Morgunblaðið - 18.05.2006, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.urvalutsyn.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
A
U
G
L
†
S
IN
G
A
S
T
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
R
V
3
2
7
6
9
0
5
/2
0
0
6
Lokaútkall í næstu viku
Bókaðu strax
á www.urvalutsyn.is
4.900 kr. í viku*
Verð á mann
49.900 kr. í 2 vikur
*Netverð á mann á ofangreinda áfanga- og gististaði.
Verð er óháð fjölda í íbúð, en lágmarksfjöldi í íbúð er 2.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn.
Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis bætist við 2.000 kr. bókunar-
og þjónustugjald á mann.
Brottfarir í næstu viku
Flug Til Brottför Hlið Ath.
FI 940 Portúgal, Brisa Sol 23. maí 4 Lokaútkall
FI 902 Mallorca, Marina Plaza 23. maí 2 Lokaútkall
FI 968 Krít, Helios 22. maí 1 Lokaútkall
FI 968 Tyrkland, Forum 22. maí 1 Lokaútkall
FI 906 Benidorm/Albir, La Colina 24. maí 3 Lokaútkall
Takm
arka
ð
fram
boð
Fyrs
tur k
emu
r - fy
rstu
r fæ
r!
SÚ framtíðarstefna sem Háskóli
Íslands hefur markað fellur vel að
endurskoðun á námi í Kennarahá-
skóla Íslands sem skólinn hefur
unnið að sl. tvö ár og styrkir hug-
myndir um sameiningu skólanna.
Þetta sagði Ólaf-
ur Proppé, rekt-
or Kennarahá-
skóla Íslands, á
kynningarfundi í
Háskóla Íslands
í gær. Hann seg-
ir að ef við horf-
um á þessa til-
lögu um sam-
einingu út frá
hagsmunum
landsins sé engin spurning að
hrinda eigi henni í framkvæmd.
Það sé hins vegar mikilvægt að
vanda undirbúninginn vel.
Menntamálaráðherra hefur lýst
stuðningi við tillögu um samein-
ingu Kennaraháskólans og Há-
skóla Íslands. Starfshópur er nú
að fara yfir fyrirliggjandi tillögur.
Háskólinn hefur ennfremur sent
þær til einstakra deilda til um-
sagnar. Ólafur sagði að hann liti
svo á að ef ekki kæmu fram alvar-
legar málefnalegar mótbárur við
þessum tillögum ætti hann von á
að menntamálaráðherra legði fram
frumvarp um sameiningu skólanna
í haust.
Ólafur sagði að markmiðið með
sameiningu skólanna væri að efla
kennaramenntun í landinu og að
styrkja kennslu og rannsóknir í
nýjum sameinuðum skóla.
Kennaraháskólinn tók ákvörðun
fyrir tveimur árum um að end-
urskipuleggja allt nám í skólanum.
Ólafur sagði að það hefði lengi
verið baráttumál að lengja kenn-
aramenntun í landinu, en kenn-
aranám á Íslandi væri eitt það
stysta sem þekktist á Vesturlönd-
um. Skólinn hefði ákveðið að
breyta námi í grunndeild. Boðið
yrði upp á B.Ed. nám með svip-
uðum hætti og verið hefði, auk
BA- og BS-náms sem tengdist
ákveðnum fagsviðum og kennslu-
greinum. Þetta gerði nemendum
kleift að sérhæfa sig meira í námi.
Samhæfing mikilvægasta
og erfiðasta verkefnið
Ennfremur yrði tekið upp
tvenns konar meistara- og dokt-
orsnám, annars vegar nám sem er
meira starfstengt og hins vegar
nám sem er meira rannsóknar-
tengt. Í dag eru 90% nemenda í
Kennaraháskólanum í grunndeild
og 10% í meistaranámi. Markmiðið
væri að fjölga nemendum í meist-
aranámi þannig að þeir yrðu orðn-
ir 33% nemenda árið 2015 og 64%
stunduðu þá nám í grunndeild.
Markmiðið væri einnig að 2% nem-
enda yrðu í doktorsprófi árið 2015,
en þeir eru langt innan við 1% í
dag. Stefnan væri því að frá og
með hausti 2007 yrði boðið upp á
heildstætt fimm ára kennaranám
við skólann.
Ólafur Harðarson, prófessor og
deildarforseti félagsvísindadeildar,
sagði á fundinum að mestur ávinn-
ingur af sameiningu skólanna væri
að samhæfa fagnám í einstökum
deildum HÍ því námi sem boðið
hefur verið upp á í KHÍ, t.d. í
greinum eins og dönsku, íslensku,
stærðfræði og fleiri greinum.
Þetta væri jafnframt erfiðasta
verkefnið við sameiningu skólanna.
Ólafur Proppé tók undir þetta
og sagði að það væri útilokað frá
sjónarmiði KHÍ að sameina
skólana með þeim hætti að Kenn-
araháskólinn yrði 12. deildin í Há-
skóla Íslands. Hann sagði, með
fullri virðingu fyrir kennurum í
HÍ, að það mætti kannski segja að
kennarar í Háskóla Íslands hefðu
ekki verið nægilega meðvitaðir um
kennaramenntunarhlutverk sitt.
Með þessu væri hann að benda á
að stór hluti af nemendum við HÍ
færi í kennslu að loknu námi og að
þessari staðreynd þyrfti að huga.
Á fundinum komu fram áhyggj-
ur af því að menn myndu sameina
skólana án þess að hafa almenni-
lega hugsað hvernig það yrði gert
og menn gætu þess vegna vaknað
upp við það síðar að þetta væri
ekki hægt.
