Morgunblaðið - 14.09.2006, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 14.09.2006, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ER LEIKSKÓLINN AFGANGSSTÆRÐ? Morgunblaðið sagði í gær fréttaf því að ekki hefði veriðráðið í 105 stöðugildi í leik- skólum Reykjavíkurborgar. Þar af vantar fólk í 76 stöður leikskólakenn- ara. Aðeins er fullmannað í þriðjungi leikskóla borgarinnar. Og í tveimur leikskólum hefur þurft að skerða þjónustu. Það felst í því að börnin fá aðeins að vera hálfan daginn suma daga í vikunni og jafnvel þurfa þau að vera heima heila daga. Mörg falleg orð hafa verið látin falla um mikilvægi leikskólans á und- anförnum árum, ekki sízt í kosninga- baráttunni fyrir sveitarstjórnarkosn- ingarnar síðastliðið vor. Nokkur ár eru síðan leikskólinn var formlega gerður að fyrsta skólastiginu með sérstakri námskrá. Mikilvægi góðra leikskóla fyrir heimilin, þar sem for- eldrar vinna oftast báðir fulla vinnu, og ekki síður fyrir atvinnulífið, sem þarf á starfskröftum foreldranna að halda, fer ekki á milli mála. Vaxandi pólitísk samstaða hefur verið um að leikskólinn sé staður, þar sem börn fá ekki aðeins gæzlu og öryggi heldur menntun, örvun og leiðsögn fag- menntaðs starfsfólks. Þess vegna eigi leikskólastigið að vera hluti af sam- felldri skólagöngu og kostað í vaxandi mæli, ef ekki að fullu, af almannafé. Hvernig fer raunveruleikinn í leik- skólum í Reykjavík saman við þetta? Væri það látið viðgangast í grunn- skóla, að börnin væru send heim 2–3 daga í viku og fengju enga kennslu vegna skorts á starfsfólki? Eða að sum börn hefðu engan kennara? Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, for- maður leikskólaráðs Reykjavíkur, segir í Morgunblaðinu í gær að stað- an sé ívið skárri en á sama tíma í fyrra. Þannig séu færri börn á bið- lista en í fyrra, eða um 70. Það skiptir í raun litlu máli þegar staðan er þessi. Það er betra að bjóða foreldrum ekk- ert leikskólapláss en pláss, sem er bara virkt part úr vikunni; þá finnur fólk sér aðra dagvistun. Auðvitað verður starfið í leikskól- unum ekki tryggt nema þeir séu full- mannaðir og það gerist ekki nema boðin séu mannsæmandi laun fyrir þau mikilvægu störf, sem þar eru unnin. Það er kjarni þessa máls. Það skiptir máli fyrir nýjan borg- arstjórnarmeirihluta að ná tökum á þessari stöðu. Deilur um skiptingu menntaráðs borgarinnar í tvennt og stofnun sérstaks leikskólaráðs hafa að flestu leyti verið deilur um keis- arans skegg. En ef nýjum meirihluta tekst ekki að tryggja foreldrum og börnum viðunandi þjónustu og starfs- fólki viðunandi starfsaðstæður, mun það færa þeim vopn í hendur, sem halda því fram að ekki sé litið á leik- skólann sem raunverulegan hluta menntakerfisins, heldur sem af- gangsstærð. SPORIN HRÆÐA Þeir, sem fylgdust með Víetnam-stríðinu fyrir fjórum áratugum muna þá tíma, þegar Lyndon John- son, þáverandi Bandaríkjaforseti, fjölgaði stöðugt í herliði Bandaríkja- manna þar í landi án þess að það skil- aði nokkrum árangri öðrum en þeim, að fleiri bandarískir hermenn féllu og Bandaríkin töpuðu stríðinu að lokum. Brottför Bandaríkjamanna frá Sai- gon var ekki með neinum glæsibrag. Óskir framkvæmdastjóra Atlants- hafsbandalagsins um að fjölgað verði í liði bandalagsins í Afganistan eins og fram kom í frétt á forsíðu Morg- unblaðsins í gær verða til þess að gamlar minningar rifjast upp. Fjölg- un hermanna Atlantshafsbandalags- ins í Afganistan er ekki líkleg til að skila meiri árangri en fjölgun her- manna í Víetnam á sínum tíma. Bandarískir hershöfðingjar hafa