Morgunblaðið - 18.05.2006, Side 33
lega og með tilheyrandi skaða.
„Við höfum í vaxandi mæli rek-
ið okkur á að þessi hópur fer
stækkandi og spillir fyrir heild-
inni. Þeir grafa sér gröf og hana
djúpa, því Landgræðslan kemur
sífellt að lokuðum dyrum þegar
rætt er við landeigendur og sveit-
arfélög með það í huga að opna
æfingasvæði. En viðbrögð þess-
ara aðila eru orðin þannig að þeir
væmum svæðum svo í óefni stefnir að mati fagstjóra hjá Landgræðslunni
lóðirnar
m allt“
Torfæruhjólin skildu eftir sig djúp sár í mýri
við Djúpavatn um helgina. „Enginn segir
neitt,“ segir Andrés Arnalds.
tund og
m að mál-
torfæru-
ðinu í all-
rar nú að
flega úti
gir neitt.
utan það
Sveitar-
ð.
ð Djúpa-
Morgunblaðið/Einar Falur
Fjórir menn á torfæruhjólum voru nýverið á ferð við Kleifar-
vatn, en á svæðinu er bannað að aka vélknúnum ökutækjum.
vatn á Reykjanesi um helgina og
sá þar langar slóðir yfir við-
kvæma mýri. Þetta voru ljót og
djúp sár í gróðrinum og viðkom-
andi mönnum til mikillar skamm-
ar.“
En hver er lausnin að mati
Andrésar? Hann telur nauðsyn-
legt að koma upp aksturssvæðum
fyrir torfæruhjólin og hefur
Landgræðslan átt gott samstarf
við vélhjólaklúbbana VÍK og ÞÓR
í þeim efnum. „Þeir hafa unnið
geysilega gott starf,“ segir hann.
Æfingasvæði hafa verið útbúin í
Þorlákshöfn, Jósepsdal, Álfsnesi
og víðar. Og umgengnisreglur þar
eru strangar og þær virtar á
staðnum. En vandinn snýst um þá
sem ekki vilja virða boðskap
þessara klúbba né landslög, og
aka hvar sem þeim þóknast, ólög-
treysta ekki lengur mótorhjóla-
mönnunum sem mæta á svæði
sem í boði eru uns allt fer úr
böndunum. Fleiri og fleiri öku-
menn mæta þangað til þeir spýt-
ast út fyrir svæðin án þess að
virða lög og reglur. Staðan er því
orðin sú að menn þora ekki að
hleypa ökumönnunum nálægt sér.
Í mínum huga felst lausnin á
þessum vanda í þjónustu, þ.e. að
vélhjólamenn fái þá þjónustu og að-
stöðu sem þeir eiga vissulega rétt á
því það eru háar upphæðir sem
greiddar eru í aðflutningsgjöld af
hjólunum. En það gengur ekki að
koma þessu á skrið og áhugi um-
hverfisyfirvalda og lögreglu er því
miður ekki nægur. Ég get séð fyrir
mér að ef ekki tekst að koma þessu
í skaplegt horf, þá stefni hreinlega í
óefni.“
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 33
a-
g-
r-
m
u
ki
d-
ús
u
u
að
ur
rá
ur
n-
t-
ar
st
verður rithöfundaríbúð hér og
rithöfundar styrktir til að vera
hér, hálft ár í senn, næstu fimm
árin. Það á örugglega eftir að
auðga mannlífið hér.
Þessi samningur gerir það að
verkum að draumur okkar um að
koma bókasafninu fyrir í hent-
ugra húsnæði rætist.“
Heimamenn munu sjá um við-
hald húsnæðis Vatnasafns en
eignast bygginguna síðan aftur
að samningstímanum liðnum.
Fólk dragist að staðnum
Listakonan sagðist eftir undir-
ritunina vera lánsöm að fá að
þróa þetta verk, þessa samfélags-
miðstöð, á einstökum stað. „Ég
vil tjá þakklæti mitt og vona að
Vatnasafn verði gjöfult fyrir
samfélagið og leggi sitt af mörk-
um til aukinna lífsgæða fólks
hér.“
Artangel hefur komið að fjár-
mögnum margra umfangsmikilla
verkefna listamanna á liðnum ár-
um. Meðal þeirra má nefna fræg-
an skúlptúr Rachel Whiteread,
„House“, og allar Cremaster-
kvikmyndir Matthews Barneys.
Þetta er í fyrsta sinn sem
Artangel kemur að uppsetningu
verks á borð við Vatnasafn utan
Bretlands, en áætlað er að kostn-
aðurinn verði á þriðja hundrað
milljónir króna.
