Morgunblaðið - 25.07.2006, Side 44
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
SIGUR Rós lék fyrir troðfullu húsi í Klifinu, fé-
lagsheimili Ólafsvíkur, í gærkvöldi. Að sögn
Árna Matthíassonar, blaðamanns Morgunblaðs-
ins, sem staddur var á tónleikunum, var stemn-
yfir Breiðafjörðinn og hyggst halda áfram að
gleðja eyru landsmanna með tónlist sinni næstu
daga. Hringnum verður lokað með tónleikum
undir berum himni á Miklatúni í nk. sunnudag.
ingin gríðargóð og samanstóð áhorfendahóp-
urinn af útlendum ferðamönnum og fólki úr
sveitinni. Sagðist Árni hafa heyrt fjögur tungu-
mál töluð á tónleikunum. Sigur Rós siglir næst
Morgunblaðið/Alfons
Útlendingar og sveitafólk troðfylltu Klifið
FRAMKVÆMDUM við nýja bens-
ínstöð Essó á lóð nálægt Umferðar-
miðstöðinni var hætt í síðustu viku
að beiðni borgaryfirvalda, þar sem
tilskilin leyfi höfðu ekki fengist fyrir
framkvæmdunum.
Hermann Guðmundsson, forstjóri
Essó, segir að tildrög málsins hafi
verið þau að bæði borgin og Essó
standi fyrir framkvæmdum á lóðinni
og ákveðið hafi verið að samtvinna
framkvæmdirnar og láta sama verk-
takann sjá um þær. Verktakinn hafi
byrjað á jarðvegsframkvæmdum á
þeim hluta lóðarinnar sem tilheyrir
Essó en tilskilin leyfi höfðu ekki
fengist fyrir þeim hluta fram-
kvæmdanna. Hermann segir að leyf-
isumsókn sé nú til meðferðar hjá
borginni. Framkvæmdir hefjist um
leið og leyfi liggi fyrir.
Vilja ná lausn með Essó
Gísli Marteinn Baldursson, for-
maður umhverfisráðs Reykjavíkur-
borgar, segir að afstaða Sjálfstæð-
isflokksins sé sú að þessi staðsetning
bensínstöðvarinnar sé ekki góð. Á
hinn bóginn viðurkenni flokkurinn
rétt Essó til að reisa bensínstöðina,
enda hafi þeim verið heitið lóðinni í
skiptum fyrir lóð fyrirtækisins við
Geirsgötu sem þarf að rýma vegna
byggingar tónlistar- og ráðstefnu-
húss. Það flækti málið, því allar tafir
á framkvæmdum við bensínstöðina
hefðu í för með sér tafir á fram-
kvæmdum við tónlistarhúsið. Þar að
auki geti það valdið borginni háum
skaðabótum að standa ekki við gerða
samninga.
Gísli segir að til standi að ræða við
forsvarsmenn Essó og kanna hvort
einhver flötur sé á að ná lausn í mál-
inu.
Ekki náðist í fulltrúa fram-
kvæmdasviðs borgarinnar vegna
málsins í gær.
Framkvæmdum hætt
við nýja stöð Esso
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
„ÞEGAR ég fékk
boðið gat ég ekki
annað en svarað
kallinu og var
tilbúinn að taka
við stjórninni
strax – þó svo að
það sé erfitt að
fara frá fyrirtæki
mínu hér heima.
Þetta var boð
sem var ekki hægt að hafna,“ sagði
Viggó Sigurðsson, fyrrverandi
landsliðsþjálfari í handknattleik,
sem tímabundið hefur verið ráðinn
þjálfari þýska handknattleiksliðsins
Flensburg-Handewitt. Hann tekur
við þjálfun um næstu helgi og stýrir
því næstu fjóra mánuðina. Viggó
gekk frá sínum málum við for-
ráðamenn Flensburg í fyrradag og
heldur utan um næstu helgi.
Flensburg er eitt af öflugustu
handknattleiksliðum Þýskalands.
Það varð þýskur meistari 2004 og
hafnaði í öðru sæti í fyrra og í vor.
Þá vann það þýsku bikarkeppnina
þrjú ár í röð, frá 2003 og lék til úr-
slita í Meistaradeild Evrópu 2005.
