Morgunblaðið - 08.08.2006, Síða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ HjálmfríðurGuðrún Hans-
dóttir fæddist á
Ísafirði 28. júní
1924. Hún lést á
Landspítalanum
við Hringbraut 14.
júlí síðastliðinn.
Bernskuslóðir
hennar voru í
Grunnavík í Jökul-
fjörðum þar sem
foreldrar hennar
bjuggu á nokkrum
stöðum, en þau
voru Hans Elías
Bjarnason bóndi, f. 29.9. 1897,
d. 25.2. 1980, og kona hans Jón-
ína Jónsdóttir húsmóðir, f. 9.9.
1899, d. 30.11. 1970. Eftirlifandi
albræður Guðrúnar eru: Bjarni,
f. 30.10. 1928, og Ólafur, f.
17.10. 1931. Látnir eru: Jón Sig-
urður, f. 17.6. 1926, d. 7.3. 1999,
Kristján, f. 7.12. 1934, d. 8.10.
1998, Pétur Björn, f. 2.6. 1938,
d. 28.10. 1969, og hálfbróðir
samfeðra, Hans B. Hansson, f.
1923.
Guðrún giftist átján ára göm-
ul Guðmundi E. Geirdal skáldi á
Ísafirði og dvaldist þar að mestu
næstu sex árin, en þá slitu þau
Guðmundur samvistum sínum.
Hún giftist nokkru síðar Jóni S.
Árnasyni bólstrara, ættuðum úr
Flatey á Breiðafirði, og þar átti
hún heima í hálft þriðja ár. Hún
fluttist til Reykjavíkur 1949 og
bjó þar upp frá því. Þau Guðrún
og Jón slitu hjónabandi sínu.
Kjördóttir hennar
er Sigríður Kristín
Jónsdóttir, f. 29.
nóvember 1949,
starfsmaður hjá
Lýsi hf.
Frá 14. júlí 1992
var Guðrún heit-
bundin séra Bjarna
Th. Rögnvaldssyni,
presti og fræði-
manni, f. 25.8.
1932.
Á Ísafjarðarár-
um sínum kom
Guðrún víða við,
meðal annars með starfi sínu á
sjúkrahúsinu, í Kvenfélaginu
Hlíf, leikfélaginu og Sunnukórn-
um. Eftir að hún fluttist til
Reykjavíkur vann hún á fyrstu
árunum við löggæslu, söng í kór
Háteigskirkju og síðar í Breið-
firðingakórnum og aflaði sér
einnig staðgóðrar kunnáttu í
fatasaumi. Um fimmtugt hóf
Guðrún nám í Sjúkraliðaskólan-
um og útskrifaðist þaðan 1975.
Hún vann á rannsókna- og lyfja-
deild Borgarspítalans en hætti
störfum sem sjúkraliði 1986.
Hún sendi oft frá sér greinar og
pistla í blöð, þar á meðal minn-
ingargreinar og lesendabréf.
Einnig hafa sum hugverka
hennar verið birt í tímaritum,
smásaga og nokkur ljóð.
Útför Hjálmfríðar Guðrúnar
var gerð frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 25. júlí – í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Ég minnist haustsins 1993, en
það tímabil markaði ákveðin þátta-
skil í félagslegum samskiptum af
minni hálfu. Aðdragandinn var síð-
sumarsferð kvæðamanna, sem
varð til þess að ég tengdist félagi
þeirra þeim böndum sem ekki hafa
rofnað. Fundir hófust að venju um
haustið og meðal hinna nýju félaga
minna bar fyrir mig konu sem ég
hafði ekki augum litið áður. Ein-
hvern smátíma þurfti til þess að
um eiginleg kynni yrði að ræða, en
af framgöngu konunnar og öllu
fasi virtist mér greinilegt að þar
færi einstaklingur sem bæri með
sér yfirvegaða háttvísi og fastmót-
aða reisn.
