Morgunblaðið - 14.09.2006, Page 50
50 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
EFTIR að ég fór að verða svona önn-
um kafinn hef ég ekki gefið mér tíma í
svona hluti, en við vildum halda upp á
það að við höfum starfað svona lengi
saman og þess vegna förum við af
stað í þetta,“ segir Gunnar Guð-
björnsson óperusöngvari. Hann mun
á næstunni ferðast um landið ásamt
Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara
og halda tónleika.
Gunnar hefur um árabil starfað
sem óperu- og tónleikasöngvari.
Hann hefur mest starfað í Evrópu en
einnig ferðast til Asíu og Bandaríkj-
anna til að syngja. Hann hefur verið
fastráðinn í óperuhúsum í Þýskalandi
og Frakklandi en síðustu árin hefur
hann verið búsettur á Íslandi.
Á efnisskránni í tónleikaferðinni
um landið er hluti af þýskri ljóðadag-
skrá en þar að auki flytja þeir íslensk
sönglög og ítölsk. Fyrstu tónleikarnir
verða í Gömlu höllinni í Vestmanna-
eyjum 16. september nk.
Samstarf Gunnars og Jónasar hef-
ur staðið í um 20 ár. Þeir hafa hljóð-
ritað saman fjölda geisladiska og
komið saman víða á Íslandi en auk
þess hafa þeir flutt tónlist saman víða
erlendis, m.a. í Wigmore Hall í Lond-
on og óperuhúsinu í Wiesbaden í
Þýskalandi.
„Við bjuggum til tvær efnisskrár.
Önnur er opnari í báða enda, meira af
íslenskum lögum og ítölskum en samt
einnig Schubert og Strauss. Þá efnis-
skrá höfum við úti á landi en í Reykja-
vík flytjum við eingöngu Schubert og
Strauss. Sú efnisskrá verður flutt í
Salnum fimmtudaginn 21. septem-
ber,“ segir Gunnar.
Tónleikaferðinni er dreift yfir
nokkurn tíma og gera þeir víðreist um
Norðurland í októberbyrjun. Í milli-
tíðinni heldur Gunnar til Singapore
þar sem hann syngur í Sköpuninni
eftir Haydn með sinfóníuhljómsveit-
inni í Singapore. „Ég hef sungið í
verkinu bæði í Þýskalandi og Svíþjóð
en síðast söng ég það í íþróttaskemm-
unni í Mývatnssveitinni.“
Gunnar heldur einnig nokkra tón-
leika í haust í Þýskalandi auk þess
sem fyrirhugaður er flutningur á
Eddu eftir Jón Leifs í Salnum í októ-
ber og upptaka á tónlistinni í fram-
haldi af því.
Gera víðreist um landið
Morgunblaðið/Jim Smart
Ljúfir tónar Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari mun ferðast um landið
ásamt Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara og halda tónleika á næstunni.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
YFIRLITSSÝNING á verkum
Steinunnar Marteinsdóttur í Lista-
safni Reykjanesbæjar spannar feril
hennar í fjörutíu og fimm ár, frá
1961–2006. Á sýningunni eru ker-
amikverk af mörgum gerðum, olíu-
málverk og myndir unnar með bland-
aðari tækni. Árni Bergmann skrifar
texta sýningarinnar þar sem hann
rekur listferil Steinunnar sem var
meðal þeirra fyrstu til að leggja stund
á keramik á Íslandi. Hann segir frá
því þegar Steinunn hélt sína fyrstu
stórsýningu á Kjarvalsstöðum árið
1975 sem hafi verið tímamót í ferli
hennar og sögu leirlistarinnar og
innihaldið meira en 400 verk. Á þess-
ari sýningu voru m.a. vasar þar sem
Steinunn sótti myndefni sitt til kletta-
belta Esjunnar en á sýningunni nú
má einmitt sjá lágmynd frá 1973 með
sama yrkisefni. Nú hefur Steinunn
tekið aftur upp þetta fjallastef á frá-
bærlega fallega formuðum svart-
hvítum vösum sem bera nöfnin
„Fjallsrúnir“. Þessir vasar ásamt nýj-
ustu leirverkum Steinunnar eru með-
al allra áhugaverðustu verka hennar
á sýningunni og sýna glögglega að
listakonan er í mikilli sókn um þessar
mundir. Aðalsteinn segir að árið 1975
hafi gagnrýnendur verið beggja
blands um þau nýmæli Steinunnar að
flytja landslagsáhrif inn í keramik og
seinna hafi þeir gert vissa fyrirvara
við að leirlistin „gerðist myndlist á
næsta bæ við málverk og skúlptúr“.
