Morgunblaðið - 18.05.2006, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
LANDIÐ
Vestmannaeyjar | Kristinn Pálsson
lét af störfum hjá Vestmannaeyjabæ
eftir rúmlega hálfrar aldar starf um
síðustu áramót. Í daglegu tali er
hann Kiddi á heflinum en hans að-
alstarf frá upphafi var malarnám og
grjótmulningur. Malarnám skilur
eftir sig sár en þau hefur Kiddi viljað
græða á einhvern hátt og hans að-
ferð er að útbúa grjótskúlptúra og
efnið sækir hann í nágrennið.
Þegar Kiddi byrjaði í malarnám-
inu 1952 var það inni í Herjólfsdal og
fyrsta verkefnið var að mala grjót í
hús Útvegsbankans, síðar Íslands-
banka og enn síðar Glitnis, sem var
verið að byggja í Eyjum. „Þá var
ekki sami tækjabúnaður og í dag og
vorum við peyjarnir sendir upp í
brekkuna til að losa stuðla sem átti
að mala. Þegar þeir voru komnir nið-
ur þurftum við að brjóta þá með
sleggjum og bera á börum að möl-
unarvélinni,“ sagði Kiddi þegar
hann rifjaði upp fyrstu árin hjá bæn-
um.
Auk þess að mala grjót var hann á
veghefli bæjarins og við hann er
Kiddi kenndur. „Það var svo í lok
síðasta árs að mér og nokkrum öðr-
um voru boðnir starfslokasamningar
og hættum við um áramótin.“
Byrjaði með Auróru
Kiddi hefur lengið gert sér dælt
við listagyðjuna, var á yngri árum í
myndlistarskóla hjá Páli Stein-
grímssyni sem í dag er þekktastur
fyrir kvikmyndir sínar. Það var svo
fyrir tíu árum að hann fór að reisa
grjótskúlptúrana sína sem reyndar
hafa sumir orðið að víkja fyrir fram-
kvæmdum. „Þetta byrjaði með
henni Auróru,“ segir Kiddi og vísar
til fjögurra metra skúlptúrs sem
horfir til hafs á brekkubrúninni vest-
an við Viðlagafjöru á Nýja hrauninu.
„Hún er kennd við Auróru Friðriks-
dóttur sem á þessum árum var for-
maður umhverfisnefndar bæjarins.
Hún lét til sín taka í umhverf-
ismálum og þegar einn vinnufélag-
inn sagði að þarna væri Auróra lif-
andi komin fannst mér það passa og
hefur nafnið fest við hana. Þetta var
árið 1995 og var upphafið að þessari
skúlptúragerð minni. Nafnið passar
líka vel því Auróra er upprisan og
sólin.“
Malarnám bæjarins er nú í Við-
lagafjöru og þar er efniviðurinn allt
um kring. „Þegar ég fæ hugmynd
byrja ég á að leita að steinum sem
passa og fæ svo strákana á hjóla-
skóflunni til að draga þá á staðinn.“
Þar sem við stöndum við mal-
arnámið í Viðlagafjöru blasa við
nokkur af verkum Kidda og er eitt
áberandi stærst. Það heitir Óðurinn
til hafsins og var framlag hans til
verkefnisins „Hraun og menn“ en í
því tóku þátt myndlistarmenn frá
öllum Norðurlöndunum og er verk
þeirra að finna víða á Heimaey.
Munurinn er sá að þeir fengu verk
sín merkt með skildi, en ekki Kiddi.
„Ég veit ekki hvað verkin mín eru
orðin mörg en sum eru horfin og
bara til í minningunni,“ sagði Kiddi
að lokum.
Sum verkin bara
til í minningunni
Morgunblaðið/Sigurgeir
Steinar í mannsmynd Kristinn Pálsson hefur ekki lengur tölu á skúlptúr-
um sínum. Margir þeirra eru í hrauninu við malarnámið á Nýja hrauni.
Eftir Ómar Garðarsson
AKUREYRI
Kirkjubæjarklaustur | Skaftár-
hreppur hefur samið við Listasmíði
ehf. um byggingu sundlaugar og
uppsteypu þjónustubyggingar fyrir
íþróttamiðstöðina á Kirkjubæjar-
klaustri.
