Morgunblaðið - 18.05.2006, Síða 60
FÓLK streymir að í Cannes og mannfjöldinn þéttist í sí-
fellu á götum bæjarins enda var virtasta kvikmyndahátíð
heims sett í gær með hátíðlegri viðhöfn. Í þetta skiptið var
það leikarinn Sidney Poitier sem setti hátíðina. Opn-
unarmyndin í ár, Da Vinci-lykillinn, var frumsýnd og
prúðbúnar stjörnur jafnt sem minni spámenn svifu um
rauða dregilinn. Margir freistast til að berja stjörnurnar
augum og óteljandi fjölmiðlamenn
slást um að ná sem bestum mynd-
um af þeim.
Níu manna dómnefndin sem
dæmir í keppninni um Gull-
pálmann var kynnt til sögunnar á
opnunardaginn. Hana skipa í ár
stórleikarinn Samuel L. Jackson,
ítalska ofurskutlan Monica Bel-
ucci, bresku leikararnir Tim Roth
og Helena Bonham Carter og kín-
verska „geishan“ Zhang Ziyi. Úr
hópi leikstjóra eru Frakkinn
Patrice Leconte, hin argentínska
Lucrecia Martel og Elia Suleiman
frá Palestínu. Kínverski leikstjór-
inn Wong Kar Wai er formaður
dómnefndarinnar í ár en nokkrar
mynda hans hafa keppt um Gull-
pálmann í Cannes á liðnum árum.
Sólgleraugu og reykingar
Wong Kar Wai sagði á fundi
dómnefndarinnar með blaða-
mönnum að sér væri mikill heiður
af að fá að starfa með öllu því
hæfileikafólki sem skipar dómnefndina. Reglurnar sem
hann setti á fundum þeirra um kvikmyndirnar sem til-
nefndar eru til Gullpálmans væru mjög einfaldar: „Við
megum öll vera með sólgleraugu og reykingar eru leyfð-
ar.“
Helena Bonham Carter lýsti ánægju sinni með að sitja
hinum megin við borðið til tilbreytingar. „Í stað þess að
vera í sporum betlarans sem leikari þá hefur maður nú
vald til að dæma aðra. Og allir eru að sleikja mann upp.“
Tim Roth finnst hins vegar betra að vera hinn dæmdi:
„Mér finnst stressandi að sitja í dómarasætinu vegna þess
að það fylgir því talsverð byrði að halda á framtíð fólks í
hendi sér.“
Ekki drapplituð mynd
Satt að segja kom lítið fram á fundinum sem gæti gefið
vísbendingu um hver verði niðurstaðan í valinu á þeirri
mynd sem hlýtur Gullpálmann, en tuttugu myndir keppa
um verðlaunin. Franski leikstjórinn Patrice Leconte
sagðist þó vonast til þess að ekki þyrfti miklar málamiðl-
anir. Hann líkti
valinu við að velja lit á
striga. Ef allir hefðu mjög mismun-
andi skoðanir á hvaða litur færi best þá væri
hætt við að það endaði með því að stiginn yrði
drapplitaður. „Því enginn er á móti þeim lit, en
enginn er heldur mjög ánægður með hann. Von-
andi verður stiginn okkar í lit,“ sagði Leconte
með vísan í sigurmyndina. Og svo virðist sem
meðlimir dómnefndar ætli ekki að liggja á skoð-
unum sínum á fundum sínum um myndirnar
sem eru tilnefndar. Hvöttu þau hvert annað til
að berjast hatrammlega fyrir þeirri mynd sem
þeim líkaði best.