Farsælla væri fyrir leirskáld að
leggja stund á hreinræktun forma
ásamt litbrigðum og áferð nytjahluta.
En auðvitað getur keramiklistin boð-
ið upp á myndlistarverk jafnt sem
nytjahluti, munurinn þar á milli enda
óskýr og felst oft í afstöðunni sem
gerð er til hvers listhlutar rétt eins og
í málverkinu. Mikill hluti málverka er
hreinir og klárir nytjahlutir sem eru
framleiddir og verðlagðir sem slíkir.
Á sýningu Steinunnar má enn sjá
þessa togstreitu, en hún birtist skýr-
ast í verðskrá verkanna þar sem mál-
verkin eru verðlögð fjórum sinnum
hærra en glæsilegustu keramikverk
sýningarinnar. Það virðist ákveðin
bending eða uppgjöf fyrir hinum við-
tekna greinarmun milli listgreinanna.
En eins og sést á sýningu Steinunnar
er leirinn, að minnsta kosti í hennar
höndum, mun gjöfulli efniviður til að
túlka landslagsáhrif en málverkið
enda má segja að efniviðurinn sé
jörðin sjálf og þrívíddin hentar tján-
ingunni betur en hið tvívíða form. „Ís-
land er svo keramískt,“ sagði Stein-
unn um árið og eru það orð að sönnu,
ekki síst þar sem hún vinnur með
áferð klettabelta, leirhvera og eld-
fjalla, eða útfærir borðbúnað fyrir
tröllkonur þjóðsagnanna. Það er
kominn tími til, þrátt fyrir að ker-
amik verði alltaf efniviður í nytja-
hluti, að gera greinarmun á meiri-
háttar verkum og minniháttar. Á
sýningu Steinunnar nú eru nokkur
verk sem kalla má meiriháttar, verk
sem geta ekki orðið til nema með ein-
staklega góðri færni og þekkingu á
miðlinum jafnt sem útfærslunni. Það
er vonandi að íslenskir listunnendur
fái að sjá meira eftir Steinunni Mar-
teinsdóttur í nánustu framtíð, hvort
heldur í galleríi hennar og vinnustofu
á Hulduhólum eða listhúsum og lista-
söfnum landsins.
Steinunn Marteinsdóttir „Það er vonandi að íslenskir listunnendur fái að
sjá meira eftir Steinunni Marteinsdóttur í nánustu framtíð.“
Fjallsrúnir
MYNDLIST
Listasafn Reykjanesbæjar
Sýningin stendur til 15. september.
Opið alla daga frá kl. 13–17.30.
Steinunn Marteinsdóttir
Þóra Þórisdóttir
Mr. Skallagrímsson
- leiksýning Landnámssetri í Borgarnesi
Höfundur/leikari: Benedikt Erlingsson
Leikstjóri: Peter Engkvist
LEIKHÚSTILBOÐ:
Tvíréttaður kvöldverður og
leikhúsmiði frá kr. 4300 - 4800
TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM
frá kl. 10 til 16 mánudaga - fimmtudaga
í síma 437 1600. Staðfesta þarf miða með
greiðslu viku fyrir sýningardag
Föstudagur 15/9 kl. 20 Uppselt
Laugardagur 16/9 kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 17/9 kl. 20 Uppselt
Laugardagur 23/9 kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 24/9 kl. 16 Uppselt
Miðvikudagur 27/9 kl. 20 Laus sæti
Fimmtudagur 28/9 kl.20 Laus sæti
Fimmtudagur 5/10 kl. 20 Laus sæti
Föstudagur 6/10 kl. 20 Laus sæti
Laugardagur 7/10 kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 8/10 kl. 20 Örfá sæti
Fimmtudagur 12/10 kl. 20 Laus sæti
Föstudagur 13/10 kl. 20 Laus sæti
Laugardagur 14/10 kl. 20 Örfá sæti
Sunnudagur 15/10 kl. 20 Laus sæti
Fimmtudagur 19/10 kl. 20 Laus sæti
Föstudagur 20/10 kl. 20 Laus sæti
Laugardagur 21/10 kl. 20 Laus sæti
Sunnudagur 22/10 kl. 20 Laus sæti
Fimmtudagur 26/10 kl. 20 Síð. sýn. á árinu
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga.
Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn.
