Morgunblaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ALLT AÐ 15 menn biðu bana þegar
stjórnarherinn á Sri Lanka gerði í
gær harðar árásir á liðsmenn tam-
ílsku Tígranna í bænum Muttur
skammt frá Trincomalee-svæðinu í
norðausturhluta landsins. Blóðugir
bardagar hafa geisað á svæðinu á
síðustu dögum og um helgina létust
16 starfsmenn franskrar hjálpar-
stofnunar þegar þeir lentu í eldlínu
átakanna.
„Fimmtán óbreyttir borgarar
féllu þegar hermenn stjórnarinnar
létu sprengjum rigna yfir bæinn
Muttur á yfirráðasvæði Tígranna,“
sagði í yfirlýsingu Frelsishreyfingar
tamíla (LTTE) í gær. „Mun fleiri
slösuðust og mikill fjöldi fólks þurfti
að yfirgefa heimili sín.“
Á sama tíma fundu starfsmenn
frönsku hjálparsamtakanna Action
Contre la Faim, ACF, eða „Aðgerðir
gegn hungri“, lík 16 starfsmanna
sinna sem féllu í átökum helgarinn-
ar. Talsmenn stríðandi aðila kenna
hvor öðrum um morðin, en talið er
fullvíst að fólkið, sem var allt frá Sri
Lanka, hafi verið skotið til bana.
Starfseminni hætt
Benoit Miribel, stjórnandi ACF,
tilkynnti í gær að starfi samtakanna
á Sri Lanka yrði hætt vegna málsins.
„Þessir hjálparstarfsmenn voru
auðgreinanlegir vegna stutt-
ermabola sem þeir klæddust,“ sagði
Miribel í gær. „Dauði þeirra er óvið-
unandi og sýnir að villimennskan er
að ná yfirhöndinni. Ég hef aldrei séð
neitt þessu líkt.“
Mahinda Samarasinghe, ráðherra
mannréttindamála í stjórninni, sagði
í gær að rannsókn á morðunum yrði
sett í „algeran forgang“. „Ég treysti
á að starfsmenn Alþjóða Rauða
krossins fari inn á svæðið og finni út
hvað gerðist.“
Þá hafa talsmenn mannréttinda-
samtakanna Amnesty International
og Evrópuráðsins fordæmt morðin
og krafist rannsóknar á málinu.
Talið er að allt að 440 manns hafi
fallið í átökunum á síðustu vikum,
jafnframt því sem mikið eignatjón
hefur orðið í nágrenni Muttur.
Flestir íbúar bæjarins eru múslímar
og hafa þeir verið á vergangi eftir að
hann varð þungamiðja átakanna.
Hafna tilboði Tígranna
Upphaf átakanna má rekja til þess
að Tígrarnir stöðvuðu í lok júlí dreif-
ingu vatns frá Maavilaru-vatnsból-
inu skammt frá Muttur sem þjónar
tugþúsundum manna á svæðinu.
Vonir stóðu til að dreifing vatns
myndi hefjast að nýju í vikunni.
Þær vonir urðu hins vegar að
engu þegar stjórnin hafnaði sátta-
tillögu Tígranna á sunnudag, sem
meðal annars fól í sér að opnað yrði
fyrir streymi vatns frá vatnsbólinu.
Jafnframt tilkynnti stjórnin að hern-
aðaraðgerðum til að ná fullum yf-
irráðum yfir vatnsbólinu yrði haldið
áfram.
Ulf Henricsson, yfirmaður
SLMM, var ásamt S. Elilan, yfir-
manni Tígranna á Trincomalee-
svæðinu, á leið til vatnsbólsins þegar
herinn gerðir loftárásir í nágrenn-
inu. Kom það í veg fyrir að Tígr-
unum tækist að efna loforð sitt og
hefur Henricsson verið harðorður í
garð stjórnarinnar vegna atviksins.
Spurður um hvernig Tígrarnir
hygðust bregðast við aðgerðum
hersins sagði S. Puleedevan, einn
talsmanna Tígranna, á sunnudag, að
þeim yrði ekki svarað í sömu mynt,
af tillitssemi við tilraunir Norð-
manna til að koma á friði.
Í gær féll hins vegar hátt settur
yfirmaður innan lögreglunnar þegar
Claymore-jarðsprengja sprakk í
borginni Kandy, en slíkar sprengjur
eru oft sagðar vörumerki Tígranna.
Hóta allsherjarstríði
Óttast er að borgarastríð sé að
brjótast út í landinu á ný og að
vopnahléið frá árinu 2002 sé að fara
út um þúfur. Stríðandi aðilar hafa á
síðustu vikum stöðugt neitað því að
allsherjarstríð sé skollið á í landinu.
