Morgunblaðið - 18.05.2006, Síða 39

Morgunblaðið - 18.05.2006, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 39 MINNINGAR okkar hafa síðan legið saman og þegar litið er til baka blasir við stór akur fallegra, litskrúðugra blóma einlægrar vináttu. Slíkan fjársjóð þakkar maður fyrir að hafa fengið að gjöf – fjársjóð sem aldrei hverfur. Gunnar var ekki maður margra orða en mjög fróður og ráðagóður. Hann hafði nánd, svo notað sé tísku- orð, sem gerði það að verkum að manni leið alltaf vel með honum og langaði ekkert að hætta að spjalla þótt tími heimferðar væri kominn. Einkenni góðrar vináttu er m.a. það að þótt einhverjar vikur líði milli samverustunda er eins og enginn tími hafi liðið. Minningabankinn geymir myndir af þéttvöxnum manni, ljósum yfirlitum með glettni í augum, oft að elda lúxusmat enda ,,konnissör“ í þess orðs fyllstu merk- ingu. Í hugann kemur myndröð úr ferðalaginu góða í fyrra þar sem út- gangspunkturinn var fjölskyldujörð Gunnars og systkina hans, Gagnstöð við Héraðsflóa, en í því ferðalagi var Gunnar fararstjórinn sem opnaði okkur hinum nýjar víddir sem ein- ungis heimamaður er fær um. Við minnumst síðasta ferðalagsins okk- ar saman sem farið var einungis þremur dögum fyrir fráfall Gunn- ars. Lítið ævintýri sem glitrar í hug- anum eins og öll hin. Við kveðjum góðan mann með þakklæti. Við vottum Lilju, Gauki, Helenu og Írisi Birnu, litlu sonar- dótturinni sem náði því að kynnast afa sínum, innilega samúð okkar og óskum þeim blessunar þess sem yfir öllu vakir. Ellen Ingvadóttir og Þorsteinn Ingi Kragh. Nú er skarð fyrir skildi. Vinur okkar, Gunnar Sigurðsson frá Gagn- stöð, er látinn. Okkur langar að minnast Gunnars í fáum orðum. Hann var lánsamur maður og voru gefnir margir bestu eiginleikar mannsins. Hann átti góða vini og naut góðs hjónabands. Þótt Gunnar træði sér aldrei fram þá varð flest- um fljótlega ljóst sem umgengust hann að þar fór mannkostamaður. Aldrei skeytti hann skapi og aldrei talaði hann illa um fólk. Hann var gagnrýninn á margt sem við menn- irnir tökum fyrir hendur en hann féll aldrei í þá freistni að hagræða sannleikanum. Hann gaf öllum möguleikann á að sanna sig og var góður hlustandi. Lítillátur, ljúfur, kátur mætti halda að hafi verið hans einkunnarorð. Við hjónin erum þakklát Lilju og Gunnari fyrir þann stuðning og vinsemd sem þau hafa sýnt okkur í gegnum tíðina, m.a. með því að opna heimili sitt fyrir okkur. Gunnar naut lífsins og lét það vera sem fól í sér mikla áhættu og fífldirfska var honum víðsfjarri. Lífsmáti hans var ef til vill það sem tryggingar snúast um enda var hann sérfræðingur á því sviði. Kæri vinur, nú ert þú lagður á djúpið þaðan sem enginn á afturkvæmt. Minningin um frábæran félaga og góðan dreng mun ylja okkur um ókomin ár. Elsku Lilja, Gaukur, Helena og Íris Birna, megi alvaldur blessa ykkur og styrkja. Kristrún og Magnús. Okkur langar í fáeinum orðum að minnast félaga okkar Gunnars Sig- urðssonar, stjórnarmanns í Verði- Íslandstryggingu. Gunnar var kos- inn í stjórn félagsins liðið sumar á miklum breytingatímum í rekstri þess. Strax kom í ljós yfirburða- þekking hans á öllu því er að trygg- ingum laut og nutum við, þeir reynsluminni, að ausa úr visku- brunni hans. Gott var að hafa slíkan reynslumann með í liðinu og alltaf var Gunnar tilbúinn að koma og leggjast yfir hluti, gefa góð