Morgunblaðið - 14.09.2006, Side 24

Morgunblaðið - 14.09.2006, Side 24
|fimmtudagur|14. 9. 2006| mbl.is daglegtlíf Það er ekki óalgengt að venju- leg meðalfjölskylda borgi á bilinu 20.000 – 40.000 krónur á ári í seðilgjöld. » 28 fjármál Björn Ingólfs leiðir sextán manna gönguhóp í Fjörður, yfir holt og hæðir, fjöll og dali, sprænur og bullandi læki. » 26 hreyfing Bilið á milli foreldra og barna er að aukast, börn verða fyrir æ minni áhrifum frá foreldrum sínum, segir Lars Dencik. » 29 uppeldi ferðalög Hvað á að hafa í matinn um helgina? Skoðum það sem mat- vöruverslanirnar eru að bjóða á kostakjörum. » 28 neytendur Tannheilsa dýra er mjögmikilvægur þáttur íþeirra heilbrigði og eruhunda- og kattaeigendur allflestir orðnir mjög meðvitaðir um það,“ segir Lísa Bjarnadóttir, dýralæknir við Dýraspítalann í Víðidal. „Við dýralæknar gerum bara nokkuð mikið af því að hreinsa tannstein úr kisum og það á reyndar líka við hunda. Fólk er sem betur fer orðið mjög með- vitað um tannheilsu dýranna sinna því við erum í þessu yf- irleitt á hverjum degi og stundum oft á dag,“ segir Lísa. Mjög misjafnt er hve oft þess- um hluta tilverunnar er sinnt. Venjan er sú að kisurnar kom ár- lega í ormahreinsun og bólusetn- ingu og þá er gjarnan skoðað upp í munn og augu í leiðinni. „Ef okkur finnst þörf á að hreinsa tannstein, þá gefum við kisunum tíma í tannhreinsun. Þær koma þá hingað að morgni. Þær eru settar í létta svæfingu og steinn- inn hreinsaður. Stundum eru tennurnar farnar að losna ef það er mikill tannsteinn og þá þarf að fjarlægja þær.“ Við notum sérstakt hátíðnitæki við tannsteinshreinsunina sem sprengir tannsteininn utan af tönnunum. Ég er nokkuð viss um það að hvorki hundar né kettir myndu sætta sig við þessa með- ferð án léttrar svæfingar,“ segir Lísa dýralæknir. Hún segir jafnframt að fæða katta geti spilað inn í tannsteins- myndun. Þannig er dýrum, sem eru mikið á dósamat eða manna- mat, hættara við að safna á sig tannsteini en þeim dýrum, sem eru á þurrmat. Þetta er líka spurning um munnvatnssamsetn- ingu hjá dýrunum. Sum dýr virð- ast vera gjarnari á að fá tann- stein en aðrir, líkt og við mannfólkið. Til er sérstakt þurr- fóður frá ýmsum framleiðendum sem á að draga úr myndun tann- steins auk þess sem til eru tann- væn nagbein fyrir hunda sem eiga að draga úr myndun tann- steins. Svo höfum við einfaldlega verið að hvetja hvolpa- og kett- lingaeigendur til að tannbursta dýrin sín. Sum dýr láta sér það lynda ef menn byrja bara nógu snemma. Best er að nota mjúka ungbarnabursta og sérstakt tann- krem fyrir hunda og kisur sem er með lifrabragði og ýmsum öðrum dýravænum bragðtegundum. Tannkrem mannfólksins þykir þeim alltof sterkt.“ gæludýr Kettir og hundar þurfa líka að fá tannhreinsun Morgunblaðið/Jim Smart Dugleg Það er ekki víst að allir kettir verði ánægðir með tannburstunina. Þetta lítur vel út. Nú er bara að pakka blöðunuminn í litla Fíatinn minn og keyra hringinn,“sagði Teitur Atlason þegar fyrstu eintökin afEimreiðinni litu dagsins ljós í prentsmiðju Morgunblaðsins í gær. Teitur er nú orðinn ritstjóri, útgefandi og auglýs- ingastjóri því hann er að hefja útgáfu tímarits fyrir framhaldsskólanema, sem hann telur markaðinn vera í brýnni þörf fyrir. „Efnistökin í blaðinu mínu verða frá- brugðin efnistökum annarra blaða fyrir þennan hóp. Áherslan verður mikill texti og litlar myndir. „Mér finnst vanta svona blað á markaðinn því það efni, sem er í boði fyrir ungt fólk, einblínir svolítið mikið á skemmt- analífið og frítímann eftir skóla. Það er enginn fjölmiðill að fjalla um málefni, sem snúa beint að sjálfu náminu og því að vera framhaldsskólanemandi í skóla.“ Teitur segist líta á Eimreiðina sem tengibrú milli framhaldsskólastigsins og háskólastigsins. „Ég hugsa blaðið hvetjandi fyrir námsfólk. Það kemur margt fróð- legt fram í þessu fyrsta tölublaði. Athyglivert viðtal er við formann Félags framhaldsskólakennara um stytt- ingu stúdentsprófsins. Ég er með kynningu á því hvaða kjör kunna að bíða nýútskrifaðra háskólamanna eftir starfsgreinum, velti því upp hvort yfirdráttarheimildir séu góð lán eða ólán og bendi auk þess á þá staðreynd að alls staðar í Skandinavíu fá framhaldsskólanemar styrki frá ríkinu nema á Íslandi. Í Danmörku nema þessir rík- isstyrkir allt frá þremur þúsundum danskra kr. og upp í 6.500. 90% íslenskra framhaldsskólanema vinna hins- vegar eitthvað með námi sem er met, sé litið til atvinnu- þátttöku framhaldsskólanema á Norðurlöndunum.“ Eimreiðin er gefin út í hefðbundnu dagblaðabroti í tíu þúsund eintökum og verður dreift frítt í alla framhalds- skóla á landinu. Útgáfan er kostuð með auglýsingasölu og segist Teitur vera með öfluga penna úr röðum fram- haldsskólanema með sér við skriftirnar. Fyrsta tölublað- ið er 20 blaðsíður og það næsta stefnir í 24 síður. Teitur hóf að dreifa nýja blaðinu sínu í alla framhalds- skóla á höfuðborgarsvæðinu í gær, Hann ætlar svo að leggja af stað í dag á Fíatn- um sínum hringinn í kring- um landið til að dreifa nýja blaðinu sínu í alla aðra framhaldsskóla. Eimreiðin er tengibrú fyrir framhaldsskólanema Nýtt Teitur Atlason gluggar í Eimreið, sem kom út í fyrsta sinn í gær. Morgunblaðið/Ómar Ritstjórinn Teitur Atlason pakkaði Eimreiðinni inn í Fíatinn sinn og ætlar að keyra hringinn í kringum landið til að dreifa nýja blaðinu til nemenda. Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is TENGLAR ........................................... ritstjorn@eimreidin.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.