Á sunnudag hótuðu hins vegar tals-
menn Tígranna að þeir myndu líta á
áframhald á loft- og stórskotaliðs-
árásum hersins sem „stríðsyfirlýs-
ingu“.
Blóðug helgi á Sri Lanka
16 starfsmenn
hjálparstofnunar
myrtir í Muttur
Reuters
Íslamskur drengur, sem flúði átök stríðandi fylkinga í bænum Muttur, svipast um í flóttamannabúðunum í Kant-
ale, norðaustur af Trincomalee, í fyrradag. Hjálparsamtök óttast að neyðarástand kunni að skapast á svæðinu.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Peking. AFP. | Eigandi nýs bars í
borginni Nanjing í austurhluta
Kína ákvað fyrir skömmu að
brydda upp á heldur óvenjulegri
nýbreytni í drykkjuflórunni, með
því að bjóða þyrstum og reiðum
viðskiptavinum upp á drykk og
þann möguleika að láta höggin
dynja á afgreiðslufólki.
Að auki geta kúnnarnir fengið að
brjóta gler, hrópa og öskra til að fá
útrás fyrir reiði og streitu í amstri
dagsins, að því er fram kemur í
dagblaðinu China Daily. Dugi það
hins vegar ekki til getur barinn
boðið þeim upp á sálfræðiráðgjöf.
Alls hafa 20 „stæltir“ karlar á
tvítugs og þrítugsaldri verið ráðnir
sem einskonar gangandi höggpúðar
á staðnum. Til að auka enn á kröf-
ur þessa sérkennilega starfs geta
viðskiptavinir fengið að ráða
klæðnaði „höggpúðanna“, sem
verða að vera tilbúnir að klæðast
kvenfötum sé þess óskað.
Þessi þjónusta er ekki dýr miðað
við það sem fólk fær fyrir aurinn.
Að fá „útrás“ kostar frá 500 ís-
lenskum krónum upp í 2.650 krón-
ur, eftir því hvort valið er um bar-
smíðar, öskur, hróp eða ráðgjöf.
Barinn var stofnaður af Wu
Gong, 29 ára gömlum manni sem
fékk hugmyndina frá Japan. Að
hans sögn er starfsfólkið í réttum
hlífðarbúnaði, en þjónusta staðarins
ku vera einkar vinsæl á meðal
kvenna sem vinna í þjónustu og af-
þreyingargeiranum, sérstaklega
þeirra sem starfa á fjölmörgum
nuddstofum borgarinnar.
Þrýstingur úr öllum áttum
Ef marka má svör tveggja íbúa
Nanjing í viðtali við China Daily
skiptast íbúar borgarinnar í tvo
hópa í afstöðu sinni til hinnar nýju
þjónustu barsins.
„Í nútímasamfélagi kemur þrýst-
ingur úr öllum áttum, frá fjölskyld-
unni, vinnunni, yfirmanninum og
frá kærustunni. Við höfum engan
stað til að fá útrás fyrir reiðina,“
sagði Chen Liang, sölumaður í
borginni. „Sú hugmynd að fá að
berja einhvern í svipuðum klæðnaði
og yfirmaður manns er áhugaverð.“
Annar viðmælandi blaðsins, Liu
Yuanyuan, var ósammála.
„Ef fólk er reitt ætti það að
breyta lífstíl sínum eða leita sér
sálfræðilegrar aðstoðar.“
Bjóða reiðum upp á
drykk og barsmíðar
Líf nútímamannsins í Kína er annasamt og streituvaldandi í meira lagi.
ÞORFINNUR Ómarsson, tals-
maður norrænu eftirlitssveitanna á
Sri Lanka, SLMM, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að framtíð
sveitanna myndi ráðast á næstu dög-
um. Jafnframt fordæmdi hann
morðin á hjálparstarfsmönnunum 16
og sagði þau „skelfilegt og háalvar-
legt mál“.
„Framtíð sveit-
anna mun ráðast
af tveimur þátt-
um,“ sagði Þor-
finnur. „Annars
vegar af ástand-
inu í landinu á
næstu dögum og
framhaldi átak-
anna og svo hins
vegar af fundum
Jon Hanssen-
Bauer, sáttasemjara Norðmanna,
með stríðandi aðilum.“
Spurður um morðin á starfs-
mönnum Action Contre la Faim,
ACF, sagði Þorfinnur ljóst að um
mjög alvarlegt mál væri að ræða.
