Morgunblaðið - 18.05.2006, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Verð frá19.900 kr.
Billund – 27. maí,
12. og 19. ágúst.
200 sæti
í boði til
-korthafa.
Má vísa
þér á
lægsta
verðið?
Lágmúla 4 • Sími 535 2100
Flug 23.900 kr. - 4.000 kr. afsláttur
á mann = 19.900 kr.
Verð frá 33.117 kr.
Mallorca* –
6., 23. og 30. maí.
Gisting á Ben Hur í 7 nætur
40.117 kr. - 7000 kr. afsláttur á mann.
Verð frá 39.990 kr.
Krít* –
22. maí og 5 júní.
Gisting á Malou í 7 nætur
43.930 kr. - 7000 kr. afsláttur á mann.
Verð frá 33.800 kr.
Portúgal – 23., 30.
maí, 13. og 20. júní.
Gisting á Elimar í 7 nætur
40.300 kr. - 7000 kr. afsláttur á mann.
Verð frá 39.150 kr.
Marmaris* Tyrkland –
23., 30. maí, 6.,13.
og 20. júní.
Gisting á Club Ilayta í 7 nætur
46.150 kr. - 7000 kr. afsláttur á mann.
Verð frá 33.190 kr.
Benidorm* – 31.
maí, 7. og 14. júní
Gisting á Buenavista í 7 nætur
40.190 kr. - 7000 kr. afsláttur á mann.
*Verðdæmi til VISAkorthafa og
miðast við að 4 ferðist saman. Miðað
við 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Innifalið er flug, gisting fararstjórn
erlendis og flugvallarskattar.
ROMANO Prodi, forsætisráðherra
Ítalíu, kynnti í gær ráðherra sína við
hátíðlega athöfn í forsetahöllinni í
Róm, eftir að Giorgio Napolitano,
nýkjörinn forseti landsins, hafði
samþykkt nýju stjórnina, sem er sú
sextugasta og fyrsta frá lokum síð-
ari heimsstyrjaldarinnar 1945.
Myndun stjórnarinnar gekk ekki
þrautalaust fyrir sig. Samningavið-
ræður á milli níu flokka stjórnar-
samsteypu Prodis stóðu langt fram
á nótt í gær og þykir úthlutun emb-
ætta benda til að hún verði lengra til
vinstri frá miðjunni en búist var við.
Forsætisráðherrann lagði í gær
hins vegar áherslu á að stjórnin yrði
öflug liðsheild. „Stjórnarliðið er
mjög sameinað og mun samheldnara
en nokkur lýsing á henni hefur gefið
til kynna,“ sagði Prodi í gær.
Óhætt er að segja að
þessi yfirlýsing sé þvert
á spár andstæðinga
hennar, sem bentu á afar
nauman sigur Prodis í
þingkosningunum 9. og
10. apríl og tveggja sæta
meirihluta í efri deild
þingsins.
Nákvæmlega 10 ár
voru í gær liðin frá því
þegar Prodi var fyrst
svarinn í embætti for-
sætisráðherra og þreytt-
ust andstæðingar hans
ekki á að minna á að fyrri
stjórn hans féll í kjölfar
þess að kommúnistar
neituðu að samþykkja traustsyfir-
lýsingu á hendur henni.
Líkt og búist var
við var Massimo
D’Alema, fyrrver-
andi forsætisráð-
herra, skipaður í
embætti utanríkis-
ráðherra, ásamt því
að Tomasso Padoa-
Schioppa, fyrrver-
andi stjórnarmaður í
Evrópska seðlabank-
anum, var skipaður
ráðherra efnahags-
mála.
Skipun Padoa-
Schioppa þykir
benda til að Prodi sé
í mun að afla stjórn
sinni trausts á meðal frammámanna
í atvinnulífinu og að Padoa-Schioppa
verði falið að draga úr mikilli
skuldasöfnun í tíð hægri stjórnar
Silvios Berlusconis.
Stjórnin lengra til vinstri
en búist var við?
Dagblaðið Corriere della Sera
fjallaði um nýju stjórnina á forsíðu
sinni í gær og komst að þeirri nið-
urstöðu að hún væri lengra til
vinstri en ráð var fyrir gert. „Ný
stjórn er fædd sem er lengra til
vinstri, ef höfð er í huga samsetning
hennar og tilfinning meirihluta
þeirra sem kusu hana,“ sagði í Corr-
iere della Sera.
