Morgunblaðið - 08.08.2006, Síða 16

Morgunblaðið - 08.08.2006, Síða 16
Daglegtlíf ágúst AUKIN neysla á grænmeti og ávöxtum virðist draga úr hættu á krabbameini og fleiri sjúkdómum, m.a. vegna andoxunarefna sem við fáum úr þeim, en niðurstöður rann- sókna á þessu hafa þó verið misvís- andi til þessa. Nýleg rannsókn vís- indamanna við Michigan-háskóla í Bandaríkjunum kann að skýra þetta því hún bendir til þess að ólíkir þættir mataræðisins orki hver á annan og geti breytt áhrifum breyt- ingar á einum þeirra, að því er fram kom á fréttavef MSNBC. C-vítamín í ávöxtum og grænmeti er vatnsleysanlegt, þannig að fita í fæðunni hefur ekki áhrif á það. Beta- karótín og önnur karótenóíð, svo og e-vítamín, eru á hinn bóginn fitu- leysanleg og þess vegna þarf ein- hverja fitu til að upptaka efnanna úr meltingarveginum verði sem best. Rannsóknin bendir hins vegar til þess að aðeins sé þörf fyrir þrjú til fimm grömm af fitu. Þau getum við fengið með einni teskeið af olíu, um það bil 90 grömmum af kjúklingi eða öðru mögru kjöti, eða matskeið af hnetum sem borðaðar eru með grænmeti og ávöxtum. Morgunblaðið/Ómar Ný rannsókn bendir til að ólíkir þættir mataræðisins orki hver á annan. Fita getur breytt áhrifum grænmetis  RANNSÓKN Við krakkarnir vorum alltafhlaupandi út um alla móaá eftir hestum, kindum ogkúm og lékum okkur líka mikið úti. Ég lék mér til dæmis aldr- ei að dúkkum, því ég vildi miklu frekar vera úti. Mér er enn í dag lífs- nauðsyn að fara út og hreyfa mig daglega og kannski er það einmitt vegna þess að ég er alin upp við mikla hreyfingu og útiveru í sveit- inni,“ segir Helga Daníelsdóttir sem stendur á áttræðu og fer í sund á hverjum degi. „Ég synti alltaf 500 metra en eftir að ég var næstum dauð úr kransæðastíflu í vor, læt ég 300 metra duga. Sundið er svo hressandi og þar hitti ég alltaf skemmtilegt fólk sem er fastagestir eins og ég og við drekkum saman kaffisopa í afgreiðslu Vesturbæjar- laugarinnar eftir sundið.“ Mikil hreyfing í hjúkrunarstarfinu Helga lætur ekki duga að synda, því hún fer líka í göngutúr daglega og lætur það ekki stoppa sig þó hún þurfi að styðjast við hækjur. „Ég geng um tvo kílómetra á hverjum degi en sleppi því þó ef veðrið er vont. Svo er ég með þrekhjól hérna heima hjá mér til að vinna upp þrek, en ég átti reiðhjól og hjólaði heil- mikið hér áður fyrr.“ Helga er lærður hjúkrunarfræð- ingur og segir mikla hreyfingu hafa fylgt því starfi. „Ég reyndi heilmikið á líkamann í hjúkrunarstarfinu og fór ekki reglulega út að hreyfa mig þau ár sem ég var í vaktavinnu, en eftir að vinnutíminn varð reglulegri fór ég á skíði á veturna og annað slíkt. Eftir að ég hætti að vinna þeg- ar ég var sjötug hef ég stundað markvissa hreyfingu og útiveru. Mér finnst það svo gott og ég var í vatnsleikfimi í Sundhöllinni um tíma.“ Norðanáttargigt í ættinni Helga hefur verið slæm af gigt mjög lengi og hún segir gigtarlækn- inn sinn leggja mikla áherslu á að hún hreyfi sig mikið og reglulega. „Heita vatnið í heitu pottunum í sundlauginni er líka gott fyrir gigtina. Ég held mér í raun gang- andi með því og þessari hreyfingu.“ Hún segir kuldann vera verstan fyr- ir gigtina og þegar norðanáttin er köld og stíf fær hún það sem hún kallar norðanáttargigt. „Amma mín fann alltaf fyrir norðanáttargigt rétt áður en norðanáttin brast á og ég er ekki frá því að þetta sé eins hjá mér.“  HREYFING | Helga Daníelsdóttir ólst upp við útivist og hreyfingu Morgunblaðið/Jim Smart Helga t.v. ásamt nágrannakonu sinni, Ingunni Þórðardóttur, sem oftast fer með henni í morgunsundið. Heita vatnið gott fyrir gigtina Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is NÚ ÞEGAR sumarið kallar á meiri útiveru fer ekki fram hjá nokkrum manni að freknum fjölgar á andlit- um Frónbúa. Sumir eru freknótt- ari en aðrir og flestum finnst freknur frísklegar en öðrum finnst þær krúttlegar. En af hverju fáum við freknur og hvers vegna aðeins sumir en ekki aðrir? Freknur eru einfaldlega þétt samansafn hins dökka litarefnis melanin sem húðfrumur okkar framleiða. Melanin hjálpar til við að vernda húðina fyrir út- fjólubláum (UV) geislum sólarljóss- ins. Fólk með ljóst yfirbragð hefur minna af melanini í húð sinni og einmitt þess vegna hefur það meiri tilhneigingu en aðrir til að mynda freknur þegar sólin skín á húð þess. Þar af leiðir að fólk með ljóst yfirbragð hefur fleiri freknur en aðrir. En freknur eru tvennskonar. Annars vegar ephelides, freknur sem koma eftir langa veru í sólinni en hverfa svo yfir vetrartímann, og hins vegar lentigines, freknur sem eru dekkri og hverfa ekki yfir vetrartímann. Erfðir ráða miklu um freknur. Rannsóknir hafa sýnt að eineggja tvíburar hafa ótrúlega svipaðan fjölda frekna á líkamanum. Því er tilvalið fyrir eineggja tvíbura að taka sig til einhverja rigning- arhelgina og telja freknurnar á hvor öðrum og komast að því hvort þær séu álíka margar! AP Freknur Línu langsokks eru án efa frægustu freknur veraldar. Hvers vegna freknur?  HEILSA EVRÓPSKA neytendaaðstoðin er þjónustunet sem aðstoðar evrópska neytendur við að leita réttar síns í öðrum Evr- ópulöndum. „Þetta er samstarf aðildarríkja Evrópusambandsins við framkvæmdastjórn ESB. Þjónustunetið helgast af því að markaðurinn í heiminum er orð- inn svo lítill, fólk er að kaupa í utanlandsferðum og á netinu. Í gegnum Evrópsku neyt- endaaðstoðina aðstoðum við Evr- ópubúa sem lenda í vandræðum með vöru eða þjónustu sem þeir kaupa hér á landi og svo Íslend- inga sem lenda í vandræðum með það sama í öðrum Evr- ópulöndum,“ segir Hildigunnur Hafsteinsdóttir hjá leiðbeininga- og kvörtunarþjónustu Neytenda- samtakanna. „Sem dæmi má nefna að Evrópubúi sem kemur hingað til lands og kaupir eitt- hvað eða lendir í vandræðum með fyrirtæki hér getur farið til skrifstofu Evrópsku neyt- endaaðstoðarinnar í sínu landi og kvartað. Þeir senda þá málið til okkar sem við vinnum úr gagnvart seljandanum hér, þetta er sem sagt milligöngunet. Eins geta Íslendingar sem lenda í ein- hverju úti, t.d. uppgötva að vara sem þeir keyptu á ferðalaginu er gölluð þegar þeir koma heim, leitað til okkar og við sendum kvörtun til starfsmanna neyt- endaaðstoðarinnar í því landi sem kvörtunin beinist til. Það er mjög þægilegt fyrir okkur að hafa aðgang að manneskju sem þekkir lögin um viðskipti í við- komandi landi.“ Íslendingar hafa tekið þátt í þessari aðstoð síðan árið 2001 og segir Hildigunnur alltaf nokkuð af málum berast inn á borð til þeirra. Þjónustunet fyrir Evrópubúa  NEYTENDUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.