Morgunblaðið - 08.08.2006, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 08.08.2006, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skólavörurnar komn-ar, auglýsa núverslanir í gríð og erg, sem þýðir aðeins eitt: Senn flykkjast yfir hundr- að þúsund nemendur á öll- um skólastigum, inn í skóla landsins. Það er um þriðjungur þjóðarinnar. Að auki má gera ráð fyrir að yfir 2.000 íslenskir nemendur hefji nám á er- lendri grund. Börn sem verða sex ára á árinu, fædd aldamótaárið 2000, eru 4.330 talsins og lang- flest þeirra eru í haust að setjast á skólabekk í fyrsta sinn. Það er um 200 fleiri nemendur en hófu nám í 1. bekk grunnskóla síð- asta skólaár. Sjö fimm ára börn voru síðasta vetur í opinberum skólum og 118 í einkaskólum. Auk þess voru níu nemendur í Kára- hnjúkaskóla. Nú þegar verslunarmannahelg- in er að baki fara foreldrar og for- ráðamenn grunnskólabarna að huga að námsgögnum fyrir vetur- inn. Á heimasíðum flestra skóla er að finna lista yfir bækur og annan búnað sem þarf að eiga í skóla- töskunni í vetur. Margir grunn- skólar landsins hefja göngu sína á ný eftir sumarfrí þriðjudaginn 22. ágúst nk.. Miðað við það eru nú aðeins um tvær vikur eftir af sum- arfríinu. Aldrei fleiri í skóla Á skólaárinu 2005–2006 var heildarfjöldi nemenda á Íslandi á öllum skólastigum í fyrsta sinn meiri en 100 þúsund, eða 101.171 nemandi á leikskólastigi fram á háskólastig, samkvæmt upplýs- ingum Hagstofu Íslands. Engar opinberar tölur eru enn tiltækar fyrir næsta skólaár, en gera má ráð fyrir að fjöldinn verði eitthvað meiri, m.a. vegna mjög mikillar ásóknar í háskólanám og einnig vegna þess að sá árgangur sem lauk 10. bekk grunnskóla sl. vor og hefur nám í framhaldsskólum í haust er stærsti árgangur Ís- landssögunnar, telur 4.810 ein- staklinga. Rúmlega 94% þeirra sóttu um inngöngu í framhalds- skóla eða 4.528 nemendur en alls bárust skólunum um 6.614 um- sóknir, þ.e. frá umsækjendum sem ekki voru við nám í fram- haldsskólum á vorönn 2006. Tæplega þriðjungur allra um- sókna að þessu sinni kemur frá nemendum sem koma aftur til náms eftir hlé. En þar sem at- vinnuþátttaka ungmenna á Ís- landi er mikil er líklegt að óregla í skólasókn sé meiri hér á landi en í flestum nágrannalöndunum. Auk þess sóttu í vor 1.450 núverandi nemendur í framhaldsskólum um að skipta um skóla nk. haust. Höfðu skólarnir fyrirfram gert ráð fyrir að geta tekið á móti allt að 6.800 nemendum og samkvæmt upplýsingum frá menntamála- ráðuneytinu komust allir nemend- ur inn sem það vildu. Stöðugt hærra hlutfall hvers árgangs sækir um í framhalds- skóla að loknu grunnskólaprófi. Árið 1999 var hlutfallið undir 90% en er nú í kringum 95%. Sl. haust var heildarfjöldi nemenda á fram- haldsskólastigi 23.345 og hafði þá fjölgað um 3,3% frá haustinu 2004. Í Morgunblaðinu kom nýverið fram að átta af háskólum landsins bárust samtals um 8.380 umsóknir fyrir næsta skólaár, þar af a.m.k. 500 frá erlendum nemendum. Nemendur á háskólastigi voru í heild 16.626 sl. haust. Tvöfalt fleiri nemendur stunduðu nám á há- skólastigi haustið 2005 en voru í námi haustið 1997. Haustið 2005 voru tæplega 82% nemenda í framhalds- og háskól- um í námi í dagskóla, rúmlega 12% í fjarnámi og 6% nemenda voru í kvöldskólum. Þá voru níu framhaldsskólar og fjórir háskól- ar með fleiri en 1.000 nemendur. Um 17 þúsund börn í leikskólum landsins Í desember 2005 sóttu 16.864 börn leikskóla á Íslandi og hafa leikskólabörn aldrei verið fleiri, samkvæmt upplýsingum Hagstof- unnar. Leikskólabörnum hefur fjölgað um 109 börn frá desember 2004 eða um 0,65%. Þetta er nokkru meiri fjölgun en á milli ár- anna 2003 og 2004. Börnum sem hafa annað móð- urmál en íslensku fjölgar ár frá ári og eru nú um 1.250 talsins, eða 7,4% allra leikskólabarna. Al- gengasta erlenda móðurmál leik- skólabarna er pólska (189 börn) og í öðru sæti er enska (159 börn). Í grunnskólum landsins var hlut- fall barna sem hafði annað móð- urmál en íslensku haustið 2005 um 3,6%. Þá voru 275 leikskólabörn skráð með erlent ríkisfang og voru flestir