hvatt til þess, að fjölgað verði í herliði Bandaríkjamanna í Írak. Hið sama má segja um þær óskir. Þær eru ekki líklegar til að skila meiri árangri en fjölgun hermanna í Víetnam á sínum tíma. Einhvern tíma varaði gamalreynd- ur bandarískur hershöfðingi þjóð sína við því að festast í landhernaði í Asíu. Reynsla Bandaríkjamanna af landhernaði hvort sem er í Víetnam, Afganistan eða Írak er ekki góð. Þeir hafa ekki bolmagn til þess að halda þessum ríkjum. Það er orðin áleitin spurning fyrir þjóðir Vesturlanda hvort þær eigi ekki að koma sér út úr þeirri stöðu að vera með herlið í þessum fjarlægu löndum. Hernaðaríhlutun getur þjón- að tilgangi til skamms tíma, t.d. til að stilla til friðar eða koma fótunum undir lýðræðislega stjórn, sem nýtur lögmætis í augum íbúanna. En ef slíkt tekst ekki, verða ríkisstjórnir ekki festar í sessi með erlendu hervaldi. Bandaríkjamenn gerðu innrás í Afganistan í kjölfar atburðanna 11. september fyrir fimm árum. Þeir hröktu talibana frá völdum og komu í veg fyrir að hryðjuverkamenn gætu notað landið sem stökkpall til árása víðs vegar um heim. Í þeirri aðgerð fólst ekki að þeir ættu að verða þar um alla eilífð eða Atlantshafsbanda- lagið fyrir þá. Hið sama á við um Írak. Þeir hröktu Saddam Hussein frá völdum en það þýðir ekki að þeir eigi að vera í Írak um aldur og ævi. Sporin hræða. Reynslan sýnir, að Bandaríkin geta hernumið lönd en þau geta ekki haldið þeim til lang- frama og leysa heldur engan vanda með því að reyna það. Þess vegna er tími til kominn að Bandaríkin horfist í augu við veru- leikann, hverfi heim á leið og sjái hvort það er kannski betri kostur þrátt fyrir allt, að þessar þjóðir leysi sjálfar sín vandamál. Bretar hrökkl- uðust frá nýlendum sínum á 20. öld- inni. Herferðir Bandaríkjamanna í kjölfar brottfarar Breta hafa ekki skilað þeim árangri, sem að var stefnt. Þess vegna fer bezt á því að þeir fylgi í kjölfar frænda sinna Breta og hugi að heimför en ekki fjölgun hermanna í vonlausri aðstöðu þegar til lengri tíma er litið. „GRUNDVALLARSKOÐUN mín er sú að við höfum rétt til að nýta auðlindir hafsins,“ segir Halldór Blöndal sem var í hópi þeirra þing- manna sem greiddu atkvæði gegn hvalveiðibanninu á sínum tíma. „Ástæðan var sú að ég vann mörg ár í hvalstöðinni í Hvalfirði og mér er kunnugt um að hvalveiðarnar, eins og þær fóru fram, voru með vistvænum hætti.“ Halldór hóf störf í hvalstöðinni sumarið 1954, á sextánda ári, og vann heilar fimmtán vertíðir. Hann sinnti þar ýmsum störfum, m.a. sem vinsugutti, víramaður á sög- inni og að lokum hvalskurðarmaður – eða flensari – og að sögn voru sumrin skemmtileg en erfið. Hugsað um að ganga ekki of nærri hvalastofnunum Halldór þekkir því vel til starf- semi hvalstöðvarinnar og hvalveiða í atvinnuskyni. Hann segir að í stöðinni hafi mikið verið hugsað út í að ganga ekki of nærri stofnunum og lagt upp úr því að nýta kjötið til manneldis, t.a.m. giltu strangar reglur um það hversu langur tími mætti líða frá því hvalur var skot- inn þangað til hann kæmi í land til að kjötið væri ferskt, gott og gæti nýst. Einnig var hvalbátunum bannað að koma með fleiri en tvær langreyðar að landi í einu, til að gæta þess að kjötið spilltist ekki. „Það voru vísindamenn í hvalstöð- inni meðan ég var þar, ár eftir ár, og ég man sérstaklega eftir einum sem var þeirrar skoðunar að við stæðum rétt að veiðunum og þær væru með vistvænum hætti. Síð- ustu árin voru t.a.m. aðeins langreyðar og sandreyðar hvalur hafði verið friðaður vegna ofveiði hér í norðurh af öðrum ástæðum. Það sk ekki