Listasmíði tekur að sér að byggja
sundlaug, vaðlaug, pott, búnings-
klefa og heilsuræktaraðstöðu og
eru framkvæmdir hafnar. Sund-
laugin verður 16,7 sinnum 8 metrar
að stærð og er áætlað að hún verði
tekin í notkun upp úr miðjum júlí í
sumar. Nýir búningsklefar verða
teknir í notkun síðar auk heilsu-
ræktaraðstöðu.
Samið um byggingu
sundlaugar
Landnemar | Fyrsti hópurinn í
svokölluðum Landnemaskóla var
útskrifaður fyrir skömmu við
hátíðlega athöfn í Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði. Sí-
menntunarmiðstöð Vesturlands
hafði veg og vanda af náminu sem
ætlað er fullorðnu fólki á vinnu-
markaði sem ekki á íslensku að
móðurmáli. Námið byggist á fjór-
um námsþáttum: íslensku, sam-
félagsfræði, tölvum og sjálfstyrk-
ingu og samskiptum.
fullkomlega samkeppnisfær,“
segir Oddur.
Um er að ræða fullkomna
punktsuðuvél, plötuklippur og
beygjuvél af fullkomnustu gerð,
allt tölvustýrð verkfæri.
Oddur sagði að þar sem Ak-
ureyri væri langstærsti mark-
aður Blikkrásar fyndist eig-
endum þess vel við hæfi „að láta
samtök sem láta sér samfélagið
hér varða og aðstoða þá sem
minnst mega sín í samfélaginu
njóta afmælisins með okkur [og
við] vonum [ ] að þessum nýju
vélum fylgi sú gæfa og gildi,
sem einkenna þessi samtök.“
Það var fulltrúi Mæðra-
styrksnefndar, Jóna Berta
Jónsdóttir, sem vígði plötu-
klippurnar og fulltrúi Hjálp-
ræðishersins, Sigurður Ingi-
marsson, sem vígði
beygjuvélina.
Á myndinni er: Siggerður
Tryggvadóttir og Jóna Berta
Jónsdóttir frá Mæðrastyrks-
nefnd, Oddur Helgi Hall-
dórsson frá Blikkrás og Rannvá
Olsen og Sigurður Ingimarsson
frá Hjálpræðishernum.
Í TILEFNI 20 ára afmælis
Blikkrásar afhenti eigandi fyr-
irtækisins í vikunni tvo styrki
að upphæð 100 þúsund kr.
hvorn, annars vegar Hjálpræð-
ishernum á Akureyri og hins
vegar Mæðrastyrksnefnd.
Við sama tækifæri tók fyr-
irtækið í notkun þrjár nýjar vél-
ar og þiggjendur styrkjanna
vígðu þær.
Eigandi Blikkrásar er Oddur
Helgi Halldórsson, blikk-
smíðameistari, og fjölskylda
hans. Blikkrás hóf starfsemi 2.
janúar 1986. Lengst af var fyr-
irtækið í leiguhúsnæði við
Hjalteyrargötu en fluttist í eigið
660 fermetra húsnæði við Ós-
eyri í október 2001. „Til að
standast samkeppni verður
maður að hafa góðan mannskap
og góðar vélar. Ég er svo hepp-
inn að hafa einvalalið í vinnu og
er starfsmannavelta mjög lítil.
Nú erum við að bæta tækja-
kostinn verulega. Þær þrjár vél-
ar, sem eru nýjar og við vígjum
í dag, koma okkur í fremstu röð
blikksmiðja á landinu, með
þessum nýju vélum erum við
Blikkrás styrkir
Mæðrastyrksnefnd
og Hjálpræðisherinn
Enginn Bónus á Höfn | Bónus
telur ekki grundvöll til að opna
verslun á Höfn í Hornafirði. Um
770 Hornfirðingar skrifuðu undir
áskorun til fyrirtækisins um að
opna verslun á staðnum. Á vefnum
horn.is er haft eftir Jóhannesi
Jónssyni í Bónus að markaðs-
svæðin séu stærri þar sem opnaðar
hafi verið Bónusverslanir á lands-
byggðinni.
