Morgunblaðið - 14.09.2006, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SKOSKI listamaðurinn Iain
Sharpe opnar málverkasýn-
ingu í Anima galleríi á morgun,
föstudag.
Iain Sharpe er Breti og býr
og starfar í London.
Hann segist í verkum sínum
kanna formgerðir og kerfi sem
tengjast útbreiðslu úthverfa og
leitist við að endurspegla færi-
bandasiðfræðina sem fasteignaverktakar hafi til-
einkað sér.
Þetta er fyrsta sýning Sharpe hér á landi en
sýningin stendur fram til 7. október.
Anima gallerí er opið þriðjudaga til laugardaga,
milli klukkan 13 og 17.
Sýning
Kannar útbreiðslu
úthverfa
SÖNGKONAN Kristjana Stef-
ánsdóttir fer fyrir hljómsveit-
inni The Olivers á tónleikum í
kvöld.
Efnisskráin er að sögn þrí-
skipt en þar má finna þekktar
djassperlur, blús og fönk.
Kristjana hefur verið iðin við
að halda merkjum djass-
tónlistar á lofti og er ein
fremsta söngkona okkar á því
sviði.
Tónleikarnir fara fram á veitinga- og skemmti-
staðnum Café Oliver við Laugaveg.
Dagskráin hefst klukkan 22 og stendur til lok-
unar, eða til klukkan 1 eftir miðnætti.
Tónleikar
Kristjana og The
Olivers á Oliver
Kristjana
Stefánsdóttir
KVIKMYNDIN Blóðbönd, í
leikstjórn Árna Ólafs Ásgeirs-
sonar, er meðal þeirra 49
mynda sem Evrópska kvik-
myndaakademían hefur valið í
forval til Evrópsku kvik-
myndaverðlaunanna. Fimm
myndanna verða að lokum til-
nefndar til verðlaunanna sem
veitt verða í Varsjá í Póllandi 2.
desember næstkomandi.
Blóðbönd var sýnd á kvikmyndahátíðinni í To-
ronto síðastliðinn þriðjudag.
Með aðalhlutverk í myndinni fara Hilmar Jóns-
son og Margrét Vilhjálmsdóttir.
Kvikmynd
Blóðbönd á
faraldsfæti
Úr Blóðböndum.
ÞÝSKI listamaðurinn Christoph
Shlingensief stendur þessa dagana
undir nafni sem vandræðabarn í
leikhúsheim-
inum.
Nýjasta
hneykslið kring-
um Shlingensief
er leikrit hans
Kaprow City sem
frumsýnt var í
Volksbuehne-
leikhúsinu í Berl-
ín á miðvikudag.
Sýningin er
höfð á sama tíma
og Freize-listahátíðin fer fram í Re-
gent’s Park í Lundúnum. Til stend-
ur að sýna verkið í Lundúnum í
október.
Leikritið fjallar um Díönu prins-
essu af Wales og dauða hennar. Í
verkinu er Elísabet II. Englands-
drottning meðal annars túlkuð þar
sem hún heilsar að hætti nasista.
Eins og vænta má eru viðbrögð
Breta við uppátæki Shlingensiefs
mjög neikvæð. Listamaðurinn hefur
veitt þau svör að honum þyki Bretar
gera úlfalda úr mýflugu, að því er
segir í umfjöllun Sunday Express.
Það mun ekki draga úr óánægju
aðdáenda drottningar og prinsess-
unnar heitinnar að fyrirhugað er að
Lars Von Trier geri kvikmynd eftir
verki Schlingensiefs og að jafnvel
standi til að taka myndina upp í
Lundúnum.
Morgunblaðið sagði frá því í febr-
úar að Þjóðleikhúsið hefði náð sam-
komulagi við Schlingensief um að
hann stýrði þar uppfærslu á eigin
verki, Ragnarökum 2010. Schlin-
gensief varð þó að fresta verkefninu
og gaf þá skýringu að hann vildi ein-
beita sér að myndlist og að vinna í
leikhúsi hentaði honum ekki að svo
stöddu.