Prodi er fæddur 1939 í bænum
Scandiano í Norður-Ítalíu. Hann er
gjarnan uppnefndur „prófessorinn“
og þykir harla litlaus í samanburði
við fyrirrennara sinn, hinn umdeilda
Berlusconi. Prodi er trúrækinn kaþ-
ólikki og kvæntur tveggja barna
faðir.
Prodi tekinn við völdum
Sextugasta og fyrsta ríkisstjórn Ítalíu
frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Romano Prodi
Amsterdam. AP. | Rita Verdonk, ráðherra innflytj-
endamála í hollensku ríkisstjórninni, ætlar að
endurskoða þá ákvörðun að svipta þingkonuna
Ayaan Hirsi Ali ríkisborgararétti, en Verdonk
sætti mikilli gagnrýni í gær í kjölfar þess að Hirsi
Ali greindi frá því á þriðjudag að hún hygðist
segja af sér þingmennsku og flytja frá Hollandi.
Hirsi Ali sagði, er hún greindi frá afsögn sinni á
þriðjudag, að útilokað væri fyrir sig að sinna starfi
sínu á meðan hún jafnframt ætti í lagalegri bar-
áttu fyrir því að halda ríkisborgararétti sínum.
Hirsi Ali er fædd og uppalin í Sómalíu en fékk
landvistarleyfi í Hollandi 1992. Hún laug hins veg-
ar til um hagi sína þegar hún fékk landvistarleyfið
og var það ástæða þess, að Verdonk leit svo á að
hún yrði á ný að sækja um ríkisborgararétt.
Heimskunn fyrir baráttu sína
Hirsi Ali er heimskunn fyrir andstöðu sína við
íslamska öfgamenn og hefur í nokkur ár verið
undir lögregluvernd vegna líflátshótana þeirra.
Jan Peter Balkenende, forsætisráðherra í Hol-
landi, var í hópi þeirra stjórnmálamanna sem
lýstu undrun sinni á þeirri hörku sem Verdonk
hefði sýnt í málinu. Líta margir þingmenn svo á að
ráðherrann hafi þarna hengt sig í tæknileg atriði –
en ýmsir telja raunar að aðgerðir hennar skýrist
af því að hún sækist eftir formennsku í hollenska
hægriflokknum VVD og vilji af þeim sökum sýna
hörku í innflytjendamálum. Skoðanakönnun sem
gerð var í Hollandi á þriðjudag sýndi á hinn bóg-
inn, að 49% aðspurðra voru sammála ákvörðun
Verdonk á meðan 43% voru henni andsnúin.
Heldur Hirsi Ali ríkisborgararéttinum?
SVARTFELLINGAR ákveða nú um helgina
hvort síðustu leifar hinnar gömlu Júgóslavíu
heyri sögunni til, en þá munu þeir greiða at-
kvæði um að slíta sambandinu við Serbíu og
gerast sjálfstæð þjóð.
Að Sambandsríkinu Júgóslavíu stóðu sex ríki
en eru nú aðeins tvö, Serbía og Svartfjallaland.
Í kosningunum á sunnudag verða svartfellskir
kjósendur, 485.000 talsins, spurðir þessarar
spurningar: „Viltu að Svartfjallaland verði sjálf-
stætt ríki með þeim réttindum og skyldum, sem
því fylgja?“
Þær reglur gilda um atkvæðagreiðsluna, að
55% kjósenda verða að svara spurningunni ját-
andi til að af sjálfstæði verði og kjörsókn má
ekki vera minni en 50%. Eru þessar kvaðir
komnar frá Evrópusambandinu, ESB, og und-
irrótin gamall ótti við ókyrrð á Balkanskaga. Sú
var líka ástæðan er ESB neyddi í raun Svart-
fjallaland til að mynda sambandsríki með Serb-
íu 2003. Margir hafa gagnrýnt þessi skilyrði
harðlega og benda á, að hefðu þau gilt almennt,
væru ESB-ríkin nokkru færri en þau eru nú.
