Morgunblaðið - 08.08.2006, Síða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Starfsferillinn er að taka spennandi
stefnu. Gefðu af frítíma þínum, þú átt
alltaf meira og meira af honum eftir því
sem þú hefur meiri áhuga á viðfangsefn-
inu. Fólk í vogarmerki eða sporðdreka
leggur þér lið í skapandi verkefnum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gerðu það sem þú þarft til þess að halda
eldinum innra með þér logandi, svo þú
þurfir ekki að byggja hamingju þína á ár-
angri annarra. Njóttu þess svo að daðra í
kvöld – þú ert æsandi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Í dag er einn af þessum dögum. Allir fara
jafnt í taugarnar á þér, þú ferð ekki í
manngreinarálit. En ekki láta deigan
síga. Ef þér tekst að sjá fyndnu hliðina á
gremjunni áttu eftir að skemmta þér
konunglega í kvöld.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Láttu vaða ef þú sérð hagstætt tilboð ein-
hvers staðar. Annars áttu bara eftir að
sjá eftir því. Þú gætir meira að segja
klárað dálítið af sumarfrísinnkaupunum
frá, og það er svo sannarlega framsýni af
þinni hálfu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið hefur verið miðdepill slúðurs áð-
ur, enda elskar fólk að veita því athygli.
En sannleikurinn er skrýtnari en skáld-
skapur, samt sem áður. Þess vegna ættir
þú kannski bara að láta aðra halda það
sem þeir vilja.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Besti vinur þinn hagar sér dálítið geð-
veikislega í dag, eða kannski ert þú bara
fram úr hófi stöðug innra með þér í dag.
Það er sama hvort er, þú verður í þeirri
stöðu að þurfa að afsaka einhvern eða
bjarga deginum með skyndilegri ráð-
kænsku.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er einstök regla í óreiðunni í kring-
um vogina þessa dagana. Hvað um það.
Regla og óreiða eru alltaf fyrir hendi í öll-
um aðstæðum. Málið er hvaða ljósi þú
varpar á þær.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þegar þú færð að heyra yfirborðsútgáfu
af tiltekinni atburðarás hjá ástvinum get-
ur þú annaðhvort reynt að kafa dýpra
(sem er í eðli þínu) eða leyft þeim að ráða
ferðinni. Í dag er spurningin sú hvað þú
hefur mikinn tíma.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ef þú ættir að ráða einhvern til þess að
gera það sem þú gerir myndirðu líklega
borga viðkomandi þrisvar sinnum meira
en þú aflar. Er það ekki umhugsunar-
efni? Á meðan þú hugsar um það finn-
urðu lausnina á máli sem tengist pen-
ingum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er ekki bara óhætt að vera óvinsæll í
dag, heldur líka ansi skemmtilegt.
Reyndar er mælt með því. Himintunglin
eru á þínu bandi, hvort sem ástæðan er
sú að þín nálgun er of framúrstefnuleg
fyrir meirihlutann eða eitthvað sem hent-
ar engum nema þér.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Afbrýðisemi þín er afar lýsandi. Það sem
þú vilt fá út úr lífinu og markmið þín jafn-
vel, eru falin í öfundartilfinningunum
sem bærast. Og svo myndirðu heldur
ekki öfunda ef þú værir ekki fær um það
sama.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú nýtur þess að vera í hópum þar sem
samfélagsleg norm halda ekki aftur af
þér eða stjórna. Til hvers að vera frjáls ef
maður nýtir sér það ekki? Gakktu fram
af öðrum!
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Sólin er konungur, roggin
toppfígúra sem gengur
fylktu liði í gegnum heima-
land ljónsins. Þá kemur hinn vísi Sat-
úrnus og lækkar í henni rostann og minn-
ir á að miklum völdum fylgir líka mikil
ábyrgð. Látum afstöður himintunglanna
hjálpa okkur við að breyta stolti í góð-
mennsku og þjónustulund við þegnana.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 vörugeymslan,
8 ljúkum við, 9 daufa ljós-
ið, 10 flana, 11 fífl, 13
króks, 15 deilu, 18 póll,
21 kusk, 22 dáni, 23 vilj-
ugt, 24 fugl.
Lóðrétt | 2 ávöxtur, 3
náðhús, 4 sýnishorn, 5
syndajátning, 6 skjóta
undan, 7 klettanef, 12
elska, 14 tré, 15 vers, 16
veiðarfæri, 17 eyddur, 18
bjuggu til, 19 stétt, 20
stútur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 gáski, 4 gegna, 7 fátæk, 8 golan, 9 agn, 11 alin,
13 maur, 14 ýlfra, 15 snær, 17 trúr, 20 sný, 22 padda, 23
sötri, 24 iðrar, 25 niðja.
