Morgunblaðið - 14.09.2006, Page 1
STOFNAÐ 1913 249. TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
HRÁR KRAFTUR
SJOSTAKOVITSJ BLÆS HORNLEIKURUM
SINFÓNÍUNNAR GLEÐI Í BRJÓST >> 46
HELGARTILBOÐ
MEXÍKÓSK MATARGERÐ,
BLÓÐMÖR OG SÚPUKJÖT
NEYTENDUR >> 28
Opið til 21
Haust- og
vetrartískan ÍSLENDINGURINN Magni Ás-
geirsson er á heimleið eftir við-
burðaríkar fimmtán vikur í Banda-
ríkjunum, en í gær varð ljóst að
hann verður ekki næsti söngvari
rokksveitarinnar Supernova. Í
lokaþætti sjónvarpsþáttanna Rock
Star: Supernova kom í ljós að Kan-
adamaðurinn Lukas Rossi verður
söngvari sveitarinnar.
Magni sagðist í samtali við Morg-
unblaðið sáttur við úrslitin. „Ég
vildi að Lukas ynni þetta, hann átti
það svo sannarlega skilið,“ sagði
Magni sem hlakkar til að komast
aftur heim til Íslands. Hann sýtir
það ekki að verða ekki söngvari
Supernova. „Nei, ég átti aldrei von
á að ég næði svona langt. Satt að
segja var ég viss um að mér yrði
hent út eftir fyrstu tvær vikurnar,“
segir hann.
Þrátt fyrir að verða ekki söngv-
ari Supernova mun Magni fara í sex
vikna tónleikaferðalag með hljóm-
sveitinni í janúar. Hlakkar hann til
þess að endurnýja kynnin við félaga
sína úr sjónvarpsþáttunum Rock
Star: Supernova. Magni játar því að
hann hafi fengið nokkur tilboð
vegna frammistöðu sinnar í þátt-
unum en vill sem minnst um það
segja á þessari stundu.
En hvað tekur við þegar heim er
komið? „Mitt fyrsta verk verður að
slökkva á símanum, hvílast og leika
við son minn Marinó í nokkrar vik-
ur. Á Íslandi er fjölskyldan og þar
er hjartað,“ sagði Magni. | 22
Ljósmynd/Matthías A. Ingimarsson
„Á Íslandi er fjölskyldan
og þar er hjartað“
Brugðu á leik Magni Ásgeirsson ásamt nýjum söngvara Supernova, Lukas Rossi, þegar niðurstaðan lá fyrir í gær.
SVARTKLÆDDUR maður með riffil
hóf skyndilega skothríð í matsal Daw-
son College í miðborg Montreal í gær
og skaut unga konu til bana auk þess
sem hann særði minnst 19 manns, þar
af fimm lífshættulega áður en lög-
reglan skaut hann til bana. Árásin var
gerð klukkan eitt að staðartíma, eða
17 að ísl. tíma.
Nemendur, kennarar og annað
starfsfólk framhaldsskólans, þar sem
nemendur eru flestir rétt innan við tví-
tugt, flúðu í ofboði út úr húsinu og
hundruð lögreglumanna og sjúkra-
flutningamanna dreif þegar að. Fyrstu
fréttir af málinu voru óljósar, jafnvel
talið að árásarmennirnir hefðu verið
tveir eða þrír.
Davansh Smri Vastava, nemandi við
skólann, sagðist hafa séð mann í her-
mannabúningi með stóran riffil ráðast
inn í matsalinn. Aðrir sjónarvottar
sögðu manninn hafa klæðst svörtum
frakka, einn sagði hann hafa falið sig
bak við sjálfsala. Hann var sagður
hafa verið á þrítugsaldri og ekki mælt
orð af vörum áður en hann hóf árásina.