svo miklu máli vegna þ hann nýttist ekki á sama há langreyðurin og sandreyðu Halldór segist hlynntur Umræður um hvalveiðar Íslendinga í atvinnuskyni hafa Fullviss um að hva hvalaskoðun geti fa Tilbúinn Halldór vann ýmis störf í hvalstöðinni í Hvalfirði. Hann og upp í vinsagutta, því næst varð hann víramaður á söginni, þá s Halldór Blöndal þing- maður vann við hval- skurð á fimmtán ver- tíðum, frá 1954-1974, í hvalstöðinni í Hvalfirði. Andri Karl ræddi við hann um gamla tíma og nýja í hvalveiðum. Eftir Andra Karl ALLT stefnir í að met verði sett í gestafjölda hjá hvalaskoðunarfyr- irtækjum í ár en talið er að um 90 þúsund gestir fari í skoðunarferðir um allt land á tímabili hvalaskoð- unarferða, sem senn lýkur. Tölu- verð aukning hefur verið í gesta- fjölda á undanförnum árum en eigandi Norður-siglingar á Húsa- vík óttast neikvæð áhrif af fyr- irhuguðum hvalveiðum. Hörður Sigurbjarnarson, eig- andi og framkvæmdastjóri Norð- ur-siglingar, hefur farið með gesti í hvala- og náttúruskoðun á Skjálf- andaflóa undanfarin ellefu ár. „Það hefur verið frekar góð línu- leg aukning í gestafjölda hjá okk- ur síðan við byrjuðum og nálgumst nú þriðja tuginn í ár,“ segir Hörð- ur og bætir við að það sé met hjá fyrirtækinu. Norður-sigling fer í skoðunarferðir frá 1. maí til 20. september en mun á næsta ári flýta fyrstu ferðum fram í apríl. Færri hrefnur hafa sést eftir að veiðar hófust „Eins og lagt er upp með þetta núna eru hvalveiðar þegar farnar að skemma fyrir hvalaskoðun, það er engin vafi á því,“ segir Hörður spurður út í fyrirhugaðar hval- veiðar. Hann tekur sem dæmi að aldrei hafi gengið jafnilla að nálg- ast hrefnu á Faxaflóa og í sumar en þar starfa þrjú hvalaskoð- unarfyrirtæki. „Hvalurinn er orð- inn styggari og hugsanlega er búið að drepa eitthvað af þessum gæfu dýrum. Við vitum þetta ekki ná- kvæmlega en það hefur verið greint að verr gengur að nálgast hrefnuna,“ segir Hörður og bætir við að svipað ástand hafi verið fyr- ir norðan. „Síðan hvalveiðarnar hófust árið 2003 eru miklu færri hrefnur hérna af einhverjum ástæðum.“ Hann segir sumarið hins vegar hafa gengið mjög vel þar sem meira hafi sést af steypireyði og hnúfubökum en nokkurn tíma áð- ur. Á háannatíma hafi hvalir sést í nær öllum ferðum. Um 90% gesta Norður-siglingar eru erlendir ferðamenn en Hörður segir Íslendinga þó sýna hvala- skoðun meiri áhuga með hverju árinu sem líður. Hann telur að nei- kvæð umræða um hvalveiðar Ís- lendinga á alþjóðavettvangi muni hafa slæm áhrif. „Og þær hafa nú þegar haft neikvæð áhrif. Sú aukn- ing sem hefur almennt tekist að viðhalda í komu ferðamanna til landsins, s.s. með fleiri flu félögum sem fljúga hinga ugri markaðssetningu erl hefur vegið þar upp á mót Friðun hvala táknræn fyrir umhverfisvernd Hörður telur engan vaf ferðaþjónustan öll muni b skaða af hvalveiðum. Áhr indaveiðum á hrefnu hafi ið jafnmikil og Hörður hef við en hann segir að viðho lendinga muni gjörbreyta farið verður að veiða stórh „Það má segja að umhv isverndarsamtök hafi hald skildi yfir Íslendingum nú árin vegna þess að þetta v indaveiðar og þær voru í s smáum mæli en stórhvala munu setja okkur alveg hr nýja stöðu. Það er ekki en hvalaskoðunarfyrirtækin verða verst úti, það geta a verið flugfélögin. Það er a augljóst að almenningsáli veg gegn okkur í þessu og um ekki hversu sterk þess Við skulum ekki gleyma þ umhverfismálum hefur fr hvala verið táknræn fyrir hverfisvernd. Þetta hefur breyst.“ Hvalveiðar þegar farnar að skemma fyri

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.