Morgunblaðið - 08.08.2006, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Stökktu til
Fuerteventura
22. ágúst
frá kr. 29.990
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Bjóðum nú síðustu sætin í ágúst til nýj-
asta áfangastaðar Heimsferða, Fuerte-
ventura, sem svo sannarlega hefur slegið
í gegn hjá Íslendingum. Þú bókar sæti og
4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar
þú gistir. Njóttu lífsins á þessum vinsæla
sumarleyfisstað. Að sjálfsögðu nýtur þú
traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða
allan tímann.
Verð frá kr.29.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í
íbúð í viku 22. ágúst. Aukavika kr. 14.000.
Verð frá kr.39.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna saman í
íbúð m. 1 svefnherbergi í viku 22. ágúst.
Aukavika kr. 14.000.
Síðustu sætin
SJÖ umsóknir bárust Faxaflóa-
höfnum eftir að félagið auglýsti
nokkrar lóðir til úthlutunar í Vestur-
höfninni í Reykjavík. Um er að ræða
byggingarsvæði á landfyllingu vest-
an við Fiskislóð, en þar hefur nokkr-
um lóðum þegar verið úthlutað.
Meðal fyrirtækja sem sóttu um lóðir
á svæðinu eru fiskvinnslu- og sölu-
fyrirtækið Nordic Partners, Tölvu-
listinn, Listadún Snæland, Exton og
Reykjavíkurborg.
Að sögn Vignis Albertssonar,
skipulagsfulltrúa Faxaflóahafna, er
ekki búið að úthluta lóðunum sjö, en
umsóknir fyrirtækjanna sem sýndu
áhuga voru lagðar fyrir hafnar-
stjórnarfund nýlega. Þar var sam-
þykkt að áfram yrði unnið með um-
sóknirnar og að formleg tillaga yrði
lögð fyrir næsta fund hafnarstjórn-
ar. Hafnarstjórn mun svo taka
ákvörðun um úthlutun lóðanna um
mánaðamót ágúst og september. Nú
stendur hins vegar til að ræða við þá
aðila sem sótt hafa um lóðir og skoða
niðurröðun á þær, með tilliti til þess
að ekki verði hagsmunaárekstrar
milli þjónustufyrirtækjanna.
Nýjar verslanir Byko
og Krónunnar
Þegar hafa Smáragarður ehf. og
dekkjaþjónustufyrirtækið Barðinn
fengið lóðum úthlutað á svæðinu.
Smáragarður fékk 22.000 fermetra
lóð og hyggst fyrirtækið reisa þar
húsnæði sem mun hýsa byggingar-
vöruverslunina BYKO og lágvöru-
verslunina Krónuna, en hinar nýju
verslanir koma til með að taka við af
verslunum Byko og Krónunnar í
Vesturbænum, sem nú eru í ná-
grenni JL-hússins.
Að sögn Bjarna Jónssonar hjá
Smáragarði er ekki komið á hreint
hvenær framkvæmdir á lóðinni hefj-
ast, enda lóðin ekki tilbúin af hálfu
borgaryfirvalda. Vonast hann til
þess að fyrirtækið fái lóðina afhenta
í haust og segir að Smáragarður
muni í kjölfarið hefja uppbyggingu á
lóðinni um leið og tilskilin umhverf-
is- og skipulagsleyfi fáist til verks-
ins. Bjarni segir að búist sé við að
einhver verslun verði komin í húsið
að ári liðnu.
Þjónustukjarni
Mýrargötuhverfisins
Vignir og Bjarni eru sammála um
að mjög gott þjónustusvæði geti
myndast á reitnum í náinni framtíð
sem komi til með að þjóna hinu nýja
hverfi við Mýrargötuna sem og öll-
um Vesturbænum.
Í nágrenni lóðanna sem úthluta á
má nú þegar finna þjónustufyrirtæki
á borð við Ellingsen, Húsasmiðjuna
og Europris, auk þess sem höfuð-
stöðvar Lýsis standa í næsta ná-
grenni.
Nýtt þjónustuhverfi rísi á landfyllingu vestan við Fiskislóð
Morgunblaðið/Golli
Sjö umsóknir bárust um byggingarsvæðið í Vesturhöfninni en Faxaflóahafnir auglýstu þar lóðir til úthlutunar.
