Morgunblaðið - 14.09.2006, Síða 14

Morgunblaðið - 14.09.2006, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is SAMFYLKINGIN vill að gerð verði rammaáætlun um náttúruvernd sem taki til allra náttúrusvæða landsins og að frekari ákvörðunum um stóriðju- framkvæmdir verði frestað þangað til fyrir liggur nauðsynleg heildarsýn yf- ir verðmæt náttúrusvæði Íslands og verndun þeirra hefur verið tryggð. Þetta kemur meðal annars fram í nýrri stefnumörkun og tillögum Sam- fylkingarinnar í umhverfis- og nátt- úruverndarmálum undir heitinu Fagra Ísland, sem kynnt var á blaða- mannafundi í gær. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar- innar, sagði að þessar tillögur og stefnumörkun í umhverfis- og nátt- úruverndarmálum eigi sér talsvert langan aðdraganda. Unnið hafi verið að henni í helstu stofnunum flokksins undanfarin tvö til þrjú ár. „Ég legg á það ríka áherslu að þessar tillögur sem við erum að kynna hér eru tillögur um náttúru- og umhverfisvernd. Þetta eru tillögur um að líta á náttúruvernd og um- hverfisvernd á forsendum náttúru- gæðanna, en ekki á forsendum virkj- ana og stóriðju, sem hefur verið alltof ríkur þáttur í stefnumótun stjórn- valda þegar kemur að þessum mála- flokki,“ sagði Ingibjörg. Stóriðjan hefur haft forgang Hún sagði að stóriðjan hefði notið svo mikils forgangs á Íslandi á und- anförnum áratug að nú væri komið að því að stokka spilin upp á nýtt og gefa náttúrunni forgang. „Það er kannski meginatriðið í þessum tillögum okk- ar,“ sagði hún og einnig að Samfylk- ingin vildi með þessari stefnumótun gera náttúruverndina og umhverfis- málin að meginstraumi í stjórnmál- um, ef svo mætti segja. Fram kemur að Samfylkingin vilji styrkja stöðu náttúru- og umhverfis- verndar og leggi til markvissar að- gerðir sem byggist á forsendum sjálf- bærrar þróunar og skýrri framtíðarsýn. „Jafnaðarmenn telja að náttúra Íslands sé sameign þjóðar- innar sem hverri kynslóð hafi verið fengin til skynsamlegrar nýtingar. Okkur sem nú lifum er skylt að af- henda næstu kynslóðum náttúru landsins jafnverðmæta og við fengum hana í hendur. Jafnframt berum við Íslendingar ábyrgð á sérstökum nátt- úruverðmætum landsins gagnvart öllu mannkyni,“ segir einnig. Samkvæmt tillögunum á ramma- áætlunin að ná til allra náttúrusvæða landsins og eiga þar að koma fram til- lögur um skipan verndarsvæða og hvernig verndun þeirra sé háttað. Þá verði tryggðar fjárveitingar til helstu grunnrannsókna á náttúrufari lands- ins á næstu misserum þannig að áætl- unin geti legið fyrir á komandi kjör- tímabili. Samfylkingin vill einnig að heimild til að veita rannsóknar- og nýtingar- leyfi vegna virkjanaáforma verði færð úr höndum iðnaðarráðherra til Al- þingis meðan á gerð rammaáætlunar- innar stendur og einnig að ákvörðun um nýtingu losunarheimilda sam- kvæmt Kyoto-bókuninni verði færð til Alþingis. Þá vill Samfylkingin að verndun ákveðinna svæða verði tryggð nú þegar. Þannig verði Vatnajökulsþjóð- garður stækkaður og feli í sér Langasjó og allt vatnasvið Jökulsár á Fjöllum og að friðlandið í Þjórsárver- um verði einnig stækkað í samræmi við tillögur umhverfisstofnunar og í samráði við heimamenn. Samfylkingin vill einnig þróa að- ferðir til að úthluta takmörkuðum mengunarkvótum til stóriðju og kanna kosti þess að taka upp markað með losunarheimildir fyrirtækja. Efla á rannsóknir íslenskra aðila á vetni, metangasi og öðrum minna mengandi orkugjöfum í samgöngum og efla fræðslu til almennings um loftslagsmál og þátttöku Íslands í al- þjóðlegu samstarfi til að afstýra hættulegum loftslagsbreytingum og kynna um leið íslenska tækni til að nýta hreina