Við þessi upphafskynni á fé-
lagsfundi gat einnig að líta virðu-
legan mann, félagsritarann, sem
þá var séra Bjarni Th. Rögnvalds-
son, en þau Guðrún höfðu rúmlega
ári fyrr opinberað trúlofunarheit
sitt. Efni fluttu þau í dagskrá
funda líkt og félagar eru almennt
kvaddir til og vakti framsögn Guð-
rúnar með hreinum, tærum tón-
brigðum, áherzlum og hrynjandi
þegar athygli mína. Fyrstu kveðj-
ur eru mér einnig ríkar í minni:
Einlægt og ljúflegt bros sem virt-
ist bjóða þann er á móti kom vel-
kominn til áframhaldandi vináttu.
Guðrún hafði verið Iðunnar-
félagi um allnokkurt árabil, en nú
tóku ævisporin bráðlega þá stefnu
að hún hvarf úr félagahópnum.
Fylgdist hún þó áfram að nokkru
með því sem verið var að gera og
ræddi þann menningarþátt líkt og
aðra við sína nánustu vini. Fé-
lagsvön var hún einnig víðar fyrr á
árum. Söngur og þátttaka í sjón-
leikjahaldi var meðal þess sem hún
virtist hafa hvað mesta unun af að
minnast þegar á ævina leið. Einna
hæst hygg ég að hafi borið þátt-
töku hennar í listflutningi Sunnu-
kórsins á Ísafirði, en hún mun hafa
haft óvenju háa og bjarta sópr-
anrödd sem naut sín vel undir
hvetjandi stjórn Jónasar Tómas-
sonar eldra. Var bæði fróðlegt og
skemmtilegt að hlýða á frásögn
hennar af hinni vandlega undir-
búnu og vel heppnuðu söngför
Sunnukórsins til Reykjavíkur
1945.
Það kom oft fram í viðtölum við
Guðrúnu, eða Gunný, eins og við
kölluðum hana jafnan, að hún hafði
frá unga aldri kynnzt framleiðslu-
störfum til lands og sjávar og allar
nytsamar og þjóðlegar erfðir mat
hún svo sem bezt mátti verða.
Fróðleiksfús var hún og bókhneigð
hennar á háu stigi, enda valdi hún
sér fyrst og fremst til lestrar þær
bókmenntir sem hún var sannfærð
um að skiluðu varanlegum áhrifum
til góðs. Þess skal og getið, sem
sjálfsagt var ekki á vitorði
fjöldans, að hún var prýðilega
skáldmælt þó að fátt eitt birtist
opinberlega frá hennar hendi.
Naut sín þar vel afburða glögg
innsýn í móðurmálið, en því unni
hún mjög og virti mikils fagurt
tungutak. Heyrði ég hana aldrei
blanda málfar sitt útlendum slett-
um, og frásagnir hennar nokkrar
sem ég hljóðritaði samræmdust
svo vel almennum bókstíl að einna
líkast var því að þær hefðu verið
undirbúnar með slíkan flutning
fyrir augum. Ég ætla að leyfa mér
að birta hér eitt af fegurstu ljóðum
hennar:
Þín návist gefur mér gildi lífsins
og gleður mig sérhvert skref,
fjarlægir alla fjötra kífsins,
ei fegra ég litið hef.
Ég hef borizt með brotsjóakólgu
um báróttan kvikusand.
Ég hef velkzt gegnum órofa ólgu
upp á hið hrjóstruga land.
Í sál minni ólga brimsins boðar
og brjóta um eyðisker.
Nú finn ég loks hvernig fegurð roðar
þau fjöll sem mig yfir ber.
Ég finn hvernig ljósgeisli lífs míns
streymir
og leiftrandi stjarna skín.
Í vöku og svefni minn vorhug dreymir,
vina mín, augun þín.
