Morgunblaðið - 14.09.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 31
s skotnar
en búr-
, ekki
höfum en
ipti þó
þess að
átt og
urin.“
því að
hefja hvalveiðar í atvinnuskyni en
eins og kunnugt er hefur Kristján
Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals
hf., þegar hafið undirbúning vegna
hvalveiða og er t.a.m. Hvalur 9
kominn úr slipp og unnið er að því
að koma búnaði hvalstöðvarinnar í
samt horf. Kristján lýsti því m.a. yf-
ir í Morgunblaðinu að hann gæti
orðið tilbúinn til veiða í haust en
alla vega næsta vor.
Mikið hefur verið rætt um nei-
kvæð áhrif hvalveiða á ferðaþjón-
ustu og þjónustu hvalaskoðunarfyr-
irtækja. Forsvarsmenn hvalaskoð-
unarfyrirtækja halda því jafnframt
fram að vísindaveiðar á hrefnu, sem
hófust árið 2003, hafi þegar haft
áhrif. Halldór er þó fullviss um að
hvalveiðar í atvinnuskyni og hvala-
skoðun geti farið saman.
„Ég hygg að veiðar muni ekki
spilla neinu. Þó að menn fari að
veiða langreyðar og sandreyðar á
ný þá mun það ekki rekast á hvala-
skoðun. Það er á ákveðnum stöðum
þar sem menn hafa byggt upp fyr-
irtæki í hvalaskoðun og ég get ekki
séð annað en það geti farið saman
að friða þau svæði, þau eru ekki svo
mörg og það er nógur hvalur í sjón-
um kringum landið. Það ætti ekki
að spilla hvort fyrir öðru,“ segir
Halldór og bætir því við að hann
hafi ávallt verið á þeirri skoðun að
nýta ætti auðlindir hafsins og það
sem hafið gefur af sér. Að fara með
ferðamenn til að sýna þeim hvali sé
einn þáttur í því.
„Ég tel mig vera náttúruvernd-
arsinna en auðvitað verðum við að
lifa í landinu, lifa með landinu og af
því sem landið gefur af sér. Það á
við um hvalveiðar eins og annað.“
Hrefnuveiðar hafa ekki
bitnað á okkur
Spurður út í þá neikvæðu um-
ræðu sem talin er geta sprottið upp
á alþjóðavettvangi ef Íslendingar
taka upp hvalveiðar í atvinnuskyni
segir Halldór: „Hér hafa verið
stundaðar hrefnuveiðar og það hef-
ur ekki bitnað á okkur. Ég sé því
ekki að það þurfi að vera og held að
það verði að láta á þetta reyna.“
Halldór segist ekki sjá neitt því
til fyrirstöðu að hægt verði að hefja
veiðar næsta vor.
a verið háværar að undanförnu, skiptar skoðanir eru á veiðunum og ólík sjónarmið virðist erfitt að sætta
alveiðar og
arið saman
Morgunblaðið/Golli
n vann sig upp úr því að draga kjötið inn í kæli
sagarmaður og loks flensari.
andri@mbl,is
ug-
ð og öfl-
lendis,
ti.“
fa á því að
bera
if af vís-
ekki ver-
fur búist
orf út-
ast þegar
hveli.
erf-
dið hlífi-
úna þessi
voru vís-
svo
veiðar
reint í
ndilega að
muni
alveg eins
alveg
itið er al-
g við vit-
si öfl eru.
því að í
riðun
r um-
r ekkert
ir
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Gerir út Hörður Sigurbjarnarson. Hefur rekið hvalaskoðunarfyrirtækið
Norður-siglingu frá árinu 1994. Gestir í ár eru nálægt 30 þúsundum.
MEIRIHLUTI Íslendinga er
fylgjandi hvalveiðum, eða 73,1%
aðspurðra í skoðanakönnunum,
sem Capacent Gallup gerði fyrir
samtök í sjávarútvegi í síðustu
viku. Andvígir eru 11,5% og 15,4%
eru hvorki með né á móti. Sé sam-
bærileg könnun frá árinu 1997
skoðuð, kemur í ljós að fylgjendur
hvalveiða voru þá svipað hlutfall,
72%, en þá voru 20,8% andvíg veið-
unum en 7,2% tóku ekki afstöðu.
Samkvæmt þessu hefur andstaða
við hvalveiðar Íslendinga minnkað
verulega.
Þetta kom fram á fundi sem
Sjávarnytjar, LÍÚ, Landssamband
smábátaeigenda, Sjómannasam-
band Íslands, Farmanna- og fiski-
mannasamband Íslands, Vélstjóra-
félag Íslands, Félag
hrefnuveiðimanna og Hvalur hf.
boðuðu til í gær. Þar kom jafn-
framt fram að tæp 77% Íslendinga
hafi borðað hvalkjöt og stór hluti
þeirra hafi gert það á síðustu 12
mánuðum. Loks hafa um 27%
landsmanna farið í hvalaskoðun, en
af þeim eru um 73,5% fylgjandi
hvalveiðum.
Jón Gunnarsson, formaður Sjáv-
arnytja, kynnti niðurstöðurnar og
rakti stöðuna í hvalveiðimálum.
Hann fjallaði fyrst um markaðsmál
og sagði að réttur Íslendinga til
hvalveiða í atvinnuskyni væri al-
gjörlega skýr og í samræmi við lög
og reglur Alþjóða hvalveiðiráðsins.
