Morgunblaðið - 14.09.2006, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
HÁSKÓLINN á
Akureyri og
Fasteignamat
ríkisins hafa
samið um skipu-
lagningu nám-
skeiða fyrir not-
endur nýs
álagningakerfis.
Á síðastliðnum
vetri samþykkti Alþingi breytingu á
lögum um tekjustofna sveitarfélaga
þess efnis að frá 1. janúar 2007 fari
álagning fasteignaskatta og fast-
eignagjalda fram í Landskrá fast-
eigna, en það er samhæft gagna- og
upplýsingakerfi um allar fasteignir í
landinu.
Fasteignamat ríkisins rekur
skrána og hefur hlotið vottun frá
Bresku staðlastofnuninni, BSI, og
Háskólinn á Akureyri hefur nú
tekið að sér að skipuleggja nám-
skeið fyrir verðandi notendur
álagningarkerfisins en áætlað er að
þeir verði 150–200. Námskeiðin
verða á nokkrum stöðum um landið
í tengslum við símenntunarmið-
stöðvar. Háskólinn skipuleggur
námskeiðahaldið, þjónustar þátttak-
endur og mótar kennslufræði náms-
ins en starfsmenn Fasteignamats
ríkisins munu leiðbeina á námskeið-
unum.
Að námskeiðunum loknum munu
sömu starfsmenn síðan starfa við
þjónustu við sveitarfélögin vegna
álagningarinnar en það þjónustu-
borð verður á skrifstofu Fasteigna-
mats ríkisins á Akureyri.
Kenna á
álagning-
arkerfið
Námskeið fyrir 150–200
manns víða um land
NORÐLENSKA
hætti á mánu-
daginn að inn-
heimta gjald fyr-
ir flutning á
nautgripum frá
bændum í slátu-
irhúsi. Naut-
gripum er slátr-
að tvisvar í viku
hjá fyrirtækinu og hefur flutnings-
gjald verið kr. 2.600 kr. fyrir hvern
grip. Sigmundur E. Ófeigsson,
framkvæmdastjóri, segir að fyr-
irtækið hafi talið rétt að stíga þetta
skref og hvetur bændur til þess að
koma með nautgripi til slátrunar.
„Framboð á nautakjöti á síðustu
mánuðum hefur ekki verið nægi-
lega mikið til þess að mæta eft-
irspurn. Þess vegna er brýnt að
auka slátrun nautgripa til þess að
unnt sé að mæta óskum markaðar-
ins,“ segir Sigmundur á heimasíðu
Norðlenska.
Flytja nautgripi
frítt til slátrunar
AKUREYRARBÆR gerði í vor
rammasamning við Vaxtarrækt-
ina um að fyrirtækinu væri veitt-
ur byggingarréttur fyrir heilsu-
ræktarmiðstöð, á svæðinu milli
Íþróttahallarinnar og Sundlaugar
Akureyrar, en bæjarstjórn ákvað
í fyrradag að fresta afgreiðslu
málsins „til þess að skoða megi
betur áhrif þessarar fram-
kvæmdar á rekstur fjölskyldu-
garðs á þessu svæði,“ eins og
sagði í tillögu Hermanns Jóns
Tómassonar, oddvita Samfylking-
arinnar og formanns bæjarráðs.
Tillagan var samþykkt með 11
samhljóða atkvæðum.
Heilsuræktarmið-
stöð í biðstöðu
HUGRÚN Helga Guðmundsdóttir
og Arinbjörn Þórarinsson kynntust
á veitingastaðnum Greifanum þegar
þau störfuðu þar bæði, hafa nú búið
saman í nokkur ár og stóðust ekki
mátið þegar þeim bauðst að kaupa
gamla vinnustaðinn. Þau taka við
rekstrinum 1. október næstkomandi.
Arinbjörn, sem er 32 ára, vann í
eldhúsinu á Greifanum í sjö ár með
skóla, frá 1993 til 2000, en Hugrún
Helga, sem er 29 ára, hóf störf á
staðnum 1995 og lærði þar til fram-
leiðslumanns. Þau eru bæði fædd og
uppalin á Akureyri. „Við höfum búið
síðustu sex ár í höfuðborginni en
ákváðum að flytja aftur heim í sum-
ar,“ segir Arinbjörn í samtali við
Morgunblaðið. Hann hafði raunar
ráðið sig í aðra vinnu, „en það að
eignast eigin rekstur var bara of
spennandi til þess að grípa ekki
tækifærið“. Hann starfaði síðustu ár
við framleiðslustjórnun hjá Kjöt-
bankanum í Hafnarfirði og Kötlu en
Hugrún Helga var framleiðslumaður
á Grand hóteli.
„Aðdragandinn að þessu var mjög
stuttur. Tækifærið kom upp í hend-
urnar á okkur og við ákváðum að slá
til,“ segir hann og bætir við að það sé
ekki á færi venjulegs fólks úti í bæ að
kaupa slíkan rekstur einsamalt og
því séu þau í samstarfi við rekstr-
arfélag American Style í Reykjavík,
sem verði hluthafi í fyrirtækinu.
Greifinn eignarhaldsfélag, sem
selur nú veitingastaðinn, á Keahótel
ehf. sem rekur sex hótel; á Akureyri,
í Reykjavík og Mývatnssveit, og ætla
eigendur félagsins að einbeita sér að
hótelrekstrinum. „Við viljum að við-
skiptavinirnir verði sem minnst varir
við það að eigendaskipti eigi sér stað.
Við leggjum áherslu á að Greifinn
haldi áfram því sem þar er best gert;
að bjóða góðan mat og góða þjón-
ustu. Staðurinn er orðinn 16 ára, það
má segja að við tökum við honum eft-
ir táningsárin og hann hefur örugg-
lega róast á þeim tíma og eitthvað
farinn að þroskast!“ segir Arinbjörn.
Hann ítrekar að tækifærið hafi
verið of gott til þess að sleppa því.
„Við kynntumst þarna, búum saman
og eigum tvö börn. Það má því segja
að rætur okkar séu á Greifanum.
Hann er örlagastaður okkar.“
Kynntust í vinnunni á Greifanum og hafa nú keypt staðinn
Of spennandi til að
grípa ekki tækifærið
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Örlagastaður Hugrún Helga og Arinbjörn kynntust þegar þau unnu á
Greifanum og stóðust ekki mátið þegar þeim bauðst að eignast staðinn.
» Hugrún Helga verður veit-ingastjóri Greifans en Ar-
inbjörn framkvæmdastjóri.
» Greifinn hóf núverandistarfsemi 1990 í Gler-
árgötu 20. Fyrirtækið leigði
þá helming húsnæðisins sem
það á nú.
» „Fyrirtækið hafi alla tíðstutt dyggilega við íþrótta-
og menningarstarf í bænum
og það verður síst minna eftir
eigendaskiptin,“ segir Ar-
inbjörn.
Í HNOTSKURN
AKUREYRI
Hafnarfjörður |
Á fundi bæj-
arráðs Hafna-
fjarðar fyrir
skömmu voru
lögð fram að
nýju drög að
nýrri lögreglu-
samþykkt Hafn-
arfjarðar. Bæj-
arráð samþykkti að vísa
drögunum til umsagnar hjá sýslu-
manninum í Hafnarfirði, heil-
brigðiseftirlitinu, fjölskylduráði
og skipulags- og byggingarráði.
Jafnframt að drögin væru að-
gengileg á heimasíðu bæjarins og
almenningi gefinn kostur á að
koma athugasemdum og ábend-
ingum á framfæri. Fresturinn er
til 15. okt.
Drög að nýrri lög-
reglusamþykkt
Árbær | Hreinsunardagur í Árbæj-
arhverfi verður laugardaginn 16.
september. Reykjavíkurborg skor-
ar á íbúa og starfsmenn borg-
arinnar að leggjast á eitt um að
snyrta umhverfið, tína rusl, leggja
túnþökur, laga leiksvæði, kant-
skera, sópa og lagfæra girðingar
svo dæmi séu tekin.
Átakið hefst kl. 11 á laugardag.
Safnast verður saman á þremur
stöðum þar sem verkefnum verður
útdeilt: við Ártúnsskóla, Árbæj-
artorg við Árbæjarkirkju og við
Selásskóla.
Kl. 14.00 verður Árbæingum boð-
ið að koma saman og fagna vel
heppnuðum degi við Fylkisvöll.
Boðið verður upp á veitingar og
skemmtiatriði.
Í sumar var efnt til hreins-
unardags í Breiðholti og þótti hann
takast ágætlega.
Hreinsunardagur
í Árbæjarhverfi
miðborginni. „Þá vantar orðið bæði
leiðsögumenn og langferðabíla,“ seg-
ir Ágúst.