erlendir ríkisborgarar frá Austur-Evrópu, eða 51,6%. Fleiri stelpur en strákar Undanfarin ár hefur þróunin verið sú að nokkuð fleiri stúlkur en drengir hefja nám í framhalds- skólum og eykst munurinn enn frekar þegar í háskóla er komið. Skólasókn 16 ára drengja á landsvísu var á síðasta ári 93% en 16 ára stúlkna 95% og hafði hún þá aukist um eitt prósentustig frá fyrra ári hjá báðum kynjum. Í heild eru konur um 52% nemenda á framhaldsskólastigi og tæp 63% nemenda á háskólastigi. Fréttaskýring | Skólarnir byrja senn Stöðugt fleiri fara í skóla Reikna má með að tæplega 4.300 börn setjist á skólabekk í fyrsta sinn í haust Búðir eru stútfullar af skólabókum. 518 skólar starfandi í land- inu á öllum skólastigum  Á síðasta ári voru 262 leik- skólar í landinu. 234 voru reknir af sveitarfélögum og 28 af öðr- um. Þá voru 177 grunnskólar starfandi, þar af sjö einkareknir og fjórir sérskólar reknir af op- inberum aðilum. Fjölbrauta- skólar voru 21 talsins, mennta- skólar 8 og sérskólar með nám á framhaldsskólastigi 11. Tónlist- arskólar með nám á framhalds- skólastigi voru 26. Þá voru 8 há- skólar í landinu og 5 sérskólar með nám á háskólastigi. Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is BJÖRN Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, ritar á vef- svæði sitt, bjorn.is, föstudaginn 4. ágúst sl. að sérkennilegt sé að lesa og heyra skoðanir Ragnars Aðalsteinssonar hrl. á því hvernig stjórnsýslu er háttað og vísar m.a. í orð Ragnars að lögregla sinni öryggisgæslu við Kára- hnjúka vegna „skipana að sunn- an“ og að þjóðskjalavörður sé beittur „þrýstingi að ofan“ þegar óskum Ragnars um aðgang að skjölum í Þjóðskjalasafninu er svarað. Björn ritar þá: „Að gefnu til- efni árétta ég þá skoðun mína, að eðlilegt sé að birta öll opinber gögn um kalda stríðið hér á landi og úr erlendum skjalasöfnum, sem unnt er lögum samkvæmt og þeim reglum, sem gilda um birt- ingu slíkra gagna“, en einnig: „Um meðferð opinberra skjala og skyldu til að skila þeim til Þjóð- skjalasafns gilda lög og ber ráðu- neytum að sjálf- sögðu að fara að þeim lögum. Að reyna að gera lögbundin skil á skjölum til Þjóðskjalasafns tortryggileg byggist á ann- arlegum sjónar- miðum og sam- særisáráttu.“ Björn segist sannfærður um að birting íslenskra skjala frá tímum kalda stríðsins muni þagga niður í samsæriskenningasmiðum og þar með hreinsa andrúmsloftið í umræðum um þetta skeið í Ís- landssögunni. „Að láta eins og ég sé einhver andstæðingur þess, að opinber gögn frá þessum tíma séu birt og rædd, er með öllu úr lausu lofti gripið og í raun frá- leitt. Ég ætti kannski að leita réttar míns fyrir dómstólum til að fá þessum áburði hnekkt?“ Annarleg sjónarmið og samsærisárátta Björn Bjarnason FRAMGANGA lögreglu gegn mót- mælendum og öðru ferðafólki á há- lendinu norðan Vatnajökuls er harðlega gagnrýnd í yfirlýsingu sem Náttúruverndarsamtök Íslands hafa sent frá sér. „Samtökin leggja áherslu á að í lýðræðisþjóðfélagi hafi fólk rétt til að mótmæla með friðsömum hætti og að yfirvöldum beri að koma fram við mótmælendur af fullri virðingu,“ segir m.a. í yfirlýsing- unni en einnig gagnrýna samtökin framgöngu lögreglunnar gegn fólki sem ferðast hefur um svæðið. „Lögreglan hefur ítrekað stoppað ferðafólk sem er á ferðalagi um svæðið og leitað í bílum þess. Al- menningur hefur rétt á að fara um svæðið óáreittur svo fremi hann gangi vel um og haldi sig utan merktra vinnusvæða.“ Að endingu hvetja samtökin stjórnvöld til að láta ekki þann hernað gegn íslenskri náttúru, sem eigi sér stað við Kárahnjúka og á öræfunum við Snæfell, snúast upp í hernað gegn saklausu ferðafólki. Framganga lögreglu harðlega gagnrýnd ÞEIR skemmtu sér vel þessir ungu drengir á Sæludög- um sem fram fóru í Vatnaskógi um verslunarmanna- helgina. Þar var skemmtun af ýmsu tagi í boði fyrir unga sem aldna. Meginviðfangsefni Sæludaga var vímulaus valkostur og voru hátíðarhöldin ætluð fyrir alla fjölskylduna. Morgunblaðið/ÞÖK Fjör á Sæludögum í Vatnaskógi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.