Í staðinn var verkið Fögnuður eft-
ir Nóbelsskáldið Harold Pinter tekið
til sýninga og hefur hlotið mikið lof
gagnrýnenda.
Schlingen-
sief styggir
Breta
Elísabet II heilsar
að nasistasið
Christoph
Schlingensief
NÚ ER komið að leiðarlokum í
keppninni um söngvara Supernova og
ljóst að keppandinn kanadíski, Lukas
Rossi, bar sigur úr býtum. Magni Ás-
geirsson varð fyrstur fjórmenning-
anna úr leik í úrslitaþættinum sem
sýndur var í nótt. Hann steig svo á
svið í lok þáttarins og lék með Lukasi
þegar hann söng sigursönginn. Á
blaðamannafundi að lokinni keppninni
sagði Jason Newsted, liðsmaður Sup-
ernova, að Magni væri langbesti
hljóðfæraleikarinn af öllum kepp-
endum þáttaraðarinnar og því hefði
það legið beint við að fá hann upp á
svið.
Það má kallast framúrskarandi ár-
angur hjá Magna að hafa náð jafn
langt og raun ber vitni. Því er rétt að
spyrja hann hvort að hann hafi gert
sér vonir um það í upphafi.
Blaðamaður Morgunblaðsins náði
tali af þreyttum en brosmildum
Magna í stúdíói sjónvarpsstöðv-
arinnar CBS þegar úrslitin voru
kunngerð.
,,Nei, ég átti aldrei von á að ég næði
svona langt. Satt að segja var ég viss
um að mér yrði hent út eftir fyrstu
tvær vikurnar. En ég er sáttur við úr-
slitin. Ég vildi að Lukas ynni þetta,
hann átti það svo sannarlega skilið,“
segir Magni og virðist heilshugar sátt-
ur við úrslitin.
Hamingjusamastur í heimi
,,Ég er búinn að vera núna alls 15
vikur í Bandaríkjunum, þar af 12 vik-
ur búsettur í villunni með hinum
keppendunum,“ segir Magni.
Blaðamanni leikur forvitni á að vita
hvernig sambúð keppendanna hafi
gengið.
,,Þetta hefur verið rosalega skrýtið
á margan hátt,“ segir Magni. ,,Þetta
er búið að vera tilfinningalegur rússí-
bani, bæði stórskemmtilegt og líka
erfitt. Það áttu allir keppendurnir sín-
ar erfiðu stundir og hvert og eitt okk-
ar brotnaði niður á einhverjum tíma-
punkti. En það voru vissulega líka
stundir þar sem við gátum glaðst sam-
an.“
En finnst Magna hann vera reynsl-
unni ríkari?
„Já, mér finnst ég hafa kynnst sjálf-
um mér nokkuð vel. Ég veit full-
komlega núna hvað ég vil fá út úr líf-
inu. Ég er hamingjusamasti maður í
heimi og er búinn að læra að það að
vera heimsfrægur poppari og vaða í
seðlum er ekki endilega það sem færir
manni hamingjuna.“
Nú veit ég að þið fenguð sálfræðiað-
stoð meðan á keppninni stóð. Þurft-
irðu einhvern tíma að nýta þér hana?
