Morgunblaðið - 18.05.2006, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 57
ÞRÍR harmóníkuleikarar komu
fram á Nasa á laugardagskvöldið og
framkölluðu hljóð sem ég vissi ekki
að harmóníkan byggi yfir. Eitt
verkið var samið í minningu stríðs-
ins í Tsétséníu og það hófst á vind-
gnauði, en í fjarska heyrðist í hríð-
skotabyssu. Byssuhvellirnir voru
framkallaðir með því að einn harm-
óníkuleikarinn hamraði með fingr-
unum á brún hljóðfærisins og var
það ótrúlega eðlilegt. Hrikalegur
sprengjugnýr tók síðan við, sem
smátt og smátt varð að djöfullegum
hergöngumarsi. Hann minnti helst
á hápunktana í sumum sinfóníum
eftir Shostakovich, og þeir eru með
því ofsafengnasta sem maður heyr-
ir.
Þetta var Motiontríóið frá Kraká
í Póllandi, sem samanstendur af
Janusz Wojtarowicz, Marcin Gal-
azyn og Pawel Baranek. Tónlistin
var eftir þá þremenninga og var af-
ar póstmódernísk; ýmiskonar stílum
var blandað saman en samt var út-
koman ótrúlega heildstæð. Húm-
orinn var aldrei langt undan þótt
lagið um stríðið í Tsétséníu hafi ver-
ið allt annað en fyndið. Þarna var
lag um gulan Trabant og var vél-
arhljóðið í upphafi svo kostulegt að
tónleikagestir veltust um af hlátri.
Og lög um helikopter og hillingar
voru það líka, en Playstation-
hringekjan svonefnda var hinsvegar
harðasta danstónlist þar sem hljóð-
færin og einn míkrófónninn breytt-
ust smám saman í litríkt og magnað
slagverk. Þannig mætti lengi telja.
Þrátt fyrir nokkuð alvörulausa
umgjörð samanstendur Motion-
tríóið af hámenntuðum tónlistar-
mönnum. Þeir eru ekki aðeins
fingrafimir, heldur líka hugmynda-
ríkir, smekklegir og umfram allt
skemmtilegir. Og til marks um
færni þeirra fengu meira að segja
ómstríðustu og mest krefjandi verk-
in frábærar viðtökur á tónleikunum.
Meira svona!
Djöfullegur
hergöngu-
mars
TÓNLIST
Nasa
Harmóníkutónleikar.
Motiontríóið flutti frumsamda tónlist.
Laugardagur 13. maí.
Listahátíð í Reykjavík
Jónas Sen
FYRSTA einkasýning Indíönu Auð-
unsdóttur í Suðsuðvestri og ber tit-
ilinn „Holir bolir“ gefur í skyn tóma
dýpt innan tælandi uppbyggingar
verkanna samkvæmt Alex Impey
sem ritar textann í sýningarskrána. Á
sýningunni eru ólík verk, það fyrsta
er þriggja mínútna myndband af
módernísku ferköntuðu versl-
unarhúsi sem fyllir nánast upp í
rammann. Fyrir vikið skapast mið-
flóttaafl í myndinni og athyglin
dregst út að brúnum rammans þar
sem sjá má ummerki lífs öðru hvoru í
formi bíla eða fugla sem fljúga hjá.
Einnig virðist áhugavert birtuspil
sem leikur á framhlið hússins en því
miður er allt of bjart í rýminu fyrir
skjávarpann og myndin of dauf. Í
sama rými er athyglissjúkur svart-
lakkaður skúlptúr sem ber form
kransaköku með fánum, hann reynist
þó sjónrænt ekki áhugaverður og
hlýtur að gegna hlutverki táknmynd-
ar.
Inni í innra herberginu í björtu og
fallegu húsnæði Suðsuðvesturs er
áhugaverðasta verkið. Þar er að finna
ljósmynd af baki konu þar sem skrif-
að hefur verið í gervibrúnkuna „I love
negger“ en úr hátölurum er spilað
þrettán mínútna eintal stúlku sem er
að tala við kærastann sinn. Þetta
samtal er sérstaklega áhugavert að
því leyti að það er svo raunverulegt
um leið og það er fáránlegt. Það nær
að halda saman heildarhugmyndinni
um holan hljóm undir yfirborði orða,
samskipta og ákveðinni framhlið á
hlutveruleika samtímans.
Suðsuðvestur hefur verið að skapa
sér verðugan sess sem einn af fram-
sæknari sýningarstöðum á suðvest-
urhorninu. Samkvæmt vefsíðu þess
er það ætlað sem vettvangur fyrir
myndlistarfólk sem vinnur að list-
sköpun á rannsakandi hátt, útfæra
hugmyndir sínar í mismunandi miðla
og vekja upp spurningar um samtím-
ann. Þessi sýning stendur vel undir
þessum orðum. Þrátt fyrir að gagn-
rýni á yfirborð samfélagsins og gervi-
veröld neyslusamfélagsins sé algengt
viðfangsefni í myndlistinni þá nær
þessi nálgun að segja hlutina svolítið
öðruvísi. Í þessum efnum eins og öðr-
um getur það verið blæbrigðamunur
hvernig til tekst, sérstaklega þegar
unnið er á mörkum raunveruleikans
og leiklistarinnar. Það má setja út á
að textinn hafi einungis verið boðinn
á ensku því í þessu tilfelli eins og
mörgum öðrum getur texti vísað fólki
áleiðis til túlkunar á verkum og ekki
eru allir Íslendingar enskumælandi.
Sýningin er falleg og hnitmiðuð frum-
raun ungrar listakonu sem við eigum
vonandi eftir að sjá mikið frá í fram-
tíðinni.
Innantómt yfirborð
MYNDLIST
Suðsuðvestur, Reykjanesbæ
Sýningin stendur til 21. maí. Opið
fimmtudaga og föstudaga frá kl. 16–18,
laugardaga og sunnudaga frá kl. 14–17.
Indíana Auðunsdóttir
Þóra Þórisdóttir Frá sýningu Indíönu í Suðsuðvestri.
Forsala er hafin
í verslunum Skífunnar og á midi.is