Morgunblaðið - 08.08.2006, Síða 47

Morgunblaðið - 08.08.2006, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 47 SÍÐUSTU SÝNINGAR Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 -bara lúxus HÖRKU SPENNUMYND Í ANDA JAMES BOND ÞÚ ERT ALDREI OF UNGUR TIL AÐ DEYJA Sýnd kl. 4 og 6 ÍSLENSKT TAL eee L.I.B. Topp5.is eee S.V. Mbl. eeee P.B.B. DV Sýnd kl. 3:40, 5:50, 8 og 10:15 B.i. 14 ára Það hefur ekki verið svikari í leyniþjónustunni í 141 ár... þangað til núna! Útvarp einsog þú hefur aldrei upplifað það áður Frábær gamanmynd með íslandsvininum John C. Reilly sem sló svo eftirminnilega í gegn í Borgarleikhúsinu. Sími - 551 9000 A Praire Home Company kl. 5.45, 8 og 10.15 Silent Hill kl. 8 og 10.40 B.i. 16 ára Ultraviolet kl. 5.20 B.i. 12 ára Da Vinci Code kl. 5 og 10 SÍÐUSTU SÝN. B.i. 14 ára Stormbreaker kl. 6 og 8 Click kl. 8 og 10.10 B.i. 10 ára 400 KR. Í BÍÓ * * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu Mögnuð spennum ynd í anda „2 4“ eeee K.M. - Sena Þau ætla að ná aftur hverfinu... ...einn bita í einu! Máttarstólpi Menningarnætur Menningarnótt 19. ágúst KVIKMYNDIN The Long Week- end hittir naglann einu sinni á höfuðið og það fyrir slysni; hún hófst um verslunarmannahelgina. Sá brandari finnst náttúrlega ekki í handritinu, sem ber þess engin merki að hafi orðið til fyrir inn- blástur líffæra ofanmittis, heldur útblástur neðan þess. „Fyndnin“ er öll í tengslum við líffærastarf- semina á milli rasskinnanna eða dingla undir söguhetjunni, vei- fiskata (Fehr), sem er að reyna að forðast brottrekstur úr vinnunni. Það blæs ekki byrlega, ofan á litla getu bætast endalausar tilraunir hálfvitans stóra bróður hans (Klein), að koma litla bró upp á kvenmann. Tilgangurinn með sýningum á subbulegri og mislukkaðri örmynd með einu, gleymdu smástirni og engum hæfileikum, liggur ekki ljós fyrir í myndarlok. The Long Weekend gæti e.t.v. hentað sem þáttur í mislukkuðu steggja- eða gæsapartíi, annars er það vafamál, mér leiddist eins og öðrum í saln- um og vorkenndi foreldrunum sem höfðu komið með börnin sín og stóðu í ströngu að grípa fyrir augu þeirra eða eyru, eða hvort tveggja. Þau hafa örugglega óskað sér að vera að berjast við rokið í Herjólfsdal frekar en vindganginn á tjaldinu. Glötuð helgi KVIKMYNDIR Sambíóin Leikstjóri: Pat Holden. Aðalleikarar: Chris Klein, Brendan Fehr, Chandra West, Craig Fairbrass, Paul Campbell. 90 mín. Kanada/Bandaríkin 2005. The Long Weekend –  Sæbjörn Valdimarsson Það fer mikið fyrir neðanbeltis- húmornum í The Long Weekend. EINA opinbera inniútihátíð versl- unarmannahelgarinnar, Innipúkinn, stóð frá föstudegi til sunnudags og komu um þrjátíu listamenn og hljómsveitir fram. Á hátíðinni hefur verið gott að taka stikkprufu á því hvað er að gerast í grasrótartónlist landsmanna, hún virkar eins og vasaútgáfa af Airwaves um leið og hún hefur ofan fyrir tónleikaþyrst- um Reykvíkingum sem eru innlyksa á þessari stærstu ferðahelgi ársins. Dr. Gunni hóf leik rétt yfir 18. Þar lék á bassa væntanlegur bæjarstjóri Bolungarvíkur og aðalskipuleggj- andi Innipúkans, Grímur Atlason. Vonandi hefur hann færi á að iðka rokkið meðfram stjórnunarstörfum, en leitun er að bassaleikara sem tek- ur sér jafn flotta stöðu með bassann á sviðinu. Dr. Gunni mætti ákveðin (ath. hljómsveitin heitir Dr. Gunni) til leiks, snilldarpopppönk á borð við „Snakk fyrir pakk“ og „Homo Sapi- ens“ var framreitt af ruddalegri röggsemi. Þegar komið var að „Helmút á mótorhjóli“ var sveitin komin á flug, ásamt