Morgunblaðið - 08.08.2006, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 45
MENNING
LEIKHÓPURINN sem kennir sig
við Vesturport er núna staddur á
leiklistarhátíðinni X Festiwal
Szekspirowski
í borginni
Gdansk í Pól-
landi. Þar mun
hópurinn tví-
vegis sýna
rómaða leik-
uppfærslu
hans á Rómeó
og Júlíu eftir
Shakespeare.
X Festiwal
Szekspirowski
er, eins og síð-
ara nafnið gef-
ur til kynna,
leiklistarhátíð
tileinkuð leik-
ritum Williams
Shakespeare
en á hátíðinni
er einnig keppt
um bestur uppfærsluna og keppir
Vesturport við leikhópa frá Suður-
Kóreu, Bretlandi, Póllandi, Þýska-
landi og Rúmeníu.
Fyrsta sýning fer fram í dag en sú
síðari á morgun og samkvæmt Rakel
Garðarsdóttur hjá Vesturporti er
uppselt á báðar sýningarnar sem
fara fram í aðalleikhúsi borgarinnar,
Wybrzeze Gdansk.
Vesturport
keppir í
Póllandi
Ingvar E. Sigurðsson
og Nína Dögg
Filippusdóttir í hlut-
verkum sínum í
Rómeó og Júlíu í
Young Vic-leikhúsinu.
ÞEIR voru notalega viðfelldnir tón-
leikar danska Óperukompanísins í
Selfosskirkju síðasta föstudagskvöld
júlímánaðar, og gjörsneyddir öllu
yfirlæti og formlegheitum. Þannig
var engin prentuð tónleikaskrá held-
ur allt munnkynnt; oftast í tveggja
manna tali á léttum nótum þar sem
íslenzki sjöttipartur hópsins þýddi
jafnóðum. Ósjálfrátt minnti and-
rúmsloftið mann á lífsglöðu árin upp
úr 1970 þegar Danir þóttust frjáls-
lyndasta þjóð Vestur-Evrópu og
lögðu sig umfram allt í líma við að
slaka á. Ugglaust höfðu þó elztu fé-
lagar hópsins verið hvað iðnastir við
kolann á þeim árum, enda átti ald-
ursforsetinn Aage Christensen 40 ár
að baki í Konunglegu óperunni. Varð
áleitin sú tilfinning að hér væri eink-
um verið að skemmta sjálfum sér og
öðrum við minnkandi álag á ofan-
verðum ferli. Það mátti kannski
einnig ráða af því að Operakomp-
agniet var stofnað í hitteðfyrra, hélt
tónleika í Færeyjum 2005 og stefnir
á Grænlandsför að ári.
Viðfangsefnin voru flest vel
þekktar aríur og dúettar úr burðar-
stoðum óperubókmennta, þ.á m.
Brúðkaupi Fígarós, Töfraflautunni
og La Bohème – að ógleymdum
Perluköfurum Bizets hvar þeir Sig-
urður Torfi og Christensen rifjuðu
upp samsöng Stefáns Íslandi og
Henrys Skjær (1940) er enn mun í
minnum hafður landsyðra. Einnig
lék Kirsten Halby, einleikari í DR
útvarpshljómsveitinni um 30 ár, fal-
lega við píanóundirleik menúett úr
Mozartsónötu og stykki eftir Hal-
vorsen. Þá söng Sigurður Vöggu-
söng á Hörpu Jóns Þórarinssonar,
og var það eina íslenzka innslagið,
þótt gráupplagt hefði verið að þeir
Christensen tækju í kjölfarið „ís-
lenzka perlukafaradúettinn“ Nú
vagga sér bárur eftir Bjarna Þor-
steinsson. Minnti það annars á aug-
ljósa kosti þess að hafa tiltækar
sönghæfar þýðingar á gullaldarlög-
um okkar á skandinavískum málum,
enda mun vöruskiptajöfnuður á milli
málsvæðanna íslenzkri tónlist mjög í
óhag.
Söngur þeirra fimmmenninga var
yfirleitt frambærilegur. Miðað við að
vera kominn af léttasta skeiði tókst
Christensen víða allvel upp, þótt
vissulega væri óvenjulegt að heyra
Mozartaríur sungnar á dönsku.
Elsebeth Lund stóð að raddgæðum
upp úr jafningjum sínum með þétt-
um lýrísk-dramatískum sópran og
sýndi oft góð tilþrif. Karen Fester
virtist hins vegar eiga við fókus-
vanda að stríða, jafnvel þótt innlif-
unin væri látlaus og eðlileg. Efnileg
tenórrödd Sigurðar Torfa kom svo-
lítið nefkveðin fyrir á sumum sviðum
en hafði að mestu hæðina er til
þurfti, þó að aukin tækniskólun og
sviðsreynsla gæti vafalítið skipt
sköpum. Píanóleikur Hennings Niel-
sens var frekar stirður og benti til að
orgelið væri aðalhljóðfæri hans.
Fyrir utan perlukafaradúettinn
var tilkomumesta atriðið hinn frægi
söngkvartett Gildu, Maddalenu, her-
togans og Rigolettos úr 4. þætti
samnefndrar Verdi-óperu; meistara-
leg tónlist sem skilar sér jafnvel við
ólíklegustu tækifæri.
Kumpánlegt kompaní
Morgunblaðið/Jim Smart
Danski sönghópurinn sem kom fram í Selfosskirkju á föstudag.
TÓNLIST
Selfosskirkja
Söngverk eftir m.a. Mozart, Verdi, Pucc-
ini og Bizet. Operakompagniet (Aage
Christensen barýton, Elsebeth Lund
sópran, Karen Fester mezzosópran, Sig-
urður Torfi Guðmundsson tenór, Kirsten
Halby fiðla og Henning T Nielsen píanó.)
Föstudaginn 28. júlí kl. 20.
Óperutónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson