Morgunblaðið - 18.05.2006, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 18.05.2006, Qupperneq 18
Ljósmynd/Jóhann A. Kristjánsson Grænfáni Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra aðstoðaði nemendur við að draga að húni. Reykjavík | Nemendur og kennarar við Öskjuhlíðarskóla fögnuðu því í gær að skólinn hlaut Grænfánann, alþjóðlega viðurkenningu fyrir umhverf- isstarf í skólanum. Það voru fulltrúar Landverndar sem af- hentu fánann við hátíðlega at- höfn í skólanum í gærmorgun, að viðstaddri Sigríði Önnu Þórð- ardóttur umhverfisráðherra, en að því loknu hófst hátíð þar sem gestir gátu m.a. skoðað sýningu nemenda með verkum sem unn- in voru í umhverfisfræðslu. Hátíð í Öskjuhlíðarskóla Grænfáni dekkar allt Hjólkó Smiðjuvegi 26, Hjólbarðaviðgerðin Akranesi, Gúmmívinnustofan Skipholti. 530 5700 Hjólbarðahöllin Fellsmúla 24 Réttarhálsi 2 Gúmmívinnustofan 587 5588 Ægisíðu 102 HjólVest 552 3470 www.hollin.iswww.gvs.is Söluaðilar 23 64 / TA K TÍ K Höfuðborgin | Akureyri | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu AKUREYRI Eftir Skapta Hallgrímsson blaðamann Sendinefnd frá risakjötvinnslufyrirtæki á Írlandi kemur í dag með einkaþotu til Ak- ureyrar, gagngert til að kynna sér tækni- væðinguna í kjötvinnslu Norðlenska. Þar er hún að skoða vinnslulínuna frá Marel sem þykir með því framsæknasta í dag og Morgunblaðið sagði frá í greininni Úr haga í maga í fyrra.    Forráðamenn BM-Vallár hafa viðrað þá hugmynd að flytja aðsetur fyrirtækisins til Akureyrar og byggja háhýsi á núverandi lóð. Um er að ræða svæðið við bakka Glerár þar sem Möl og sandur stóð lengi – og gerir líklega enn í hugum margra, en BM-Vallá keypti fyrirtækið fyrir nokkrum misserum.    Kristín Sigfúsdóttir, sem skipar 2. sæti á lista VG í bæjarstjórnarkosningunum, vakti athygli á því á dögunum að á Akureyri væru 713 bifreiðar á hverja 1000 íbúa en talað væri um mettun í Danmörku þegar samsvarandi tala væri orðin 600.    Heimspeki- og menningarfélag MA sýnir um þessar mundir leikritið Fyrir luktum dyrum eftir Jean-Paul Sartre í nýrri þýð- ingu Ásgeirs Bergs Matthíassonar, fyr- irliða sigurliðs MA í Gettu betur. Ég hef ekki komist vegna flensu en fólk sem ég treysti segir vel þessi virði að fara og rúm- lega það. Tvær sýningar eru eftir, á sunnu- dag og mánudag.    Mér er líka sagt að útskriftarsýning nema í Myndlistarskólanum sé fín. Þangað hef ég ekki heldur komist en á enn möguleika; hún var framlengd og lýkur kl. 18 í dag.    Knattspyrnuliðið Vinir Nunna á Akureyri mætir í kvöld Þór í bikarkeppninni á Árs- skógsvelli. Í Dagskránni í gær var leik- urinn auglýstur. „Einn leikmanna Þórs er með samningstilboð frá Hollandi. Nokkrir leikmenn Vina Nunna hafa komið til Hol- lands,“ segir m.a. í auglýsingunni! BLOGG: www.skapti.blog.is firði. Færðu þær Leik- hólum nokkur teppi handa börnunum til að leika sér að. Fyrir nokkru komu„Tíurnar“ fær-andi hendi á leik- skólann Leikhóla á Ólafs- Tíurnar eru félags- skapur kvenna sem koma saman og sauma búta- saum. Ljósmynd/Gísli Kristinsson Gáfu leikskólanum bútasaumsteppi Rúnari Kristjánssyniá Skagaströndblöskrar „Löngu- skerjadella“ framsóknar- manna: Framsókn með sinn fyrsta mann frökk á degi hverjum, glaðbeitt sýnir garpinn þann glotta á Lönguskerjum. Vafinn þangi og þaraglás þar með kynnisbjöllur, „Kjósið mig“ hann hrópar hás, „hér skal koma völlur!“ Áróðurs þó bylgjan brött blekki kannski suma. Öll er myndin út í hött, ýmsir mikið skruma! Einar Kolbeinsson yrkir að vori: Ógurlega aukast sé, auð í lífs míns högum, af því ég á fleira fé, en fyrir nokkrum dögum. Og Björn Ingólfsson: Hirðir vel um sína sauði, sér í hilling blómatíð, stöðugt rakar að sér auði Einar Group í Bólstaðarhlíð. Af Lönguskerjum pebl@mbl.is Vestmannaeyjar | Bæjarráð Vestmanna- eyja hefur falið bæjarstjóra að reyna, í samráði við bæjarráðsmenn, að ná samn- ingum við Landsflug, meðal annars um aukið sætaframboð í áætlunarflugi í sumar og lækkun flugmiða. Kemur þetta fram á vefnum sudurland.is. Á fundi bæjarstjórnar síðasta fimmtu- dag kom fram að Landsflug muni þurfa að leita til Flugfélags Íslands um leigu á Fokker 50 flugvél. Jafnframt kom fram á fundinum að fulltrúar bæjarins hafa átt í viðræðum við Landsflug um kynningar og markaðsmál vegna flugsins til Eyja. Arnar Sigurmundsson, formaður bæjar- ráðs, sagði við sudurland.is að á bæjarráðs- fundi sl. þriðjudag hefði verið farið yfir hugmyndir um aukið sætaframboð í sumar og fargjöld á flugleiðinni. Jafnframt hefði verið rætt um aðkomu Vestmannaeyjabæj- ar til þess að tryggja aukið sætaframboð og nokkra lækkun fargjalda. Leita samn- inga um aukið sætaframboð Laugarvatn | Umhverfisdagur verður haldinn á Laugarvatni á morgun, föstudag- inn 19. maí og hefst dagskrá kl. 15, við Vígðulaug. Byrjað verður á að fara hreins- unarferð um þéttbýlið og strandlengjuna umhverfis Laugarvatn. Það eru ung- mennafélagið og björgunarsveitin ásamt visthópum íbúanna og grunnskólinn sem standa að þessu átaki. Bátaleigan og björgunarsveitin leggja til farkosti á vatninu, menntaskólinn skip- stjóra og áhaldahúsið traktor, ökuþór og ruslapoka. Eftir hreinsunina verður boðið uppá svaladrykki og grillmat. Þá verður einnig settur upp markaður þar sem fólk getur komið með hluti sem það nýtir ekki lengur og skipt þeim út. Það sem ekki gengur út í skiptum eða prútti verður farið með til Rauðakrossins. Samhliða markaðnum verður farið í alls konar leiki, leitt undir á gæðingum, sullað í vatninu, byggðir sand- kastalar, fluttir leikþættir og stiginn dans fram til kl. 19, við undirleik Bjargarbands- ins. Einnig verður búið að opna í Gufunni. Umhverfis- dagur og markaður ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.