líka þeim fáu sem á hlýddu. Við svo búið hætti sveitin, eftir um korters spila- mennsku. Dr. Gunni hefði líkast til rústað pleisinu fimm tímum síðar en ætli við höfum ekki verið um tuttugu stykki sem nutu leiks Dr. Gunna. Mæting var þannig dræm framan af og fyrstu fjórar sveitirnar léku svo gott sem fyrir tómum sal. Það var ekki fyrr en um kl. 21 að fólk fór að tínast inn að einhverju ráði. Eins var um laugardagskvöldið. Hin gríðarefnilega Benny Crespo’s Gang var næst á svið en nú hillir undir breiðskífu frá genginu. Ég verð nú að velja fyrsta lag sveit- arinnar lag hátíðarinnar, all svaka- leg smíð með þessum einkennandi takt- og kaflaskiptingum sem hefur markað sveitinni sérstöðu í íslenska neðanjarðarrokkinu. Sveitin er að vinna vel úr áhrifum frá amerísku rokki, At the Drive-In og Trumans Water t.d. en einnig var róið á önnur mið; eitt lagið hugljúfur bræðingur af Stinu Nordenstam og Blonde Redhead. Ekki láta þetta nafnatog flækjast fyrir ykkur, Benny Crespo’s Gang er einstök sveit, hef- ur lengi verið með fremstu ung- sveitum landsins og megi henni farn- ast sem allra best næstu misserin. The Foghorns er „ameríkana“- sveit, leidd af ritstjóra Grapevine, Bart Cameron. Sveitin komst vel frá skringilegu og fjörugu kántrírokki sínu. Ég var svo næst á svið og átti skemmtilegasta innslag kvöldsins. Þetta eru ekki eðlileg lög sem Ró- bert, söngvari og gítarleikari sveit- arinnar, semur, allt er einhvern veg- inn yndislega úr takti og textarnir sömuleiðis. Endað var á „My Gen- eration“ sem var að sjálfsögðu til- einkað Magna „okkar“. Jan Mayen var næst á svið og lék bæði gömul lög og ný, en önnur plata sveit- arinnar er bráðum væntanleg. Það vantar ekki spilagleðina hjá liðsmönnum en einhverra hluta vegna er tónlist sveitarinnar engan veginn að ná til mín. Jomi Massage er nokkurs konar sólóverkefni dönsku söngkonunnar Signe Høirup Wille-Jørgensen, sem syngur annars í Speaker Bite Me (sem lék á sunnudeginum). Signe lék á píanó og söng, studd gítarleikara og trymbli. Tónlistin var þokkalega súr; hvass og afstrakt gítarleikur á meðan trommarinn átti þrusu- spretti. Hávaði og þögn skiptust á en of oft keyrði tilgerðin gjörsamlega fram úr hófi. Þá var komið að Jakobínurínu, hinni umtöluðu og lofuðu sigursveit Músíktilrauna 2005. Jakobínarína á vissulega innistæðu fyrir öllu því hampi sem hún hefur notið, frumleg og stórskemmtileg sveit. Tækni- legur vandræðagangur hamlaði henni þó frá því að komast almenni- lega í gang og náði hún ekki að skila nema fjórum lögum af sér. Television, einn af hornsteinum pönkbókmenntanna, stríddi við svip- uð vandamál. Leiðtoginn, Tom Ver- laine, var sýnilega ósáttur við hljóm- inn í húsinu og sveitin var lengi í gang. Engu að síður var magnað að horfa á gítartvíeykið Verlaine og Lloyd galdra fram snilldina á sviði og undir restina voru hlutirnir farnir að rúlla, en síðasta lag fyrir upp- klapp var að sjálfsögðu „Marquee Moon“. Geðveikt lag og gæsahúðin mætti óðar á svæðið. Það var skynsamlegt að láta Jeff Who slíta kvöldinu. Það virðist mikil stemning í bandinu og smitaðist hún vel út í sal. Innipúkar dönsuðu því dátt fram á nátt við Franz/Bravery- skotið stuðrokkið. Inni-leg stemning TÓNLIST NASA Fyrsta kvöld Innipúkans, föstudags- kvöldið 4. ágúst. Innipúkinn Arnar Eggert Thoroddsen Morgunblaðið/Eggert Jakobínarína, frumleg og stórskemmtileg. Morgunblaðið/Eggert Tom Verlaine úr Television, hornsteini pönkbókmenntanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.