Morgunblaðið - 08.08.2006, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 49
FRÁ J.J. ABRAMS, HÖFUNDI LOST OG ALIAS
eeee
VJV, Topp5.is
S.U.S. XFM
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM"
HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA.
eee
V.J.V.Topp5.is
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
KVIKMYNDIR.IS
ÁRA.
ÁRA.
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
NÝJASTA MEISTARA-
VERKIÐ FRÁ PIXAR
SEM ALLIR ERU AÐ
TALA UM.
FRÁ FRAMLEIÐEN-
DUM „THE INCREDI-
BLES“ & „LEITIN AÐ
NEMO“
VINSÆLASTA MYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ.
STAFRÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI
eee
Kvikmyndir.is
NÚ ER KOMIÐ
AÐ HENNI AÐ SKORA
eeee
V.J.V, Topp5.is
FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 3:30 - 6 - 8:15 - 10:30 B.I. 12.ÁRA.
BÍLAR M/- ÍSL TAL. kl. 3:30 - 5:30
CARS M/- ENSKU TAL. kl. 3:30 - 6 - 8 - 10:30 DIGITAL SÝN.
MI : 3 kl. 10:30 B.I. 14.ÁRA. DIGITAL SÝN.
THE POSEIDON ADVENTURE kl. 8:30 B.I. 14.ÁRA.
FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:20 B.I. 12.ÁRA.
FAST AND THE FURIOUS 3 LÚXUS VIP kl. 4:15 - 8 - 10:20
BÍLAR M/- ÍSL TAL. kl. 3 - 5:30 - 8
CARS M/- ENSKU TAL. kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30
THE LAKE HOUSE kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20
SLITHER kl. 10:30 B.I. 16.ÁRA.
SHE´S THE MAN kl. 3 - 5:45 - 8
THE POSEIDON ADVENTURE kl. 10:30 B.I. 14.ÁRA.
Glæsilegur blaðauki um skóla og námskeið á Íslandi
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 18. ágúst.
Meðal efnis er háskólanám, endurmenntun, símenntun,
tómstundanámskeið, tölvunám, framhaldsskólanám,
tónlistarnám, skólavörur og margt fleira.
Auglýsendur! Pantið fyrir kl. 16:00
þriðjudaginn 15. ágúst.
Allar upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða kata@mbl.is
„Í skólanum í skólanum er
skemmtilegt að vera...“
ROKKSVEITIN Weapons hóf
annað kvöld Innipúkans um
hálfsjöleytið. Líkt og kvöldið áður
voru örfáir mættir og gekk Wea-
pons á lagið og spilaði ein tíu lög.
Það er merki um fagmennsku þeg-
ar menn láta fámenni ekki slá sig
af laginu og átti Weapons þannig
hörku sett. Lofandi sveit, bara
býsna þétt og tónlistin kraftmikið
tilfinningarokk.
Morðingjarnir ösluðu þvínæst
upp á pall og var engu minna stuð
þar í gangi. Hreinræktað þunga-
pönk af Discharge-skólanum en
söngröddin var af Proppé-
skólanum. Hið besta mál.
Hermigervill mætti þvínæst með
forláta hljómborðastand upp á svið
sem nýrómantíkerar frá níunda
áratugnum hefðu verið fullsæmdir
af. Ekki var riðið við einteyming í
raftónlistinni; hipp hopp, teknó,
hás og elektró í góðu samansulli
en verst var að enginn var til að
stíga dansinn.
Donna Mess fór á miklum kost-
um og átti fyrsta hápunkt kvölds-
ins. Ekki einasta að tónlistin hafi
verið bráðskemmtileg, elektró að
hætti Peaches og Le Tigre, heldur
var sviðsframkoman ansi mögnuð.
Leikar hófust á því að söngkona
sté á svið, í þröngum galla, rauð-
um að lit sem huldi allan líkamann
og andlitið líka. Söng hún texta
þar sem m.a.
mátti heyra hina frómu línu
„double dildo in my heart“. Brátt
læddist önnur söngkona inn á svið,
sú var í áþekkum galla, silfurlit-
uðum.
Framvindan varð nú enn furðu-
legri. Fjórar stúlkur voru allt í
einu mættar inn á svið, samhæfðar
mjög og hófu að dansa. Fyrr en
varði voru þær komnar á brjósta-
haldarana og leifturljós blikkaði á
milljón. Ein söngkvennanna var þá
mætt í kjól – og með yfirvar-
arskegg! Eiginlega algjör snilld
allt saman.
Solex hreif mig nú ekki jafn
mikið. Dúett, þar sem kona ein lék
á trommur og kona önnur á hljóm-
borð. Sú síðari er Elisabeth Essel-
ink, rekstraraðili Solex, en nokkr-
ar plötur liggja fyrir á hinu virta
Matadormerki. Skringilegt ný-
bylgjupopp, margt gott en margt
ekki og settið var auk þess allt,
allt of langt.
