Morgunblaðið - 08.08.2006, Page 26

Morgunblaðið - 08.08.2006, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. GEGN ÞJÓÐARSÁLINNI Þorgerður Katrín Gunnars-dóttir, menntamálaráð-herra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, komst vel að orði, þegar hún sagði í samtali við Morgunblaðið sl. laugardag að fyrirtækin í landinu mættu ekki fara gegn þjóðarsálinni með launa- stefnu sinni gagnvart æðstu stjórn- endum fyrirtækjanna. Þetta er rétt hjá Þorgerði Katrínu. Þjóðarsálin er ekki tilbúin til að fallast á tvö- hundruðfaldan launamun í landinu. Fyrir helgi átti Morgunblaðið samtöl við forystumenn verkalýðs- hreyfingar, formenn bankaráða og formenn eða varaformenn stjórn- málaflokka í tilefnum af ummæl- um, sem Ingibjörg R. Guðmunds- dóttir, varaforseti Alþýðusam- bands Íslands, viðhafði í samtölum við bæði Ríkisútvarpið og Morgun- blaðið um þann mikla launamun, sem orðinn væri. Í stórum dráttum má segja, að verkalýðsforingjar og forystumenn stjórnmálaflokkanna eru sammála um, að launaþróun æðstu stjórn- enda stórra fyrirtækja sé komin úr böndum. Formenn bankaráða tveggja banka, sem Morgunblaðið talaði við, héldu uppi vörnum fyrir þessa launaþróun eins og við mátti búast enda eru þeir ábyrgir fyrir henni gagnvart hluthöfum bank- anna. En þótt víðtæk samstaða sé milli flokksleiðtoga og verkalýðsfor- ingja um að við svo búið megi ekki standa er þrautin þyngri að finna leið til þess að hemja þessa þróun. Um er að ræða einkafyrirtæki, sem skráð eru á markaði og launakjör- in, sem til umræðu eru, verða til á grundvelli samþykkta hluthafa- funda. Þeir Guðni Ágústsson, varafor- maður Framsóknarflokksins, Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstri grænna og Guðjón A. Kristjánsson sýnast hallast að því að mæta þessari þróun með skatt- lagningu. Þorgerður Katrín hefur augljóslega efasemdir um að skatt- lagning sé leiðin. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sýn- ist telja að leiðin til þess að taka á vandanum sé í gegnum lífeyrissjóð- ina, sem eigi að marka sér fjárfest- ingarstefnu þar sem ákveðin grundvallarsjónarmið um félags- lega ábyrgð séu í heiðri höfð en bendir jafnframt á, að Alþingi geti beitt sér gegn misskiptingu í sam- félaginu í gegnum skattakerfið og velferðarkerfið. Össur Skarphéðinsson, fyrrum formaður Samfylkingar, blandaði sér í þessar umræður í gær, lýsti svipuðum skoðunum og Ingibjörg Sólrún en bætti við þeirri athygl- isverðu hugmynd, að fyrirtækin settu sér ákveðnar verklagsreglur varðandi launakjör æðstu stjórn- enda, sem þá yrðu væntanlega samþykktar á hluthafafundum. Áður hafði Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, sett fram áþekkar hugmyndir um aðkomu lífeyris- sjóða og fyrrnefndir tveir forystu- menn Samfylkingarinnar. Þegar tekið er mið af ummælum Sigurðar Einarssonar, stjórnarfor- manns Kaupþings banka, og Ein- ars Sveinssonar, stjórnarformanns Glitnis, er ólíklegt að bankarnir, sem eru fremstir í flokki þeirra fyrirtækja sem hér um ræðir, breyti ótilneyddir um launastefnu gagnvart æðstu stjórnendum. Þess vegna má velta því fyrir sér, hvort hægt væri að ná einhverjum ár- angri á grundvelli þeirra hug- mynda, sem Össur Skarphéðinsson hefur sett fram um verklagsreglur á þann veg, að fyrirtækjunum yrði gert að setja sér verklagsreglur, sem miðaðar væru við ákveðinn ramma. Þá getur líka verið ástæða til að skoða, hvort breytt skattheimta á söluhagnaði og arði getur komið hér við sögu. Þetta þarf Alþingi að skoða ræki- lega á komandi vetri og æskilegt að niðurstaða liggi fyrir í aðdraganda kosninga í vor. Hitt fer ekki á milli mála, að að- gerðarleysi í kjölfar þessara um- ræðna er ekki viðunandi. Eins og Morgunblaðið hefur áður sagt er hér um að ræða einn anga af því vandamáli, sem staða stóru fyrir- tækjasamsteypanna er orðin. Með því er ekki sagt að þau hafi ekki mikla þýðingu fyrir þjóðfélagið. Auðvitað hafa þau það. En í því felst ekki að þau eigi að geta gert hvað sem er, keypt upp meira og minna allar eignir í landinu, sem þau ágirnast og haft varasöm áhrif á stjórnmálin í landinu í krafti þess peningavalds, sem þau búa yfir. Æskilegast er að þingið taki á þessu máli öllu nú fyrir kosningar. Kjósendur eiga rétt á að vita hvað flokkarnir eru tilbúnir til að gera. Nefndin, sem sett var upp á vegum fyrrverandi viðskiptaráðherra, skilaði tillögum, sem höfðu litla þýðingu og löggjöfin, sem sett var á grundvelli þeirra tillagna er mátt- laus. Þess vegna þarf að taka málið upp á ný. Umræðurnar um launa- þróunina, sem hafa kviknað nú að frumkvæði Ingibjargar R. Guð- mundsdóttur, gefa tilefni til að taka málið allt upp á ný. Vonandi sýna núverandi stjórn- arflokkar þann kjark sem þarf til þess að koma böndum á þessa þró- un og stjórnarandstöðuflokkarnir þá pólitísku samstöðu, sem þarf til þess að koma í veg fyrir að Ísland verði samfélag fyrirtækjanna í stað samfélags fólksins og til þess að koma í veg fyrir að stjórnmála- flokkarnir allir endi, sem málpípur nokkurra stórra fyrirtækjasam- steypa, sem segi fyrir um, hvaða lög skuli setja og hvaða lög skuli af- nema en á þeirri braut erum við – því miður. Eftir Berg Ebba Benediktsson bergur@mbl.is Miroslav Ouzký er tékkneskur end-urhæfingarlæknir og fulltrúiTékka á Evrópuþinginu auk þessað vera einn af 14 varaforsetum þess. Hann er nú staddur hér á Íslandi til að kynna sér starf í þágu mænuskaddaðra, en undanfarið hefur verið starfræktur á Íslandi gagnabanki um mænusköddun sem styrktur er af íslenskum heilbrigðisyfirvöldum og al- þjóða heilbrigðismálastofnuninni WHO. „Ég tel gagnagrunninn sem er starfræktur hér vera afar gott framtak því að það sem skiptir mestu máli í þessu öllu saman er að auka umræðu um meðferðarúrræði mænu- skaddaðra,“ segir Miroslav. Það er Auður Guðjónsdóttir hjúkrunar- fræðingur sem hefur haft veg og vanda af undirbúningi gagnagrunnsins, en hún hefur verið ötul í baráttu sinni fyrir auknum rann- sóknum vegna mænusköddunar undanfarna áratugi. Blaðamaður hitti tékkneska þing- manninn fyrir á heimili hennar en hann var þar staddur ásamt konu sinni Zora Ouizka, sem er sérfræðingur í barnataugalækningum og Láru Margréti Ragnarsdóttur fyrrverandi þingmanni sem einnig hefur lagt baráttu mænuskaddaðra lið. Verkefnið kynnt hjá ESB Gagnagrunnur Auðar var fyrr á árinu kynntur fyrir Evrópuráðinu í Strassborg en þar hafði legið fyrir skýrsla um málið sem samin er af Miroslav. Í kjölfar umræðu í Evr- ópuráðinu samþykktu aðildarþjóðir þess, sem eru 46 talsins, einróma að vilji væri fyrir frek- ari stuðningi vegna rannsóknar á mænus- köddun. Gagnagrunnurinn nýtur því stuðn- ings