Sjö sækja um lóðirnar
Ljósmynd/Emil Þór
Horft yfir reit fyrirhugaðs þjónustuhverfis. Á hringtorginu efst mætast
Mýrargata, Ánanaust og Fiskislóð. Lengst t.h. eru höfuðstöðvar Lýsis.
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
HIMINN og haf skildi að tvær stærstu útihá-
tíðir landsins hvað fíkniefnamál snerti, þ.e. á
Akureyri og í Vestmannaeyjum. Á fyrrnefnda
staðnum komu upp á sjöunda tug fíkniefnamála
og hafa aldrei verið fleiri í sex ára sögu hátíð-
arinnar. En á þjóðhátíð í Eyjum voru fíkniefna-
málin tólf talsins og teljast vera óvenjufá miðað
við það sem verið hefur undanfarin ár. Fjórir
fíkniefnahundar voru notaðir á Akureyri og þrír
í Eyjum. Skýringarnar á þessu kunna að vera
meiri fíkniefni í umferð eða öflugra eftirlit. Eða
hugsanlega sú að Akureyri og Eyjar hafi skipt á
milli sín kynslóðum með því að unga fólkið hafi
verið fyrir norðan en hið eldra í Eyjum.
Lögreglan á Akureyri fékk 66 fíkniefnamál
inn á sitt borð, þar af þrjú mál þar sem grunur
var um sölu, en langflest málin voru vegna
neyslu. Einkum var lagt hald á amfetamín og
hass en ekki liggur fyrir magnið sem haldlagt
var.
Átján þúsund manns voru á hátíðinni Einni
með öllu á Akureyri og sagði lögreglan að lang-
flestir hefðu verið þægir en hins vegar hefði allt
of stór hópur komið á hátíðina með því hugarfari
að láta illa. Afleiðingarnar urðu skemmdir á 13
bílum að tilefnislausu og sömuleiðis var rúða
brotin í heimahúsi, líka að ástæðulausu. Lög-
reglan hafði ekki tölu á því hve margir voru
handteknir vegna ýmissa mála yfir helgina.
Nokkur líkamsárásarmál komu til kasta lögregl-
unnar, þar af eitt alvarlegt. Þá var ein nauðgun
kærð til lögreglu.
„Það var mikið af fólki og mikið af verkefnum
en við vorum ekki að horfa upp á stór og gróf
mál, stórslys eða slíkt. Þetta hefur flotið með
ágætum hætti þótt margir einstaklingar hafi
komið við sögu okkar af misjöfnu tilefni,“ segir
Hermann Karlsson, varðstjóri á Akureyri.
Varðandi fíkniefnamálin mun lögreglan halda
áfram með rannsóknir á þeim nú að lokinni há-
tíðinni, telja saman efnin og ljúka rannsóknum.
„Málafjöldinn er talsvert meiri en í fyrra og
menn sáu að yfirbragðið var annað. Líkurnar
voru talsverðar á að ákveðinn þekktur hópur
fólks væri með fíkniefni á sér.“
Hermann dregur þær ályktanir af fjölda fíkni-
efnamálanna að mikið sé af efnum í umferð og
auðvelt aðgengi sé staðreynd. „Það virðist því
vera nóg framboð af fíkniefnum,“ segir Her-
mann. Hann segir alls ekki áberandi að eftirlits-
lausir unglingar yngri en 18 ára hafi komið við
sögu lögreglu, þótt einhver dæmi hafi verið um
slíkt. „Það kom öll flóran í verkefnum upp á
borðið en sem betur fer minni háttar útgáfur af
flestu.“
Þjóðhátíð fór vel fram þrátt fyrir vosbúð
Á Þjóðhátíð komu um 10 þúsund manns. Jó-
hannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Eyjum,
segir þjóðhátíðina hafa farið vel fram þrátt fyrir
dálitla vosbúð vegna veðurs. En brugðist var við
því með því að koma fólki í skjól í íþróttahúsinu í
Eyjum. Ein tilraun til nauðgunar kom til kasta
lögreglu og ein líkamsárás var kærð auk tveggja
annarra líkamsárásarmála sem voru tilkynnt.
„Það komu upp tólf fíkniefnamál, öll minni
háttar nema eitt þegar 17 grömm af amfetamíni
í söluumbúðum fundust á manni. Þetta eru samt
mun færri mál en verið hafa hin síðari ár þar
sem fjöldinn hefur verið á fjórða tuginn,“ segir
hann. „En það virðist sem ekki hafi verið mikið
af fíkniefnum að þessu sinni.“
Talið er að heildarmagn haldlagðra fíkniefna
sé um 30 grömm að mati Jóhannesar.
Hann segir mjög öfluga gæslu hafa haft sitt að
segja með það hversu vel gekk að halda þjóðhá-
tíð að þessu sinni og hann segir greinilegt að
unga fólkið hafi ekki verið áberandi hlutfall
gesta. „Við merktum það að hér var frekar fólk í
eldri kantinum í sambland við fullorðið fólk og
heimamenn á svæðinu.“
Fimm sinnum fleiri fíkniefna-
mál á Akureyri en í Eyjum
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
BRAGI Bergmann, talsmaður hátíð-
arinnar Einnar með öllu á Akur-
eyri, segir að almennt hafi vel tekist
til um verslunarmannahelgina með
því að 99% gesta hafi hegðað sér
vel. Hins vegar hafi svartir sauðir
skemmt fyrir hinum. Hinn mikli við-
búnaður lögreglu hafi gert sitt til að
uppræta öll þau fíkniefnamál sem
upp komu. Varðandi ölvun, segir
Bragi það ekkert nýtt að Íslend-
ingar gangi hratt um gleðinnar dyr.
„Við erum mjög stoltir af því að
hafa mjög strangt eftirlit með ung-
lingunum okkar,“ segir hann. „Hér
hefur alist upp kynslóð sem aldrei
hefur farið út í óvissuna á útihátíð
og sofið margar nætur úti. Börnin
okkar og unglingarnir koma heim á
næturnar og sofa heima hjá sér.
Gæslan á tjaldsvæðunum var mjög
mikil en því miður voru nokkrir
gestir sem settu svartan blett á há-
tíðina með skemmdarverkum. En
við erum mjög ánægð með hátíðina
að öðru leyti og hún gekk mjög vel
fyrir sig.“
Bragi segir Eina með öllu vera
einu útihátíð landsins sem fari að
lögum um að setja 18 ára aldurs-
takmark á tjaldsvæðum. Þá hafi há-
tíðin alltaf beðið Aflið, systursam-
tök Stígamóta, um að vera á
staðnum og hafi samtökunum verið
greitt fyrir. Enn fremur hafi karla-
deild Femínistafélagsins verið á há-
tíðinni alla helgina og verið ánægð-
ir með móttökurnar.
„Við erum með eins mikið eftirlit
og forvarnir og okkur er mögulega
unnt en við munum náttúrlega
reyna að gera enn betur að ári. Það
er þó erfitt að eiga við þá sem
skemma bíla og annað algerlega að
tilefnislausu. Ég veit ekki hvað er
að þessu fólki.“
Nýafstaðin hátíð er sú langfjöl-
mennasta í sex ára sögu Einnar með
öllu á Akureyri og komu um 18 þús-
und manns.
Talsmaður Einnar með öllu segir 99%
hátíðargesta hafa verið til fyrirmyndar
Svörtu sauðirnir
skemmdu fyrir
HEILSUGÆSLAN í Vestmanna-
eyjum hefur byggt upp sérstakt
teymi til að taka á kynferðisofbeldi
vegna þjóðhátíðar í Eyjum og þess
vegna hefur hjúkrunarforstjóranum
sárnað nokkuð viðbrögð Stígamóta-
kvenna við því þegar þjónusta
þeirra var afþökkuð í Eyjum um
helgina. Telur Guðný Bogadóttir að
ekki hafi verið ætlun Eyjamanna að
afþakka boð Stígamótakvenna til að
þagga niður nauðgunarmál í Eyjum
heldur hafi heimamenn verið full-
bærir um að taka á slíkum málum
og bjóða fullnægjandi þjónustu.
Eitt nauðgunarmál var tilkynnt á
þjóðhátíð og var þar um að ræða
unga stúlku sem send var á neyðar-
móttöku fyrir þolendur kynferðis-
ofbeldis á Landspítalann í Foss-
vogi.
Guðný segir heilsugæsluna hafa
þróað upp sérstakt ferli og skipað
teymi með hjúkrunarfræðingi, ljós-
móður og lækni. Vakni grunur um
kynferðisofbeldi sé hringt í síma-
númer neyðarteymisins. „Hjúkr-
unarfræðingur fer með þolandann
upp á heilbrigðisstofnun þar sem
fyrir hendi er örugg aðstaða,“ segir
Guðný.
Fullnægjandi
þjónusta vegna
kynferðisbrota