orku. Samfylking vill einnig auka áhrif almennings og réttarstöðu í umfjöllun um umhverfismál, meðal annars með því að staðfesta Árósasamninginn frá 1998, þannig að almenningur og fé- lagasamtök teljist hafa lögvarða hagsmuni á sviði umhverfisréttar. Einnig að félagasamtök á þessu sviði fái fjárframlög til þess að afla sér- fræðiaðstoðar vegna umsagna í skipulags- og umhverfismálum. Ingibjörg Sólrún sagði spurð um hve langan frest á stóriðjufram- kvæmdum gæti verið að ræða að OECD og fleiri aðilar segðu að staldra ætti við nú til þess að ná jafn- vægi í efnahagsmálum. „Núverandi iðnaðarráðherra segir að það muni taka fimm ár að ná jafnvægi í efna- hagsmálum. Ég held að það sé alveg hægt að vinna svona rammaáætlun innan þeirra tímamarka, að minnsta kosti í stórum dráttum.“ Hún sagði einnig að sér fyndist menn stundum vera að fara fram úr sér í umræðu um stóriðju, sérstak- lega í Helguvík og Straumsvík. Þar sé talað eins og allt sé í höfn, en það sé alls ekki raunin. Það sé enn eftir að rannsaka ýmis svæði og m.a.s. vanti rannsóknarheimildir fyrir ýmsum svæðum, eins og í Krýsuvík, til þess að hægt sé að afla þeirrar orku sem þurfi fyrir þessi tvö álver. „Mér finnst eins og menn séu farnir að hoppa yfir ána úti á miðju túni. Þeir eru ekkert komnir að henni,“ sagði Ingibjörg Sólrún einnig. Tími til kominn að náttúran fái forgang á stóriðjuna Morgunblaðið/Sverrir Náttúruvernd Frá blaðamannafundi Samfylkingarinnar í gær. Talin frá hægri Þórunn Sveinbjarnardóttir, Mörð- ur Árnason, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kristján Möller og Dofri Hermannsson. Samfylkingin kynnti stefnu sína í umhverfis- og náttúruverndarmálum í gær undir heitinu Fagra Ísland þar sem lögð er áhersla á aðgerðir sem byggjast á forsendum sjálfbærrar þróunar. Í HNOTSKURN »Samfylkingin vill tryggjafriðun Skjálfandafljóts, Jökulánna í Skagafirði, Torfa- jökulssvæðisins, Kerling- arfjalla, Brennisteinsfjalla og Grændals. »Beita á hagrænum hvötumtil að minnka notkun mengandi eldsneytis í sam- göngum og hvetja til orku- sparnaðar í sjávarútvegi. »Efla á rannsóknir á djúp-borun til að mæta megi aukinni orkuþörf án þess að ganga á verðmæta náttúru landsins. LJÓSMYNDARAFÉLAGIÐ hefur lagt inn kæru á hendur ríkinu vegna ljósmyndatöku á vegum sýslumanns vegna vegabréfa. Hægt er að fá mynd í vegabréf sitt frítt hjá sýslumanni en at- vinnuljósmyndar- ar rukka fyrir það um 2.500 krónur. Gunnar Leifur Jónasson, for- maður LFÍ, segir að málið verði rekið á tveimur forsendum. Annars vegar á forsend- um laga um iðnréttindi þar sem þeir einir mega vera með starfsemi tengda ljósmyndun sem hafa tilskilin réttindi en hins vegar vegna þess að ríkið brýtur með ljósmyndatökunni samkeppnislög. „Ríkið er í sam- keppni við einkageirann og þeir eru að bjóða upp á þjónustu sem kostar ekki neitt hjá þeim en um 2.500 krón- ur hjá okkur. Þetta eru nokkrar ljós- myndastofur sem eru að verða af við- skiptum upp á kannski 50 milljónir á ári,“ segir Gunnar sem veit af stofum sem eru að hætta vegna þessa og „einsýnt er að mörgum stöðum úti á landi mun verða lokað.“ Gunnar segir málið verða fordæm- isgefandi fyrir aðrar iðngreinar. „Við viljum fá þá til að gera ein- hverja breytingu á þessu, þannig að verðið á vegabréfinu verði lækkað ef viðkomandi kemur með eigin mynd. Þannig verður í raun og veru val um hvort farið sé til atvinnuljósmynd- ara, þó svo að það gæti kostað aðeins meira – þar eru meiri gæði. En í dag, þegar ekkert kostar að fá mynd hjá sýslumanni, koma fáir á ljósmynda- stofur til að fá myndir í vegabréf.