Morgunblaðið - 25.07.2006, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 25.07.2006, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ÓLÍKLEGT er að þrýstingur á ís- lensk stjórnvöld um að gera breyt- ingar á landbúnaðarstefnunni minnki neitt við þá niðurstöðu sem varð í Doha-viðræðunum í Genf í gær. Ríkisstjórnin er með á borði sínu tillögur um lækkun á tollum á landbúnaðarvörum frá formanni matvælanefndar. Ekkert liggur þó enn fyrir um hvort tollar verða lækkaðir. Skýrsla formanns matvælanefnd- ar forsætisráðherra hefur aukið þrýsting á stjórnvöld að gera breyt- ingar á landbúnaðarstefnunni. For- ystumenn ríkisstjórnarinnar hafa lagt áherslu á að breytingar á land- búnaðarstefnunni þurfi að taka mið af þeim breytingum sem sam- komulag næst um á vettvangi WTO. Búist hafði verið við að samkomulag myndi nást á þessu ári og í fram- haldi af því yrðu gerðar breytingar hér heima í samræmi við það. Segja má að breytingum á landbún- aðarstefnunni hafi verið frestað vegna þess að menn voru að bíða eft- ir að niðurstaða kæmi í þessar við- ræður. Nú er ljóst að samn- ingamenn eiga langt í land. Í fréttaskeytum í gær var talað um að WTO-viðræðurnar hefðu „hrunið“. Hvert framhaldið verður veit enginn á þessari stundu. Það er því ljóst að ráðherrar rík- isstjórnarinnar, sem nú velta fyrir sér viðbrögðum við skýrslu for- manns matvælanefndar, geta ekki horft til WTO með leiðbeiningar. Ráðherrarnir standa nú frammi fyr- ir tveimur kostum. Í fyrsta lagi að halda áfram með að bíða eftir nið- urstöðu í WTO en sú bið gæti tekið nokkur ár. Í öðru lagi að gera breyt- ingar á landbúnaðarstefnunni. Viðmælendur Morgunblaðsins eru sammála um að þrýstingur á stjórnvöld um að gera breytingar á landbúnaðarstefnunni muni ekki minnka við þá niðurstöðu sem varð í Genf í gær. Kalla ódýrari innfluttar vörur á arðbærari kúastofn? Í tillögum formanns mat- vælanefndar er lagt til að tollar á landbúnaðarvörum verði lækkaðir en á móti verði ríkisstyrkir til bænda auknir. Stjórnvöld geta með einföld- um hætti lækkað tolla á innfluttar landbúnaðarvörur. Það er hins veg- ar miklu flóknara að auka landbún- aðarstyrki frá því sem nú er. Flestir reikna með að þó að illa gangi að ná samkomulagi innan WTO muni menn ná saman á endanum. Sá rammi að samkomulagi sem liggur á borðinu gerir ekki aðeins ráð fyrir að tollar á landbúnaðarvörum verði lækkaðir heldur gerir einnig ráð fyr- ir að ríkisstyrkir til landbúnaðar verði einnig lækkaðir. Að vísu geta einstakar þjóðir aukið styrki sem ekki hafa markaðstruflandi áhrif. Þar er átt við byggðastyrki, styrki til rannsókna og styrki í þágu umhverf- isins. Íslendingar geta hins vegar ekki aukið beingreiðslur til bænda, en í dag er meginhluti stuðnings rík- isins við bændur einmitt í formi beingreiðslna. Meðal mjólkurframleiðenda er veruleg andstaða við að atvinnu- greinin verði skilgreind sem ein- hvers konar hluti af byggðastefnu stjórnvalda. Miklar breytingar hafa átt sér stað í mjólkurframleiðslunni með fækkun og stækkun búa. Ef hins vegar tollar verða lækkaðir, sem væntanlega mun þýða minni markaðshlutdeild innlendrar fram- leiðslu, vaknar sú spurning hvort ekki þurfi að veita bændum heimild til að nýta alla möguleika til hagræð- ingar í greininni og þar með að lækka verð. Fyrir liggur að hægt er að auka arðsemi búanna um tugi prósenta með því að flytja inn nýtt og arðbærara kúakyn. Það hlýtur að vera áleitin spurning fyrir íslensk stjórnvöld og forystumenn bænda hvernig hægt er að ætlast til að bændur geti keppt við ódýrar inn- fluttar búvörur ef þeir mega ekki nýta sér arðbærari kúakyn líkt og bændur í nágrannalöndunum okkar nota. Fréttaskýring | Hvaða áhrif hafa Doha-viðræðurnar á Ísland? Ólíklegt að þrýstingur á breytingar minnki Morgunblaðið/Benjamín Baldursson Á bænum Hrafnagili hefur verið tekin í notkun svokölluð mjaltahringekja. Í hringekjunni sem, eins og nafnið gef- ur til kynna, snýst í hring eru