Spurður um hversu margt ferða-
fólk hafi komið til Reykjavíkur með
skemmtiferðaskipum í ár segir Ágúst
að fjöldinn sé svipaður eða meiri en í
fyrra, en þá var hann um 54.500
manns.
Hann segir að síðustu árin hafi
verið mælt hversu miklu fé ferðafólk-
ið eyði meðan það dvelst í landi.
„Þetta eru í kringum sex þúsund
krónur sem hver ferðamaður eyðir í
að kaupa sér kaffi, póstkort, frí-
merki, bækur og minjagripi. Síðan
kaupir fólk líka túra, það fer að Gull-
fossi og Geysi, upp á Langjökul, í
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
Reykjavík | Siglingar skemmtiferða-
skipa til Íslands eru að renna sitt
skeið á enda í ár, en síðasta skip sum-
arsins kemur til hafnar í Reykjavík
30. september næstkomandi, að sögn
Ágústs Ágústssonar, markaðsstjóra
Faxaflóahafna. Hann segir að næst-
síðasta skipið í ár hafi komið hingað
fyrr í þessari viku, en alls hafa um 75
skip komið til Reykjavíkur í sumar
og lagðist hið fyrsta að bryggju 24.
maí. Ágúst segir að sú þróun virðist
vera að eiga sér stað að „skipavertíð-
in“ nái yfir lengra tímabil en fyrr.
„Þau verða jafnvel að koma fram í
október á næsta ári,“ segir Ágúst, en
þegar hafa um 70 skip boðað komu
sína til Íslands sumarið 2007.
Góð aðstaða á Skarfabakka
Ágúst segir að í sumar hafi oft tvö
til þrjú skip komið til hafnar í
Reykjavík á einum degi, en ný að-
staða fyrir skipin var opnuð að
Skarfabakka í júníbyrjun. „Þar er
gríðarlega fín aðstaða, bæði fyrir
skipin sjálf og þá sem taka á móti
þeim, svo sem ferðaskrifstofur sem
sjá um að koma farþegum í ferðir. Þá
er mjög gott pláss þarna fyrir rútur
og leigubíla,“ segir Ágúst. Hann seg-
ir höfnina anna því vel að taka á móti
tveimur til þremur skipum á dag, en
ef um stór skip sé að ræða kunni á
fimmta þúsund ferðalangar að
streyma inn í borgina á sama tíma, en
þeir séu viðbót við aðra ferðamenn í
Bláa lónið eða annað,“ segir hann.
Það sé að aukast að skipin haldi til yf-
ir nótt í Reykjavík. Kannanir sýni að
þeir sem hingað koma séu mjög
ánægðir með dvölina.
Ágúst segist telja að útlit sé fyrir
gott sumar hjá höfnunum á næsta
ári. Líklegt sé að fleiri skip eigi eftir
að bóka komu sína hingað en þau 70
sem þegar hafa gert það.
„Þetta lítur vel út en við erum að
vinna í því að fá fleiri. Við erum að
markaðssetja okkur og reyna að
segja frá því hvað hægt sé að gera
hérna,“ segir Ágúst. Það sé í raun lít-
ill hópur sem taki ákvarðanir um
hvert skip sigla, skipafélögin séu það
fá. „Við reynum að þekkja þetta fólk
eins vel og við getum og jafnvel bjóð-
um því hingað í heimsókn. Síðan för-
um við á eina eða tvær sýningar á
hverju ári þar sem við kynnum okk-
ur,“ segir hann. Þá séu sendir út
bæklingar til kynningar á Íslandi,
auk þess sem ferðaskrifstofur vinni í
þessum málum.
Engin takmörk séu á því hvað
höfnin í Reykjavík geti tekið á móti
mörgum skipum á sumri, en fyrr
þrengi að í höfnum á landsbyggðinni.
Skipin komi til Keflavíkur, Hafnar-
fjarðar, Ísafjarðar, Grundarfjarðar,
Akureyrar, Húsavíkur, Seyðisfjarðar
og Vestmannaeyja. Ánægjulegt sé
hversu margra staða á landinu skipin
komi til.
Tvö til þrjú skemmtiferðaskip
að bryggju á dag í sumar
Þegar hafa um 70 skip boðað komu sína til Reykjavíkur á næsta ári
Morgunblaðið/Kristinn
75 skip á einu sumri Skemmtiferðaskipin Maasdam og Aida Blu við Korngarð í Sundahöfn í júlí síðastliðnum.