábakkavegur verði endurbættur í nýju vegstæði en nokkrar deildur stóðu um málið. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, keypti fyrsta Álfinn þegar árlegri söfnun SÁÁ var hleypt af stokkunum í gær. Forsetahjónin heimsóttu sjúkrahúsið Vog í gær- morgun, heilsuðu upp á starfsfólk og kynntu sér starfsemina þar. Einnig var haldið að Vík og að- staðan þar og starfsemin skoðuð. Álfasalan er nú haldin í 17. sinn og er langstærsta og mikilvægasta fjáröflunarleið samtakanna. Í fyrra lögðu þau 70 milljónir til lögbund- innar sjúkrahússtarfsemi. Í ár verð- ur athyglinni beint að hlutskipti fjölskyldunnar og aðstandenda þeirra sem eiga við sjúkdóm áfeng- is- og vímuefnafíknar. Í október næstkomandi verður opnað fjöl- skyldu- og forvarnarhús SÁÁ í Efstaleiti. Morgunblaðið/ÞÖK Álfasala SÁÁ hafin STARFSMANNARÁÐ Landspítala – há- skólasjúkrahúss ítrekar eindreginn stuðn- ing við byggingu nýs háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Þetta kemur fram í álykt- un sem samþykkt var í gær. „Húsakostur LSH er orðinn gamall og stendur starf- seminni fyrir þrifum. Þá er spítalinn á mörgum stöðum í dag, sem er afar óhag- stætt. Það er því ljóst að endurnýjun er nauðsynleg og má ekki dragast. Ákvörðun hefur verið tekin um uppbyggingu spít- alans við Hringbraut og hefur skipulegur undirbúningur byggingar staðið frá árinu 2000. Starfsmenn LSH hafa tekið virkan þátt í þeirri vinnu. Þá hafa stjórnendur ríkis og borgar átt ríkan þátt í því að leiða málið til lykta. Með nýjum spítala batna aðstæður sjúklinga, starfsmanna og nem- enda verulega.“ Þá segir að undirbúning- urinn er í eðlilegum farvegi og frá honum megi ekki hvika, segir í ályktuninni. Húsakostur stendur starfsemi fyrir þrifum HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands vestra hef- ur dæmt tvo karlmenn á tvítugsaldri til greiðslu 80 þúsund króna til ríkissjóðs, auk þess sem annar þeirra var sviptur ökuréttindum næstu tíu mánuði. Ákærðu, sem eru félagar, er gefið að sök að hafa annars vegar ekið bifreið und- ir áhrifum áfengis en hins vegar að hafa blekkt lögreglumenn. Annar mannanna var farþegi hjá félaga sínum sem ákvað að aka bifreið eftir að hafa drukkið ótæpi- lega af áfengi. Hringdi farþeginn í Neyð- arlínuna áður en akstur hófst og kallaði að ástæðulausu eftir hjálp handa manni sem hann sagði ranglega þurfa aðstoð og vera á bak við húsnæði sem þeir voru staddir í. Með athæfinu gerði hann sér og félaga sín- um kleift að komast óséðir burtu frá hús- næðinu. Það dugði þó skammt því þeir voru gripnir nokkru síðar á bifreiðinni. Halldór Halldórsson kvað upp dóminn. Blekktu lögreglu til að komast undan SINUBRUNAR hafa nokkrir orðið í Öskjuhlíðinni und- anfarið, tveir á mánudag og aftur tveir í gær. Sam- kvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæð- isins ollu brunarnir nokkrum skemmdum á trjám og öðrum gróðri. Eldarnir á mánudag kviknuðu nálægt veginum um Öskjuhlíð. Þá var fenginn mjög öflugur dælubíll með vatnsbyssu frá Reykjavíkurflugvelli til að bleyta í gróðrinum. Sá flytur sex þúsund lítra af vatni og getur sprautað þeim út um einn stút á tveimur mín- útum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sinubrunar í Öskjuhlíð „VIÐ FINNUM fyrir því að at- vinnuástandið er gott,“ segir Hanna María Jónsdóttir, rekstrar- stjóri stúdentamiðlunar Fé- lagsstofnunar stúdenta. Miðlunin hefur milligöngu um það að útvega námsmönnum á aldrinum 18 til 30 ára sumarstörf. Hanna María tekur sem dæmi að á bilinu 180 til 250 námsmenn hafi fengið störf í gegnum miðl- unina í síðustu viku. „Það eru allir að fá sumarvinnu,“ segir hún. Selma Árnadóttir, forstöðumað- ur Vinnumiðlunar ungs fólks (VUF), tekur í sama streng. VUF sér um að útvega fólki, sautján ára og eldra, sumarvinnu hjá Reykja- víkurborg. „Við erum með 1.200 störf innan borgarinnar og gengur ágætlega að manna þau.“ Hún segir að 2.400 hafi sótt um störf í vor og þar af séu um þúsund manns enn á skrá. Hún segir þó nóg af störfum á almenna markaðinum. Allir ættu því að geta fengið sumarstarf sem bera sig eft- ir því, og fylgja umsóknum eftir. Kannski ekki draumastarfið, segir hún, en þó sumarstarf. Flest hefjast sumarstörfin í lok maí eða í byrjun júní. Ungu fólki geng- ur vel að fá vinnu MANNRÉTTINDASTEFNA Reykjavíkurborgar hefur verið samþykkt í borgarstjórn með 14 samhljóða atkvæðum. Stefnan er byggð á jafnræðisreglunni og mið- ar að því að allar manneskjur fái notið mannréttinda, án tillits til uppruna, þjóðernis, litarháttar, trúarbragða, stjórnmálaskoðana, kynferðis, kynhneigðar, aldurs, efnahags, ætternis, fötlunar, heilsu- fars eða annarrar stöðu. Stefnan kemur í stað jafnrétt- isstefnu og fjölmenningarstefnu. Í nýju mannréttindastefnunni er kveðið á um að starfsmönnum borgarinnar af erlendum uppruna sé gefinn kostur á að stunda starfs- tengt íslenskunám sé þess þörf. Sérstök mannréttindanefnd á að fylgja stefnunni. Setur sér stefnu í mannréttindum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.