ráð, fræða og skiptast á skoðunum. Eins var að Gunnar var hlýr maður með góða nærveru sem fór fram á hæg- látan og hógværan hátt, svona eins og viturra manna er háttur. Mynd- aðist strax með okkur gott samband og unnum við náið saman að hags- munum Varðar-Íslandstryggingar alveg fram á seinasta dag. Við, stjórn og starfsmenn Varðar- Íslandstryggingar, þökkum Gunnari Sigurðssyni þann tíma og þá góðu viðkynningu sem við áttum með honum. Hans skarð í stjórn félags- ins verður vandfyllt. Lilju Ólafsdóttur, eiginkonu Gunnars, og öðrum aðstandendum sendum við okkur innilegustu sam- úðarkveðjur. Helgi Jóhannesson, Sigurður Ólafsson. Hann var fjölmennur og glaðvær hópurinn sem útskrifaðist úr Sam- vinnuskólanum á Bifröst vorið 1960. Að baki voru tvö ár náms og leiks. Framundan beið lífið sjálft með öll sín fyrirheit, hver og einn hafði fundið sér starf, sem við hlökkuðum til að takast á við. Samvistin á Bif- röst var ljúf og góð. Með okkur sem þar vorum skapaðist rík vinátta og samkennd, sem vel hefur haldið. Þó leiðir hafi skilið og hver búið sér sinn farveg og samverustundirnar verið næsta fáar, höfum við alltaf vitað nokkuð hvert af öðru, glaðst yfir sigrum og giftu sem féll í skaut félögunum, en einnig harmað þegar sorgin hefur knúið dyra, sem því miður hefur verið of oft. Nú er slík stund. Bekkjarbróðir okkar mætur Gunnar Sigþór Sigurðsson hefur kvatt. Ég sem þessar línur rita, tel mig auðugri af samvistinni og kunn- ingsskapnum við hann. Við deildum á þessum tíma sömu skoðunum um þjóðmál, áhuga á ljóðlist og bók- menntum. Færri tækifæri gáfust þó til að iðka þá samræðu eftir að skóla lauk. Þó tel ég nokkuð víst, að þrátt fyrir allólíkan feril síðan og miklar breytingar í stjórnmálaflórunni, hafi skoðanir okkar og stefna í litlu breyst þó liðin séu 46 ár. Við vorum líka á þessum tíma sannfærðir anti- sportistar, hellarannsóknamenn og dyggir meðlimir úlpuliðsins í útivist- artímunum. Við gengum keikir und- ir gunnfána okkar, „gólftuskunni“, sem hengd var á gólfskrúbb, til þess eina kattspyrnuleiks sem við lékum og þá gegn skólasystrum okkar. Hlutdræg dómgæsla varð þó til þess að við töpuðum þessum leik, vegna vítaspyrnu sem á okkur var dæmd, þar sem einn okkar vösku drengja datt um sjálfan sig úti við kant. Af og til í áranna rás, höfum við bekkjarsystkin átt samfundi þar sem við höfum minnst merkra tíma- móta frá því árunum á Bifröst lauk. Síðast áttum við slíkan fund í byrjun júní á sl. ári austur í Mývatnssveit. Þegar við fórum í hringferð kring- um vatnið, var meðal annars stopp- að við Mývatnsósa. Flestir gengu þaðan að Miðkvísl til að skoða hina burtsprengdu stíflu. Við Gunnar höfðum þó hvorugur þrek til að klára þá göngu. Ég vegna fótar- meina úr nýafstaðinni Barcelona- ferð, Gunnar vegna þess sjúkdóms er hann hafði glímt við um árabil af einstökum hetjuskap. Við áttum þarna góða samverustund og sam- ræðu eins og fyrr á árum. Um kvöld- ið var svo sameiginlegur kvöldverð- ur í Hótel Reykjahlíð. Þar var ég svo lánsamur að sitja nærri Gunnari og Lilju konu hans og fleira góðu fólki. Þarna létti hver öðrum í geði með sögum, vísum og gamanmálum. Á sunnudeginum var svo ekið að Kröflu. Þar á barmi Sjálfskaparvítis kvaddist hópurinn. Þegar vinir kveðja er gott að eiga endurminn- ingar um slíkar stundir. Og nú er Gunnar lagður í ferðina löngu sem búin er okkur öllum. Ég kveð hann með eftirsjá, kærri þökk og virðingu. Lilju konu hans, syni þeirra og öðrum ættingjum votta ég mína dýpstu hluttekningu. En minn- ingin um góðan og gegnheilan dreng lifir. Slíkra er gott að minnast. Guðvarður Kjartansson. Nú er fallinn frá enn einn úr stóra bekknum okkar. Við vorum 38 sem útskrifuðumst frá Samvinnuskólan- um á Bifröst vorið 1960. Með Gunnari er genginn sá tíundi. Gunnar var strax valinn til að gegna stöðu aðstoðarkaupfélags- stjóra því að í skólanum var rekin lítil búð sem við kölluðum „kaup- félagið“. Þar fékkst ýmis nauðsynja- vara s.s. gosdrykkir, sælgæti, nagla- klippur og tóbak og var hægt að kaupa sígarettur í lausu. En ég þyk- ist muna að í reglum skólans hafi staðið að reykingar væru leyfðar en þættu „leiður löstur“. Við Gunnar áttum það sameiginlegt að vilja hætta eða a.m.k. halda ósiðnum í lágmarki. Fljótlega urðum við góðir spjallfélagar. Spjallhópurinn stækk- aði fljótt eftir því sem við kynnt- umst. Við ræddum um landsins gagn og nauðsynjar. Hann fylgdist þá þegar vel með stjórnmálum og öðru sem varðaði hag þjóðarinnar, rekstur kaupfélaganna o.fl. Þessi vinátta hélst alla tíð þó að oft liðu mörg ár á milli funda. Á þessum tíma átti enginn af nemendum bifreið og var undan- tekning að þeir færu nokkuð af staðnum, en verslunarstaðurinn var Borgarnes. Þaðan gátum við pantað ýmislegt sem kom svo með mjólk- urbílnum. Sæmundur í Borgarnesi kom með rúturnar sínar og flutti okkur þang- að sem við vildum. Mest héldum við okkur þó heima í skólanum. Þar leið okkur vel. Þessi skóli í því yndislega um- hverfi sem hann er átti eftir að móta okkur og nemendur í efri bekk miðl- uðu okkur af reynslu sinni frá vetr- inum á undan. Seinni veturinn var Gunnar orð- inn aðalkaupfélagsstjóri eins og tíðkaðist með verkaskiptingu ár- ganganna. Þá kom líka Lilja hans í skólann og fljótlega var framtíð hans ráðin. Lilja varð strax yndisleg vinkona okkar allra, en ég held að spjallstundum okkar Gunnars hafi fljótt fækkað. Á tímabili og í eina þrjá vetur hitt- umst við nokkrar skólasystur heima hjá Gunnari og Lilju á hverju mánu- dagskvöldi. Alltaf voru viðtökurnar jafn hlýjar og góðar. Tilgangurinn var að auðga andann og Gunnar lét okkur að mestu um það, en yfirleitt var hann búinn að laga handa okkur kaffi og oft bakaði Lilja brauð svo að næringin veittist okkur á fleiri en einn veg. Og ennþá hittumst við vin- konurnar af og til. Gunnar var vel hagmæltur en hógvær og lét lítið á því bera. Hann orti við mörg tækifæri og um okkur flest. Gunnar Sigurðsson var í orðsins fyllstu merkingu heiðursmaður sem sýndi samferðamönnum sínum ætíð virðingu og traust. Nú er dýrmætt að minnast síðasta samfundar okkar um helgi norður í Mývatnssveit sl. vor. Þar létu þau sig ekki vanta, þau Gunnar og Lilja. Ég vil þakka þeim hjónum fyrir 45 ára vináttu sem aldrei hefur brugðið skugga á. Lilju, Gauki, Helenu og auga- steininum Írisi Birnu sendi ég inni- legustu samúðarkveðjur frá okkur Tom. Ég hef einnig verið beðin að koma á framfæri innilegu þakklæti og samúðarkveðjum frá bekkjarfélög- unum. Guðrún Þórhallsdóttir Ludwig. „Ég get aðeins hvatt ykkur til að setja vináttuna ofar öllu öðru hér í heimi því ekkert er í jafn miklu sam- ræmi við innsta eðli mannsins. Það er ekkert sem hefur meira gildi, hvort heldur vel gengur eða á móti blæs.