Morgunblaðið - 08.08.2006, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 19
Yngsta lýðveldi heimsins
Eyjan Austur-Timor hefur verið
efst á baugi undanfarnar vikur og
daglega berast fréttir af ástandinu
þar.
Austur-Timor hlaut sjálfstæði 19.
maí 2002 og er yngsta lýðveldi
heimsins en um leið fátækasta land
Asíu (íbúatalan er 970.000). Inn-
byrðis deilur á áttunda áratugnum
gáfu Indónesum tækifæri til að her-
nema landið. Hófst þá sjálfstæð-
isbaráttan sem stóð lengi og á sér
langa sögu. Sameinuðust eyj-
arskeggjar í baráttu sinni á móti
hernámsaflinu.
Frægustu persónur eyjunnar eru
þeir Xanana Gusmáo, forseti lands-
ins, og Jose Ramos Horta, utanrík-
isráðherra og Nóbelsverðlaunahafi.
Njóta þeir álits og trausts almenn-
ings. Horta er vinsæll einkum fyrir
þann hæfileika sinn að tala við al-
þýðu manna og unga fólkið sér-
staklega.
Hafa verið uppi tilgátur um að
hann geti hugsanlega tekið við af
Kofi Annan.
Gusmáo stjórnaði hinni vopnuðu
andstöðu við Indónesa, skæruliða-
sveitunum Falantil, eftir fall ætt-
arhöfðingjans Nicolau Lobato sem
var drepinn árið 1978.
Kristi Sword Gusmáo er áströlsk
og gift forsetanum,. Hún varð ást-
fangin af honum meðan hann sat í
fangelsi á Indónesíu fyrir þátttöku
sína í sjálfstæðisbaráttunni. Kristi
hefur skrifað bók „A Woman of In-
dependence“, um ævintýralega
reynslu sína. Hún hefur einnig
stofnað „Alola Foundation“ til
styrktar konum og börnum á Aust-
ur-Timor en fjölskyldur eru stórar
og barnmargar. 40% íbúanna eru
undir 21 árs aldri.
Höfuðborgin Dili stendur við sjó-
inn, þar sitja stjórnarherrarnir með
lífvörðum sínum og tala þeir portú-
gölsku, mál fyrrverandi nýlendu-
herranna. Hins vegar eru fjöllin þar
sem skæruliðar höfðust við en upp-
reisnargjörn gengi og ungir menn
leita þar enn hælis.
Eins og við mátti búast hefur það
reynst erfiðleikum bundið að koma
á fót raunverulegu lýðræði og
styrkja stoðir þess. Gamlir siðir og
venjur reynast þungar í vöfum og
barátta liðinna ára enn í fersku
minni. Aðalstjórnmálaflokkurinn, sá
sem hefur stjórnað hinu nýju lýð-
veldi, heitir Fretilin og hefur 55
sæti af 88 á þingi landsins. Til-
heyrir hann einhvers konar Lenin
eða Castro stefnu.
Hvorki Gusmáo né Horta eru í
flokknum þótt þeir hafi verið það í
upphafi.
Forsætisráðherra, maður að
nafni Mari Alkatiri, var útlagi í
Mosambique meðan á sjálfstæðis-
baráttunni stóð og gegndi kennslu.
Stýrir hann flokknum með harðri
hendi. Alkatiri er maður afar lág-
vaxinn og haldinn valdagirni sem
oft einkennir slíka menn. Alkatiri
skipaði mann nokkurn að nafni
Rogerio Lobato sem innanrík-
isráðherra og jafnframt yfirmann
yfir 3500 manna lögregluliði. Leið
ekki á löngu uns Lobato egndi lög-
regluna gegn hernum sem var póli-
tískt hlutlaus og laut stjórn
Gusmáo.
Ólundarlegur Alkatiri
Í marsmánuði sl. blossuðu síðan
upp óeirðir og urðu Ástralir ásamt
þremur öðrum þjóðum að senda
friðargæslusveitir (her og lögreglu)
á staðinn og eru þær þar enn.