„Þetta er mikill heiður fyrir mig
og geysileg áskorun,“ sagði Viggó í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Svíinn Kent-Harry Andersson,
þjálfari Flensburg undanfarin ár,
verður í veikindaleyfi næstu vik-
urnar en hann þarf að gangast undir
aðgerð vegna góðkynja æxlis við
hægra eyra. | Íþróttir
„Boð sem ekki var
hægt að hafna“
Viggó Sigurðsson
MIKIL veðurblíða var á Vesturlandi
í gær og hitinn fór víða í um 20°.
Fjaran við Ólafsvík nýtur ávallt
mikillar hylli þegar hlýtt er í veðri
og hópuðust þangað börn sem ærsl-
uðust í sjónum sem mest þau máttu.
Morgunblaðið/Alfons
Ærslast í Ólafsvík
LANDSPÍTALI – háskólasjúkra-
hús hyggst frá og með næstu ára-
mótum banna reykingar starfs-
manna í vinnutíma. Að sögn
Hólmfríðar Erlingsdóttur, verk-
efnisstjóra á skrifstofu starfs-
mannamála LSH, hefur spítalinn
lengi verið reyklaus vinnustaður.
„Samt var vitað að einstaka starfs-
menn reykja enn í vinnutímanum
hér og þar fyrir utan spítalann.
Það þótti ástæða til þess að stíga
skrefið til fulls og gera spítalann
raunverulega að algjörlega reyk-
lausum vinnustað,“ segir Hólm-
fríður en þess má geta að könnun
sem gerð var meðal starfsmanna
snemma á árinu sýndi að aðeins
7% starfsmanna reykja í vinnu-
tíma.
Að sögn Hólmfríðar verður allt
árið 2006 notað til þess að und-
irbúa breytinguna sem framundan
er og aðstoða starfsfólk við að
hætta að reykja. Þannig er starfs-
fólki boðið upp á ókeypis reykleys-
isnámskeið, afslátt af nikótínlyfj-
um, auk þess sem nýverið er farið
að veita reyklausum deildum og
einingum sérstaka viðurkenningu
og verðlaun, t.d. í formi ávaxta-
karfna. | 8
Banna reykingar
í vinnutímanum
UNDIRBÚNINGUR að setningu
reglna um staðsetningu fiskeld-
iskvía er hafinn í sjávarútvegs-
ráðuneytinu, að sögn Einars K.
Guðfinnssonar sjávarútvegs-
ráðherra.
Í slíkum reglum yrði skorið úr
um hvar slíkar kvíar mættu vera
staðsettar og til að mynda hversu
nálægt árósum þær mættu vera.
Til umfjöllunar hjá umhverf-
isráðherra er nú kæra Lands-
sambands veiðifélaga þess efnis
að ákvörðun Skipulagsstofnunar
um að fyrirhugað þorskeldi fyr-
irtækisins Agva ehf. þurfi ekki að
fara í umhverfismat verði hnekkt.
Áform fyrirtækisins gera ráð fyr-
ir að reisa allt að 3.000 tonna
þorskeldi í Hvalfirði og annað
eins í Stakkafirði á Reykjanesi. | 6
Setja á reglur
um staðsetn-
ingu eldiskvía
RANNSÓKN Heilsugæslustöðv-
arinnar á Akureyri og annarra
bendir til þess að tengsl séu á milli
aukinnar þyngdar og lakari náms-
árangurs hjá nemendum 10. bekkj-
ar. Meðal þungra eru aðeins örfáir
nemendur sem ná ágætum náms-
árangri að sögn Magnúsar Ólafs-
sonar læknis. Í rannsókninni kemur
jafnframt fram að þyngdarþróun á
því svæði sem var rannsakað væri
jákvæð í 4.–7. bekk. Nemendur í 10.
bekk skera sig hins vegar úr því
þeir þyngjast á milli ára. Árið 2000
mældist hlutfall of þungra í 10.
bekk 21,3 % en nú 27,7%. | 19
Tengsl milli
þyngdar og
námsárangurs
LÖGREGLAN á Ísafirði hafði af-
skipti af flugmanni fisvélar sem
lent hafði vél sinni á þjóðveginum
við Flateyri í gær. Eftir að hafa lent
á veginum keyrði maðurinn inn á
bensínstöð og fyllti tankinn á vél-
inni áður en hann tók á loft að nýju
á túnbletti fyrir neðan bensínstöð-
ina. „Við höfðum uppi á flugmann-
inum og töluðum við hann. Fólk á
ekki von á að fljúgandi hlutir séu að
lenda þar sem það er á ferð, bæði
gangandi og akandi,“ sagði varð-
stjóri lögreglunnar á Ísafirði.
Lenti fisvél á
þjóðveginum