Morgunblaðið - 18.05.2006, Qupperneq 47
AFMÆLI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 47
Nýr Mercedes Benz Sprinter 213
CDI pallbíll ESP, ASR, ABS, for-
hitari, líknarbelgur. Ekinn 2 þús.
km
Kaldasel ehf.,
Dalvegur 16b, 201 Kópavogur,
s. 544 4333 og 820 1070.
Smáauglýsingar 5691100
Mercedes Benz Sprinter 316
CDI dísel til sölu. 154 hestöfl,
sjálfskiptur, 8-15 manna. Einn
með öllu.
Kaldasel ehf.,
Dalvegi 16b, Kópavogi,
s. 544 4333 og 820 1070.
Toyota Corolla 1400 VVTI Sedan
Skrd. 12/2005, ek. 3 þ.km, ABS,
geislaspilari, samlæsingar, raf-
magn í rúðum.
Ásett verð 1.790.000,- Tilboð
1.690.000,- 100% lána möguleikar.
Skipti möguleg.
Uppl. í símum 580 8900, 699 6661,
896 0748 og 699 5801.
Toyota Corolla 1300 árg. 1999,
ek. 74 þ. km. Smurbók. Beinskipt-
ur, toppeintak, eyðir litlu. Verð
590 þús. eða tilboð. Upplýsingar
í síma 820 5814.
Fréttir í
tölvupósti
UM það leyti sem íslenska lýð-
veldið var að ganga í garð var fá-
menn fjölskylda að undirbúa
brottför sína úr Hraunhreppn-
um, heimasveit sinni á Mýrum
vestur, til nokkuð fjarlægra
heimkynna þó í sama héraði
mætti kalla. Þetta voru þau Sig-
urbergur Frímannsson og Aðal-
heiður Kristinsdóttir, sem að
endaðri könnun á möguleikum til
jarðnæðis hurfu frá Fíflholtum,
æskuheimili Sigurbergs, og sett-
ust að frammi í Hálsasveit ásamt
barnungum syni. En því eru
þessar línur festar hér á blað að í
dag, 18. maí, er Aðalheiður 90 ára
og Sigurbergur hefði orðið 95 ára hefði
honum enzt aldur, en hann lézt 20. nóv-
ember síðastliðinn.
Bæði voru þau fædd í Húnavatnssýslu,
en Sigurbergur átti til ættarslóða að rekja
um vestanverðar Mýrar. Þar kom hann
ungur til fósturs hjá hjónunum Sigurði
Jónssyni og Halldóru Stefánsdóttur, sem
ráku búskap í Fíflholtum nákvæmlega
fimmtíu ár ef frá er talið eitt húsmennsku-
ár á staðnum. Faðir Sigurðar, Frímann
Sigurðsson, öðlaðist kvonfang norðan
heiða og átti þar langa viðdvöl en fluttist til
æskusveitar hátt á fimmtugsaldri, eigi svo
mörgum árum fyrir andlát sitt.
Aðalheiður kom á Mýrarnar á bezta
aldri og gerðist húsfreyja í Fíflholtum og
þar með fósturdóttir nýrrar sveitar um
áratuga skeið. Var það þó einkanlega eftir
tveggja ára búsetu í Lundarreykjadal í
framhaldi af Hálsasveitarárinu, en þá
sneru þau vestur á bóginn á ný. Leiðin lá
raunar ekki að Fíflholtum þar sem Sig-
urbergur hafði verið bóndi fyrir brottför
sína 1944, alls tíu ár, heldur að Skíðsholt-
um, og þá var komið árið 1947. Á þessum
bæ, sem Sigurbergur kenndi sig oftast við
síðar, lifðu þau síðan lífi sínu í blíðu og
stríðu, og stóð sú viðdvöl hátt á þriðja ára-
tug. Meðal þess sem eitt sinn þurfti að
horfast í augu við var húsbruni, en skjót-
lega rofaði til að nýju og þau voru aftur bú-
in að hasla sér völl í nýreistu húsi. Og á
þessum stað ólust upp börnin þeirra, Sig-
urður, Ásgeir og Hólmfríður Stella.
Hagur fjölskyldunnar fór batnandi er
tímar liðu og nútímaleg tækni hóf smám
saman að bæta lífshættina. En allir dagar
eiga sér kvöld, einnig í táknrænni viðmið-
un. Aðalheiður og Sigurbergur luku sam-
vistum sínum og nú hefur Aðalheiður búið
í Svíþjóð ásamt elzta og yngsta barni sínu
svo farið er að skipta tugum ára. Sigur-
bergur gerðist hins vegar vistmaður á
Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi um
svipað leyti eftir nokkra dvöl fjarri heima-
sveit. Samfundir hans við þau sem í fjar-
lægð bjuggu voru því stopulir, og ánægju-
legt var það þegar þau Aðalheiður héldu
upp á síðustu stórafmæli sín saman ásamt
nánasta skylduliði fyrir fimm árum.
