Morgunblaðið - 25.07.2006, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
BORGARTÚN - LAUST
Góð 444 fm skrifstofuhæð á 3. hæð miðsvæðis í Borgartúni.
Mjög sýnileg staðsetning. Góð aðkoma er að húsinu.
Hæðin er nú innréttuð sem 12 skrifstofuherbergi, kaffistofa og
snyrting. Möguleg aðstoð við fjármögnun. V. 69,9 m. 7432
Sími 511 2900
Áhugasamir hafið sambandi við skrifstofu
Leigulistans, eða Guðlaug í s. 896 0747.
!
"# $%
&'
$
() # $
'* $ + *
,
,
&
-.&
-/
0/1 23 &43$
5
&#
6 *
7
*
894
:;## #/ 2 !2
< !2
!"
03=# 02*
! #$ %
7>?@
0A2
2 2
; # 3
; 2 2
1
1
1 1
1 1 1
1
1
1
1 1
1
1
1
1
1
1
1
1
B CD
B CD
1
1
B 1 CD
B 1 CD
B 1 CD
B 1CD
B 1CD
B CD
1
1
1
B 1CD
B 1CD
1
1
1
1
1
1
1
1
6 * 2
*#
: $2 A *# E
( 0
1
1
1
1
1
1
1
1
1
< 2 A )%
:6 F # &4!*
2
1
1
1
1
1
1
1
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís-
lands lækkaði um 0,32% í 5.441
stig. Viðskipti með hlutabréf námu
477 milljónum króna, þar af 134
milljónum með bréf KB banka. Gengi
bréfa Marels hækkaði um 1,5%,
bréfa Landsbankans um 1,4% og
Alfesca um 0,7%. Gengi bréfa
Vinnslustöðvarinnar lækkaði um
2,38% og bréf FL Group um 1,2%.
Úrvalsvísitala lækkar
● ICELANDIC Group og Kristján
Hjaltason, framkvæmdastjóri Ice-
landic France, dótturfyrirtækis Ice-
landic Group, hafa gert samkomulag
um að Kristján láti af störfum nú þeg-
ar en Kristján hefur stýrt Icelandic
France frá því í nóvember 2005.
Jean Max Martel mun taka við stjórn
Icelandic France en síðastliðin tvö ár
hefur hann verið einn af stjórnendum
félagsins. Jean Max var eigandi
Comigro Geneco og starfaði sem
framkvæmdastjóri félagsins í 23 ár
eða þar til Icelandic Group festi kaup
á félaginu á árinu 2004.
Kristján hættir hjá
Icelandic France
● SKULDIR heimilanna við innláns-
stofnanir stóðu í 657 milljörðum
króna í lok júní og höfðu þá aukist
um 34 milljarða á einum mánuði.
Mest af þessum skuldum er í formi
verðtryggðra skulda sem stóðu í
tæplega 487 milljörðum í lok júní
síðastliðins og hækkuðu um 2,3%
frá mánuðinum á undan. Í fréttum
greiningar Glitnis kemur fram að
þetta sé minnsti raunvöxtur verð-
tryggðra útlána til heimila á milli
mánaða á árinu og komi þar fram
áhrif hertra útlánareglna bankanna
ásamt hærri vöxtum og að einhverju
marki versnandi efnahagshorfur. Allir
þessir þættir hafi slegið á spurn eftir
húsnæðislánum bankanna. Lán inn-
lánsstofnana til erlendra aðila hafa
aukist mikið á undanförnum miss-
erum og stóðu í 736 milljörðum í lok
júní og höfðu aukist um 235 millj-
arða frá upphafi ársins og voru þá
orðin meiri lán innlánsstofnana til
heimilanna í landinu. Aðstærstum
hluta er um að ræða gengistryggð
lán og skýrir gengisþróun krónunnar
um helming aukningarinnar.
Heimilin farin að
draga úr lántökum
STJÓRN norska stórfyrirtækisins
Orkla mun vera reiðubúin að lána
David Montgomery og breska fjár-
festingarfélaginu Mecom, sem hann
stýrir, hluta kaupverðs fjölmiðla-
veldisins Orkla Media. Mecom gerði
samning um að kaupa Orkla Media
fyrir 6,6 milljarða danskra króna,
jafngildi nær 83 milljarða íslenskra
króna. Eins og greint hefur verið frá
virðist sem Mecom eigi í erfiðleikum
með að fjármagna kaupin og leggja
fram tryggingar fyrir 75% af kaup-
verðinu eins og um var samið.