“ Telja lögin vera brotin Gunnar Leifur Jónasson Ljósmyndarafélag Íslands kærir ríkið ♦♦♦ ATLANTSOLÍA, Esso, Olís og Shell lækkuðu í gær verð á bensíni um eina krónu. Atlantsolía lækkaði verð á bensínlítra í 121,6 krónur í gærmorgun og svo í 121 í lok dags. Hjá Esso og Shell er algengasta verð á 95 oktana bensíni eftir lækk- unina 123,1 króna og hjá Olís kost- ar 95 oktana bensín á bilinu 122,6 til 123,1 í sjálfsafgreiðslu á höf- uðborgarsvæðinu. Verð á bensíni lækkar um eina krónu Eftir Berg Ebba Benediktsson bergur@mbl.is EINS og vegfarendur um hafnar- svæðið í miðbæ Reykjavíkur hafa tekið eftir er nú verið að rífa Faxa- skála við Geirsgötu, en í lok síðasta mánaðar var öll starfsemi flutt úr húsinu. Byggingarefni hússins verð- ur að miklu leyti endurnýtt og verður steypan notuð í landfyllingu í höfn- inni. Niðurrifið er hluti af víðtækri uppbyggingu við þetta svæði hafn- arinnar þar sem meðal annars verð- ur byggt stórt ráðstefnu- og tónlist- arhús. Fiskmarkaðurinn, sem áður var í Faxaskála, hefur nú verið flutt- ur í nýtt húsnæði vestur á Granda. „Hér fer fram mikið niðurrif. Við hliðina á Faxaskálanum stóðu rauðar skemmur í eigu siglingafélagsins Brokeyjar sem við rifum niður núna í vor,“ segir Snorri Vignir Vignisson, yfirmaður véladeildar SR-verktaka, sem sér um að rífa húsið í umboði Ís- lenskra aðalverktaka sem eru að- alverktaki uppbyggingarinnar á hafnarsvæðinu. Þegar blaðamaður nær sambandi við Snorra er hann staddur á þaki hússins í 20 tonna vinnuvél og segir hann það staðfestingu á traustri byggingu hússins. „Venjulega myndi þakið brotna undan þessu en þetta er allt rammgert og undir mér er 30 cm steypuplata og á hæðinni fyrir neðan er 40 cm þykk plata,“ segir Snorri og tekur fram að niðurrifsstarfsemi geti verið skemmtileg. „Það er ekki leið- inlegt að skemma eitthvað og fá borgað fyrir það,“ segir hann hlæj- andi. Átta tonna risaklippur Að sögn Snorra fer niðurrifið þannig fram að fyrst voru fimmtán manns í hartnær þrjár vikur að hreinsa allt innan úr húsinu. Nú starfa svo um fimm menn á samtals þremur þungavinnuvélum við að klippa steypuna og járnið niður. Meðal véla sem notaðar eru við verk- ið er 85 tonna Volvo-beltatæki sem hægt er að setja átta tonna þungar klippur á sem eru samtals þrír metr- ar á beidd og sjö metrar á hæð. „Það er eins og það sé skriðdreki framan á þessu,“ segir Snorri. Við niðurrifið er mikið af efni sett í endurnýtingu. Járnið er klippt niður og notað aftur, steypan fer í uppfyllingu á hafn- arsvæðinu og hana þarf því ekki flytja um langan veg, timbrið er not- að til brennslu og öll steinull í húsinu er notuð til einangrunar í öðrum hús- um. „Hver einasti kúbiksentimetri í húsinu fer í endurvinnslu og endur- nýtingu,“ segir Snorri. Lýkur innan nokkurra vikna Spurður um reynslu sína af sam- bærilegum verkefnum er af nógu að taka hjá Snorra. Hann segir fyr- irtækið meðal annars hafa rifið gamla hraðfrystihúsið við Mýr- argötu, ÁTVR-húsið við Lindargötu og margt fleira. Sjálfur hefur Snorri fylgst með niðurrifum húsa í Þýska- landi og segir hann reynsluna sífellt gera sig betri í starfinu. Framundan er svo niðurrif Hampiðjuhússins við Brautarholt. Af niðurrifi Faxaskála segir Snorri hins vegar að ráðgert sé að ljúka verkinu innan þriggja vikna og ef allt fari vel taki það ekki meira en tíu daga. Þá mun fyrirtækið rífa hluta brúar milli skálans og Esso- stöðvarinnar en tímasetning á því er enn ekki ákveðin. Steypan úr húsinu notuð í landfyllingu Niðurrif „Það er ekki leiðinlegt að skemma eitthvað og fá borgað fyrir það,“ sagði Snorri Vignir Vignisson, yfirmaður véladeildar SR-verktaka.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.