Morgunblaðið - 18.05.2006, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nei, nei, Haarde minn, hún er ekki ó-ó. Þegar þær þenjast svona út allt í einu þá er það nú
bara verðbólgu-skot.
Frístundabyggð viðÚlfljótsvatn hefurverið í umræðunni
að undanförnu en þar ráð-
gerir Orkuveitan í sam-
starfi við fasteignafélagið
Klasa, sameinuð í eignar-
haldsfyrirtækinu Úlfljóts-
vatn – frístundabyggð, að
selja um sex til sjö hundr-
uð lóðir undir sumarbú-
staði. Athugasemdir hafa
m.a. borist frá Bandalagi
íslenskra skáta, Starfs-
mannafélagi Reykjavíkur
og öðrum sem telja sig
eiga hagsmuna að gæta. Málið var
tekið fyrir á stjórnarfundi Orku-
veitunnar í gærdag og lagði Guð-
laugur Þór Þórðarson, borgar-
fulltrúi sjálfstæðismanna, fram
tillögu þess efnis að fyrirhugaðar
framkvæmdir verði dregnar til
baka og að málið verði allt endur-
skoðað frá grunni. Á fundinum
kom fram að ekki verði tekin af-
staða til tillagna sjálfstæðismanna
að svo komnu máli. Sveitarstjórn
Grímsnes- og Grafningshrepps er
nú að yfirfara athugasemdir sem
gerðar voru við auglýst skipulag
við Úlfljótsvatn og niðurstöðu það-
an verði að bíða.
Oddvitar framboðanna til borg-
arstjórnarkosninganna í Reykja-
vík hafa á málinu skiptar skoðanir
en sameinast um að taka verði til-
lit til allra athugasemda.
Björn Ingi Hrafnsson, oddviti
framsóknarmanna, segist styðja
áform Orkuveitunnar heilshugar.
„Ég held að um málið hafi verið
góð samstaða. Á sínum tíma þegar
þessar hugmyndir komu upp þá
vildu borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins helst selja þetta einkaað-
ilum en ég hef hins vegar talið að
það væri sniðugt fyrir Orkuveit-
una, sem er að nýta sín verðmætu
lönd til orkuvinnslu, að nýta þau
einnig með öðrum hætti og gefa al-
menningi kost á að vera með sum-
arbústaði á slíku landi sem hefur
auk þess mjög gott aðgengi,“ segir
Björn Ingi sem gefur lítið fyrir rök
sjálfstæðismanna. „Orkuveitan
hefur m.a. lögum samkvæmt rétt
og skyldur til að vera í nýsköpun
fyrir starfsemi sína og mér finnst
alveg sjálfsagt að skoða hvernig
tekst til.“
Orkuveitan á ekki að
standa í slíkum rekstri
Skoðun sjálfstæðismanna hefur
helst verið áberandi í umræðunni
að undanförnu og tekur Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson, fyrsti maður á
lista, undir tillögu Guðlaugs Þórs.
„Það eru komnar fram mjög ítar-
legar ábendingar og athugasemd-
ir frá bæði Bandalagi íslenskra
skáta og Starfsmannafélagi
Reykjavíkur og þetta eru allt
ábendingar sem þarf að skoða
mjög vel,“ segir Vilhjálmur sem
vill að málið sé endurskoðað á nýj-
an leik frá grunni. „Ég er ekki þar
með að útiloka að það verði ein-
hvern tíma byggð upp frístunda-
byggð þarna en það verður að
gera með þeim hætti að friður sé
um málið.“
Vilhjálmur bendir jafnframt á
að sjálfstæðismenn hafi ekki kom-
ið að þessu skipulagi og hafi jafn-
framt lýst því yfir að Orkuveitan
eigi ekki að taka þátt í slíkum
rekstri og að eðlilegra sé að aðrir
aðilar sjái um framkvæmdina.
Ástæða sé til að láta fleiri sjón-
armið en hagnaðarsjónarmið ráða
þegar ákvarðanir um almenn-
ingsútivistarsvæði eru teknar.
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingar, telur að við Úlf-
ljótsvatn eigi að vera útivistarað-
staða skáta og útivistarmöguleik-
ar annarra Reykvíkinga til
framtíðar. Frístundabyggð á
svæðinu megi og eigi ekki að úti-
loka það. „Í yfirstandandi skipu-
lagsferli hafa komið fram rök-
studdar athugasemdir við að
fyrirliggjandi hugmyndir gangi of
langt. Mikilvægt er að fara vel yfir
þær til að um málið geti skapast
góð sátt. Sérstaklega þarf að
passa upp á að ekki sé gengið of
nærri vatninu,“ segir Dagur sem
telur það Orkuveitunni góðu heilli
á valdi sínu vegna þess að ekki var
farið að vilja sjálfstæðismanna um
að selja þróun svæðisins alfarið í
hendur einkaaðila.
Ólafur F. Magnússon, fyrsti
maður á lista Frjálslynda flokks-
ins, segir afar mikilvægt að ráðast
ekki í framkvæmdir á svæðinu
sem spillt geta náttúru svæðisins
með óafturkræfum hætti. „Við
Úlfljótsvatn og Sog er mikið og
fjölbreytt fuglalíf. Svæðið er afar
mikilvægt vetrardvalarsvæði
fugla svo sem straumanda,
húsanda og gulanda. Á sumrin
verpir fjöldi anda við bakkana, auk
þess sem þar er oft að sjá sjald-
gæfa flækinga,“ segir Ólafur sem
jafnframt bendir á að stærsti hluti
deiliskipulags sumarhúsabyggð-
arinnar sé innan vatnsverndar-
svæðis Þingvallavatns.
Kynnt á röngum forsendum
Svandís Svavarsdóttir, sem
skipar efsta sæti á framboðslista
Vinstri grænna í Reykjavík, segist
telja að áformin hafi verið kynnt á
röngum forsendum á sínum tíma.
„Þegar ljóst var hvað lá að baki
var einboðið að við Vinstri græn
myndum leggjast gegn þeim og
beita okkur fyrir því að tillögurnar
yrðu dregnar til baka,“ segir
Svandís.
Fréttaskýring | Frambjóðendur um fyrir-
hugaða frístundabyggð við Úlfljótsvatn
Sátt verður
að ríkja
Frístundabyggðin í biðstöðu á meðan far-
ið er yfir athugasemdir hagsmunaaðila
Útivistarsvæði skáta við Úlfljótsvatn.
Ekki tekin afstaða til til-
lagna að svo komnu máli
Nokkur umræða hefur skap-
ast um frístundabyggð við Úlf-
ljótsvatn þar sem ráðgert er að
selja 600–700 sumarhúsalóðir.
Málið var tekið fyrir á stjórn-
arfundi Orkuveitunnar í gærdag
og var þá m.a. lögð fram tillaga
sjálfstæðismanna um að draga
framkvæmdir til baka. Fram
kom að ekki verði tekin afstaða
til tillagnanna fyrr en athuga-
semdir við auglýst skipulag við
vatnið séu yfirfarnar.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is