James Lingwood, stjórnandi
Artangel, ítrekaði að rætur
Vatnasafns væru algjörlega í
Stykkishólmi. „Hér verður til
margskonar merking og margs-
konar starfsemi mun fara hér
fram. Það kann að vera að þetta
sé eins og að kasta litlum steini út
í stórt vatn. En ef steinninn fellur
á réttan hátt í vatnið myndast sí-
fellt stærri hringir sem færast út
yfir yfirborðið. Þannig vonum við
að raunin verði með Vatnasafn.
Það hafi áhrif hér í bænum, síðan
á fólkið í landinu og loks á fólk í
öðrum löndum. Við vonumst til
að það dragist að þessum stað.“
Vatnasafn mun standa fólki
opið til skoðunar og fyrir hvers-
kyns uppákomur.
smiðstöð með verkum Roni Horn í Stykkishólmi
um Vatnasafn
Morgunblaðið/Einar Falur
wood, Þorgerður Katrín Gunn-
stjóri samgönguráðuneytis.
Roni Horn segir stefntað því að Vatnasafnopni í Stykkishólmi
í byrjun maí á næsta ári, en
ýmislegt þurfi að gera áður.
„Skipta þarf um þak á hús-
inu og breyta neðri hæð-
inni, þar sem eru geymslur
í dag, í rithöfundaríbúð,“
segir Horn við blaðamann
þegar gengið er um bygg-
inguna. „Við munum end-
urgera aðalhæðina og koma
fyrir því sem einhverjir
kjósa að kalla skúlptúr en
ég vil kalla ramma utan um
rýmið sem fólk mun nota
hér. Verkið tekur ekki yfir
rýmið heldur rammar það
inn. Vatnasafnið er byggt á
jökulvatni, helgað framtíð
Íslands.“
Listakonan er að hanna
glersúlur en í hverri þeirra
verður vatn úr ólíkum jökl-
um og jökulám Íslands og
verður þeim stillt upp í
byggingunni. Hún hlær
þegar hún er spurð að því
hvort safna þurfi miklu
vatni.
„Það verður meira en ég
hélt upphaflega, þar sem
súlurnar taka býsna mikið
magn. Ef ég get fengið þig
til að taka þátt í vatnssöfn-
uninni þá þigg ég það með
þökkum! Ég er að skrá fólk
í vinnu.“
Hún útskýrir að grunn-
hugmyndin sé að Vatnasafn
verði samfélagsmiðstöð.
„Byggingin verður al-
gjörlega aðgengileg fyrir
samfélagið, fólk getur verið
með þær uppákomur sem
það kýs og Vatnasafn mun
einnig vera með ákveðna
dagskrá í gangi.
Annan þátt sem hér birt-
ist og heyrist vil ég kalla
uppsafnaða sjálfsmynd Ís-
lands, sem ég set saman
sem skuggahöfundur.
Systkinin Oddný Eir og
Uggi Ævarsbörn eru að
safna viðtölum fyrir mig,
þar sem fólk segir sögur af
veðri. Veðrið sameinar okk-
ur öll, við eigum öll okkar
sögur um veðrið. Við hljóð-
ritum þessar sögur og gef-
um út íslenska útgáfu og
enska útgáfu til alþjóð-
legrar dreifingar. Við setj-
um upp vef þar sem fólk
getur lagt inn sögur. Freud
sagði að þegar þú talar um
veðrið sértu að tala um þig
sjálfan. Og í dag er veðrið
við sjálf,“ segir hún og vísar
í veðrabreytingar af manna-
völdum.
Áhugavert umhverfi
„Ég er mjög spennt fyrir
því að virkja samfélagið
hér, það er lykilatriði. Ég
vil búa til umhverfi þar sem
fólki finnst áhugavert að
gera eitthvað, þar sem fólk
getur fundið þörf til að taka
þátt í einhverju nýju. Bygg-
ingin er á einstökum stað,
umlukt hafi, og einn þáttur
endurbyggingar hússins er
að leggja áherslu á tilfinn-
inguna fyrir staðsetning-
unni. Þú getur komið hing-
að inn um nótt og lesið, eða
gert hvað sem þú vilt gera.“
Horn segir þessa bygg-
ingu bókasafnsins vera
grundvallaratriði; hún hafi
hrifist af henni fyrst þegar
hún kom til Stykkishólms
snemma á níunda áratugn-
um. „Ég man hvað ég var
hissa á að þetta væri bóka-
safnið. Það er ekki vani að
setja bókasafn á dýrmæt-
asta byggingarland bæj-
arins. Þar er alltaf kirkja
eða hús einhvers auðjöfurs.