Ólafur Proppé sagði að það
mætti mikið læra af reynslu ná-
grannaþjóða okkar af sameiningu
háskóla. Það yrði verkefni há-
skólamanna að framkvæma sam-
eininguna, ef farið yrði út í þetta
verkefni. Frumvarp ráðherra yrði
væntanlega einfalt að efni til.
Endurskoðun á námi í
KHÍ fellur vel að stefnu HÍ
Ólafur Proppé
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
EIN MESTA byltingin í jafnréttis-
málum var þegar öllum börnum frá
tveggja ára aldri var úthlutað leik-
skólaplássi. Þetta er mat Steinunnar
Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra,
en hún ræddi stöðu jafnréttismála í
Reykjavíkurborg við samfylkingar-
konur í gær.
Nú seinustu vikurnar fyrir kosn-
ingar hafa konur í Samfylkingunni
staðið fyrir hádegisfundum í Al-
þjóðahúsinu á miðvikudögum og
stendur til að gera hið sama einu
sinni í mánuði næsta vetur.
Steinunn Valdís benti á að áður
hefði verið litið á leikskóla sem fé-
lagslegt úrræði, einkum fyrir náms-
menn og einstæðar mæður, og að
það hefði komið sér mjög illa fyrir
margar konur sem vildu hasla sér
völl á vinnumarkaðinum.
Á fundinum vakti Steinunn Valdís
athygli á þeim aðgerðum sem
Reykjavíkurborg hefur gripið til frá
því að R-listinn komst til valda árið
1994 í því skyni að vinna að jafnrétti
kynjanna, m.a. með ráðningu jafn-
réttisfulltrúa. „Árið 1995 fór fram
launakönnun þar sem 15,5% óút-
skýrður launamunur milli kynja kom
í ljós og þykir mér tími til kominn að
gera aðra launakönnun til að sjá
hvort allar jafnréttisframkvæmdir
hafi haft eitthvað að segja,“ sagði
Steinunn Valdís. Nú starfi um 8.000
manns hjá Reykjavíkurborg og af
þeim eru 75% konur. Konur séu í
meirihluta í stjórnunarstörfum, sem
sýni að þróunin er búin að vera mikil
síðustu ár því ekki væri mjög langt
síðan að engin kona var í stjórnunar-
starfi hjá borginni.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri fór yfir stöðu jafnréttismála
með samfylkingarkonum á hádegisverðarfundi í gær.
Leikskólar ein
mesta byltingin
Eftir starfsnemana Ólafíu Ingvars-
dóttur, Ingibjörgu Rúnarsdóttur og
Dagnýju Valgeirsdóttur
FYRRVERANDI heims- og Evr-
ópumeistarar í samkvæmisdönsum,
Karen Björk Björgvinsdóttir og
Adam Reeve, tilkynntu fyrir
skömmu að þau hygðust hætta
keppni en þau hafa keppt saman síð-
ustu átta ár með glæsilegum ár-
angri. Karen Björk sagði í samtali
við Morgunblaðið að komið væri nóg
af keppni að svo stöddu en gríðarlegt
álag fylgir því að ferðast á milli landa
vegna móta og sýninga. Meðal ann-
ars hafa þau sýnt dans víða um Evr-
ópu, Ameríku og Asíu. Karen sagðist
ennfremur vera ánægð með ákvörð-
unina „Ég er ánægð og sátt með
þessu ákvörðun, en samt er þetta ei-
lítið sorglegt. Ég hef dansað síðustu
19 ár og Adam síðustu 27 en við vilj-
um frekar hætta á toppnum en að
dala með tímanum og hætta gömul
og grá,“ en Karen og Reeve hafa
meðal annars orðið Ástralíumeistar-
ar sex sinnum. Aðspurð um fram-
haldið sagði Karen að þau myndu
halda sér í góðri þjálfun áfram og
sýna dans auk þess sem þau myndu
þjálfa dansara. Á prjónunum er að
opna dansskóla í Sydney í Ástralíu
og er áætlað að hann opni hinn 1. júlí.
Karen og Adam
hætta keppni
Karen og Adam keppa á móti í
Ástralíu fyrir skömmu.
DADI Janki, ein þekktasta kona
heims á sviði hugleiðslu og and-
legra málefna, mun á föstudaginn
næstkomandi heimsækja Lótushús-
ið í Kópavogi, en húsið er hug-
leiðslu- og fræðsludeild á vegum
Brahma Kumaris-háskólans, sem
Janki veitir forstöðu. Að sögn Sig-
rúnar Olsen, forstöðukonu Lótus-
hússins, er Brahma Kumaris-há-
skólinn gríðarlega stór stofnun með
7.000 miðstöðvar í 84 löndum með á
milli 800 og 900 þúsund nemendur,
en Janki lagði grunn að stofnun
hans árið 1937. Þrátt fyrir háan ald-
ur ferðast Janki víða um heim til að
heimsækja miðstöðvar Brahma
Kumaris auk þess sem hún situr í
stjórnum eða verndar fjölda alþjóð-
legra félaga og samtaka og má þar
nefna að hún er einn fjögurra
verndara mannréttindasamtakanna
Rights and humanity ásamt Des-
mond Tutu erkibiskupi, Hassan
Jórdaníuprinsi og Dalai Lama, and-
legum leiðtoga Tíbeta. Sigrún sagði
ennfremur að þetta væri í fyrsta
skiptið sem Janki heimsækti Ísland
en hún mun hafa mikinn áhuga á að
kynna sér land og þjóð. Hún mun
ferðast um landið auk þess sem hún
mun funda með forseta Íslands. Að-
spurð sagði Sigrún aldrei að vita
nema Janki og forsetinn myndu
setjast á teppi á Bessastöðum og
hugleiða.
Þekktur andlegur leið-
togi á leið til landsins