Guðrún bjó yfir ótrúlega víð-
tækri skyggnigáfu og gegndi sem
slík langvinnu bænasamfélagi fyrir
sjúkum, og munu ófáir minnast
þess. „Ekkert afl er sterkara en
bænin,“ voru óbreytt orð hennar,
en um þetta efni og annað því
skylt er nærtækast að vísa til
mjög nákvæms viðtals við hana í
tímaritinu Heima er bezt fyrir
rúmum fjórum árum, en þar
greindi hún frá margvíslegum
þáttum reynslu sinnar lið fyrir lið.
Guðrún var með afbrigðum gest-
risin kona og lagði jafnan metnað
sinn í að ná fram því fullkomnasta
og bezta til handa þeim er notið
gátu veitinga hennar. Skapgerðin
var yfirveguð og föst í sniðum og
frá sannfæringu sinni hvikaði hún
ekki teldi hún að hinn eini rétti
grundvöllur væri fundinn. Umræð-
ur og gagnkvæm tjáning voru
henni yndisarður sem hún gerði
sér sífellt far um að njóta, og ekki
setti hún fyrir sig þó að skoðanir
gætu verið eitthvað skiptar.
Síðustu æviárin reyndust Guð-
rúnu þung í skauti. Áður hafði hún
oft átt við vanheilsu að stríða en
nú þyrmdi yfir með aðför ýmissa
sjúkdómsþátta sem höfðu í för
með sér síendurtekna dvöl undir
hendi lækna, ærið oft án nokkurs
teljandi fyrirvara. Þeir sem þekktu
hana bezt undruðust hið óbilandi
baráttuþrek hennar í viðureigninni
við heilsubrest sinn, en að því
hlaut þó að koma að viðnámsþrótt-
urinn yrði ekki lengur fyrir hendi.
Allan þennan tíma stóð séra
Bjarni, unnusti hennar, sem klett-
ur við hlið hennar í baráttunni og
veitti henni allan þann stuðning
sem hugsanlegur var. Ég votta
honum og kjördóttur Guðrúnar,
Sigríði Kristínu Jónsdóttur
(Siddý) mína dýpstu samúð í sökn-
uði þeirra. Kærar þakkir fyrir að
hafa kynnzt Gunný og eignazt svo
margþætt sálufélag öll þessi ár.
Bjarni Valtýr Guðjónsson.
Góð vinkona mín, Guðrún Hans,
eins og ég kallaði hana alltaf, er
fallin frá eftir langvarandi van-
heilsu.
Við fráfall hennar streyma
minningarnar fram. Við hittumst
fyrst á Borgarspítalanum fyrir um
það bil 30 árum þegar ég var
hjúkrunarfræðinemi á deild þar
sem hún starfaði sem sjúkraliði.
Ég tók strax eftir þessari mynd-
arlegu konu, sem var svo alúðleg
við okkur nemana og vildi leið-
beina okkur, sem vorum að stíga
fyrstu skrefin inn í hinn flókna
heim heilbrigðisþjónustunnar.
Að námi mínu loknu réð ég mig
til starfa á þessa sömu deild og við
Guðrún unnum þar saman í tæpt
ár.
Hún var sjúkraliði í bestu merk-
ingu þess fallega starfsheitis – hún
liðsinnti sjúkum af alúð, um-
hyggju, samvikusemi og dugnaði
og var mjög umhugað um velferð
þeirra. Hún var ábyrg og gerð-
arleg kona, svo eftir var tekið,
enda héldu margir sjúklingar og
aðstandendur að hún væri for-
stöðukona á deildinni eins og sagt
var í þá daga. Samstarf okkar var
með miklum ágætum og marga
krefjandi vaktina stóðum við sam-
an. Hún var alltaf komin á deildina
löngu áður en vinna hennar átti í
raun að hefjast og var þá ætíð
reiðubúin að byrja strax að hjálpa
þeim sem voru að ljúka við sína
vakt. Ég var ung og óreynd, en
hún þá á miðjum aldri, einstaklega
vel að sér og margreynd kona.