“ Um vináttuna eftir Cicero. Þessa bók færði Gunnar mér þeg- ar ég lét af störfum hjá VÍS á árinu 2001. Ég hóf störf hjá VÍS árið 1989, þá nýútskrifaður lögfræðingur. Gunnari kynntist ég strax fyrsta daginn í starfi mínu og varð okkur vel til vina. Við vorum nánir sam- starfsfélagar um árabil og kenndi hann mér margt á sviði vátrygginga. Aldrei bar skugga á þetta samstarf. Reyndist Gunnar mér velunnari í starfi, studdi mig og hvatti á ýmsa lund. En Gunnar var einnig mætur félagi og vinur. Áttum við margar góðar stundir og gátum spjallað um heima og geima. Aldrei velti ég fyrir mér aldursmun eða fann fyrir kyn- slóðabili. Gunnar var heimsmaður og afar virtur hjá erlendum vá- tryggingafélögum. Hann var for- dómalaus og hlýr maður. Það er með söknuði sem ég kveð ágætan vin og samstarfsmann til margra ára. Lilju og fjölskyldu votta ég heilshugar samúð mína. Hjördís E. Harðardóttir. Móðir okkar og tengdamóðir, ÓLÍNA ÁSA ÞÓRÐARDÓTTIR frá Grund, Akranesi, síðast til heimilis á dvalarheimilinu Höfða, lést sunnudaginn 14. maí. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 19. maí kl. 14.00. Sigurður Ólafsson, Ragnheiður Ólafsdóttir, Baldur Ólafsson, Þórður Helgi Ólafsson, Sonja Hansen, Ásmundur Ólafsson, Jónína Ingólfsdóttir, Gunnar Ólafsson, Ragnheiður Jónasdóttir, Ólafur Grétar Ólafsson, Dóra Guðmundsdóttir. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR DAÐASON fyrrv. bóndi á Ósi á Skógarströnd, andaðist á dvalarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ aðfaranótt föstudagsins 12. maí. Minningarathöfn fer fram í Árbæjarkirkju föstu- daginn 19. maí kl. 15.00. Jarðsett verður frá Narfeyrarkirkju laugardaginn 20. maí kl. 15.00. Þórir Guðmundsson, Hlíf Samúelsdóttir, María Guðmundsdóttir, Bragi Þór Jósafatsson, Daníel Jón Guðmundsson, Kolbrún Gunnarsdóttir, Ásdís Guðmundsdóttir, Rögnvaldur Jónsson, Auður Guðmundsdóttir, Sólmundur Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og lang- afi, BJARNÞÓR KARLSSON, Einimeli 19, Reykjavík, sem varð bráðkvaddur laugardaginn 13. maí 2006, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstu- daginn 19. maí kl. 15:00. Að ósk hins látna eru blóm og kransar afþakkaðar en þeim sem vilja min- nast hans er bent á líknarstofnanir. Guðrún Bjarnþórsdóttir, Guðmundur Hermannsson, Karl Bjarnþórsson, Harald P. Hermanns, Þórunn Símonardóttir, Þóroddur F. Þóroddsson, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, HREFNA BERGMANN EINARSDÓTTIR, Bústaðavegi 83, lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 12. maí 2006. Jarðarförin fer fram frá Grensáskirkju föstudaginn 19. maí kl. 13.00 Magnús Ásmundsson, Ásmundur Magnússon, Auður Magnúsdóttir, Halldór Kristiansen, Stefanía Júlíusdóttir, Sigurður Jónsson, Magnús Ásmundsson, Hrefna Ásmundsdóttir, Einar Halldórsson, Davíð Einarsson, Gabríel Aron og Mikael Máni Sigurðarsynir. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, HEIÐDÍS EYSTEINSDÓTTIR, lést á dvalarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ mánu- daginn 15. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Steinunn Klara Guðjónsdóttir, Páll Jóhannesson, Heiðar Ingi Svansson, Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir, Birna Klara Björnsdóttir, Þorgrímur Jónsson, Heiðdís Björnsdóttir, Þorvaldur Gísli Kristinsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.