Da Vinci vonbrigði
Opnunarmynd hátíðarinnar var sem fyrr segir
mynd Ron Howard um Da Vinci-lykilinn með
Tom Hanks í aðalhlutverki ásamt Jean Reno, Ian
McKellen og Alfred Molina. Myndinni var illa
tekið á forsýningu fyrir kvikmyndagagnrýn-
endur og fjölmiðlafólk en miklar væntingar höfðu legið í
loftinu. Þegar kom að atriði í myndinni sem átti að vera
einn af hápunktum hennar varð dramatíkin fullmikil og
salurinn hló. „Ég stóð mig að því að horfa á hárið á aðal-
leikaranum alla myndina og þá er eitthvað að,“ voru orð
sem einn sýningargesta lét falla að myndinni lokinni og í
gær virtust flestir tilbúnir til að lýsa hneykslan sinni á
þessari nýjustu afurð Ron Howard. Myndin er samt sem
áður hin ágætasta, vissulega ekki verri en margar amer-
ískar „stórmyndir“ og hin margumtalaða hárgreiðsla Tom
Hanks var bara nokkuð flott. Dæmi hver fyrir sig.
Skemmtun, ekki guðfræði
Þegar öllu er á botninn hvolft má vera að væntingar
gagnrýnenda til myndarinnar hafi verið fullmiklar. Þeir
Howard og Hanks áttu í það minnsta, ásamt öðrum að-
standendum myndarinnar, í vök að verjast á blaðamanna-
fundi sem haldinn var í tilefni af útgáfu myndarinnar.
Howard lagði þunga áherslu á að myndin ætti fyrst og
fremst að snúast um skemmtanagildi en ekki trúfræði.
Kvikmyndir | Kvikmyndahátíðin í Cannes var sett í gær
Eftir Soffíu Haraldsdóttur í Cannes
soffia@islandia.is
Alfred Molina og Tom Hanks leika báðir í Da Vinci-lyklinum en með þeim
er eiginkona Hanks, Rita Wilson.
Snyrtivörufyrirtækið l’Oreal er aðalstyrktaraðili hátíðarinnar og andlit
fyrirtækisins létu sig ekki vanta, m.a. Andy McDowell og Aishwayra Rai.
Franska ungstirnið Audrey
Tautou var glæsileg þegar
hún mætti til opnunarsýn-
ingarinnar.
Dómnefndin í ár stillti sér upp fyrir ljósmyndara áður en hún gekk inn á sýningu opnunarmyndarinnar.
Hitnar í Cannes
Leiks
tjórin
n Tim
Burt
on va
r mæt
tur á
rauða
dregi
linn e
n nok
krar m
ynda
hans
hafa v
erið
frums
ýndar
í Can
nes.
60 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÁ J.J.ABRAMS, HÖFUNDI LOST OG ALIAS
FYRSTA STÓRMYND SUMARSINS ER KOMIN
SÝND Í
SAMBÍ
ÓUNUM
KRING
LUNNI
ee
ee
- SV, M
BL „Pottþ
étt skem
mtun“
ee
ee
LIB, To
pp5.is
MI:3 kl. 6 - 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
SHAGGY DOG kl. 6 - 8 og 10
SCARY MOVIE 4 kl. 6 B.I. 10 ÁRA
FIREWALL kl. 8:10 B.I. 16 ÁRA
V FOR VENDETTA kl. 5:40 B.I. 16 ÁRA
LE COUPERT (ÖXIN) kl. 10:20 - ALLIANCE FRANCAISE B.I. 16 ÁRA
VERÐUR
HANN
HUND-
HEPPINN
EÐA HVAÐ!
TIM ALLEN ( THE SANTA CLAUSE/
TOY STORY) SKIPTIR UM HAM Í
GRÍNVIÐBURÐI ÁRSINS.
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
MI : 3 kl. 8 - 10:20 B.i. 14 ára
SHAGGY DOG kl. 8
SCARY MOVIE 4 kl. 10 B.i. 10 ára
MI : 3 kl. 8 - 10:20 B.i. 14
SHAGGY DOG kl. 8 - 10
eee
JÞP blaðið
eeee
VJV, Topp5.is
eee
H.J. mbl
S.U.S. XFM
Kjólar
við buxur
Mikið úrval
Mörg mynstur
Stærðir 36-48
Verð frá 3.990
Laugavegi 54
sími 552 5201