Morgunblaðið - 08.08.2006, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 23
UMRÆÐAN
NÚ hefur félagsmálaráðherra úr-
skurðað í stjórnsýslukæru bæjarfull-
trúa D-lista á hendur Hvera-
gerðisbæ, sem lögð var fram
síðastliðið vor í
tengslum við samninga
bæjarins við bygging-
arfyrirtækið Eykt um
uppbyggingu bæj-
arfélagsins austan
Varmár. Ráðuneytið
hafnar með afgerandi
hætti þeim rökum sem
koma fram í kæru
sjálfstæðismanna og
telur að vel hafi verið
staðið að málum við
gerð samninganna við
Eykt. Kemur úrskurð-
urinn eins og köld
vatnsgusa framan í nýkjörinn meiri-
hluta sjálfstæðismanna í Hveragerði
sem nú skuldar kjósendum sínum og
öðrum skýringar á málflutningi sín-
um í Eyktarmálinu í aðdraganda
kosninganna í vor. Það hefur alltaf
legið ljóst fyrir frá okkar hendi að
öllum lagalegum ákvæðum var full-
nægt við gerð samstarfssamnings
við Eykt og að ekki þyrfti að leggja
út í milljóna lögfræðikostnað úr bæj-
arsjóði til að komast að þeirri nið-
urstöðu.
Fyrir kosningar fóru sjálfstæð-
ismenn hamförum gegn A-listanum
og vændu bæjarfulltrúa listans um
óheilindi og slæleg vinnubrögð við
samningagerðina við Eykt. Í kæru
sinni draga sjálfstæðismenn í efa
þekkingu og hæfi Orra Hlöðvers-
sonar, fyrrverandi bæjarstjóra, til að
leiða samningaviðræður fyrir hönd
bæjarins. Bentu þeir m.a. á að sam-
kvæmt lögum bæri að veita bæj-
arstjórn umsögn sér-
fróðs aðila um
fjárhagsafkomu sveita-
sjóðs við ákvarð-
anatökur sem hefðu
áhrif á rekstur sveita-
félaga í náinni framtíð,
og töldu Orra ekki hæf-
an til þeirra verka.
Hæfi fyrrverandi
og núverandi
bæjarstjóra
Í úrskurði félags-
málaráðuneytis er
þessum málflutningi al-
gjörlega hafnað og undirstrikað að
Orri Hlöðversson falli innan skil-
greiningar á sérfróðum aðila sem
getið sé um í sveitastjórnarlögunum.
Í lögunum er með sérfróðum aðila til
dæmis átt við viðskipta- eða tækni-
menntaðan aðila. Ráðuneytið bætir
um betur og bendir á í úrskurði sín-
um að það hafi verið vönduð máls-
meðferð af hálfu bæjarstjóra að láta
löggiltan endurskoðanda bæjarins
yfirfara forsendur útreikninga og
leita eftir áliti lögmanns sveita-
félagsins við samningsgerðina. Skýr-
ari getur úrskurður varla orðið. Það
sem óhjákvæmilega situr eftir sem
stórt umhugsunarefni, þegar úr-
skurður ráðuneytisins er lesinn, er
spurningin um hæfi núverandi bæj-
arstjóra Hveragerðisbæjar til að
veita bæjarfulltrúum umsagnir og
álit í þeim málum sem hafa í för með
sér fjárhagslegar skuldbindingar
fyrir bæjarsjóð. Núverandi bæj-
arstjóri hefur ekki tilskilda menntun
né reynslu til þess að veita sérfræði-
álit samkvæmt laganna hljóðan. Því
hlýtur að þurfa á kjörtímabilinu að
kaupa þá þjónustu af til þess bærum
aðila sem uppfyllir skilyrði um-
ræddra laga og einnig má þá gera
ráð fyrir verulegum kostnaðarauka
fyrir bæjarsjóð.
Í ljósi umræddrar kæru sjálfstæð-
ismanna vakti því óneitanlega furðu
margra sú ákvörðun D-listans að
ráða bæjarstjóra sem hefur ekki þá
menntun sem slíkt starf óneitanlega
krefst. Að auki töldu þeir ástæðu til
að gera enn betur í launum nýráðins
bæjarstjóra með því að greiða hon-
um hærri laun en forvera hans.