Naut ég góðs af hennar reynslu,
þekkingu, krafti og þeirri velvild
sem hún sýndi mér og var það mér
ómetanlegt. Þrátt fyrir að við
hefðum einungis unnið saman í til-
tölulega skamman tíma fyrir öllum
þessum árum héldum við alltaf
sambandi, en hún sýndi mér og
fjölskyldu minni ávallt mikla
tryggð og vináttu.
Gegnum árin sagði Guðrún mér
ýmislegt úr ævisögu sinni og varð
mér ljóst að líf hennar hafði ekki
verið dans á rósum og hafði hún
átt við margvíslega erfiðleika að
stríða. Þrátt fyrir það var alltaf
stutt í kímnina og hláturinn hjá
henni, ekki síst þegar við rifjuðum
upp gamlar og góðar minningar
frá starfi okkar á Borgarspítalan-
um. Guðrún var mjög trúuð kona
og hefur það eflaust átt sinn þátt í
því að hjálpa henni til að sigrast á
margs konar mótlæti.
Ég mun ætíð minnast hennar
með hlýju, virðingu og þakklæti
fyrir allt sem hún gerði fyrir mig.
Guð blessi minningu Guðrúnar
Hansdóttur.
Laura Sch. Thorsteinsson.
HJÁLMFRÍÐUR
GUÐRÚN
HANSDÓTTIR
Eiginkona mín,
SIGRÚN HANNESDÓTTIR,
Kópavogsbraut 1A,
lést sunnudaginn 6. ágúst á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð.
F.h. aðstandenda,
Ásgeir Pétursson.
Okkar ástkæri,
GUNNAR KRISTJÁNSSON
frá Ísafirði,
lést að heimili sínu, Vesturtúni 54, Álftanesi að
kvöldi föstudagsins 4. ágúst.
Ebba Dahlmann,
Guðlaug Gunnarsdóttir, Halldór V. Kristjánsson,
Hanna Lára Gunnarsdóttir,
Sigurður Axel Gunnarsson,
afabörn og langafabörn.
Ástkær systir okkar
GUÐRÚN BENEDIKTSDÓTTIR
andaðist á Sjúkrahúsinu Hvammstanga miðviku-
daginn 2. ágúst.
Útförin fer fram frá Hvammstangakirkju fimmtu-
daginn 10. ágúst kl. 14.
Guðný Lilla Benediktsdóttir,
Hólmfríður Benediktsdóttir,
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÁSTHILDUR TEITSDÓTTIR,
fyrrum húsfreyja á Hjarðarfelli,
Snæfellsnesi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli aðfaranótt föstu-
dagsins 4. ágúst.
Guðbjartur Gunnarsson, Harpa Jónsdóttir,
Högni Gunnarsson, Bára K. Finnbogadóttir,
Sigríður Gunnarsdóttir, Michel Sallé,
Hallgerður Gunnarsdóttir, Sturla Böðvarsson,
Teitur Gunnarsson, Lilja Guðmundsdóttir,
Þorbjörg Gunnarsdóttir, Erlendur Steinþórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
GUÐRÚN STEINA MAGNÚSDÓTTIR (Gógó),
Þórðarsveig 1,
Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 5. ágúst.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Gunnar Jóhann Júlíusson,
Hafdís Una Júlíusdóttir, Sigmundur Ágústsson,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu, er
auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
HELGU KRISTINSDÓTTUR,
Stekkjargötu 27,
Njarðvík,
Guð blessi ykkur.
Björn Stefánsson,
Stefán Björnsson, Anna Steina Þorsteinsdóttir,
Kristinn Björnsson,
Erna Björnsdóttir, Hjörtur Sigurðsson,
Guðný Björnsdóttir, Grétar Grétarsson,
Höskuldur Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.