Byggingin er ekki neinn
gimsteinn hvað arkitekt-
úrinn varðar en hún er sér-
stök. Mér finnst hún vera
eins og samruni bensín-
stöðvar og vita, hvað útlit
varðar. Ég breyti ekki arki-
tektúrnum og heldur ekki
anda hans.
Staðsetningin er einstök,
hér horfum við yfir hafið.
Svo var Stykkishólmur
fyrsti staðurinn á Íslandi
þar sem reglulega var farið
að skrá veðrið og það teng-
ist verkinu einnig sterkt.“
Veðrið verður einnig til
staðar í verki á gólfi Vatna-
safns, þar sem textar úr
You Are the Weather-
verkum listakonunnar, á ís-
lensku og ensku, verða
felldir í gúmmíefni á gólf-
inu.
Spennt fyrir að virkja
samfélagið hér
Morgunblaðið/Einar Falur
Listakonan Roni Horn og James Lingwood, stjórnandi list-
stofnunarinnar Artangel, við hið fyrirhugaða Vatnasafn.
ur sem heitir Vopnalág en þar var farið á
m í fyrra og djöflast í farveginum eins og á
isbraut. Fjöldinn af þessum hjólum er orðinn
legur og torfærumenn sem aka utanvega
ggja fyrir öllum hinum með því að haga sér
g skepnur. Þeir eyðileggja fyrir öllum hinum
u heiðarlegir og umhverfisvænir.
a er virkilegt vandamál og það sem ég hef
þá eru þetta ekki krakkabjánar heldur ríg-
nir menn á sumum þessara hjóla og ættu að
mati að hafa þroska til að nota þau svo að
ríki um þau,“ segir Snorri.
tnsheiði fékk ekki frið
inum
braut“
LÖGREGLAN í Keflavík hef-
ur haft afskipti af nokkrum
vélhjólamönnum vegna ólög-
legs utanvegaaksturs frá í
vor eftir að kærur hafa bor-
ist frá fólki sem hefur staðið
lögbrjóta að verki. Hefur
sumum málunum lokið með
sektargreiðslum. Lögreglan
segir vélhjólamenn beina
sjónum sínum talsvert að
Sandvík auk þess sem Krýsu-
víkursvæðið sé talsvert not-
að.
Eftirlit er með utanvega-
akstri á svæðunum að sögn
lögreglu og reynt er að fylgj-
ast með og bregðast við
ábendingum. Lögreglan segir
ný náttúruverndarlög hafa
auðveldað að taka á utan-
vegaakstri þar sem lögin séu
skýrari og allur utanvega-
akstur sé nú fortakslaust
bannaður. Þar með verði
auðveldara að koma lögum
yfir þá sem gerast brotlegir.
Lögreglan
sektar vél-
hjólamenn
„ARTANGEL hefur tekið
þátt í alþjóðlegum verk-
efnum, sem hafa verið fram-
kvæmd í Englandi, Banda-
ríkjunum, Þýskalandi og
víðar, eins og Cremast-
er-myndir Matthews Barn-
eys. En þetta er fyrsta verk-
efnið sem við fjármögnum
sem er staðsett utan Eng-
lands; Vatnasafn er með
ræturnar hér í Stykkis-
hólmi,“ sagði James
Lingwood, stjórnandi list-
stofnunarinnar Artangel,
sem fjármagnar verkefnið.
„Þetta er nokkuð sem við
höfum reynt að framkvæma
um hríð, en við þurftum
rétta listamanninn, rétta
staðinn og réttu samstarfs-
aðilana. Það tók okkur síðan
tvö, þrjú ár að ná þessu öllu
saman hér að gera Vatna-
safn að veruleika.“
Hann sagði að fyrst og
síðast væri þetta þó verk
Roni Horn. „Hún leggur gíf-
urlega mikið af mörkum.
Hún gefur þetta verkefni til
Stykkishólms og fær ekki
krónu fyrir. En það sýnir
hversu mikið hún vill leggja
af mörkum hér á Íslandi, og
þakka fyrir hvernig Ísland
hefur verið henni upp-
spretta og næring.“
Lingwood segir Artangel
safna peningum til að greiða
fyrir breytingu bygging-
arinnar, og fyrir verkin,
eins og veðurskráninguna.
Þá greiðir stofnunin einnig
laun rithöfundanna.
„Við gleðjumst yfir því að
leggja þetta fram. Í von um
að verkefnið muni endur-
óma um samfélagið, þrátt
fyrir að það sé ekki hávært.
Við vonum að það nái að
óma út fyrir Ísland, til um-
heimsins alls.“
Vonum að verkið ómi
til umheimsins