Morgunblaðið - 14.09.2006, Síða 23

Morgunblaðið - 14.09.2006, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 23 Eftir Guðjón Guðmundsson gugu@mbl.is BOÐSKAPUR Sigurðar Nordals átti erindi við samtíðarmenn hans og ekki síður við Íslendinga nú á tímum, segir Páll Skúlason, heim- spekingur og fyrrverandi rektor Háskóla Íslands. Páll flytur fyr- irlestur í boði Stofnunar Sigurðar Nordals í Norræna húsinu í dag, en þá verða liðin 120 ár frá fæð- ingu hans og 20 ár frá því að Stofnun Sigurðar Nordals var sett á laggirnar. Fyrirlestrar um sálarlíf þjóðarinnar Páll segir að ævistarf Sigurðar hafi að stórum hluta snúist um rannsóknir á íslenskri menningu og bókmenntum. „Ég held að það sé mikill áhugi á Sigurði Nordal og hann hafi haft veruleg áhrif með sínum skrifum. Hans upp- haflega fræðasvið var íslenskar fornsögur en hann var einnig hugsuður og heimspekingur og hélt mikla og merka, sálfræðilega og siðfræðilega fyrirlestra árið 1918 sem hann kallaði Einlyndi og Marglyndi. Hann er einn af okkar merkustu fræðimönnum um menn- ingu og bókmenntir og skrifaði margar athyglisverðar ritgerðir. Allir sem hafa áhuga á íslenskri menningu hljóta að kynna sér verk Sigurðar,“ segir Páll. Hann segir að Sigurður haldi hárri stöðu í íslensku fræða- samfélagi og sé einn af mátt- arstólpum þess. „Það sem heldur nafni hans á lofti eru skrif hans um ýmis skáld og bókmenntasögu. Hans stóra höfuðverk er bókin Ís- lensk menning, sem kom út 1942. Bókin er tilraun hans til þess að fá Íslendinga til að yfirvega skipu- lega menningu sína og rækta hana. Það var ekki vanþörf á her- hvöt af þessu tagi á hans tímum og ekki heldur núna. Ég held að í verkum Sigurðar sé boðskapur sem er mikilvægt fyrir Íslendinga að yfirvega. Viðfangsefni hans hafa erindi til samtímans og eru kannski aldrei brýnni en einmitt núna,“ segir Páll. Íslensk menning og menning Íslendinga Páll segir að Sigurður hafi gert greinarmun á íslenskri menningu og menningu Íslendinga. „Að því leyti að menning Íslendinga á hverjum tíma er auðvitað fólgin í því að við erum að tileinka okkur ýmislegt úr menningu annarra þjóða. En íslensk menning er sú menning sem við Íslendingar höf- um sjálfir skapað í gegnum tíðina með því hvernig við tökum afstöðu til landsins, til tungunnar og sög- unnar. Hvernig við mótum okkar eigin veruleika. Við Íslendingar þurfum því stöðugt að endurskapa íslenska menningu um leið og við tileinkum okkur menningu ann- arra þjóða. Menning verður ekki til nema í sífelldri ræktun og sköpun. Í þessu fólst boðskapur Sigurðar til okkar. Hættan er allt- af sú að við látum glepjast af framandi menningu og ræktum ekki nægilega okkar eigin, ís- lensku menningu. Sigurður hvetur okkur til þess vegna þess að forsendan fyrir því að lifa mannsæmandi lífi í landinu er sú að við eigum okkar eigin menningu. Í huga Sigurðar er menning það sem gefur lífi okkar gildi.“ Páll segir að í fyrirlestri sínum beri hann fram þá spurningu hvernig boðskapur Sigurðar hljómi í dag. „Í heimi nútímans ríkir ákveðin markaðshyggja, þar sem margir eru á bólakafi í versl- un og viðskiptum og hugsa mjög alþjóðlega. Ég spyr því hvaða hljómgrunn boðskapur Sigurðar hafi í dag og hvaða erindi hann eigi við okkur. Um leið er fyr- irlesturinn tilraun til að greina nú- tíma markaðshyggju,“ segir Páll. Íslensk menning | Fyrirlestur um Sigurð Nordal í tilefni af því að 120 ár eru liðin frá fæðingu hans Skyldur Íslend- inga vegna sögu, tungu og lands Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Andans menn Úr móttöku fyrir W. H. Auden úr Ljósmyndasafni Ólafs K. Magnússonar. F.v.: W.H. Auden, Gunnar Gunnarsson, Sigurður Nordal og Tómas Guðmundsson. Páll Skúlason „Allir sem hafa áhuga á íslenskri menningu hljóta að kynna sér verk Sigurðar.“ SIGURÐUR Nordal fæddist 14. september að Eyjólfsstöðum í Vatnsdal, dr. phil. frá Kaup- mannahöfn með ritgerð um Ólafs sögu helga. Stundaði heimspekinám í Berlín og Ox- ford 1915–1918. Prófessor í ís- lenskum fræðum við Háskóla Íslands 1918. Rektor Háskóla Íslands 1922–1923. Gaf út Eg- ilssögu fyrir Hið íslenskra forn- ritafélag. Sigurður markaði með þessari útgáfu þá stefnu sem útgáfur Fornritafélagsins hafa fylgt síðan. Var útgáfu- stjóri félagsins til 1951. Íslensk menning kemur út 1942 og er af mörgum talin höfuðrit Sig- urðar Nordals. Sendiherra Ís- lands í Kaupmannahöfn 1951– 1957. Sigurður Nordal lést í Reykjavík 21. september 1974. Starfsferill Sigurðar H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 6 6 5 7 Miðasala 568 8000 www.borgarleikhusid.is „MÁ ÉG FARA AFTUR NÆSTU HELGI?“ RONJA RÆNINGJADÓTTIR EFTIR ASTRID LINDGREN ANÍTA MJÖLL 5 ÁRA Fyrir eldri borgara Sérlega vandaðar og glæsilegar eignir fyrir þá sem vilja minnka við sig. Vand- aðar íslenskar innréttingar frá Brúnás eru í öllum íbúðum svo og tæki af við- urkenndri gerð frá Ormson auk mynd- dyrasíma. Lyftur eru í öllum stigahús- um er ganga niður í bílageymslu. Á aðalhurðum verða sjálfvirkir hurðaopn- arar. Svæðið er við sjóinn og þar liggja skemmtilegar gönguleiðir meðfram ströndinni. Ökuleiðir til og frá hverfinu eru greiðfarnar, stutt í Smáralind og miðbæ Garðabæjar. Stúdíó, 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir eru í boði. VERÐ frá 16,0–47,0 millj. BYGGINGAFÉLAG GYLFA OG GUNNARS ÁSAMT AKKURAT KYNNA FASTEIGNASALA STÓRHÖFÐA 27 S. 594 5000 Halla Unnur Helgadóttir löggiltur fasteignasali Komið eða fáið senda bæklinga um þessar vönduðu eignir. Upplýsingar gefa sölufulltrúar Akkurat á skrif- stofu í síma 594 5000. www.akkurat.is 17 JÚNÍTORG – SJÁLANDI – GARÐABÆ 50 ÁRA OG ELDRI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.