Evrópuráðsins. Nú er hinsvegar komið að því að kynna verkefnið fyrir Evrópusam- bandinu. „Sem þingmaður á Evrópuþinginu hef ég setu í heilbrigðisnefnd þingsins og þar hef ég kynnt skýrslu mína um mænusköddun og til- lögur vegna hennar, sem þegar hafa verið samþykktar í Evrópuráðinu,“ segir Miroslav og útskýrir að með því veki hann athygli Evrópusambandslandanna 25 um hvað þau hafi samþykkt í Evrópuráðinu. „Með þessu vil ég auka umræðu um rann- sóknir á mænusköddun innan Evrópusam- bandsins og í kjölfarið að aukið fjármagn verði sett í málaflokkinn og eftir atvikum að sambandið vinni að löggjöf um málið. Í ska hæ áta mæ stin áta Mir hve „ sæl val slík unu fótb leg her fell det lav gen A mik ska að því ára „ leg næ öflu ma kri var efti seg „ það ákv mik seg jón ver „ ur gag gre lok skýrslu minni kemur t.d. fram að leita þurfi nýrra leiða í meðferðarúrræðum vegna mænuskaða. Það er það sama og vakið er at- hygli á í gagnagrunninum, en þar eru saman komnar allar þekktar aðferðir til lækningar á mænuskaða, og ekki spurt að því hvaðan þær koma.“ Rannsóknirnar fjárfesting „Ef ég nefni óhefðbundnar lækningar eins og aðferðir dr. Zeng við kollega mína í Tékk- landi þá segja þeir á móti að það sé bara eitt- hvað kínverskt rugl. Það er hinsvegar mikil- vægt að loka ekki augunum fyrir neinu,“ segir Miroslav og útskýrir að vestrænar lækninga- aðferðir geri vissulega mikið fyrir þá sem þjást af mænuskaða, en hinsvegar hafi rann- sóknir og meðferðarúrræði á þessu sviði nán- ast staðið í stað síðustu 50 ár. „Í skýrslunni nefni ég þetta blindhringinn, því stundum er eins og menn hlaupi blindir í hringi og spái ekkert í lokatakmarkið á leið sinni. Það er einnig hægt að líta á þetta út frá sjónarmiðum hagfræðinnar. Það hlýtur að vera góð fjárfesting að leggja peninga í rann- sóknir sem fá lamað fólk til að standa í lapp- irnar, því það fylgir því ætíð mikill kostnaður að sinna þeim sem ekki geta séð um sig sjálf- ir,“ segir Miroslav og bendir á að fólk sé nán- ast hætt að líta á rannsóknir á mænuskaða sem sóknarfæri. Ástandið eins og faraldur „Ég ber þetta oft saman við fuglaflensuna. Ímyndið ykkur alla þá fjármuni sem eytt er í rannsóknir á fuglaflensu, sjúkdómi sem leitt hefur 120 manns til dauða. Fólk lagði allt í söl- urnar til að stöðva útbreiðslu fuglaflensu en svo höfum við sjúkdóm eins og mænuskaða sem hrjáir milljónir manna og þar hefur eng- inn lengur áhuga á að framkvæma nýjar rann- sóknir. Þessu viðhorfi viljum við breyta,“ seg- ir Miroslav og bætir því við að samanburður- inn á fuglaflensu og mænuskaða sé ekki úr lausu lofti gripinn því að tilfellum mænuskaða fari sífellt fjölgandi þannig að líkja megi því við faraldur. „Menn hljóta mænuskaða við alls kyns slys en slysunum fer ekki endilega fjölgandi. Læknavísindunum fer hinsvegar sífellt fram þannig að fólk lifir lengur eftir þessi slys en áður,“ segir Miroslav og útskýrir að það sé ástæðan fyrir því að mænusködduðu fólki fjölgi sífellt. Spurður að því hvort það standi einnig vilji til þess að fækka slysunum sem valdi mænu- Miroslav Ouzký, læknir og þingmaður ESB, um ranns „Mikilvægt að lok augunum fyrir n Auður Guðjónsdóttir, Miroslav Ouzký ásamt konu sinni Zora Ouzka og Lára Margrét Ragnarsdóttir í g TEN .... Gag ww

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.