Magni brosir og segir: ,,Já, það var
sálfræðingur í fullri vinnu með okkur
allan tímann en ég hef nú ekki þurft á
sálfræðiaðstoð að halda. Ég hef
reyndar starfað sem launalaus sál-
fræðingur allan tímann sem við
bjuggum saman í húsinu. Við Dilana
tókum að okkur það hlutverk til skipt-
is. Hún er jafnframt einn besti vinur
minn úr þessum hópi. Storm, Toby,
Lukas og Dilana eru vinir sem ég á
eftir að eiga það sem eftir er ævinn-
ar.“
Hlakkar til að leika við soninn
Blaðamaður minnist á mikla þátt-
töku Íslendinga í síma- og netkosn-
ingum undanfarnar vikur og Magni
skellir upp úr og segir: ,,Það þýðir
ekkert að rukka mig fyrir það. En síð-
ustu vikurnar hef ég virkilega fundið
stuðninginn að heiman og ég er búinn
að vera klökkur og hrærður yfir þeim
samhug sem ég hef fundið frá Íslend-
ingum. Ég vissi í fyrstu ekki hvernig
ég átti að taka þessu en ég er Íslend-
ingur og missi mig gjörsamlega þegar
landsliðið í handbolta stendur sig vel,
svo ég skil stemninguna. Ég er bara
svo ánægður að hafa fengið að vera
,,strákurinn okkar“ í nokkrar vikur.“
Ýmislegt er fram undan hjá Magna
og til stendur að hann fari í tónleika-
ferðalag með Supernova og húsbandi
þáttanna í janúar.
,,Þetta ferðalag hefst upp úr
miðjum janúar 2007 og stendur í sex
vikur,“ segir Magni og segist hlakka
til að endurnýja kynnin við félaga sína
í byrjun næsta árs.
Magni segir veru sína í Supernova
vissulega hafa komið honum á fram-
færi en hann eigi hins vegar eftir að
gera það upp við sig hvort hann vilji
eitthvað með þetta gera eða hreinlega
vera bara áfram á Íslandi. Magni ját-
ar því að hann hafi nú þegar fengið
ýmis tilboð en vill á þessari stundu
minnst tjá sig um það og er hógværð-
in uppmáluð.
,, Ég er opinn fyrir öllu og skoða allt
sem að mér er rétt.“
En hvað skyldi taka við þegar heim
til Íslands er komið?
,,Mitt fyrsta verk verður að slökkva
á símanum, hvílast og leika við son
minn Marinó í nokkrar vikur. Á Ís-
landi er fjölskyldan og þar er hjart-
að,“ segir Magni örmagna að lokum.
Gaman að vera „strákurinn
okkar“ í nokkrar vikur
Ljósmynd/Matthias A. Ingimarsson
Fullskipuð Hljómsveitin Supernova, frá vinstri Jason Newsted, Lukas Rossi, Tommy Lee og Gilby Clarke.
Ljósmynd/Matthias A. Ingimarsson
Að leiðarlokum Magni svarar spurningum ónefndrar sjónvarpskonu hjá
TV Guide sjónvarpsstöðinni eftir blaðamannafundinn í gærkvöldi.
Magni sáttur við
úrslitin og hlakkar
til að koma heim
Eftir Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur
steinunnolina@mbl.is
MIÐASALA á hina árlegu tónlist-
arhátíð Iceland Airwaves hefst
næstkomandi föstudag í verslunum
Skífunnar á Laugavegi, í Kringl-
unni og Smáralind og verslunum
BT á Akureyri, Egilsstöðum og Sel-
fossi. Miðaverð er 6.900 krónur auk
460 króna miðagjalds og fæst fyrir
það aðgangur að öllum viðburðum
hátíðarinnar.
Alls koma um 180 hljómsveitir,
tónlistarmenn og plötusnúðar fram
í ár á sjö tónleikastöðum. Iceland
Airwaves stendur yfir dagana 18.
til 22. október.
Miðasala á
Airwaves
hefst á
föstudag
MENNING
Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna.
Námskeið fyrir börn.
Taltímar.
Einkatímar.
Kennum í fyrirtækjum.
Frönskunámskeið
hefjast 18. september
Innritun til 16. september
Tryggvagötu 8,
101 Reykjavík, fax 562 3820.
Veffang: www.af.is
Netfang: alliance@af.is
Upplýsingar
í síma 552 3870