VILJAYFIRLÝSING var í gær und-
irrituð af forráðamönnum Þekkingar-
varða ehf. og Landsafls hf. um bygg-
ingu annars áfanga Borga – rann-
sókna- og nýsköpunarhúss við
Háskólann á Akureyri. Halldór Ás-
grímsson forsætisráðherra var við-
staddur athöfnina í anddyri Borga.
Um er að ræða 4.000 fermetra bygg-
ingu annars áfanga vísindagarða við
háskólann og á húsið, sem ætlað er fyr-
irtækjum er vinna með háskólanum, að
verða tilbúið haustið 2007. Húsið sem
vígt var fyrir hálfu öðru ári er 5.700
fermetrar.
Þekkingarvörður ehf. er þróun-
arfélag fyrir Háskólann á Akureyri og
hefur það meginverkefni að byggja upp
vísindagarða og þekkingarþorp við
skólann, þar sem saman koma háskóla-
og rannsóknastofnanir ásamt þekking-
arfyrirtækjum til að sinna öflun, miðl-
un og hagnýtingu þekkingar. Að félag-
inu standa ólíkir aðilar á borð við
Samtök iðnaðarins, KEA, Iðn-
tæknistofnun, Akureyrarbæ og at-
vinnuþróunarfélög.
Landsafl hf. er fasteignafyrirtæki
sem er sérhæft í uppbyggingu á stærri
mannvirkjum til útleigu. Það félag á og
rekur m.a. Borgir við Norðurslóð á Ak-
ureyri.
Gert er ráð fyrir að Þekkingarvörður
leigi til lengri tíma tvær af fimm hæð-
um í umræddri viðbyggingu við Borgir.
Þar af er gert ráð fyrir að einni hæð
hins leigða húsnæðis verði ráðstafað
undir þekkingarsetur og skóla um end-
urnýjanlega orkugjafa. Fyrirhugað er
að upplýsingatæknifyrirtæki og sprota-
fyrirtæki starfi í hinni nýju byggingu.
Vonir standa til þess að IMPRA ný-
sköpunarmiðstöð flytji starfsemi sína í
hið nýja húsnæði og byggi þar upp ný-
sköpunaraðstöðu, háskólasamfélaginu
og atvinnulífi á Norðurlandi til heilla.
Rektor Háskólans á Akureyri, Þor-
steinn Gunnarsson, segir viljayfirlýs-
ingu um bygginguna undirstrika
tvennt: Annars vegar hversu mikilvægt
það er háskólanum að hafa Þekking-
arvörður sem bakhjarl og stuðnings-
aðila. Hins vegar undirstriki hin nýja
bygging þann kraft sem býr að baki
Háskólanum á Akureyri. „Með bygg-
ingu Borga fyrir einu og hálfu ári urðu
vísindagarðar við Háskólann á Ak-
ureyri að veruleika, þeir fyrstu í land-
inu. Nú er stigið enn eitt skrefið í að
byggja upp þekkingarþorp við Háskól-
ann á Akureyri“, segir Þorsteinn.
Benedikt Sigurðarson, stjórnar-
formaður Þekkingarvarða ehf., sagði
þetta vera mikilvægan dag fyrir félag-
ið. „Það er trú okkar að háskólinn verði
áfram sú aflstöð sem hann hefur verið
fyrir norðlenskt samfélag. Það verður
einungis með því að leiða betur saman
fyrirtæki og háskólasamfélagið á einum
stað.“ Hann segir að í hinu nýja húsi
verði lögð meiri rækt við nýsköpun.
„Við trúum á mátt nýsköpunar í að
treysta stoðir atvinnulífs hér á lands-
byggðinni,“ segir Benedikt.
Byggt við Borgir á næsta ári
Mynd frá ASK arkitektum af Borgum. Nýja álman – sem er til vinstri á myndinni
– verður byggð austur af húsnæðinu sem fyrir er.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Stækkun Skrifað undir viljayfirlýsingu um 2. áfanga Borga. Sitjandi frá vinstri:
Benedikt Sigurðarson, stjórnarformaður Þekkingarvarða ehf., Halldór Ásgríms-
son forsætisráðherra og Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA, sem vottuðu undir-
skrift. Í ræðustóli er Úlfar Örn Friðriksson, framkvæmdastjóri Landsafls, fast-
eignafyrirtækis sem byggir og rekur húsnæðið.