Morgunblaðið - 08.08.2006, Qupperneq 2
Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson
Brúnni yfir Jökulsá við Kárahnjúka var lokað þrívegis um helgina vegna vatnavaxta en áin flæddi yfir brúargólfið.
Brúnni yfir Jökulsá á Dal lokað þrívegis
BRÚNNI yfir Jökulsá á Dal við
Kárahnjúka var lokað þrívegis um
helgina vegna vatnavaxta. Áin
flæddi yfir brúargólfið seinni part
laugardags, sunnudags og mánu-
dags. Sigurður Arnalds, upplýs-
ingafulltrúi Kárahnjúkavirkjunar,
segir það ekki hafa valdið neinum
vandræðum við vinnu á svæðinu
þó að brúin hafi lokast. „Við get-
um alltaf komist með það sem
tengist vinnunni í gegnum vinnu-
svæðið sjálft. Þessi brú verður
fjarlægð í byrjun september áður
en við byrjum að fylla í lónið.“
Það er bráðnun inni á jökli sem
veldur þessum vatnavöxtum, sem
Sigurður segir mun minni en und-
anfarin ár. „Ástæðan fyrir því að
áin fer svona hátt upp er sú að
önnur hjáveitugöngin, þau efri og
minni, eru ekki með núna vegna
þess að það er búið að breyta þeim
í varanlegar botnrásir. Flutnings-
getan framhjá stíflunni er því
minni en áður en það gerir ekkert
til, brúin þolir alveg þessa vatns-
hæð.“
Spáð er kaldara veðri á svæðinu
það sem eftir er vikunnar og sjatn-
ar því væntanlega í ánni.
2 ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
DJÚPBORUN KÖNNUÐ
Undirbúningur djúpborunarverk-
efnis á Kröflusvæðinu við Mývatn
stendur yfir og á næstu vikum
verður efnt til útboðs á því efni
sem þarf til borunarinnar. Fengist
hefur vilyrði frá tveim erlendum
sjóðum fyrir fjármunum til verk-
efnisins auk þess sem Alcoa hefur
lýst yfir áhuga á að koma að verk-
efninu.
Tjaldbúðir upprættar
Lögreglan á Seyðisfirði hefur
upprætt tjaldbúðir mótmælenda
sem komið höfðu sér fyrir innan
virkjanasvæðisins við Lindur. Fólk-
ið hafði ítrekað ruðst inn á vinnu-
svæðið, truflað vinnu og voru m.a.
fjórtán manns handteknir í fyrri-
nótt, en sleppt að loknum yfir-
heyrslum.
Útihátíðir fóru vel fram
Þrátt fyrir á áttunda tug fíkni-
efnamála og eina kærða nauðgun
telst verslunarmannahelgin í heild-
ina hafa farið vel fram í ár og voru
mótshaldarar víðast hvar um land
ánægðir. Þeir sem sóttu skipulagð-
ar hátíðir skiptu þúsundum og var
minna um líkamsárásir og nauðg-
anir en oft áður. Lögreglu eru
þökkuð vel unnin störf en strangt
eftirlit var á helstu stöðum.
Blóðug helgi á Sri Lanka
Allt að 15 menn biðu bana þegar
stjórnarherinn á Sri Lanka gerði í
gær harðar árásir á liðsmenn tam-
ílsku Tígranna í bænum Muttur
skammt frá Trincomalee-svæðinu í
norðausturhluta landsins. Blóðugir
bardagar hafa geisað á svæðinu á
síðustu dögum og um helgina létust
16 starfsmenn franskrar hjálp-
arstofnunar þegar þeir lentu í eld-
línu átakanna.
