Morgunblaðið - 14.09.2006, Síða 29

Morgunblaðið - 14.09.2006, Síða 29
Bilið á milli foreldra ogbarna er að aukast, börnverða fyrir minni ogminni áhrifum frá for- eldrum sínum en meiri áhrifum frá umhverfinu og öðrum börnum,“ segir Lars Dencik sem stjórnar miðstöð fyrir barna- og fjölskyldu- rannsóknir við Hróarskelduháskóla í Danmörku. „Það er samfélagslegt bil á milli foreldra og barna vegna þess að reynsla foreldranna er ekki eins mikilvæg fyrir börn í dag, þau hafa ný sjónarhorn og ólík lífs- viðhorf. Þetta snýst ekki eins mikið og áður um flutning á gildum og viðhorfum frá foreldrum til barna heldur meira um að börn fái gildi, siði og hegðunarmynstur frá um- hverfi, skóla og vinahópi.“ Dencik segir að foreldrar þurfi ekki að vera eins miklar fyr- irmyndir og áður fyrir börnin held- ur séu þau frekar mótandi fyrir þau. „Með því að setjast að í ákveðnu hverfi, senda þau í ákveð- inn skóla og leyfa þeim að æfa ákveðnar íþróttir móta þau barnið og umhverfið sem það býr í. Fyr- irmyndirnar eru síðan orðnar önn- ur börn sem þau umgangast og um- hverfið sem þau búa í, sem foreldrarnir völdu.“ Skortur á innsæi í líf ástvina „Á sama tíma og þetta bil á milli foreldra og barna fer stækkandi er meira af tilfinningum. Foreldrar í dag eru mjög tilfinningatengdir börnum sínum, þeir vilja skilja þau því foreldrar kjósa að eiga börn, mæður eru eldri en áður og að stofna fjölskyldu er val. Foreldrar taka mikla ábyrgð á barninu og vilja skilja veröld þess en það er erfitt.“ Breytingarnar í samfélaginu eru miklar og fjölskyldur eru alltaf að reyna að koma til móts við þær, segir Dencik. „Báðir foreldrar vinna úti, fjölskyldugerðirnar eru margskonar, börnin eru allan dag- inn í pössun og ný tækni kemur með nýja upplifun og reynslu í heim barnanna. Fjölskyldan er að- skilin að morgni og svo reynir hún að tengjast aftur að kvöldi og byggja upp sitt samfélag en það er ekki auðvelt, tilfinningalegu tengsl- in eru til staðar en á sama tíma er skortur á innsæi inn í heim hinna fjölskyldumeðlimanna.“ Barnið er frjálsara en áður Dencik segir barnið vera meiri einstakling en áður. „Það hefur sitt eigið tengslanet, sínar eigin upplif- anir sem þau deila ekki með for- eldrunum eða öðrum, barnið er að öðru leyti frjálsara og að hinu leyti meira eitt. Barnið þarf meiri sjálf- stjórn nú því heimurinn er fullur af freistingum sem er erfitt að stjórna að utan. Áður var börnum frekar stjórnað af yfirvöldum; foreldrum, kennurum eða prestum, nú þarf stjórnin að byggjast upp hjá barninu sjálfu, sumir standast það en aðrir freistast. Börn í dag lifa í öðru félagsumhverfi en eldri kyn- slóðir og þurfa því að treysta meira á sjálfan sig.“ Fjölskyldan þarf að vera stöðug Að sögn Dencik hagnast mörg börn á þessu aukna frelsi, þau njóta meiri virðingar, það er hlustað á þau og þau taka þátt í ýmsu sem börn gátu ekki tekið þátt í áður. En sum börn ráða ekki við þetta frelsi. „Meirihluti barna bjargar sér en ekki allir og það hefur mikið að gera með fjölskylduna sjáum við í rannsóknum okkar. Fjölskyldan þarf að vera stöðug því allt annað er á hreyfingu, en það er erfitt í dag því fjölskyldan er svo brot- hætt,“ segir Dencik og bætir við að í heimi freistinga þurfi fjölskyldur að velta fyrir sér hvernig þær ætli að halda öllu gangandi. „Það þarf að búa til