„Það hefur verið almennt sam-
komulag í svona átökum að gera
ekki árásir á starfsmenn hjálp-
arsamtaka. Ef þetta er rétt þá er um
hrikalega skelfilegt og háalvarlegt
mál að ræða. Það er hins vegar mjög
erfitt fyrir okkur hjá SLMM að tjá
okkur um þetta. Við höfum reynt að
fara inn á svæðið en ekki fengið að-
gang að því. Við höfum því ekki get-
að rannsakað málið með neinum
hætti.“
Vonsviknir með aðgerðirnar
Þorfinnur sagði Hanssen-Bauer
hafa hitt leiðtoga Tígranna að máli í
vígi þeirra, Kilinochchi, á sunnudag.
„Hanseen-Bauer lagði höf-
uðáherslu á að Tígrarnir myndu
opna fyrir vatnið sem þeir féllust
skilyrðislaust á að gera. Í kjölfarið
ákvað Ulf Henricsson, yfirmaður
SLMM, að fara ásamt S. Elilan, yf-
irmanni Tígranna í Trincomalee, að
vatnsbólinu til að tryggja að dreifing
vatns hæfist að nýju. Þegar þeir
nálguðust svæðið gerði herinn hins
vegar loftárásir í nágrenninu og
okkar menn þurftu því frá að hverfa,
þótt þeir hefðu ekki verið í neinni
hættu.“
Athugasemd við fyrra viðtal
Þorfinnur bætir því við að óná-
kvæmlega hafi verið eftir honum
haft í viðtali við Morgunblaðið sem
birtist sem frétt undir fyrirsögninni
„Bíðum spenntir eftir Svíum“ 29. júlí
sl.
Haft var eftir Þorfinni að „líklegt“
væri að fjölgað yrði í liði Íslending-
anna fimm sem taka þátt í starfi
SLMM, vegna brotthvarfs Finna og
Dana úr samstarfinu. Segir Þorfinn-
ur að hann hafi sagt slíka fjölgun
hugsanlega, ekki líklega.
„Framtíð
SLMM ræðst
á næstu
dögum“
Þorfinnur
Ómarsson
SIGURÐUR
Hrafn Gíslason,
aðstoðaryf-
irmaður nor-
rænu eftirlits-
sveitanna,
SLMM, á
Trincomalee-
svæðinu á Sri
Lanka, var með
í för yfirmanns
sveitanna á leið
til vatnsbólsins í Maavilaru þegar
stjórnarherinn gerði loftárás í ná-
grenni vatnsbólsins á sunnudag.
„Við vorum á röngum stað á
röngum tíma,“ sagði Sigurður í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Árás hersins á þessum tíma var
meðvituð en staðreyndin er sú að
við vorum um klukkustund á und-
an áætlun.
Samt sem áður varpar hún
skugga á aðgerðir hersins á
svæðinu, sem hafa haft það að
markmiði að opna fyrir dreifingu
vatns úr vatnsbólinu að nýju. Um-
fram allt vona ég að um sam-
bandsbrest hafi verið að ræða
innan hersins.“
Sigurður sagði Ulf Henricsson,
yfirmann SLMM, hafa verið hinn
rólegasta yfir árásunum.
„Henricsson fór yfir stöðuna og
mat hana þannig að réttast væri
að fara til baka sem við gerðum
mjög fljótlega. Þessi aðgerð mun
ekki hafa meiri háttar áhrif á
starf SLMM, því að stærri og
mikilvægari hlutir eru að gerast
hér í kring.“
Heyrði í skothríðinni
Sigurður þurfti nokkrum sinn-
um að gera hlé á máli sínu vegna
skothríðar í fjarska. Þegar færi
gafst leitaði blaðamaður við-
bragða hans við morðunum á
hjálparstarfsmönnunum 16.
„Þetta er sorglegur atburður
sem hefur slæm áhrif á ástandið.
Hann sýnir samt ekki hug fólks-
ins almennt til hjálparstarfs-
manna. Fólkið var, líkt og við í
SLMM, á röngum stað á röngum
tíma. Hermenn og skæruliðar sem
eru að hlaupa á milli húsa með
vélbyssur gera ekki endilega
mannamun.“
Inntur eftir því hvaða áhrif það
myndi hafa á starfsemi SLMM
þegar 37 eftirlitsmenn Svía, Dana
og Finna hverfa aftur til síns
heima síðar í mánuðinum sagði
Sigurður engan vafa leika á því
að eftirlitið myndi raskast. Hann
sagði fimm eftirlitsmenn Íslend-
inga og hina 15 úr liði Norð-
manna munu eiga fullt í fangi
með eftirlitið.
„Við vorum á röngum
stað á röngum tíma“
Sigurður Hrafn
Gíslason