mjólkaðar 30 kýr samtímis. Á myndinni er Jón Elfar Hjörleifsson að mjólka. ENGINN árangur varð af Doha-við- ræðunum innan Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar, WTO, en fundalota hefur staðið yfir undanfarnar vikur í Genf. Í gær boðaði Pascal Lamy, framkvæmdastjóri WTO, óvæntan fund og lýsti því yfir að frekari samningaviðræðum hefði verið hætt og viðræður myndu liggja niðri um ótiltekinn tíma. Guðmundur Helga- son, ráðuneytisstjóri í landbúnaðar- ráðuneytinu, segir að kenna megi átökum milli Bandaríkjanna, Evr- ópusambandsins og stærri þróunar- ríkja eins og Brasilíu og Indlands um árangursleysi viðræðnanna. Þær viðræður sem strönduðu í gær hafa staðið árum saman. Árið 1994 tókst samkomulag um tolla- lækkanir og aukið frjálsræði í við- skiptum með landbúnaðarvörur, en þetta samkomulag er við Úrúgvæ. Það tók 7–8 ára viðræður að ná þessu samkomulagi. Árið 2001 var samþykkt í borginni Doha í Katar að ráðast í nýja samningalotu. Upphaf- legt markmið var að ljúka viðræðun- um á fjórum árum, en það tókst ekki. Nú er fullkomlega óljóst hvert fram- haldið verður. Það hafa verið margar samninga- lotur í Doha-viðræðunum en það sem gefur árangursleysi þessarar samn- ingalotu aukið vægi er að samnings- umboð Bandaríkjastjórnar rennur út á miðju næsta ári. Bandaríkjaþing gaf Bush Bandaríkjaforseta sérstakt umboð um frjálsræði í samningavið- ræðunum og ef ljúka hefði átt við- ræðunum innan þessa umboðs hefði meginatriði samkomulagsins þurft að liggja fyrir í lok þessa árs. Nú bendir allt til að það takist ekki að ljúka viðræðunum innan þessara marka. Það mun ekki auðvelda mönnum að koma Doha-viðræðun- um á flot á ný ef Bandaríkjaforseti þarf að leita eftir nýju umboði, ekki síst ef haft er í huga að það styttist í forsetakosningar í Bandaríkjunum. Engin hreyfing í viðræðunum Guðmundur Helgason, sem tekið hefur þátt í Doha-viðræðunum und- anfarin ár, var spurður hvers vegna enginn árangur hefði náðist á fund- unum í Genf. „Það hefur engin hreyfing verið í viðræðunum þrátt fyrir ítarlegur viðræður síðustu vikurnar. Það er samdóma álit allra sem að þessum viðræðum koma að Bandaríkjamenn þurfi að taka á sig meiri niðurskurð í innanlandsstuðning við landbúnað en þeir hafa verið reiðubúnir til að gera. Það er mikill þrýstingur á Evr- ópusambandið að veita meiri mark- aðsaðgang fyrir landbúnaðarvörur, en sambandið hefur ekki verið tilbú- ið að mæta þeim kröfum. Síðan vant- ar mikið upp á að stærri þróunarríki, sem eru lengra á veg komin eins og Indland og Brasilía, sýni vilja til að koma á móts við kröfur um að opna markaði sína fyrir iðnaðarvörur. Það má segja að viðræðurnar sitji fastar inni í þessum þríhyrningi. Á meðan ekkert þokast í samkomulagsátt um þessi stóru ágreiningsmál gerist ekki neitt,“ sagði Guðmundur. Óljóst með framhaldið Ísland situr í svokölluðum G-10 hópi og Guðmundur var einmitt á leið til fundar við G-10 hópinn þegar fréttir bárust af því að búið væri að slíta Doha-viðræðunum. Ráðgert hafði verið að fulltrúar G-10 hópsins myndu hitta Pascal Lamy, fram- kvæmdastjóra WTO, í dag, en vænt- anlega verður ekkert af þeim fundi. Aðspurður sagði Guðmundur að G-10 hópurinn hefði ekki afl til að þoka málum áleiðis meðan Banda- ríkin, Evrópusambandið og stóru þróunarríkin næðu ekki árangri í stóru ágreiningsefnunum. Guð- mundur treysti sér ekki til að spá fyrir um næstu skref í Doha-viðræð- unum. Lamy hefði frestað viðræðum um ótiltekinn tíma. Væntanlega þyrftu samningamenn einhverja mánuði til að kæla sig niður. Doha-viðræðunum frestað í ótiltekinn tíma REUTERS Pascal Lamy, framkvæmdastjóri WTO, sleit fundi í Genf í gær þegar ljóst var að enginn árangur var að nást í viðræðum um aukið frelsi með land- búnaðarvörur og lækkun á tollum á landbúnaðarvörum og iðnvarningi.Verða Valsstúlkur eina ósigraða liðið í Lands- bankadeild kvenna eftir tí- undu umferðina? á morgun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.