Verða það að teljast afar ófagleg
vinnubrögð þar sem gera má ráð fyr-
ir að með launakjörum bæjarstjóra
sé verið að falast eftir viðurkenndri
fagþekkingu sem annars þyrfti að
greiða fyrir sérstaklega.
Úrskurðinn í heild sinni má finna á
heimasíðu félagsmálaráðuneytisins,
www.felagsmalaraduneytid.is
Sjálfstæðismenn
í Hveragerði
rassskelltir
Herdís Þórðardóttir skrifar um
úrskurð félagsmálaráðherra
vegna samninga
Hveragerðisbæjar við
byggingarfyrirtækið Eykt.
’Ráðuneytið hafnar meðafgerandi hætti þeim
rökum sem koma fram í
kæru sjálfstæðismanna
og telur að vel hafi verið
staðið að málum …‘
Herdís Þórðardóttir
Höfundur er bæjarfulltrúi
í Hveragerðisbæ
FYRSTA verkefni nýs meiri-
hluta í borgarstjórn
Reykjavíkur var að
leggja upp með stór-
fellt hreinsunar- og
fegrunarátak í borg-
inni. Það verkefni
hefur tekist vonum
framar þrátt fyrir að
komið sé fram á mitt
sumar og flestir í
sumarfríum. Starfs-
fólk borgarinnar hef-
ur lagt á sig mikla
vinnu og sett metnað
sinn í að allt gangi
sem best upp og íbú-
arnir hafa sýnt í
verki að þeir vilja
hafa hreint og snyrti-
legt í kringum sig.
Átakið í Breiðholtinu
er stórt og yfirgrips-
mikið og gekk í alla
staði vel upp. Í fram-
haldinu verða minni
hverfi tekin fyrir auk
þess sem herferðinni gegn veggja-
krotinu verður haldið áfram um
alla borg. Framvegis verður þetta
átak unnið á vorin og mun tengj-
ast garðahreinsun og öðrum vor-
verkum. Meirihluti B- og D-lista í
Reykjavík gerir sér vel grein fyrir
því að ekki er hægt að halda borg-
inni hreinni nema í góðu samstarfi
við íbúana. Íbúarnir verða að vera
meðvitaðir um það, að til þess að
búa í hreinni og fallegri borg
þurfa þeir ganga vel um. Mér
finnst vel koma til greina að vinna
þetta mál með lögreglunni og
komið verði upp sektum, sem und-
an svíður, fyrir að
henda rusli og stunda
veggjakrot. Borginni
er ekki hægt að halda
hreinni nema íbúarnir
gangi vel um og ef það
þarf virkilega að sekta
fólk til þess að það
beri virðingu fyrir
samfélagslegum eigum
þá eigum við að gera
það. Reykjavíkurborg
mun leggja mikið á sig
og sitt starfsfólk til
þess að halda borginni
hreinni og leggur jafn-
framt þær skyldur á
íbúa og gesti borg-
arinnar að ganga vel
um borgina.
Myndir segja oft
meira en mörg orð. Ég
læt fylgja með myndir
af Laugardalslauginni
fyrir og eftir hreins-
unarátakið og spyr: Í
hvernig borg vilt þú búa í? Viltu
óhreina borg með veggjakroti eða
viltu hreina borg án veggjakrots?
Svarið blasir við og ef íbúarnir
taka upp hanskann fyrir Reykja-
vík með borgaryfirvöldum þá verð-
ur munurinn eins og myndirnar
sýna.
Óskar Bergsson skrifar um
hreinsunar- og fegrunarátak í
Reykjavík
Óskar
Bergsson
’Viltu óhreinaborg með
veggjakroti eða
viltu hreina borg
án veggjakrots?‘
Höfundur er formaður Fram-
kvæmdaráðs Reykjavíkur
Hlið Laugardalslaugar að tjaldstæðum fyrir hreinsunarátakið.
Hlið Laugardalslaugar að tjaldstæðum eftir hreinsunarátakið.
Í hvernig
borg vilt þú búa í?
Útsala
Nýbýlavegi 12, Kóp., sími 554 4433
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-16