lítið samfélag úr fjöl- skyldunni og hún þarf að gera eitt- hvað saman. Foreldrar þurfa að upplifa eitthvað með börnunum sín- um og deila því, það kemur ekki af sjálfu sér og því brotna margar fjölskyldur í sundur. Við höfum séð í rannsóknum okkar að þau börn sem hafa upplifað nokkur fjöl- skyldumynstur, þ.e foreldrar skilið jafnvel oftar en einu sinni, eru mjög særð því þau hafa ekkert traust. Ef fjölskyldan er sífellt að splundrast týnist traustið hjá börnunum á for- eldra, fullorðna, kerfið og sig sjálf. Þessi börn eiga ekki góða mögu- leika, börn með traust tilfinninga- sambönd í kringum sig hagnast af öllum þessum möguleikum í heim- inum. Þau geta tekið þátt í mörgu því þau hafa alltaf þetta tilfinn- ingaakkeri sem fjölskyldan er.“ Deila reynslu með börnunum „Þær fjölskyldur sem standa sig vel í rannsóknum okkar eru þær fjölskyldur sem gera ýmislegt sam- an og deila reynslu, þær sem ekki gera mikið saman og leyfa börn- unum að vera hvert í sínu horninu eru viðkvæmar. Það versta sem getur komið fyrir barn er að vera ekki partur af samfélagi og fjöl- skyldu, ef það er eitthvað sem börn þrá og berjast fyrir þá er það að vera partur af samfélagi og klíku.“ Í framtíðinni sér Dencik bilið á milli barna og foreldra aukast enn frekar. „Bilið er þarna því veröldin breytist svo hratt, hvernig við skilj- um og hugsum getur ekki haldið í við þessa hröðu þróun. Til að brúa bilið sem myndast þurfa fjölskyldur að skapa tilfinningalega nálægð sem byggist upp vegna sameig- inlegrar reynslu. Það mun samt alltaf vera þetta félagslegt bil sem gerir það að verkum að foreldrar og börn lifa í sitthvorum heim- inum.“ Foreldrar og börn búa í sitthvorum heiminum Samskipti ungra barna og foreldra þeirra í vel- ferðarsamfélögum sam- tímans er yfirskrift á er- indi sem Lars Dencik flutti á ráðstefnu í Kenn- araháskóla Íslands um daginn. Ingveldur Geirs- dóttir ræddi við hann um fjölskylduna og barn- æsku nútímans. Morgunblaðið/Jim Smart Lífið Fyrirmyndirnar eru nú orðið önnur börn sem krakkarnir umgangast og umhverfið sem þau búa í. Morgunblaðið/Eyþór Nútíminn Báðir foreldrar vinna úti, fjölskyldugerðirnar eru margskonar, börnin eru allan daginn í pössun og ný tækni kemur með nýja upplifun og reynslu í heim barnanna. Kynslóðabil Lars Dencik stjórnar miðstöð fyrir barna- og fjölskyldu- rannsóknir í Danmörku. ingveldur@mbl.is uppeldi MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 29 Sími: 50 50 600 • www.hertz.is Bókaðu bílinn heima - og fáðu 500 Vildarpunkta Vika í Evrópu ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H ER 32 54 6 05 /2 00 6 16.600 Ítalía kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. 13.200 Spánn kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. 19.400 Holland kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. 17.900 Bretland kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. 24.200 Danmörk kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. Orlando Vacation Homes If you are planning a trip to Orlando, Florida and you are interested in learning more about vacation home ownership, please contact us or visit our website. www.LIVINFL.com Contact: Meredith Mahn 001-321-438-5566 Domus Pro Realty - Vacation Home Sales Division

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.