Morgunblaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 9
FRÉTTIR
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Útsalan enn í gangi
Str. 38-56
NÝTT NÝTT!
Tökum upp
nýjar vörur
Leðurstígvél
í str. 37-43 komin
Þriðjudagur
Grænmetislasagna m/pestó
Miðvikudagur
Afrískur pottréttur m/steiktum banönum
Fimmtudagur
Hummus, buff & bakað grænmeti
Föstudagur
Burritos m/chillisósu & guacamole
Helgin
Linsubaunabollur & cashewkarrý
undirfataverslun, Síðumúla 3, sími 553 7355.
Lokað í dag og á morgun
Útsalan hefst fimmtudaginn 10. ágúst
Sumaropnun: Virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 11-15.
Póstsendum
Laugavegi 82, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
25% afsláttur af
brúðarkorselettum
Ný búð á nýjum stað
Laugavegi 63 • S: 551 4422
LÍÐUR AÐ ÚTSÖLULOKUM
ALGJÖRT VERÐHRUN
Nýjar vörur frá
„SKÁL í tjaldinu!“ heyrðist iðulega
á veitingastaðnum Restaurante El
Varadero í strandbænum Playa
Blanca á kanarísku eyjunni Lanz-
arote síðastliðið laugardagskvöld.
Ekki var tjöldum til að dreifa heldur
var þar staddur um 30 manna hópur
Eyjamanna og vina og vandamanna
þeirra sem fögnuðu þjóðhátíð fjarri
Vestmannaeyjaströndum.
Formleg dagskrá þjóðhátíðar
Eyjamanna á Lanzarote hófst á
sjálfri Playa Blanca-ströndinni með
því að Ingi Sigurðsson flutti hefð-
bundna setningarræðu. Rifjaði hann
upp að válynd veður hefðu orðið til
þess að Eyjamenn hefðu ekki komist
til þjóðhátíðarhalda á Þingvöllum
árið 1874 og því hefðu þeir brugðið á
það ráð að halda eigin þjóðhátíð í
fyrsta sinn. „Nú, 132 árum síðar,
varð íslenskt slagveður að sumri aft-
ur til þess að hópur Eyjamanna sá
sig tilneyddan til að flýja land og
halda eigin þjóðhátíð á annarri eyju,
fjarri hinum eiginlegu þjóðhátíðar-
höldum,“ sagði hann.
Fjársjóðsleit og
G-strengjaboðhlaup
Að lokinni setningarræðu Inga
hóf fámennur en góðmennur
„kirkjukór“ Eyjamanna á Lanzarote
upp raust sína og söng „Kvöldsigl-
ingu“ og í kjölfarið fylgdu blessunar-
orð samkvæmt venju sem lögfræð-
ingurinn Jón „Johnson“ Valgeirsson
flutti að þessu sinni enda þótti hann
komast næst hinu geistlega valdi
séra Kristjáns Björnssonar, sókn-
arprests í Eyjum. Notaði hann tæki-
færið og bauð fram þjónustu sína á
fleiri sviðum, sem alla jafna teljast
til prestsverka, s.s. að ferma, gifta
eða skíra. Gerðist þó enginn hátíð-
argestur svo djarfur að þiggja hans
ágæta boð.
Eftir kórsöng að nýju hófust
íþróttaleikar og var m.a. keppt í fjár-
sjóðsleit, eplaáti, smokkablæstri,
langstökki blindra og G-strengja-
boðhlaupi svo eitthvað sé nefnt.
Kepptu börn á móti fullorðnum og
þótt „heldri“ deildin gæfi hvergi eft-
ir fóru leikar þannig að unga fólkið
sigraði í meirihluta keppnisgreina.
Brekkan með
smærra sniðinu
Gengið var til borðhalds á fyrr-
greindum veitingastað að íþrótta-
móti loknu þar sem sungið var og
skálað títt eins og vera ber á þjóðhá-
tíð. Var það mál manna að stemn-
ingin kæmist býsna nálægt þeirri
upprunalegu þótt vissulega væri
„óvenjuhlýtt í veðri verslunar-
mannahelgina í ár“, eins og einhver
orðaði það.
Þegar menn höfðu etið nægju sína
var aftur gengið til strandar þar sem
tendrað var „bál“ og kveikt í „flug-
eldum“. Reyndar fékkst leyfi
strandyfirvalda fyrir hvorugu og var
því brugðið á það ráð að raða saman
kertum í agnarsmárri „brekku“ sem
hlaðin var á staðnum úr sandi og í
stað flugelda voru stjörnuljós
brennd við fögnuð ungu kynslóð-
arinnar.
Lauk þannig þjóðhátíð Eyja-
manna á Lanzarote á hefðbundnum
nótum; hátíðargestir kyrjuðu
brekkusöngva þar sem þeir störðu í
eldinn og drupu á guðaveigum úr
fleyg sem þeir sem aldur höfðu til
létu ganga sín á milli.
Verslunarmannahelgi hjá Eyjamönnum á Lanzarote
Óvenjuhlý þjóðhátíð í ár
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
á Lanzarote
Morgunblaðið/Bergþóra Njála
Menn gæddu sér á veitingum á Restaurante El Varadero.
Börn kepptu í boðhlaupi Vest-
mannaeyinga á Lanzarote.
ÖRLYGUR Hálfdanarson, bókaút-
gefandi og Viðeyingur, mun í kvöld
stýra þriðjudagsgöngu í Viðey. Ör-
lygur mun leiða gesti á æskuslóðir
sínar í rústum þorps Milljónafélags-
ins á Sundbakka Viðeyjar, að því er
fram kemur í tilkynningu. Þar stóð
frá 1907–1943 reisulegt þorp með
tæplega 140 íbúum þegar mest var.
Var þar rekin mikil útgerð og auk
þess var Viðeyjarbryggja ein um-
svifamesta höfn landsins á tímum
Milljónafélagsins. Á göngunni verð-
ur áð í skólahúsinu í Viðey þar sem
gefur að líta ljósmyndasýningu um
mannlíf í Viðey á fyrri hluta 20. aldar
og líka í vatnstankinum sem nú er fé-
lagsheimili Viðeyingafélagsins. Í
tankinum er sýning um strand kan-
adíska tundurspillisins Skeena sem
strandaði við Viðey 1944.
Gangan hefst með siglingu úr
Sundahöfn klukkan 19 og tekur
gangan um tvær klukkustundir.
Ferjutollur er 750 kr. fyrir fullorðna
og 350 kr. fyrir börn en leiðsögnin
sjálf er ókeypis. Allir þátttakendur
fá gefins Kristal frá Ölgerðinni.
Viðeyjarganga í kvöld
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Algjört verðhrun
Síðustu dagar útsölu