Lóðrétt: 1 gifta, 2 setti, 3 iðka, 4 gagn, 5 gilda, 6 annar,
10 gufan, 12 nýr, 13 mat, 15 seppi, 16 ældir, 18 rotið, 19
reisa, 20 saur, 21 ýsan.
Tónlist
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Á sum-
artónleikum Listasafns Sigurjóns kl. 20.30,
flytja þau Auður Gunnarsdóttir sópran og
Andrej Hovrin píanó ’Sieben frühe Lieder’
eftir Alban Berg, sönglög opus 36 og 37
eftir Jean Sibelius, ’Seks sanger’ opus 48
eftir Edvard Grieg og sönglög opus 4 og 14
eftir Sergei Rachmaninoff.
Reykholtskirkja | Kanadíski kvartettinn
Qartetto Constanze heldur tónleika í Reyk-
holtskirkju 10. ágúst kl. 20.30. Á efnisskrá
er m.a. nýfundið verk eftir íslenska tón-
skáldið Þórð Sveinbjörnsson. Sjá nánar
http://www.constanze.ca Aðgangur ókeyp-
is.
Myndlist
101 gallery | Serge Comte – sjö systur – se-
ven sisters. Til 2. sept. Opið fim.–lau. kl. 14–
17.
Anima gallerí | Múni – Árni Þór Árnason og
Maríó Múskat (Halldór Örn Ragnarsson).
Sýningin stendur til 12. ágúst. Opið fim., fös.
og lau. kl. 13–17.
Art-Iceland Mublan | Fyrsta samsýning
gallerísins Art–Iceland.com Skólavörðustíg
1a. Listamennirnir sem sýna eru: Árni Rúnar
Sverrisson, Helga Sigurðardóttir og Álf-
heiður Ólafsdóttir. Sýningin er í Versluninni
Mublunni, Nýbýlavegi 18, Kópavogi.
Byggðasafn Garðskaga | Samsýning: Reyn-
ir Þorgrímsson, Reynomaticmyndir sem
eru litríkar nærmyndir af náttúrunni. Björn
Björnsson tréskúlptúr. Opið kl. 13–17, alla
daga. Nýtt kaffihús er á staðnum.
Café Karólína | Karin Leening sýnir. Karin
málar, teiknar, býr til teiknimyndir og kennir
börnum myndlist. Sýningin stendur til 1.
september.
DaLí gallerí | Joris Rademaker sýnir rým-
isverk til 26. ágúst. Opið virka daga og laug-
ardaga kl. 14–18 í sumar.
Eden, Hveragerði | Árni Björn með mál-
verkasýningu. Sýningin er opin kl. 9–22
daglega til 14. ágúst.
Hafnarborg | Yfirskrift sýningarinnar, „hin
blíðu hraun“, er frá Jóhannesi Kjarval og
með henni er beint sjónum að hrauninu í
Hafnarfirði. Til 28. ágúst.
Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina-
félags Hallgrímskirkju á verkum Ásgerðar
Búadóttur veflistakonu stendur til 26.
ágúst. Sýningin er í samvinnu við Listasafn
Háskóla Íslands.
Handverk og hönnun | Til sýnis bæði hefð-
bundinn íslenskur listiðnaður og nútíma
hönnun úr fjölbreyttu hráefni eftir 37 aðila.
Á sýningunni eru hlutir úr leir, gleri, pappír,
tré, roði, ull og silfri. Sýningin stendur til 27.
ágúst. Opið er alla daga frá 13–17 og er að-
gangur ókeypis.
Ketilhúsið Listagili | Hrefna Harðardóttir
sýnir veggskúlptúra úr leir. Til 13. ágúst.
Kirkjuhvoll Akranesi | Listsýning á verkum
eftir 12 nýútskrifaða nema frá Listaháskóla
Íslands. Listasetrið er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 15–18. Til 13. ágúst.
Listasafn ASÍ | Daði Guðbjörnsson, Eiríkur
Smith, Hafsteinn Austmann og Kristín Þor-
kelsdóttir sýna nýjar vatnslitamyndir. Einnig
eru sýndar vatnslitamyndir eftir Svavar
Guðnason í eigu Listasafns ASÍ. Opið 13–17.
Aðgangur ókeypis. Til 13. ágúst.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið daglega
nema mánudaga kl. 14–17. Högg-
myndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf op-
inn.
Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning Lo-
uisa Matthíasdóttir. Til 20. ágúst.
Listasafn Íslands | Landslagið og þjóðsag-
an, sýning á íslenskri landslagslist frá upp-
hafi 20. aldar og túlkun þjóðsagna. Verk úr
safneign og Safni Ásgríms Jónssonar.
Ókeypis aðgangur. Opið daglega kl. 11–17,
lokað mánudaga. Til 19. ágúst.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund-
arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir,
gifs, stein, brons og aðra málma. Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýning
á listaverkum sem voru valin vegna úthlut-
unar listaverka– verðlaunanna Carnegie Art
Award árið 2006. Sýningin endurspeglar
brot af því helsta í norrænni samtímalist en
meðal sýnenda eru fjórir íslenskir lista-
menn, meðal annars listmálarinn Eggert
Pétursson sem hlaut önnur verðlaun þetta
árið. Til 20. ágúst.
Erro – Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum
tímabilum í list Errós, þær nýjustu frá síð-
astliðnu ári. Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning á verkum úr eigu safnsins. Margir af
helstu málurum þjóðarinnar eiga verk á
sýningunni sem spannar tímabilið frá alda-
mótunum 1900 til upphafs 21. aldarinnar. Til
17. sept.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á
völdum skúlptúrum og portrettum Sig-
urjóns Ólafssonar. Opið daglega nema
mánudaga kl. 14–17. Kaffistofan er opin á
sama tíma. Tónleikar á þriðjudagskvöldum.
Sjá nánar á www.lso.is
Norræna húsið | Sumarsýning í anddyri til
27. ágúst. Ljósmyndir frá Austur-Grænlandi
eftir danska ljósmyndarann Ole G. Jensen.
Opið virka daga kl. 9–17. Laugardaga og
sunnudaga kl. 12–17.
Out of Office – Innsetning. Listakonurnar
Ilmur Stefánsdóttir og Steinunn Knúts-
dóttir í sýningarsal fram til 30. september.
Opið alla dag kl. 12–15, nema mánudaga.
Gjörningar alla laugardaga og sunnudaga kl.
15–17.
Næsti bar | Sigurður Örlygsson sýnir ný
málverk. Sýningin stendur til 19. ágúst.
Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir
sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina til
28. ágúst.
Thorvaldsen Bar | Jónína Magnúsdóttir,
Ninný, með myndlistarsýninguna Í góðu
formi. Sýningin stendur til 11. ágúst.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning í til-
efni af 70 ára afmæli Laugarnesskóla
stendur yfir á Reykjavíkurtorgi, Tryggva-
götu 15, 1. hæð. Opin virka daga kl. 11–19 og
um helgar kl. 13–17. Ókeypis aðgangur.
Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú bú-
inn húsmunum og áhöldum eins og tíðk-
aðist í kringum aldamótin 1900. Þjóðlegar
veitingar í Gamla prestshúsinu. Opið dag-
lega kl. 9–18, fimmtud. 9–22. 500 kr. inn.
Frítt fyrir börn.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn alla daga í sumar kl. 9–17.
Hljóðleiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og
sænsku. Margmiðlunarsýning og gönguleið-
ir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á
www.gljufrasteinn.is og í 586 8066.
Iðnaðarsafnið | Á safninu gefur að líta vélar
og verkfæri af öllum stærðum og gerðum,
framleiðsluvöru o.fl. Opið daglega kl. 13–17
til 15. sept. 400 kr. inn, frítt fyrir börn.
Kotbýli kuklarans | Sýning á Klúku í Bjarn-
arfirði sem er bústaður galdramanns og lit-
ið er inn í hugarheim almúgamanns á 17. öld
og fylgst með hvernig er hægt að gera
morgundaginn lítið eitt bærilegri en gær-
daginn. Opið alla daga kl. 12–18 til 31. ágúst.
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 |
Sýning á rúst af landnámsskála frá 10. öld
sem fannst við fornleifauppgröft í Reykjavík
2001. Fróðleik um landnámstímabilið er
miðlað með margmiðlunartækni. Opið alla
daga kl. 10–17.
Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn
| Sýning í Þjóðarbókhlöðu. Myrkraverk og
misindismenn. Reykjavík í íslenskum glæpa-
sögum.
Ritað í voðir – sýning Gerðar Guðmunds-
dóttur. Gerður safnar bókstöfum úr íslensk-
um handritum svo og laufblöðum haustsins,
þrykkir á síður og býr til handrit og bækur.
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða