Morgunblaðið - 18.05.2006, Page 43

Morgunblaðið - 18.05.2006, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 43 MINNINGAR Feðgar þrautakóngar hjá Súgfirðingum Feðgarnir Björn Guðbjörnsson og Guðbjörn Björnsson leystu spila- þrautirnar best af hendi og höfðu sig- ur í Þrautakóng Súgfirðingafélagsins. Tryggðu þeir sér sæmdarheitið „Súg- firsku þrautakóngarnir“. Spilaformið var tvímenningur í anda raunveruleikaþátta. Fækkaði borðum um eitt í hverri umferð, þau voru spiluð út úr þrautinni. Spilaður var Howell í fyrstu og síðan TOPS. Mun þetta keppnisform vera nýjung hér á landi. Umgjörðin er sótt til norrænnar goðafræði og einnig í raunveruleika- þætti einsog Idol, Survivor og Amaz- ing Race. Spilamennska feðganna minnti á frammistöðu Fram í knattspyrnunni undanfarin ár. Þeir voru í bullandi fallbaráttu í fyrstu umferðum en björguðu sér ávallt í síðasta spili. Í lokaumferðinni glímdu þeir við Gróu Guðnadóttur og Unnar Atla Guð- mundsson í fjórum spilum og höfðu sigur 219 gegn 181. Ásgeir Sölvason og Guðni Ólafsson höfnuðu í bronssætinu og Finnbogi Finnbogason og Þórður Adolfsson lentu í fjórða. Þeir sem náðu lengst í þrautinni höfðu gaman af spennunni þegar skormiðinn var skoðaður en það sagði fátt af þeim sem fengu spilastokkinn og voru sendir til Val- hallar. En þangað fóru allir vopn- dauðir menn. Átta pör mættu til leiks en spila- formið býður upp á mikinn sveigjan- leika. Ef mótið er fjölmennt þá er haldið um mitt mót upprisumót í Val- höll. En að morgni hvers dags gegnu einherjarnir út og spiluðu grimmi- lega. Margir særðust og féllu, en þeir risu strax upp aftur og gengu alheilir í Valhöll er degi tók að halla. Geta því þeir sem duttu út komist inn aftur og barist í Miðheimum. Spilastjóri var Sigurpáll Ingibergs- son og gefur hann fúslega upplýsing- ar þeim sem vilja prófa þraut þessa. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 5. maí var spilað á 10 borðum. Úrslit urðu þessi í N/S Oddur Jónsson – Katarínus Jónsson 264 Jón Hallgrímss. – Bjarni Þórarinss. 258 Friðrik Hermanns. – Bjarnar Ingimars. 241 A/V Sigurjón Sigurjónss. – Óli Gíslason 269 Einar Sveinsson – Anton Jónsson 255 Bragi V. Björnss. – Guðrún Gestsdóttir 247 Þriðjudaginn 9. maí var spilað á 10 borðum. Meðalskor var 216 10 pör voru mætt til leiks. Úrslit urðu þessi í N/S Kristrún Stefánsd. – Anna Hauksd. 263 Eysteinn Einarss. – Ragnar Björnsson 243 Ásgeir Sölvason – Guðni Ólafsson 232 A/V Björn Björnsson – Óli Gíslason 290 Kristján Þorlákss.– Haukur Guðmss. 244 Alfreð Kristjáns. – Ægir Ferdinants. 219 Þorvarður S. Guðmss. – Guðm.Bjarnas. 219 Föstudaginn 12. maí var spilað á 11 borðum. Meðalskor var 216. Úrslit urðu þessi í N/S Ásgeir Sölvason – Guðni Ólafsson 250 Sverrir Gunnarss. – Einar Markússon 245 Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 233 Kristrún Stefánsd. – Anna Hauksdóttir 230 A/V Jón Gunnarss. – Sigurður Jóhannss. 244 Stefán Ólafsson – Óli Gíslason 231 Þorvaldur Þorgrímss. – Hera Guðjónsd. 229 Sigurður Pálsson – Guðrún Pálsd. 225 Þriðjudaginn 16 maí var spilað á 13 borðum. Meðalskor var 312. Úrslit urðu þessi í N/S Bjarni Þórarinss. – Jón Hallgrímss. 369 Jóhann Benediktss. – Pétur Antonss. 347 Eysteinn Einarsson – Ragnar Björnsson 346 Ásgeir Sölvason – Guðni Ólafsson 343 A/V Jens Karlsson – Björn Karlsson 377 Jón Gunnarss.– Guðm.Bjarnason 364 Oddur Halldórss. Þorvarður S. Guðmss. 