Lygin endurtekin nógu oft
„Það er annar óhróður sem við
höfum mátt sitja undir varðandi
viðskipti með hvalaafurðir, þar er
endurtekið fullyrt að markaður sé
ekki fyrir hendi. Það sé bann við al-
þjóðlegum viðskiptum með hvala-
afurðir og í Noregi sé hvalkjöti
hent og í Japan séu þvílíkar birgðir
að þær séu til margra ára neyzlu. Í
stuttu máli standast engar þessara
yfirlýsinga, sem andstæðingar
hvalveiða gefa ítrekað. Það er eins
og þeir vinni stundum eftir þeirri
uppskrift, að sé lygin nógu oft end-
urtekin fari fólk á endanum að trúa
henni,“ sagði Jón.
Hann sagði að ekkert bannaði
Íslendingum að eiga viðskipti með
hvalaafurðir á alþjóðlegum vett-
vangi. Það hefði sannazt þegar
hvalkjöt hefði verið keypt frá Nor-
egi og þar með verið uppfyllt öll
þau skilyrði sem þurfti til viðskipta
með hvalkjöt á alþjóðlegum vett-
vangi. Vísindaveiðar hefðu síðan
verið hafnar 2003 og á þessu ári
væri verið að hefja fyrsta útflutn-
inginn á hvalkjöti til Færeyja, að
vísu í litlu magni. Þetta væri fyrst
og fremst gert til að sýna að ekkert
væri hægt lögformlega til að stöðva
veiðar og viðskipti með afurðirnar.
Það sama ætti við um markaðinn í
Japan. Þar væri staðan þannig að
eins og Noregur, Ísland og Fær-
eyjar hefðu Japanar sett fyrirvara
við bann CITES á viðskiptum með
ákveðnar hvalategundir. Það sé því
ekkert flóknara að flytja hvalaaf-
urðir frá Íslandi til Japans en fisk-
afurðir, eða bíla frá Japan til Ís-
lands.
Breyttar aðstæður í Japan
„Aðstæður í Japan hafa verið
mjög sérstakar á síðustu árum.
Þeir hafa stundað vísindaveiðar í
Suður-Íshafinu og Kyrrahafinu í
kringum Japan. Þessar veiðar hafa
átt að standa undir ákveðinni vís-
indaáætlun, sem þeir eru þegar
búnir að útvíkka mjög mikið. Þeir
hafa nú tvöfaldað þann fjölda dýra,
sem þeir taka á ári. Það þýðir aftur
að hvalamarkaðurinn í Japan getur
farið að lifna á ný og vinna á eðli-
legum nótum. Nú er nægilegt
framboð til þess að veitingastaðir
og verzlanakeðjur geti treyst því
að fá nægilegt kjöt til að bjóða
reglulega upp á það. Þegar þessi
markaður lifnar á ný með nægu
framboði er ekkert því til fyrir-
stöðu að hefja viðskipti með hvala-
afurðir við Japana,“ sagði Jón.
Hann sagði að reynsla annarra
þjóða af hvalveiðum og áhrif þeirra
á aðrar atvinnugreinar væri lítil
sem engin. „Við biðjum um mál-
efnalega umræðu, þar sem rökin
eru höfð á borðinu. Að þessi at-
vinnugrein fái að blómstra í friði,
fái að skapa atvinnu og tekjur í sátt
við aðra atvinnustarfsemi í landinu.
Fá sér hvalkjöt að
lokinni hvalaskoðun
Í lok fundarins bauð Gissur Guð-
mundsson matreiðslumeistari upp
á smakk á hvalkjöti. Hann sagðist
vera búinn að hafa hvalkjöt á mat-
seðlinum í sex ár og reynslan væri
mjög góð. Ferðamenn kæmu í hóp-
um á sumrin til að smakka á hval-
kjötinu og mjög margir þeirra
væru þá að koma úr hvalaskoðun.
Hann sagðist jafnframt gera tölu-
vert af því að taka hvalkjöt með sér
til útlanda til að kynna það þar.
Viðtökurnar væru undantekningar-
laust góðar. Hann hefði kynnt hval-
kjötið í Litháen fyrir skömmu og
nú hefði verið ákveðið að hafa það á
matseðlinum á veitingahúsi, sem
nú væri verið að hleypa af stokk-
unum.
Hvalir Jón Gunnarsson, formaður Sjávarnytja, kynnir skoðanakönnum um afstöðu fólks til hvalveiða í atvinnu-
skyni. Nú eru andstæðingar hvalveiða mun færri en í könnun frá árinu 1997. Fylgjendur eru jafnmargir.
Andstæðingum hval-
veiða fer fækkandi
!"
# $%
&'
(
)
*+
$
,
-
.
/ #
#
)(/ .
0-1
.
'
#
21 .
2.
3
.
,2
.
1.24
!"#$
$%
&5
)#
"6
( *+
%
# &
%'
$%
&5
)#
"6
( *+
( (
)*
$%
&5
)#
6 +,-
(
.#
%'
%
.#%
/ # 0 1 ( (
)*
+,-
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
Í HNOTSKURN
»Við landið eru 12 tegundirhvala. Þeirra helztar eru
hrefna, langreyður, sand-
reyður, steypireyður og
hnúfubakur.
»Öllum þessum tegundumhefur fjölgað mikið á síð-
ustu árum, en talið er að
43.600 hrefnur séu á land-
grunninu.
»Hvalir éta um 6 milljónirtonna á ári, mest krabba-
dýr, en um 2 milljónir tonna af
fiski.
»Hrefnan étur mest, tværmilljónir tonna, þar af er
helmingurinn fiskur.
»Hvalir éta milljón tonn afloðnu.