BROTTNÁMIÐ ÚR KVENNABÚRINU - eftir W. A. Mozart
Frumsýning fös. 29. sep. kl. 20
2. sýn. sun. 1.okt. kl. 20 – 3. sýn. fös. 6. okt. kl. 20 – 4. sýn. sun. 8. okt . kl. 20
5. sýn. fös. 13. okt. kl. 20 - 6. sýn. sun. 15. okt. kl. 20
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
Kynning fyrir sýningu í boði Vinafélags íslensku óperunnar kl. 19.15
Námskeið um Mozart og Brottnámið úr kvennabúrinu hjá
EHÍ hefst 3. október. Skráning í síma 525 4444 – endurmenntun@hi.is
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Sun 24/9 kl. 14 Lau 30/9 kl. 14
Sun 1/10 kl. 14 Sun 8/10 kl. 14
VILTU FINNA MILLJÓN?
Sun 24/9 kl. 20 Lau 30/9 kl. 20
Fös 6/10 kl. 20 Sun 15/10 kl. 20
FOOTLOOSE
Fös 22/9 kl. 20 Lau 23/9 kl. 20
Fim 28/9 kl. 20 Fös 29/9 kl. 20
ALLIR Í LEIKHÚSIÐ
Börn 12 ára og yngri fá frítt í Borgar-
leikhúsið í fylgd með forráðamönnum.
Nánari uppl. á www.borgarleikhus.is
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ
GERAST ÁSKRIFANDI
Áskriftarkort á 5 sýningar á 9.900.
Þeir sem gerast áskrifendur fyrir 20.sept.
fá gjafakort í Borgarleikhúsið í kaupbæti.
Nánari uppl. á www.borgarleikhus.is
PINA BAUSCH
LOKSINS Á ÍSLANDI!
Dansleikhúsið frá Wuppertal undir stjórn
Pinu Bausch verður með 4 sýningar á
verkinu Água í Borgarleikhúsinu.
Sun 17/9 kl. 20 UPPS.
Mán 18/9 kl. 20
Þri 19/9 kl. 20
Mið 20/9 kl. 20
Aðeins þessar 4 sýningar.
Miðaverð 4.900. MIÐASALA HAFIN.
MEIN KAMPF
Lau 23/9 frumsýning UPPS.
Mið 27/9 kl. 20 UPPS.
Fös 29/9 kl. 20
MIÐASALA HAFIN.
ÁSKRIFTARKORT
Endurnýjun áskrftarkorta stendur yfir!
Mein Kampf e. George Tabori
Amadeus e. Peter Shaffer
Fagra veröld e. Anthony Neilson
Dagur vonar e. Birgi Sigurðsson
Söngleikurinn Grettir e. Ólaf Hauk Símonar-
son, Þórarinn Eldjárn og Egil Ólafsson.
Lík í óskilum e. Anthony Neilson
Ronja ræningjadóttir e. Astrid Lindgren
Viltu finna milljón? e. Ray Cooney.
Belgíska Kongó e. Braga Ólafsson
Íslenski dansflokkurinn
og margt, margt fleira.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
6
5
7
„EKKI HUGSA.
DANSAÐU!“
Miðasala 568 8000 www.id.is
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN
Kortasala hafin!
Áskriftarkort er ávísun á góðan vetur. Vertu með!
Litla hryllingsbúðin – síðustu aukasýningar
Fim 14. sept kl. 20 Ný aukasýn. í sölu núna!
Fös 15. sept kl. 19 UPPSELT
Lau 16. sept kl. 19 UPPSELT – síðasta sýning
Leikhúsferð með LA til London
Expressferdir.is - 5000 kr. afsláttur fyrir kortagesti.
Karíus og Baktus – sala hafin.
Lau 23. sept kl. 14 Frumsýning UPPSELT
Lau 23. sept kl. 15 Sun 24. sept kl. 14 og 15
Lau 30. sept kl. 14 Sun 1. okt kl. 14
www.leikfelag.is
4 600 200
Frumsýning 15. september uppselt
2. sýning 16. september örfá sæti laus
3. sýning 22. september
4. sýning 23. september
L I S T V I N A F É L A G
H A L L G R Í M S K I R K J U
24. starfsár
Stuttir hádegis-
tónleikar
með kynningum
laugardaginn
16. september kl.12
Björn Steinar Sólbergsson leikur.
Ókeypis aðgangur fyrir
listvini, börn og nemendur
undir 26 ára aldri.
Kaffisala í suðursal að
tónleikunum loknum.
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Í HALLGRÍMSKIRKJU s. 510 1000.
Glæsileg orgeltónlist
frá „Belle epoque“
tímabilinu