363 Ólafur Ingvarss. – Jóhann Lúthers. 336 Ekki verður spilað föstudaginn 19. mai. Næst verður spilað þriðjudaginn 23. maí. Spilað verður á þriðjudögum og föstudögum fram í júlí. Bridsfélag Hafnarfjarðar Lokið er tveggja kvölda tvímenn- ingi, sem jafnframt var síðasta mót vetrarins, með sigri Sigurðar Sigur- jónssonar og Guðlaugs Bessasonar sem hlutu samtals 377 stig. Í öðru sæti urðu Hrund Einars- dóttir, Dröfn Björnsdóttir og Vil- hjálmur Einarsson með 354 og Björn Arnarson og Halldór Einarsson þriðju með 347 sem og Friðþjófur Einarsson og Guðbrandur Sigur- bergsson með sama skor. Þrjú pör urðu efst og jöfn síðasta kvöldið með skorina 179. Það voru Erla Sigurjónsddóttir og Sigfús Þórð- arson, Sigurður Sigurjónsson og Guð- laugur Bessason og svo Ómar og Ein- ar. Að venju hefst starfsemin aftur í september í haust. Nánar auglýst síð- ar. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Feðgarnir Björn Guðbjörnsson og Guðbjörn Björnsson eru þrautakóngar Súgfirðingafélagsins í brids. Elsku Dísa. Það er erfitt að sjá á eftir svo mikilli persónu. Við systkinin í Laufási eigum margar góðar minningar um þær samveru- stundir sem við áttum með Dísu frænku. Þegar við vorum lítil ríkti alltaf eftirvænting og spenna í loftinu þeg- ar við biðum eftir því að Dísa og Hörður kæmu í heimsókn í sveitina því alltaf færðu þau okkur gjafir og nammi frá Reykjavík. Einnig kom með Dísu ákveðinn hressileiki og drifkraftur. Stundum kom þó fyrir að þið komuð ekki í heimsókn á sumrin og fannst okkur þau sumur hálfleiðinleg og spurðum þá afa stöð- ugt hvenær Dísa og Hörður kæmu í heimsókn. Einnig er það okkur minnisstætt hve söngelsk Dísa var og á öllum ættarmótum stóð hún fyr- ir því að allir færu að syngja og tralla. Erfitt reyndist þá oft að neita henni um það að vera með. Þegar við fórum að stálpast og skreppa suður til Reykjavíkur var alltaf ómissandi að koma við hjá Dísu frænku. Þar var alltaf tekið vel á móti okkur. Hún var vel lesin og hægt að ræða við hana um allt milli himins og jarðar. Dísa var alltaf tilbúin til að styðja okkur og hjálpa. Ávallt verða þær stundir sem við átt- um með Dísu vel geymdar í hugum okkar. Þórir Björn, Sigfríð Jóhanna, María Guðbjörg. Drottinn vakir, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og besta móðir ber hann þig í faðmi sér. Allir þótt þér aðrir bregðist, aldrei hann á burtu fer. Drottinn elskar, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (Sig. Kr. Pétursson.) Komið er að kveðjustund góðrar vinkonu okkar hjóna til margra ára- tuga. Sædís var mjög heilsteypt og vönduð kona sem gott var að eiga að vini, hún var sannur vinur vina sinna. Tvær utanlandsferðir fórum við SÆDÍS SIGURBJÖRG KARLSDÓTTIR ✝ Sædís Sigur-björg Karlsdótt- ir fæddist á Bónda- stöðum í Hjalta- staðaþinghá 8. maí 1934. Hún lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi 8. maí síðastliðinn og var jarðsungin frá Hafnarfjarðar- kirkju 16. maí. með þeim hjónum, Sædísi og Herði manni hennar, fyrri ferðina fórum við með þýsku skemmtiferða- skipi 1967 og var það ógleymanleg ferð sem oft var rifjuð upp er við komum saman. Seinni ferðina fórum við til Kanada 1999. Það skerpti vináttu okkar að báðar vorum við Austfirðingar. Oft var leitað til Sæ- dísar í sambandi við matargerð við brúðkaup og ferming- ar barna okkar, allt var sjálfsagt og það mátti treysta því sem hún tók að sér. Við störfuðum mikið saman í