Orkla láni það sem á vantar
Norska viðskiptablaðið Dagens
Næringsliv (DN) hefur á fréttavef
sínum eftir heimildarmönnum sínum
að Orkla sé reiðubúið til að lána hluta
kaupverðsins svo hægt sé að ganga
frá viðskiptunum. Samkvæmt út-
reikningum blaðsins mun lánið vera
um hálfur milljarður norskra króna
eða sex milljarðar íslenskra króna.
Forsvarsmenn Orkla og Mecom áttu
í samningaviðræðum í London um
helgina og samkvæmt heimildum
DN er líklegt að gengið verði frá
samningum snemma í þessari viku
en Dag Opedal, forstjóri Orkla, sem
fór sjálfur til London fyrir helgi til að
stýra viðræðunum, hefur ekki viljað
staðfesta þetta. „Við viljum ekki
nefna tímasetningar en við höldum
samningaviðræðunum áfram svo
lengi sem þær skila okkur eitthvað
áleiðis,“ sagði Opedal við DN.
Í samtali við vef Berlingske Tid-
ende var Opedal þó aðeins bjart-
sýnni: „Svo lengi sem við eigum í við-
ræðum við Mecom hef ég trú á að
samningar náist. Ef ég tryði ekki á
það myndi ég slíta viðræðunum.“
Reuters
Þarf lán frá Orkla David Montgomery, stjórnarformaður fjárfestinga-
félagsins Mecom, hefur átt í basli með að fjármagna kaupin á Orkla Media.
Viðræður um söluna á
Orkla Media á lokastigi
GOLF er að margra mati íþrótt hin
skemmtilegasta og hefur hún hing-
að til þótt tiltölulega skaðlaus en nú
hefur sænskur dómstóll þó tekið
annan pól í hæðina. Umhverfis-
dómstóllinn í Växjö í Smálöndum
Svíþjóðar hefur komist að þeirri
niðurstöðu að golfkúlur geti valdið
umhverfisháska og þar með beri að
líta á golfiðkun sem umhverfis-
skaðlega starfsemi.
Samkvæmt úrskurðinum má
bera golfkúlur á flugi að jöfnu við
fljúgandi sprengt grjót og hefur
Araslövs golfbana í skánska bænum
Kristianstad verið gert að gera við-
eigandi ráðstafanir til þess að um-
hverfi golfvallarins verði öruggt.
Verði dómnum ekki áfrýjað getur
það haft kostnað í för með sér fyrir
aðra golfvelli í Svíþjóð.
Það lá að
REKSTUR farsímarisans Vodafone
hefur gengið erfiðlega að undan-
förnu og nú hefur félagið orðið fyrir
enn einu áfallinu en Bill Morrow,
yfirmaður Evrópustarfsemi Voda-
fone, sagði starfi
sínu lausu í gær.
Hann er ekki
fyrsti yfirmaður-
inn sem yfirgefur
félagið en tíma-
setningin þykir
óheppileg því bú-
ist er við því að
hluthafar geri
hallarbyltingu á
aðalfundi félags-
ins sem fer fram í dag.
Morrow mun hafa skýrt afsögnina
með fjölskylduástæðum en hann hef-
ur verið talinn meðal helstu banda-
manna Arun Sarin, forstjóra Voda-
fone, sem ekki hefur átt sjö dagana
sæla að undanförnu.
Í maí skilaði Vodafone ársuppgjöri
og var tap félagsins á síðasta rekstr-
arári það mesta í evrópskri fyrir-
tækjasögu samkvæmt Financial
Times.
Enn aukast
vandræði
Vodafone
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ (FME)
hefur ákveðið að leita til dómstóla
vegna niðurstöðu kærunefndar um
fjármálastarfsemi að viðskipti útgef-
enda með eigin bréf sem skráð hafa
verið í Kauphöll Íslands falli ekki
undir birtingarskyld viðskipti.
Að mati FME getur það haft slæm
áhrif fyrir markaðinn ef viðskipti
með eigin bréf eru ekki birt í Kaup-
höll Íslands.
