Morgunblaðið - 14.09.2006, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 14.09.2006, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 35 HÉR Á árum áður var mikil og almenn fiskneysla eitt meg- ineinkenni á mataræði Íslendinga. Árið 1990 mældist hún hærri en í nokkru öðru Evrópulandi og var soðin eða bökuð ýsa algengasti rétt- ur á borðum landsmanna, sam- kvæmt niðurstöðum landskönnunar á mataræði sem þá fór fram. Árið 2002 var svo komið að fiskneyslan var aðeins 40 grömm á dag, sem er 30% minnkun frá 1990. Fiskneyslan hefur því nálgast það sem gengur og gerist í mörgum löndum Evrópu. Minnst var hún meðal unglings- stúlkna sem borðuðu einungis sem svarar einum munnbita á dag – enda hefur pítsan nú rutt sér til rúms sem þjóðarréttur ungra Íslendinga. Góð uppspretta næringarefna Lengi hefur verið tröllatrú á fiski hér á landi, ekki bara það að með auknu fiskáti komi gáfurnar, heldur hafa margir leitt að því líkum að það sé einmitt fiskinum og lýsinu að þakka hversu heilsuhraust og langlíf þjóðin hefur verið. Fiskur er ein- faldlega hollur matur jafnt fyrir lík- ama og sál. Næring- argildi fiskmetis einkennist af ríkulegu magni próteina í hæsta gæðaflokki og óvenjumiklu magni af snefilefnum, sér- staklega seleni og joði. Feitur fiskur er einnig auðugur af D-vítamíni og löngum ómega-3- fitusýrum sem eru ein- stakar en þessi nær- ingarefni eru í fáum öðrum matvælum en sjávarfangi. Lítil fisk- neysla er því talsvert áhyggjuefni enda eru joð og lífsnauðsynlegar ómega-3-fitusýrur af skornum skammti í fæði þeirra sem minnst borða af fiski og allir þurfa á þess- um efnum að halda heilsunnar vegna. Áhrif á heilsu Rannsóknir á heilsufarsbætandi áhrifum sjávarfangs hafa einkum beinst að ómega-3-fitusýrum en já- kvæð áhrif fiskneyslu á hjarta- sjúkdóma eru að miklu leyti rakin til fiskifitunnar. Rannsóknir hafa sýnt að ómega-3-fitusýrur hafa góð áhrif á ýmsa þætti líkams- starfsemi, meðal ann- ars á blóðfitu, þlóð- þrýsting og samloðun blóðflagna. Eins benda rannsóknir til að fiski- fita geti haft áhrif á bólgu- og ónæm- issvörun líkamans. Lýsi veitir stærstan hluta langra ómega-3- fitusýra í fæði Íslend- inga en magnið er einn- ig talsvert í feitum fiski. Það hefur hins vegar sýnt sig að bæði feitur og magur fiskur virðist hafa jákvæð áhrif á heilsuna og það eru trúlega fleiri en eitt innihaldsefni þar að verki. Þess vegna er æskilegt að borða bæði feitan og magran fisk. Fiskneysla og ungt fólk Í ráðleggingum Lýðheilsustöðvar/ manneldisráðs um mataræði er lögð áhersla á að fiskur sé á borðum að minnsta kosti tvisvar í viku sem að- alréttur og gjarnan oftar. Þar fyrir utan er harðfiskur ásamt áleggi og salötum úr fiski góður kostur. Ung- ar stúlkur borða fisk sjaldnar en einu sinni í viku. Það þarf því sér- staklega að beina spjótum sínum að ungu fólki í áróðri fyrir aukinni fisk- neyslu. Í gangi er viðamikið sam- starfsverkefni, á vegum Rann- sóknastofnunar fiskiðnaðarins, Félagsvísindastofnunar, Rann- sóknastofu í næringarfræði o.fl., sem hefur það að markmiði að stuðla að aukinni neyslu sjávaraf- urða með sérstakri áherslu á ungt fólk. Gott aðgengi að ferskum og góðum fiski og góðir fiskréttir, sem er auðvelt að útbúa og höfða til smekks unga fólksins, skipta þar meðal annars miklu máli. Ýmsar skemmtilegar uppákomur hafa verið að undanförnu sem miða að því að auka fiskneyslu, svo sem fiskveisla Hátíðar hafsins, Fiskidagurinn á Dalvík og Fiskerí. Allt sem er til þess fallið að vekja athygli og áhuga landans á fiski er af hinu góða. Markmiðið er að gera fiskinn aft- ur að þjóðarrétti Íslendinga á öllum aldri. Borðum öll meiri fisk – hollustunnar vegna Hólmfríður Þorgeirsdóttir fjallar um fiskneyslu » Í ráðleggingum Lýð-heilsustöðvar/ manneldisráðs um mat- aræði er lögð áhersla á að fiskur sé á borðum að minnsta kosti tvisvar í viku sem aðalréttur og gjarnan oftar. Hólmfríður Þorgeirsdóttir Höfundur er verkefnisstjóri næringar hjá Lýðheilsustöð. ÞETTA kemur manni helst í hug eftir að forystumenn LEB, Lands- sambands eldri borgara, voru neyddir til að skrifa undir sam- komulag við stjórnvöld nú fyrir stuttu. Þetta var sama aðferðin og var viðhöfð í viðræðum við stjórnvöld árið 2002. Þá var okkur hótað að ef við skrif- uðum ekki