„Hann fór bara að skjóta á fólk,“
sagði Vastava sem sagðist hafa heyrt
um 20 skot. „Við hlupum öll upp á efri
hæðina. Þar voru lögreglumenn að
skjóta. Þetta var allt svo hrikalegt. Ég
var dauðhræddur, hann skaut á fólk af
handahófi, honum var alveg sama
hvern hann hitti. Ég kom mér bara
út.“
Árásarmaðurinn féll rétt eftir að
fyrstu lögreglumennirnir komu á vett-
vang, að sögn yfirmanns lögreglunnar,
Yvan DeLorme. Ekki væri ljóst hvort
þeir hefðu skotið manninn eða hann
fyrirfarið sér, hið fyrra væri þó lík-
legra, var haft eftir DeLorme í skeyti
AP-fréttastofunnar. Sérsveitarmenn
könnuðu skólann og lóðina vandlega til
að ganga úr skugga um það hvort
maðurinn hefði verið einn að verki.
Var loks skýrt frá því í gærkvöldi að
svo hefði verið og hættan því liðin hjá.
Reuters
Skelfing Fólk á leið út úr Dawson-skólanum í Montreal eftir skothríðina.
Gekk berserksgang í skóla
Karlmaður í Montreal skaut konu og særði 19 áður en hann var felldur
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Taugaspenna | 4
TALIÐ er að um 90 þúsund manns
muni fara í hvalaskoðunarferðir um
land allt í ár, og stefnir því allt í metár
hjá hvalaskoðunarfyrirtækjunum.
Þrátt fyrir þennan góða árangur segir
forsvarsmaður eins þeirra að hvalveið-
ar séu þegar farnar að skemma fyrir
hvalaskoðun.
„Það er enginn vafi á því,“ segir
Hörður Sigurbjarnarson, fram-
kvæmdastjóri Norður-siglingar á
Húsavík. Hann segir erfiðara að nálg-
ast hvalinn eftir að veiðar hófust.
„Hvalurinn er orðinn styggari og hugs-
anlega er búið að drepa eitthvað af
þessum gæfu dýrum.“
Þrátt fyrir þetta fer andstæðingum
hvalveiða fækkandi og í nýrri skoðana-
könnun sem gerð var af Capacent Gall-
up fyrir samtök í sjávarútvegi kom í
ljós að 73,1% aðspurðra er fylgjandi
hvalveiðum. 11,5% eru andstæð hval-
veiðunum og 15,4% segjast hvorki
fylgjandi né andstæð veiðunum.
Halldór Blöndal þingmaður er ekki í
vafa um að hvalveiðar og hvalaskoðun
geti farið saman, sér í lagi ef þau svæði
sem hvalir eru einkum skoðaðir á verði
friðuð. „Það er nógur hvalur í sjónum.
Það ætti ekki að spilla hvort fyrir
öðru,“ segir Halldór.
Stefnir í metár
í hvalaskoðun
Í HNOTSKURN
»Alls sögðust um 77% að-spurðra hafa borðað hval-
kjöt í nýrri könnun um hval-
veiðar, þar af 11,7% í síðasta
mánuði.
»26,6% þeirra sem svöruðukönnuninni sögðust hafa
farið í hvalaskoðun.
Miðopna
MARGRÉT Ásgeirsdóttir, sem býr í
Montreal, var á leið í bíl fram hjá
skólanum en hún
á þar vinkonu.
„Ég þekki
þessa stelpu vel
og tók strax upp
farsímann og
hringdi í hana til
að vita hvað væri
á seyði og hvort
allt væri í lagi
hjá henni,“ sagði
Margrét. „Ég
skildi eftir skila-
boð og hún hringdi í mig stuttu
seinna og sagði að það væri þarna
maður eða menn að skjóta í kaffi-
teríunni.“
Sumir nemendur væru enn í fel-
um í skólahúsinu, sagði Margrét,
þyrðu ekki að hreyfa sig. Skelfing
hefði gripið um sig, foreldrar sem
ættu börn í leikskóla Dawson-
skólans hefðu óttast mjög um þau.
Mikil skelfing
greip um sig
Margrét
Ásgeirsdóttir