Að sögn Írisar Örnu Jóhannsdótt-
ur, lögfræðings hjá FME, er þetta í
fyrsta sinn sem FME leitar til dóm-
stóla enda hafði FME ekki heimild
til að kæra úrskurði nefndarinnar
þótt brotþoli hefði það. Með breyt-
ingum á lögum sem tóku gildi nú ný-
lega fékk FME heimild til að leita til
dómstóla og jafnframt var kæru-
nefndin lögð niður en umræddur úr-
skurður kærunefndar féll eftir að
lögin tóku gildi.
„Þetta var eitthvað sem okkur
þótti skorta og okkur fannst óþægi-
legt að úrskurður kærunefndar væri
endanlegur í öllum tilvikum fyrir
okkur þannig að við óskuðum eftir að
fá málskotsheimild,“ segir Íris.
Geta haft verðmótandi áhrif
Upphaf málsins er að tiltekið félag
átti viðskipti með eigin bréf. Fjár-
málaeftirlitið taldi að samkvæmt lög-
um um verðbréfaviðskipti bæri út-
gefanda að senda upplýsingar um
slík viðskipti þegar í stað til Kaup-
hallar Íslands en þær bárust hins
vegar ekki fyrr en daginn eftir.
Stjórn Fjármálaeftirlitsins ákvað því
að sekta félagið um 200 þúsund
krónur vegna mistakanna.
Fjármáleftirlitið segist hafa byggt
sektarákvörðun sína á þeim laga-
grundvelli að félagið væri fjárhags-
lega tengt stjórnendum þess og sú
niðurstaða sé í samræmi við sameig-
inlega túlkun FME og Kauphallar-
innar Íslands á lögunum og almenna
markaðsframkvæmd á tilkynningum
um viðskipti með eigin bréf.
Rök FME fyrir því að tilkynna
beri opinberlega um viðskipti félags
með eigin bréf eru að þau geti haft
verðmótandi áhrif fyrir félagið á
sama hátt og viðskipti stjórnenda og
því sé nauðsynlegt að allir hafi jafn-
an aðgang að slíkum upplýsingum.
Kærunefndin taldi aftur á móti í
úrskurði sínum frá 27. júlí að með
„rýmkandi lögskýringu“ verði útgef-
endur að teljast fruminnherjar í
skilningi laga um verðbréfaviðskipti
en ekki stjórnendur.
Í lögum um verðbréfaviðskipti er
skilgreint hverjir teljast stjórnendur
og þeir taldir upp. Þá segir að hið
sama eigi við um aðila fjárhagslega
tengda stjórnendum. Fjárhagslegir
aðilar eru ekki skilgreindir í lögun-
um en FME falið að skilgreina þá í
reglum sínum. Telur FME einsýnt
að útgefandinn sjálfur sé fjárhags-
lega tengdur aðili í skilningi laganna
enda lúti hann framkvæmdastjórn
innherja, sé stjórnað með beinum
hætti af innherja og fjárhagslegir
hagsmunir hans séu óneitanlega
samtvinnaðir hagsmunum innherja.
FME beinir því til skráðra félaga
að halda áfram uppteknum hætti
varðandi upplýsingar til Kauphallar-
innar um viðskipti með eigin bréf þar
til endanleg niðurstaða fáist í málinu
en brot á upplýsingaskyldunni varði
stjórnvaldssektum eða sektum í
refsimáli.
FME leitar í fyrsta
sinn til dómstóla
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
SÆNSKA tískufatakeðjan Hennes
& Mauritz, eða H&M eins og hún
heitir í daglegu tali, hefur löngum
vakið athygli fyrir að ráðast ekki
á garðinn þar sem hann er lægstur
í vali sínu á fyrirsætum. Meðal
þeirra sem hafa setið fyrir á
myndum fyrir fyrirtækið eru
Cindy Crawford, Claudia Schiffer
og mörgum er það eflaust í fersku
minni þegar Kate Moss var rekin í
fyrrahaust fyrir eiturlyfjaneyslu.
Á síðustu árum hefur H&M auk-
ið áherslu sína á karlmannsfatnað
og nýjasta val fyrirtækisins á
fyrirsætu hefur vakið athygli í
Svíþjóð en það er enginn annar en
ítalska knattspyrnuhetjan Paolo
Maldini, leikmaður AC Milan og
fyrrum fyrirliði ítalska landsliðs-
ins.
„Hann er svalur og hefur nú-
tímalegan en jafnframt karlmann-
legan, glæsilegan og kæruleysis-
legan stíl,“ segir talsmaður H&M í
samtali við Dagens Industri.
Reuters
Paolo Maldini
fyrirsæta H&M
♦♦♦