Ástæður óeirðanna og atburðir síð-
ustu mánaða eru enn að nokkru á
huldu. Þó er víst að tæplega 600
hermenn voru leystir frá störfum
og urðu atvinnulausir. Leituðu þeir
hælis uppi í fjöllum. Vaxandi óvin-
sældir Alkatiri og Lobato urðu til-
efni mikilla mótmæla og krafðist al-
þýða þess að Alkatiri segði af sér.
Gusmáo setti út tromp sitt; hótaði
að segja af sér ef Alkatiri léti ekki
af embætti sem og varð. Hefur José
Ramos Horta tekið við embætti for-
sætisráðherra og gegna tveir með-
limir úr Fretilin flokknum emb-
ættum varaforsætisráðherra.
Alkatiri sakar Ástrali um sam-
særi gegn sér og kennir þeim að
nokkru leyti um hvernig komið sé.
Áströlum hafi ekki líkað hversu
harður hann var í horn að taka í
samningaviðræðum um olíu- og
gaslindir þær sem eru í Timor-
hafinu milli þjóðanna. Þó báru Tim-
or-menn skarðan hlut frá borði og
þótti mörgum nóg um ásælni Ástr-
ala þar sem þetta er eina auðlind
Austur-Timorbúa. Eina fjáröfl-
unarleið þeirra til lausnar á sárri
fátækt.
Tungumálaöngþveiti
Eftir nær fimm hundruð ára
valdatíma Portúgala á nýlendu
þeirra Austur-Timor tala aðeins
10% íbúa portúgölsku. Eftir 24 ár
með Indónesa við stjórnvölinn tala
90% íbúa Bahasa.
Auk þessa eru tungumál hinna
ýmsu ættbálka og hefur þetta vald-
ið ýmsum vandræðum í stjórnsýsl-
unni og við kennslu.
Þegar stúdentar skráðu sig til
háskólanáms olli það vonbrigðum
að þeir vildu flestallir verða lög-
fræðingar eða stjórnmálamenn þeg-
ar þjóðina sárvantar iðnaðar- og
tæknimenn.
Herinn var þjálfaður af Áströlum
á sínum tíma og kostaði A$70 millj-
ónir að setja hann upp. Hins vegar
mætti spyrja hvað hefur þessi eyja
að gera með her? Herinn gleypir
8% af þjóðartekjunum. Er ekki nóg
að hafa lögreglu?
Sameinuðu þjóðirnar vilja hafa
hönd í bagga með Austur-Timor í
framtíðinni og má segja að þær hafi
sleppt hendinni fullfljótt af hinu
unga lýðveldi sem hefði þurft ein
tíu ár til að tryggja sig í sessi. Ti-
morbúar vildu að gæslusveitir Sam-
einuðu þjóðanna sætu einu ári leng-
ur eftir að sjálfstæði var fengið og
studdi Koffi Annan það. Ástralir og
þá einkum Alexander Downer, ut-
anríkisráðherra, kváðu það óþarfa.
Fékk ráðherrann Englendinga og
Bandaríkjamenn á sitt mál. Hefur
nú komið í ljós hversu rangt herra
Downer hafði fyrir sér.
Um hundrað og fimmtíu þúsund
manns eru nú í flóttamannabúðum
umhverfis Dili á Austur-Timor,
íbúðarhús hafa verið brennd og fólk
þorir ekki heim jafnvel þótt hús
þess standi. Margir hafa látið lífið,
matarskortur ríkir og í stjórnmál-
unum er hver höndin upp á móti
annarri.
Framtíð Austur-Timor er nú
komin undir því hversu vel Horta
og Gusmáo tekst að halda á spil-
unum. Þeir eiga hylli og traust al-
þýðu manna á eyjunni.
Framhaldssagan
„Fanginn í Flóanum“
Það blæs ekki byrlega fyrir Dav-
id Hicks, eina ástralska fanganum í
Quantanamoflóa. Hann hefur um
síðir fengið breskt vegabréf en það
kemur honum að engum notum.