Bush vill vopnahlé
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, sagðist í gær ekki búast
við því að leiðtogar Hizbollah-
hreyfingarinnar og Ísraelsmanna
myndu samþykkja öll atriði nýs
uppkasts í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna, þar sem kveðið er á um
vopnahlé í Líbanon.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 26
Fréttaskýring 8 Minningar 28/35
Úr verinu 10 Skák 38
Viðskipti 11 Dagbók 40/43
Vesturland 11 Víkverji 40
Erlent 14/15 Velvakandi 41
Daglegt líf 16 Staður og stund 42
Menning 17, 44/49 Ljósvakamiðlar 50
Umræðan 20/25 Veður 51
Bréf 25 Staksteinar 51
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu fylgir
kynningarblaðið Fiskidagurinn mikli,
Dalvíkurbyggð, 12. ágúst 2006.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó-
hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is
Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns-
dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
KONA á fertugsaldri lést í bílslysi á Suður-
landsvegi, til móts við bæinn Langsstaði í Flóa,
um kl. hálfeitt aðfaranótt mánudags. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi
lést konan á vettvangi en hún var einsömul í
fólksbifreið sem ekið var í vesturátt. Rakst bif-
reiðin harkalega á aðra, jeppling sem í voru
þrír karlmenn á þrítugsaldri, sem kom úr gagn-
stæðri átt. Jeppabifreiðin valt í kjölfarið og
hafnaði utan vegar. Kviknaði í henni eldur en
mönnunum þremur tókst að komast úr flakinu
af sjálfsdáðum, áður en bíllinn varð alelda.
Voru sár þeirra minni háttar að sögn lögreglu.
Mennirnir voru fluttir til skoðunar á Heilbrigð-
isstofnun Suðurlands á Selfossi og svo sendir
þaðan með sjúkrabifreiðum á slysadeild Land-
spítala – háskólasjúkrahúss til frekari aðhlynn-
ingar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út
vegna slyssins en konan var úrskurðuð látin áð-
ur en þyrlan komst á vettvang.
Tildrög slyssins eru enn í rannsókn lögreglu
en hvorki leikur grunur á að ölvunar- né hrað-
akstur hafi verið orsökin. Þetta var tólfta bana-
slysið í umferðinni í ár.
Ekki er unnt að greina frá nafni hinnar látnu
að svo stöddu.
Lést í harkalegu umferðarslysi
Þremur karlmönnum sem voru í jepplingnum tókst að koma sér úr bílnum áður en hann varð alelda. Bifreið konunnar sem lést er afar illa farin.
Ljósmynd/Guðmundur Karl
AKUREYRARBÆR leggur 1,3
milljónir króna til hátíðarinnar Ein
með öllu auk þess að taka þátt í und-
irbúningsstarfi ásamt Vinum Akur-
eyrar, samtökum fyrirtækja í bænum
sem skipuleggja hátíðina. Kristján
Þór Júlíusson bæjarstjóri segir að
bærinn vilji vera með í hátíðahöldun-
um og það sé til mikilla bóta að fyr-
irkomulagið sé á þann veg.
„Mér fannst þetta ganga vonum
framar miðað við þann aragrúa fólks
sem kaus að sækja okkur heim þessa
helgi,“ segir hann. „Eðli málsins sam-
kvæmt er þetta ærið verkefni fyrir
starfsmenn sveitarfélags og ríkis auk
fyrirtækja. Það er ljóst að það var
gríðarlegt álag á þessu starfsfólki um
helgina þegar íbúafjöldinn tvöfaldað-
ist. Ég tel að allt þetta fólk hafi staðið
sig með miklum sóma.“
Spurður hvort gremju gæti vegna
slæmrar hegðunar sumra, segir
Kristján að svo sé, en ekki þurfi þessa
helgi til. „Þegar eitthvað fer miður í
samfélaginu, þá
fyllast menn
gremju,“ segir
hann. Segist hann
ekki viss um hvort
það hafi verið
verslunarmanna-
helginni að kenna
að 13 bílar hafi
verið skemmdir í
bænum um
helgina. „Þetta er tilvik sem alltaf get-
ur komið upp á á meðan einhverjir
eru illa innrættir og hafa þörf fyrir að
vinna skemmdarverk, því miður.“
Kristján Þór túlkar fíkniefnamálin
66 þannig að lögreglan hafi unnið
feikigóða vinnu með því að setja mik-
inn kraft í eftirlitið. „Það er alveg ljóst
að lögreglan vann alveg frábæra
vinnu hérna.“
Þeir fjármunir sem bærinn leggur
til hátíðarinnar hafa farið í að greiða
gæslufólki laun og kaupa skemmti-
atriði fyrir börn.
Mikið álag á starfs-
fólkinu um helgina
Kristján
Þór Júlíusson