Kvenfélagi Garðahrepps eins og fé- lagið hét á þeim tíma, meðal annars sátum við í stjórn félagsins samtímis og minnist ég þess að Sædís var til- lögugóð og rökföst í sínum málflutn- ingi, enda vel gefin kona. Oft rifjuðum við upp minningar frá þeim tíma og skemmtum okkur vel yfir alls konar tilvikum sem upp komu, þá var hlegið mikið. Við Kristján og börn okkar þökk- um vináttu liðinna ára og sendum Herði, dætrum og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Hvíl í friði, Sædís mín. Þegar æviröðull rennur, rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi, Hel er fortjald, hinum megin birtan er. Höndin, sem þig hingað leiddi, himins til þig aftur ber. Drottinn elskar, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (Sig. Kr. Pétursson.) Nanna Helgadóttir. Traustur samstarfsmaður og góð vinkona okkar er látin. Leiðir okkar lágu saman við kennslu á matvæla- sviði Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Sædís var góður og samviskusam- ur kennari, vandvirk, listræn og samvinnufús. Hún bar virðingu fyrir starfinu sínu. Á árunum 1978–1997 var unnið að uppbyggingu matvælasviðs skólans. Matreiðslumeistari, framreiðslu- meistari, hússtjórnarkennarar og næringarfræðingur unnu saman að skipulagningu námsbrauta fyrir grunnnámsnemendur í matreiðslu og framreiðslu, sjókokka, matar- tækna og matarfræðinga. Þrátt fyrir frumstætt kennsluhúsnæði verk- námsgreina gekk þróun námsbraut- anna vel. Það var ekki síst að þakka áhuga skólastjórnenda og samstarfi við skóla og atvinnulíf. Í þessari uppbyggingu allri tók Sædís þátt af miklum áhuga og dugnaði. Minnisstæð er þátttaka kennara og nemenda í Norrænu samstarfs- verkefni um „Gæðavitund“ sem námsmarkmið á matvælasviði. Þá áttum við kennararnir kost á að fara í náms- og kynnisferð til Danmerkur og skoða skóla með hliðstætt náms- framboð.Árlegir viðburðir voru einn- ig „Opið hús“ og veislur fyrir kenn- ara, starfsfólk og gesti, þar sem allir tóku þátt og lögðu metnað sinn í að allt gengi sem best. Þessi samstarfs- ár voru góður og eftirminnilegur tími sem við minnumst með ánægju. Fyrir það viljum við þakka og einnig allar samverustundirnar á heimili þeirra hjóna og í fallegum sumarbústað á Flúðum. Þar ríkti gestrisni og samheldin fjölskylda sem Sædís var stolt af. Innilegar samúðarkveðjur til Harðar, dætra þeirra og fjölskyldna. Blessuð sé minning Sædísar Karlsdóttur. Bryndís Steinþórsdóttir, Elísabet S. Magnúsdóttir, Gerður H. Jóhannsdóttir, Grétar J. Sigvaldason, Halldór E. Malmberg. Við vorum 13 nemendurnir sem settumst í Hússtjórnarkennaraskóla Íslands haustið 1954, og komum víðsvegar að af landinu. Ein okkar var Sædís Karlsdóttir sem við kveðj- um í dag fyrsta úr hópnum. Með okkur tókust góð kynni, samstaða og samband sem varað hefur alla tíð síðan, m.a. með því að við hittumst reglulega á heimilum hver annarrar. Minnisstæð er Sædís okkur frá sumrinu sem við vorum á Laugar- vatni. Þá hafði hún kynnst Herði sem varð lífsförunautur hennar. Hún var ástfangin og geislaði af ham- ingju. Sædís var söngvin og lögin sem hún söng þá voru rómantísk og falleg. Það fór ekki mikið fyrir Sædísi. Hún var hæglát, prúð í framgöngu, falleg, fín og alltaf vel tilhöfð. Heim- ili þeirra hjóna var ætíð glæsilegt og bar vitni góðum smekk og hagleik þeirra beggja og hversu mjög þau lögðu sig fram við öll sín verk. Sædís var greind og var stöðugt að bæta við