Bretar vilja ekkert fyrir hann gera,
segja hann hafa borið ástralskt
vegabréf þegar hann var fram-
seldur í Afganistan fyrir US$
1000.00. David æfði með al-Queda
fyrir ellefta september 2001 en þá
var slíkt löglegt samkvæmt ástr-
ölskum lögum.
Hins vegar hefur hæstiréttur
Bandaríkjanna dæmt Hicks í hag.
Niðurstaða réttarins lýsti með mikl-
um meirihluta að fyrirhuguð her-
réttarhöld væru ólögleg, ákæru-
atriði gegn honum eru því fallin úr
gildi. Hefur nú álit manna hér
heima fyrir snúist Hicks mjög í hag
og kröfur um að ástralska stjórnin
fái hann sendan heim orðið æ há-
værari, m.a. birst í leiðara Sydney
Morning Herald. Þá hefur fjöldi
lögfræðinga lagst á sveif með David
Hicks og vill að stjórnvöld snúi við
blaðinu.
En hvað bíður David Hicks? Ára-
löng bið eftir að sett verði ný lög
varðandi Quantanamoflóafangana í
Bandaríkjunum?
Borgaraleg réttarhöld eru ekki
ákjósanleg fyrir bandarísk stjórn-
völd þar sem ýmislegt neikvætt
gæti þá komið í ljós varðandi yf-
irheyrsluaðferðir þeirra.
Ástralska alríkisstjórnin hefur
undirritað samning við Bandaríkin
um að sá tími sem David Hicks hef-
ur setið inni, fjögur og hálft ár,
komi ekki til frádráttar þeim dómi,
sem hann ef til vill fær einhvern
tímann, verði ekki dreginn frá
væntanlegum dómi hans. Blöskrar
sú ráðstöfun heilbrigðri skynsemi.
Hinn bandaríski lögfræðingur
David Hicks, David McLeod, hefur
átt viðræður við utanríkisráðherra,
Alexander Downer, eftir að dómur
hæstaréttar Bandaríkjanna féll og
krafist þess að David Hicks verði
látinn laus. En utanríkisráðherra
heldur fast við sitt. Hann og alrík-
isstjórnin vilja að Bandaríkjamenn
útkljái málið og leiði David Hicks
fyrir einhvers konar rétt. Hvort
hann fái réttláta málsmeðferð er
síðan spurning dagsins.
Telur David McLeod líklegra að
Bandaríkjamenn láti David lausan
eða Bretar komi honum til bjargar
en ástralska ríkisstjórnin forði
þessum borgara sínum úr hers
höndum.
Til þess að enda á jákvæðum nót-
um má nefna að fyrsti frumbygginn
hefur útskrifast sem skurðlæknir
og minna má á ástralska kvikmynd
sem sýnd var í Cannes, hlaut frá-
bæra dóma og heitir „Ten Canoes“
(www.tencanoes.con.au). Sýningar á
myndinni eru nýlega hafnar í Ástr-
alíu. Þeir sem hafa áhuga á sögu
frumbyggja Ástralíu, kvikmyndum
sem segja góða sögu og eru frá-
brugðnar öðrum myndum, ættu að
sjá þessa kvikmynd.
Einnig má segja frá opnun lista-
safns að frumkvæði forseta Frakk-
lands, Chirac, í París. Listasafnið,
Quai Branly Museum við ána Signu,
er helgað öllum frumbyggjum
heimsins og njóta listamenn frum-
byggja Ástralíu einstakrar við-
urkenningar. Listaverk átta ástr-
alskra frumbyggja skreyta framhlið
og inngang hússins en önnur 107
verk frumbyggja þessarar álfu má
líta í sölum listasafnsins. Má vera
að alþjóðleg viðurkenning á ein-
stæðri list þeirra verði loks að veru-
leika. Betra seint en aldrei.
tíu barkarbátar
Reuters
Ástralski forsætisráðherrann John Howard hlýðir hér á fjármálaráðherra
sinn Peter Costello sem margir telja næsta eftirmann Howards og Costello
reyndar sagður farinn að ókyrrast eftir forsætisráðherrastólnum.