Morgunblaðið - 18.05.2006, Síða 48

Morgunblaðið - 18.05.2006, Síða 48
Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn 48 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sími 594 5000 - Fax 594 5001 Lynghálsi 4//110 Reykjavík//Lögg. fasteignasali Halla Unnur Helgadóttir ÓLAFSGEISLI - 113 RVK Stórglæsilegt einbýli á tveimur hæðum m/innb. bílskúr, samtals 232,6 fm. Óskráð/ósamþ. ca 35-40 fm rými. Jura-marmari, parket og flísar á gólfum. Sérlega vandaðar innréttingar. Innbyggð uppþvotta- vél, ísskápur og frystiskápur í eld- húsinnr. Garður m/pöllum og potti. Verðtilboð. Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einkasölu glæsilegt 169 fm sumarhús á steyptum sökklum og með hita í steyptri gólfplötu. Húsið er frábærlega staðsett með einstöku út- sýni til allra átta (frábær staður til útivistar). Grunnflötur aðalhúss 115 m2, milliloft 60 m2, viðurkenndir 30 m2. Gestahús með salerni, sérgufu- baði og 24 m2 geymslu, samtals 169 m2. Á svæðinu er öll aðstaða svo sem sundlaug, golfvöllur, búð, sjoppa, bensínafgreiðsla, veitingastaður og aðstaða til fundarhalda. Húsið stendur á tæplega eins hektara lóð og er tilbúið til afhendingar. Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Djálknavegur - Bláskógabyggð FASTEIGNAMAT ríkisins hefur hlotið vottun Öryrkjabandalags Ís- lands og Sjá ehf. um að vefur stofnunarinnar, www.fmr.is, stand- ist kröfur um aðgengi fyrir fatlaða. Vefurinn fær bæði vottun fyrir for- gang 1 og 2. Vottunin byggist á gátlista Sjá ehf., sem byggður er á alþjóðlegum stöðlum um aðgengi (WAI). Vefurinn er í vefumsjón- arkerfinu LiSA.net sem Innn hf. þróar. Nú geta blindir og sjón- skertir notað skjálesara og sér- hönnuð lyklaborð til að skoða vef- inn, lesblindir geta breytt um bakgrunnslit og hreyfihamlaðir geta vafrað án þess að nota mús- ina. Auk þessa eru útskýringar á öllum myndum, tenglaheiti eru skýrari og stærð og tegund við- hengja er útskýrð. Vottunin er í samræmi við aðgengisstefnu og gæðastefnu Fasteignamats ríkisins þar sem lögð er áhersla á að tryggja góða og markvissa þjón- ustu og að uppfylla þarfir ólíkra viðskiptavina. Vefurinn er fyrsti vefur ríkisstofnunar til að hljóta slíka vottun, segir í fréttatilkynn- ingu. Vottun um aðgengi fyrir fatlaða Frá hægri Haukur Ingibergsson forstjóri og Kristín Ósk Hlynsdóttir, vef- stjóri frá Fasteignamati ríkisins, Sigrún Þorsteinsdóttir sérfræðingur og Jóhanna Símonardóttir, fjármálastjóri frá Sjá ehf., Inga Birna Barkar- dóttir, verkefnisstjóri frá Innn hf., og Sigursteinn R. Másson, formaður Ör- yrkjabandalags Íslands. Vefur Fasteignamats ríkisins Í FORMÁLA minningargreina um Rósu Guðjónsdóttur í Morgun- blaðinu föstudaginn 12. maí síðast- liðinn féll niður nafn eins bræðra hennar, Björns Guðjónssonar, f. 1919, í upptalningu á systkinunum. Hlutaðeigendur eru beðnir afsök- unar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT Nafn féll niður VINSTRI-grænar konur efna til upphitunar- og baráttusamkomu á Hallveigarstöðum, Túngötu 14, Reykjavík á morgun, föstudaginn 19. maí, kl. 20–21.30. Upphitunin er fyrir Stelpu-rokk, tónleika ungra Vinstri-grænna kvenna í Stúdentakjallaranum kl. 22 það sama kvöld. Baráttan er til að vekja athygli á samhljómi þeim sem er í umhverfisverndarstefnu og kvenfrelsisstefnu Vinstri- grænna í kosningunum fram und- an. Í boði verður blönduð dagskrá, léttar veitingar. Meðal þeirra sem fram koma eru: Margrét Guðnadóttir veiru- fræðingur, Ásta Arnardóttir jóga- kennari, leiðsögumaður og nátt- úruverndari, Guðlaug Ólafsdóttir leikkona, Andrea Ólafsdóttir Ís- landsvinur, Byssupiss: Ugla Egils- dóttir og Sigríður Tulinius, Guð- rún Ágústa Guðmundsdóttir sem leiðir lista Vinstri-grænna í Hafn- arfirði, Svandís Svavarsdóttir sem leiðir lista Vinstri-grænna í Reykjavík, Aðalbjörg og Magnea leikkonur. Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri-grænna, sér til þess að allt fari vel fram, segir í tilkynningu. Baráttusam- koma VG ÞINGFLOKKUR Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs gagnrýnir harðlega, í ályktun sem flokkurinn sendi frá sér, „andvaraleysi ríkis- stjórnar Halldórs Ásgrímssonar í efnahagsmálum,“ eins og komist er að orði. Minnt er á að verðbólga mælist nú mánuð eftir mánuð með tveggja stafa tölu og þurfi að fara aftur á fyrri hluta árs 1990 til að finna hliðstæðu. Kaupmáttur um- saminna launa rýrni og verðtryggð- ar skuldir vaxi við þessar aðstæður. Almennu launafólki sé sendur reikn- ingurinn vegna óstjórnar og ráðleys- is ríkisstjórnarinnar. „Helsti orsakavaldur jafnvægis- leysisins í hagkerfinu er stóriðju- stefnan. Hinar gríðarmiklu sam- þjöppuðu stóriðjuframkvæmdir sem yfir standa fela í sér innstreymi í hagkerfið sem nemur u.þ.b. einum þriðja af landsframleiðslu heils árs á nokkrum misserum. Þær, ásamt með þeim væntingum sem þeim fylgja, valda mikilli spennu í hag- kerfinu. Til viðbótar koma svo illa tímasettar og ranglátar skattalækk- anir og þensla á fasteignamarkaði. Grípa verður án tafar til yfirveg- aðra ráðstafana til að halda aftur af verðbólgu og leggja drög að því að endurheimta stöðugleika í efnahags- málum. Slá verður af öll áform um frekari stóriðjuframkvæmdir næstu árin. Hverfa á frá fyrirhuguðum skattalækkunum og nota þess í stað allt það svigrúm sem til staðar er til að verja og bæta kjör hinna tekju- lægstu, m.a.að draga úr skerðingum í almannatryggingakerfinu og lag- færa skerðingamörk í vaxtabóta- kerfinu þannig að vaxtabætur skili sér til tekjulágs fólks þrátt fyrir hækkun fasteignaverðs. Þingflokkur VG hefur ítrekað lagt fram tillögur um ráðstafanir til að slá á þenslu og bæta jafnframt kjör tekjulægri hluta samfélagsins. Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks verður að komast af afneitunar- og aðgerðaleysisstig- inu hið fyrsta eða segja af sér ella,“ segir í ályktun VG. VG sakar ríkisstjórnina um andvaraleysi ♦♦♦ GLITNIR gefur Barnahjálp Samein- uðu þjóðanna, UNICEF, rúmlega eina milljón króna (11.000 evrur) sem söfnuðust þegar bankinn stóð fyrir uppboði í bás sínum á sjáv- arútvegssýningunni í Brussel. Í boði var Barcelona-treyja árituð af bras- ilíska knattspyrnugoðinu Ronald- inho auk tveggja „VIP“-miða á úr- slitaleikinn í Meistaradeild Evrópu. Bjørn-Vegard Løvik, forstjóri lax- eldisfyrirtækis í Álasundi í Noregi, átti hæsta boð, 5.500 evrur. Glitnir hafði skuldbundið sig til að bæta sömu upphæð við og gefa allt féð til Barnahjálpar sameinuðu þjóðanna. Á myndinni er Bjørn-Vegard Løvik, í miðið, ásamt starfsmönnum Glitnis á sjávarútvegssýningunni í Brussel. Milljón til Barnahjálpar SÞ BYRJENDAKYNNING verður hjá Flugmódelklúbbnum Þyt laugardag- inn 20. maí kl. frá kl. 9-12 og lengur ef vel viðrar. Félagsmenn verða þar og taka á móti þeim sem hafa áhuga á að kynnast íþróttinni. Jafnt byrj- endur sem lengra komnir eru vel- komnir og geta tekið með sér módel ef þeir eiga. Ef veður leyfir verður flogið en að öðrum kosti verður setið inni og spjallað, spurningum svarað og flughermir prófaður. Flugmódelklúbburinn Þytur er fé- lag flugmódeláhugamanna á Stór- Reykjavíkursvæðinu. Félagsaðstaða og flugvöllur klúbbsins er á Hamra- nesi fyrir sunnan Hafnarfjörð rétt við Hvaleyrarvatn. Kynning hjá Flugmódel- klúbbnum Þyt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.