Eberg stóð sig hins vegar með
prýði, en nýverið kom út önnur
plata hans, Voff voff. Tónlist
Ebergs, sem er listamannsnafn
Einars Tönsberg, er skrýtin og
skemmtileg; stundum er stuð og
stundum melankólía en það er ein-
hver Ebergs-þráður sem heldur
öllu saman og gefur tónlistinni sér-
kenni.
Nýbylgjuhetjurnar Throwing
Muses, þar sem í forvígi er Kristin
Hersh, komu á óvart. Tvímæla-
laust eftirminnilegustu tónleikar
helgarinnar en Hersh ákvað að
taka áhorfendur með sér í ferð um
skuggasund sálarinnar þar sem
aldrei var gefið eftir, eitt andartak.
Bylmingsrokkið kom mér í opna
skjöldu; ég hafði átt von á meiri
blómanýbylgju en þess í stað var
þetta eins og að vera staddur á
tónleikum með Babes in Toyland
árið 1993. Byrjað var á „Hazing“
af University og svo var strax
rennt í „Shimmer“ af sömu plötu.
Það var ekkert talað á milli laga,
rifin en þó undurfalleg rödd Hersh
sagði allt sem segja þurfti.
Lára róaði mannskapinn niður
eftir lætin og komst vel frá sínu en
angurværar og dramatískar smíðar
hennar voru listavel framreiddar.
Hjálmar slógu svo botninn í
kvöldið og þvílíkur botn. Óhætt er
að segja að hér fari ein fremsta
tónleikasveit landsins og tónleikar
sveitarinnar eru farnir að hafa á
sér yfirbragð trúarsamkundna.
Hipsterar og streitarar samein-
ast um fagnaðarerindið og samspil
Hjálmanna er slíkt, að það er sem
einn maður sé á ferð. Óaðfinn-
anlegur endir á býsna góðu laug-
ardagskvöldi.
Af Hjálmum og músum
TÓNLIST
NASA
Annað kvöld Innipúkans, laugardags-
kvöldið 5. ágúst.
Innipúkinn
Arnar Eggert Thoroddsen
Morgunblaðið/Golli
Gestir Innipúkans skemmtu sér konunglega á hátíðinni, þótt inni væri.
Dómur Helgu Þóreyjar Jónsdóttur
um sunnudagskvöld Innipúkans
birtist í Morgunblaðinu á morgun.
Bandaríska barnastjarnan fyrr-verandi Macaulay Culkin, mun
leika í nýrri gamanmynd sem heita á
Sex and Breakfast og fjallar um par
sem á við svefn-
herbergisvanda-
mál að etja. Það
fer til sálfræð-
ings sem segir að
hópkynlíf sé
lausnin á öllum
vandamálunum.
„Ég les mikið
af handritum og
féll fyrir þessu,“ sagði Culkin við
Variety. „Það fjallar í raun um álag-
ið sem leiðir til þess að þau ákveða
að gera tilraunir, aðdragandann og
síðan afleiðingarnar.“
Culkin, sem verður 26 ára síðar í
ágúst, hefur ekki leikið í kvikmynd
frá árinu 2004 en þá var hann hand-
tekinn fyrir að vera með maríjúana í
fórum sínum.
Fólk folk@mbl.is
Ástralska kvikmyndastjarnaCate Blanchett mætti á Inni-
púkann á Nasa í fyrrakvöld en
Blanchett hefur verið í fríi hér á
landi. Mætti Blanchett snemma á
sunnudagskvöld-
inu og hlýddi á
Mr. Silla leika.
Eftir tónleika
hennar fór hún
til að fá sér að
borða og kom
svo aftur á Nasa
síðar um kvöldið.
Í dómi Helgu
Þóreyjar Jónsdóttur um sunnu-
dagskvöld Innipúkans sem birtist í
Morgunblaðinu í morgun, kemur
fram að Blanchett hafi verið sér-
lega ánægð með að hafa dembt
sér á tónleika á Íslandi.
Blanchett hefur leikið í fjölda
kvikmynda í Hollywood. Þá lék
hún álfadrottninguna Galadriel í
þríleiknum Hringadróttinssögu.
Söngvarinn Magni Ásgeirssonfékk konu sína og son í heim-
sókn til Los Angeles þar sem hann
dvelur nú vegna
sjónvarpsþátt-
anna Rock Star
Supernova. Að
vonum urðu fagn-
aðarfundir og er
sýnt frá því í
þættinum í nótt
þegar fjölskyldan
sameinast á ný.
Keppendur fengu
meðal annars það hlutverk fyrir
þáttinn að semja laglínu og texta við
nýtt lag Supernova en í enda þátt-
arins stíga keppendur svo á svið og
syngja fyrirfram valin lög eins og
venja er. Magni mun í kvöld syngja
lagið „When Dolphins Cry“ með
hljómsveitinni Live.