Þrátt fyrir tímabundna erfiðleika á
ýmsum tímum virtist Sigurbergur alla-
jafna bera með sér þau einkenni að vera
glaðvær maður. Hann unni mjög sönglist
og hafði ósvikið yndi af að taka þátt í
fjöldasöng. Minnist ég ekki hvað sízt gisti-
nótta hans fyrir haustréttir þegar haldið
var uppi söng alþýðulaga langt fram eftir
kvöldi og stundum fram á nótt. Og væri
hann heimsóttur á síðasta skeiði ævinnar
ómuðu margoft söngvar úr hljómtæki
hans og undi hann því vel þó hann væri
hættur að taka lagið sjálfur. Þá er ótalið að
honum var sú list lagin að líkja eftir rödd-
um manna. Hann var verulega hneigður
fyrir dans og þótti honum hin ljúfasta
stund að eiga þess kost að gleðjast með
glöðum í félagsheimili heimasveitarinnar
gömlu.
Þegar litið er yfir hina löngu veru Að-
alheiðar í Hraunhreppnum verður sú
minning að líkindum ofarlega í huga að
hún hafi verið fremur hljóðlát kona sem
ætíð lét fara lítið fyrir sér í félagslegu til-
liti. En heima fyrir stundaði hún þá list að
semja ljóðin sín og stundum sendi hún
slíkt efni til flutnings við hátíðleg tækifæri.
Loks kom að því að hún sendi frá sér ljóða-
bókina Sporaslóð árið 1985, sem geymir
yfir 120 ljóð, stór og smá. Færri munu vita
að hún lagði einnig stund á samningu
sönglaga er hún varðveitti í fyrstu með því
að syngja þau inn á band. Vil ég fullyrða að
þessi lög séu samin af tilfinningu og
smekkvísi og að stuðla þyrfti að frekari
flutningi þeirra en orðið er, en þau hafa
fyrir allnokkru verið raddsett.
Um leið og Sigurbergs er minnzt sem
góðs vinar vil ég mega óska þess að Að-
alheiður eigi enn eftir mörg farsæl ár á
þeim slóðum sem hún kaus sér að verustað
þegar aldurinn færðist yfir. Með innileg-
um hamingjuóskum.
Bjarni Valtýr Guðjónsson.
SKÍÐSHOLTAHJÓNIN
Félagslíf
Í kvöld kl. 20.00 bæn og lof-
gjörð. Umsjón Elsabet og Mir-
iam.
Fimmtudagur 18. maí 2006.
Í tilefni 70 ára afmælis Hvíta-
sunnukirkjunnar Fíladelfíu, Há-
túni 2, mun samkoman verða
haldin þar kl. 20.
Söngur og vitnisburður.
Ræðumaður Richard Dunn.
Allir hjartanlega velkomnir!
70 ára afmælishátíð
Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu
Fimmtudagur 18. maí
Sjónvarpsupptaka kl. 17:00.
Samkoman verður svo sýnd á
RÚV á hvítasunnudag.
Mætum tímanlega kl. 16:30 og
verum í bæn fyrir samkomunni.
Allir velkomnir, á eftir verður
boðið í grill.
Kl. 20:00 samkoma í umsjá
Samhjálpar. Ræðum. Richard
Dunn.
Föstudagur 19. maí
Kirkja unga fólksins - Tónleikar
kl. 20:00. Frítt inn www.filo.is
Laugardagur 20. maí
Fjölskyldukarnival kl. 13:00 -
17:00.
Lífleg dagskrá fyrir alla fjölskyld-
umeðlimi sem endar með söng-
vastund þar sem við rifjum upp
gömlu góðu lögin.
Sunnudagur 21. maí
Brauðsbrotning kl. 11:00.
Ræðum. Richard Dunn, fulltrúi
Assemblies of God fyrir N-Evr-
ópu. Kl. 13:00 Grillveisla
Afmælissamkoma kl. 16:30
Ræðum. Egil Svartdhal forstöð-
umaður Fíladelfíu í Oslo.
Gospelkór Fíladelfíu leiðir söng.
Aldursskipt barnakirkja á meðan
samkomu stendur fyrir börn 1-
12 ára.
Hægt er að hlusta á beina út-
sendingu Lindinni fm 102,9 eða
horfa á www.gospel.is
Raðauglýsingar
sími 569 1100
Raðauglýsingar 569 1100
Heimsferðir bjóða frábært til-
boð til Benidorm í júní. Þú
bókar og tryggir þér flugsæti
og 4 dögum fyrir brottför
færðu að vita hvar þú býrð.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Benidorm
1. júní
frá kr. 29.995
Síðustu sætin
Verð kr. 29.995
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára. Stökktu tilboð 1. júní. Flug,
gisting, skattar og íslensk fararstjórn.
Munið Mastercard
ferðaávísunina Verð kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herb./stúdíó-
íbúð. Stökktu tilboð 1. júní. Flug,
gisting, skattar og íslensk fararstjórn.