Þéttbýlið gegn landsbyggðinni
Skoðanakannanir að undanförnu benda til, að
rúmlega 56% landsmanna muni kjósa sjálfstæð-
ið en andstæðingarnir, Sósíalíski þjóðarflokk-
urinn, sem vill áframhaldandi samband við
Serbíu, er samt bjartsýnn á, að sjálfstæðissinn-
arnir nái ekki tilskildum meirihluta. Fylgis-
menn sjálfstæðisins eru flestir í borgum og
bæjum en andstæðingar þess eru einkum á
landsbyggðinni, aðallega í fjallahéruðunum við
Serbíu þar sem fornar hefðir eru í hávegum
hafðar og fólk lítur almennt á sig sem Serba.
Tungumálið er enda það sama og trúin og sag-
an sjálf að mestu leyti. Varla þarf að taka fram,
að Serbíustjórn vill viðhalda sambandsríkinu og
hingað til hefur hún ekki viljað ræða við svart-
fellsk stjórnvöld um það, sem við taki, verði
sjálfstæðið samþykkt.
Milo Djukanovic, forsætisráðherra Svart-
fjallalands, eini framámaðurinn sem segja má
að hafi lifað af umrótið á síðasta áratug, segir,
að Svartfellingar vilji ekki láta Serba stjórna
sér en að óskin um sjálfstæði beinist þó ekki í
raun gegn Serbum, heldur snúist hún um það
meginmarkmið að fá aðild að ESB.
Svartfellingar greiða
atkvæði um sjálfstæði
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
AP
Opinber starfsmaður í Podgorica, höfuðborg Svartfjallalands,
gengur framhjá kosningaspjöldum þar sem kjósendur eru
hvattir til að segja já við sjálfstæði í kosningunum á sunnudag.
„Við viljum sjálf bera ábyrgð á framtíð okkar
í Evrópu,“ segir Djukanovic og bendir á, að
sambandið við Serbíu hafi verið þeim fjötur um
fót. Serbar dragnist með drauga úr fortíðinni,
menn eins og Ratko Mladic, sem er eftirlýstur
fyrir stríðsglæpi, og enginn viti enn hvað verð-
ur um Kosovo. Þetta bitni síðan illa á Svartfell-
ingum, ekki síst efnahagslega.
Mikið hitamál
Hugsanlegt sjálfstæði er mikið hitamál í
Svartfjallalandi og hefur oft komið til átaka
milli manna, stuðningsmanna þess og andstæð-
inga.
„Svartfjallaland verður sjálfstætt,“ sagði
Nedjo Spasojevic, þrítugur bifvélavirki, þar
sem hann sat og sötraði kaffi á veitingastað í
bænum Budva. „Það verður hrein martröð,
verði ekki af því.“
„Nei, ekki til að tala um,“ sagði Marko Djuric
við næsta borð. „Við og Serbar erum eitt.“
Margir óttast, að til verulegrar ókyrrðar geti
komið í Svartfjallalandi að loknum kosningum,
hver sem úrslitin verði.
Undir það tekur serbneski stjórnmálaskýr-
andinn Braca Grubacic, en hann segir, að sér-
staklega sé ástæða til að óttast, að upp úr sjóði,
verði sjálfstæðið samþykkt með meirihluta at-
kvæða en þó ekki nægum samkvæmt skilyrðum
ESB.
SVARTFJALLALAND er lítið
land, alls 13.812 ferkm. Íbú-
arnir eru um 650.000, þar af
rúmlega 150.000 í höfuðborg-
inni, Podgorica. Tungumálið
er serbneska og langflestir
tilheyra rétttrúnaðarkirkj-
unni.
Svartfjallaland var um
aldaraðir hluti af Aust-
rómverska ríkinu og síðar
Ottómanaríkinu en á ráð-
stefnu í Berlín 1878 var
furstadæmið Svartfjallaland
viðurkennt sem sjálfstætt
ríki. Landið féll síðar undir
Austurrísk-ungverska keis-
aradæmið, að því loknu undir
konungdæmi Serba, Króata
og Slóvena en varð síðar eitt
af sambandsríkjunum sex,
sem mynduðu Júgóslavíu.
Fátækt hefur alltaf verið
mikil í Svartfjallalandi en
hagvöxtur hefur þó verið að
aukast og var 4,1% á síðasta
fjárlagaári. Nota Svartfell-
ingar evruna sem gjaldmiðil
þótt ekki séu þeir orðnir að-
ilar að Evrópusambandinu.
Lítið land
og fátækt