undir fengjum við ann- aðhvort þetta sem skrifað var undir eða ekki neitt. Enda ekki við miklu að búast þar sem sami maður fer með völdin, nú sem forsætisráðherra, en árið 2002, sem fjármálaráðherra. Við eldri borgarar höfum alltaf bundið vonir við að hlustað yrði á óskir okkar um lagfæringar á okk- ar kjörum, því okkar óskir fara al- veg saman við samþykktir Lands- funda Sjálfstæðisflokksins mörg undanfarin ár um leiðréttingar á ellilífeyri og réttlátari skatta. Í bæði skiptin sem viðræðunefnd hefur verið skipuð hafa fulltrúar ríkisstjórnar tilkynnt að ekki megi tala um skatta eða leiðréttingar á ellilífeyri. Svo var árið 2002 og svo var núna í undanförnum viðræðum, í bæði skiptin endar þetta með hót- un að ef þið skrifið ekki undir fáið þið ekki neitt. Það verður ekki annað séð af framkomu stjórnvalda, en að þau telji aldraða ekki eiga neina framtíð, aldraðir eiga bara að halda sig í fortíðinni, enda hefur framtíð okkar eldri borgara aldrei verið svartari en í dag. Við eigum enga framtíð, eigum bara eftir að hverfa úr samtíðinni, ef marka má fram- komu stjórnvalda gagnvart okkur. Þegar við sem erum á eftirlaunaaldri vor- um ung og að hefja störf á vinnumarkaði var þekkt máltæki: heiðra föður þinn og móð- ur og þetta merkti að við ættum að virða eldra fólk að verðleikum, en nú er þetta breytt, nú er það að hundsa skaltu föður þinn og móð- ur, eða ekki virða aldraða viðlits. Þegar sá sem þetta ritar var að fara fyrst út á vinnumarkað þótti honum og hans félögum það hart að verið var að taka af launum ákveðna upphæð sem fór í Al- mannatryggingar ríkisins, og þeg- ar við kvörtuðum fengum við þau svör frá vitrari mönnum að við værum að leggja fyrir til elliár- anna, með þessu værum við að tryggja að við gætum lifað mann- sæmandi lífi síðustu æviár okkar. Svo er okkar ágætu stjórnvöldum fyrir að þakka að þessi lífeyrisinn- eign okkar er nánast engin, við fáum greitt rúmlega tuttugu þús- und krónur á mánuði eftir 50 til 60 ára sparnað allt er þetta skattlagt núna þó svo að við höfum borgað skatt af þessu þegar við greiddum af launum okkar til Almannatrygg- inga. Stjórnvöld stæra sig mikið af því að gerður hafi verið samningur við aldraða sem er raun nauðung- arsamningur, og þar hefði verið hugað að því að bæta kjör hinna lægst launuðu eða verst settu með- al aldraðra, en hver er þessi mikla umhyggja fyrir öldruðum? Hvað fá aldraðir í sinn hlut samkv. þessum nauðungarsamningum? Þeir sem mest fá eða þeir sem hafa ekki aðr- ar tekjur en frá tryggingastofnun fá sem nemur 500 kr. á dag og aðr- ir minna. Þeir sem fá einhverjar tekjur frá lífeyrissjóðum og eru með rúmlega eitt hundrað þúsund krónur á mánuði fá aðeins 100 til 250 krónur á dag eða sem svarar því að þeir geta keypt einn til tvo lítra af mjólk eða bensíni fyrir þessa rausnarlegu hækkun. Er þetta ekki eitthvað fyrir okk- ur aldraða til fagna yfir? Glæsileg framtíð, eða er þetta framtíð? Nokkuð hefur verið talað um að aldraðir bjóði fram sérstaklega í næstu kosningum, því við eigum enga talsmenn innan núverandi stjórnmálaflokka og er það rétt. Stjórnmálamenn tala fagurlega og sérstaklega fyrir kosningar en þeir framkvæma ekkert okkur til hags- bóta. Á fundi í félagi eldri borgara í Kópavogi, fyrir fjórum árum var gerð könnun meðal fundarmanna og þeir spurðir hvort þeir vildu standa að sérframboði aldraðra og var niðurstaða sú að 55% voru fylgjandi sérframboði en 35% mót- fallin. Það er nokkuð öruggt að fylgi er meira nú við sérframboð en var fyrir fjórum árum. Framtíðin hefur aldrei verið svartari Karl Gústaf Ásgrímsson skrifar um lífeyrisréttindi aldraðra Karl Gústaf Ásgrímsson » Svo er okkar ágætustjórnvöldum fyrir að þakka að þessi lífeyr- isinneign okkar er nánast engin … Höfundur er formaður Félags eldri borgara í Kópavogi. : Skóverslun - Kringlunni Sími 553 2888 Opið til kl. 21 í kvöld Teg. 77218 Stærð: 36-41 Litur: Svart og beige Verð: 12.600 Teg. 77600 Stærð: 36-40 Litur: Brúnt Verð: 14.995 Teg. 77064 Stærð: 36-42 Litur: Svart Verð: 17.995 Teg. 77500 Stærð: 36-41 Litur: Svart og brúnt Verð: 14.995 Teg. 77787 Stærð: 35-41 Litur: Svart Verð: 28.950 Ítölsk hönnun Gæðaskór með gelpúðum í hæl Ath! Nýtt kortatímabil

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.