þekkingu sína, þar sem henni var mikið í mun að leysa störf sín af hendi með sóma. Hún fylgdist vel með, hafði ákveðnar skoðanir á þjóðfélagsmálum og lét þær hiklaust í ljós. Síðustu árin gekk Sædís ekki heil til skógar. Sárt var að sjá hve hratt henni hnignaði. Hörður og dæturnar léttu henni lífið eins og mögulegt var. Farsælli ævi er lokið. Við þökkum Sædísi samfylgdina og við söknum hennar. Herði, dætrunum og fjöl- skyldum þeirra sendum við innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Sædísar Karlsdóttur. Skólasystur úr HKÍ. Elskuleg frænka okkar er látin, langt um aldur fram, eftir stutta en erfiða sjúk- dómslegu. Maður trúir því ekki að Sonja sé horfin úr þessu jarðríki, en núna hafa þær sameinast á ný hún og dóttirin sem hún missti unga og ekki er langt síðan hún missti bróður sinn. Sonja var alltaf jákvæð og skemmtileg. Þegar við hittumst í apríl rifjuðum við upp ýmislegt sem við höfðum brallað saman á Langs- SONJA WERNER GUÐMUNDSDÓTTIR ✝ Sonja WernerGuðmundsdóttir fæddist á Langs- stöðum í Flóa 28. maí 1956. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands þriðju- daginn 2. maí síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Sel- fosskirkju 11. maí. stöðum og fengum stundum skömm í hattinn fyrir uppátæk- in. Við gátum hlegið að mörgum atvikum sem okkur fundust ekki fyndin þegar þau gerðust. Okkur langar að rifja upp þegar við vorum á Langsstöðum eitt sumar og smíðuð- um fleka sem við nefndum Andvara og ætluðum að sigla á í áveituskurðunum. Við þurftum að sjálfsögðu nagla og tóma olíubrúsa, fundum það í vélageymsl- unni en naglarnir urðu að hóffjöðr- um og þeir tómu brúsar sem við fundum vor yfirleitt með gati svo við bara helltum úr heilum brúsunum í þá með gatinu á, svo nú var allt klappað og klárt fyrir flekasmíðina og hún gekk mjög vel. En aldrei fór- um við í siglingu því Guðmundur pabbi Sonju þurfti að járna hestana og við vorum ekki í góðum málum, allar hóffjaðrirnar búnar. Við rifum hóffjaðrirnar úr flekanum og réttum þær kengbognu og settum þær aftur í kassann. En stutt var í hláturinn og allt fór vel að lokum og gleymdum við flekasmíðinni. Sonja fór ekki varhluta af missi og sorgum í lífinu, en styrkur hennar og æðruleysi hjálpaði henni. Elsku Sonja, það er svo erfitt að trúa því að við sjáum þig ekki aftur, Guð geymi þig í ljósinu. Elsku Guðmundur og Gabríel, ykkur sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum og vonum að guð styrki ykkur í sorginni. Nei, í öllu þessu vinnum vér fullan sigur fyrir fulltingi hans, sem elskaði oss. Því að ég er þess fullviss, að hvorki dauði né líf, englar né tignir, hvorki hið yfir- standandi né hið ókomna, hvorki kraftar, hæð né dýpt, né nokkuð annað skapað muni geta gjört oss viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú Drottni vorum. (Rómverjabréf 8.37-39) Gróa og Alda. Morgunblaðið birtir minningargrein- ar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkost- urinn „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum). Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Formáli Minningargreinum fylgir for- máli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hve- nær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvað- an útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningar- greinunum. Undirskrift Minningargreinahöfund- ar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.