FRÉTTIR
PAPINOS Pizza opnar í dag, fimmtudaginn 18.
maí, nýjan Papinos Pizza-stað í Hverafold 1-5 í
Grafarvogi en Papinos Pizza er einnig í Núpa-
lind 1 í Kópavogi og á Reykjavíkurvegi 62 í
Hafnarfirði. Eigendur eru Elís Árnason, Eggert
Jónsson og Þórhallur Arnórsson.
Hönnuður nýja Papinos er Jóhann Sigurðsson,
Skapa og Skerpa arkitektar og sáu Endurreisn
verktakar um alla framkvæmd.
Papinos Pizza í Grafarvog
ferðum stofnanir beita til að
þróast og bæta árangur sinn í
síbreytilegu umhverfi, setja
fram nýjungar í þjónustu við
notendur og skapa betri liðs-
heild innan stofnananna.
Í niðurstöðum nefndarinn-
ar segir m.a. um Umferðar-
stofu að mikill hugur sé í
starfsfólki sem allt hafi tekið
þátt í útfærslu stefnu stofn-
unarinnar og umræðu um
markmiðssetningu í anda
stefnumiðaðs árangursmats,
sem reynst hafi öflugt tæki til
að koma á breytingum.
„Margar breytingar hafa ver-
ið gerðar og þær einkennst af
metnaði og keppnisanda sem
kemur fram í mikilli starfs-
ánægju samkvæmt mæling-
um,“ segir m.a. í umsögninni.
UMFERÐARSTOFA hlaut á
þriðjudag viðurkenningu sem
ríkisstofnun til fyrirmyndar
2006.
Í janúar skipaði fjármála-
ráðherra nefnd til að velja rík-
isstofnun sem skaraði fram úr
og væri til fyrirmyndar í starfi
sínu. Voru tilnefndar stofnan-
ir metnar út frá því hversu
skýr stefnumótun, framtíðar-
sýn og markmiðssetning
þeirra væri. Þá var horft til
þess hvaða stjórnunaraðferð-
ir væru notaðar, hvernig
stjórnendur og starfsmenn
fylgdust með því að vinnan
skilaði árangri og stefnu-
mörkun miðaði í rétta átt.
Einnig var skoðað hvaða að-
Þá segir að stofnunin hafi ver-
ið óspör á að miðla öðrum
stofnunum af reynslu sinni á
sviði árangursstjórnunar.
Mikil áhersla sé einnig lögð
á þjónustu, sem sé eitt af gild-
um stofnunarinnar, og ný-
sköpun sett í forgrunn.
Samkvæmt fyrirliggjandi
gögnum hefur Umferðarstofa
náð árangri á mörgum svið-
um. Til dæmis hefur meðal-
biðtími í afgreiðslu styst um
helming þrátt fyrir töluverða
fjölgun viðskiptavina. Fjöldi
þeirra sem bíða lengur en í sjö
mínútur hefur farið úr rúm-
lega 700 á mánuði niður í 60.
Þá hafa stór skref verið stigin
í þá átt að bæta rafræn sam-
skipti við viðskiptavini stofn-
unarinnar, en t.d. er hægt að
tilkynna um eigendaskipti
ökutækja rafrænt gegnum
vefinn. Þá hefur stofnunin náð
mælanlegum árangri í um-
ferðaröryggismálum. Árið
2002 létust í umferðinni eða
slösuðust alvarlega 200
manns, en árið 2004 var fjöld-
inn kominn undir 150 þrátt
fyrir talsverða fjölgun öku-
tækja.
Ríkisskattstjóri og Borgar-
holtsskóli hlutu einnig viður-
kenningar fyrir góðan árang-
ur.
Morgunblaðið/Kristinn
Karl Ragnars, forstjóri Umferðarstofu, tekur við viðurkenn-
ingunni hjá Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra.
Umferðarstofa til fyrirmyndar
Á FUNDI hjúkrunarfræðinga sem haldinn var á
alþjóðadegi hjúkrunarfræðinga 12. maí sl. var
samþykkt eftirfarandi ályktun:
„Hjúkrunarfræðingar á Íslandi vekja athygli á
baráttu Alþjóðasamtaka hjúkrunarfræðinga fyr-
ir aukinni mönnun hjúkrunarfræðinga undir
slagorðinu „Vel mannað verndar líf“.
Hjúkrunarfræðingar ítreka mikilvægi mönn-
unar fyrir öryggi sjúklinga og gæði þjónust-
unnar og benda á að fjöldi erlendra rannsókna
hefur sýnt fram á tengsl milli fjölda hjúkr-
unarfræðinga og afdrifa sjúklinga.
Hjúkrunarfræðingar hvetja stjórnvöld og heil-
brigðisstofnanir til að tryggja öryggi sjúklinga
með góðri mönnun hjúkrunarfræðinga og spara
þannig fjármuni og vernda líf.
Hjúkrunarfræðingar fagna og taka undir
ályktun stjórnenda LSH frá 11. maí sl. þar sem
athygli yfirvalda fjármála og heilbrigðismála er
vakin á því ástandi sem skapast hefur vegna
manneklu á spítalanum.“
„Vel mannað verndar líf“