Morgunblaðið - 08.08.2006, Page 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
„ÉG vil auka umræðu um rann-
sóknir á mænusköddun innan Evr-
ópusambandsins og í kjölfarið að
aukið fjármagn
verði sett í
málaflokkinn og
eftir atvikum að
sambandið vinni
að löggjöf um
málið,“ segir
Miroslav
Ouzký, tékk-
neskur endur-
hæfingarlæknir
og fulltrúi
Tékka á Evrópuþinginu, sem
staddur er hér á landi til að kynna
sér starf í þágu mænuskaddaðra,
en undanfarið hefur verið starf-
ræktur á Íslandi gagnabanki um
mænusköddun sem styrktur er af
íslenskum heilbrigðisyfirvöldum og
Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni,
WHO.
„Ég tel gagnagrunninn sem er
starfræktur hér vera afar gott
framtak því að það sem skiptir
mestu máli í þessu öllu saman er að
auka umræðu um meðferðarúrræði
mænuskaddaðra,“ segir Miroslav.
Það er Auður Guðjónsdóttir
hjúkrunarfræðingur sem hefur
haft veg og vanda af undirbúningi
gagnagrunnsins, en hún hefur ver-
ið ötul í baráttu sinni fyrir auknum
rannsóknum vegna mænusköddun-
ar undanfarna áratugi. „Starf mitt
innan Evrópusambandsins verður
meðal annars að auka aðgengi fólks
að gagnagrunninum, kynna hann
og mögulega að greiða fyrir fjár-
stuðningi,“ segir Miroslav.
Auka þarf
umræðu
um mænu-
sköddun
Miroslav Ouzký
Mikilvægt | Miðopna
NÆTURHIMINNINN var víða um landið lýstur flugeldum á síðasta kvöldi verslunarmannahelg-
arinnar. Meðal þeirra staða sem buðu upp á flugeldasýningu voru Vestmannaeyjar, Neskaupstaður
og Akureyri þar sem myndin er tekin. Hátíðarhöld fóru víðast friðsamlega fram er tugþúsundir
gesta skemmtu sér á skipulögðum hátíðum um landið. | 6
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Bleik þau lýsa ágústhimin
UMFANGSMIKIL leit hófst í gær að 45
ára karlmanni, Jóhanni Konráð Sveins-
syni, í þjóðgarðinum í Skaftafelli. Hans
var saknað af tjaldstæðinu í Skaftafelli
þar sem hann var ásamt konu sinni en
hann fór frá tjaldinu um kl. 1.30 eftir mið-
nætti. Um 160 leitarmenn voru komnir á
leitarsvæðið í gærkvöldi með svæðisleit-
arhunda og sporhunda. Björgunarsveitir
frá Selfossi til Hafnar í Hornafirði sendu
leitarhópa á vettvang auk þess sem þyrla
Landhelgisgæslunnar var send til leitar
úr lofti.
Jóhann var ekki vel búinn til útivistar,
en var í gallabuxum, strigaskóm og í úlpu.
Veðrið á leitarsvæðinu var hins vegar
gott. Notast var við fjórhjól og sexhjól og
leitað frá Skaftafelli upp að Morsárjökli
og Freysnesi. Leita átti í nótt en þyrlan
var sett í hvíld þar til birti.
Umfangs-
mikil leit í
Skaftafelli
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Landsvirkjunar, höfðu mótmælendur komið sér
fyrir innan virkjanasvæðisins við Lindur. Fólkið
hafi ítrekað ruðst inn á vinnusvæðið og truflað
vinnuna. „Okkur fannst það engan veginn
ganga upp að fólkið haldi til í óleyfi innan þess
svæðis sem við höfum ráðstöfunarrétt yfir og
geri þaðan út innrásir á vinnusvæðið,“ segir
Sigurður. „Verktakarnir sjálfir sem urðu fyrir
beinu tjóni kærðu innrásirnar til lögreglunnar
og við fórum jafnframt fram á að þessar búðir
yrðu einfaldlega fjarlægðar.“
Fjórir höfðu fest sig við rör
Þegar lögreglan vísaði fólkinu burt með tjöld
sín voru 12 mótmælendur á svæðinu og höfðu
fjórir þeirra fest sig við rör þar á staðnum.
Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn á Egils-
stöðum, sagði að einn mótmælandinn hefði
LÖGREGLAN á Seyðisfirði handtók í fyrrinótt
14 manns fyrir að ganga inn á vinnusvæði við
Kárahnjúkavirkjun og valda truflun á starfsemi
verktaka Landsvirkjunar. Verktakarnir hafa
kært athæfið og verða málin rannsökuð hjá lög-
reglunni á Egilsstöðum, ásamt fyrri málum af
sama toga. Hinir handteknu voru færðir á lög-
reglustöðina á Egilsstöðum og sleppt að loknum
yfirheyrslum. Hluti hópsins hafði hlekkjað sig
við vinnuvélar á svæðinu. Lögreglustjórinn á
Seyðisfirði ákvað í gær að nýta sér heimildir í
lögreglulögum til að fyrirskipa brottflutning
mótmælenda af virkjunarsvæðinu eftir að
Landsvirkjun, sem umráðaaðili landsins, óskaði
þess. Tjaldbúðir mótmælenda voru því upp-
rættar en vísað er í greinargerð með lög-
reglulögum þar sem fjallað er um svonefnda
lögmætisreglu, þ.e. þá reglu að hið opinbera,
lögreglan sem aðrir, þurfi að hafa heimild í lög-
um til afskipta af borgurunum gegn vilja þeirra.
Að sögn Sigurðar Arnalds, upplýsingafulltrúa
haldið fast um tein innan í niðurgröfnu röri en
það hefði ekki komið í ljós fyrr en lokið hefði
verið við að grafa rörið upp enda gengið út frá
því að hönd viðkomandi væri föst í rörinu. Fólk-
inu var ekið niður á láglendið og fengu sumir að
geyma dótið sitt hjá lögreglunni um stund-
arsakir.
„Við vildum streitast á móti“
Keith MacKay, skoskur mótmælandi sem
staddur var í tjaldbúðunum þegar þeim var lok-
að, segir um 40 lögreglumenn hafa umkringt
búðirnar og skipað mótmælendum að yfirgefa
þær án nokkurrar viðvörunar. „Við vildum
streitast á móti og nokkur okkar hlekkjuðu sig
föst við stálrör. Lögreglan reyndi í fyrstu að
draga okkur burt þrátt fyrir að við værum föst
og það olli nokkrum óþægindum. Þegar við
höfðum verið losuð vorum við færð í handjárn
og okkur fleygt í jörðina. Þeir beittu ekki of-
beldi en gengu afar hart fram,“ segir Keith en
hann telur að lögreglan hafi ekki haft heimildir
til þess að vísa fólkinu úr búðunum.
Tjaldbúðir mótmælenda
upprættar og 14 handteknir
Segja lögreglu hafa
gengið hart fram
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson og Þóri Júlíusson
MAREL hefur keypt
danska fyrirtækið
Scanvaegt Inter-
national sem fram-
leiðir matvælavélar.
Kaupverðið nemur
109,2 milljónum evra, eða
tæplega 10 milljörðum íslenskra króna.
Hörður Arnarson, forstjóri Marel, segir að
orðspor Scanvaegt sé afar gott og vörur þess
framúrskarandi. „Hér sameina tveir öflugir að-
ilar krafta sína og búa til enn sterkara fyr-
irtæki með gríðarlega vaxtarmöguleika.“ Hann
segir að sameinuð fyrirtækin geti aukið vöru-
úrvalið, lækkað kostnað og aukið hagnað bæði
Marel og Scanvaegt þegar sameiningaráhrifin
komi fram að fullu.
Lárus Ásgeirsson, framkvæmdastjóri sölu-
og markaðssviðs Marel, mun leiða starfsemi
Scanvaegt, ásamt Erik Steffensen, núverandi
framkvæmdastjóra, og því stjórnunarteymi
sem þar er. Sigurpáll Jónsson, framkvæmda-
stjóri þjónustusviðs Marel, mun jafnframt bæt-
ast í hóp stjórnenda.
Lars Grundtvig, stjórnarformaður Scanva-
egt, og fjölskylda hans eignast með þessum við-
skiptum 18% hlut í Marel og verða þriðji stærsti
hluthafi fyrirtækisins. | 11
Marel kaupir
danskan
keppinaut
UMFERÐ um þjóðvegi landsins gekk vel í gær-
dag þrátt fyrir að hafa þyngst nokkuð eftir því
sem leið á daginn. Jöfn og þétt umferð var t.a.m. í
gegnum Hvalfjarðargöngin og engin teljandi
vandræði komu upp, samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Akranesi. Að sögn lögreglunnar í
Reykjavík gekk umferð til höfuðborgarinnar vel
fyrir sig.
Lögreglan á Sauðárkróki kvartaði þó vegna
hraðaksturs og hafði á orði að ökumenn á stórum
bílum með tjaldvagna hefðu sumir hverjir auk
þess að fara of hratt keyrt óvarlega, en með því
stofnað öðrum ökumönnum í hættu. Í Borgarnesi
nefndi lögregla einnig hraðakstur og því er ljóst
að ökumenn sóttu sumir hverjir hratt leiðina
heim. Engin alvarleg umferðaróhöpp komu þó
upp og voru helstu vegir orðnir vel greiðfærir
undir kvöld.
Nokkur hraði á
vegum en um-
ferð gekk vel
♦♦♦