Morgunblaðið - 14.09.2006, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 14.09.2006, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 57 Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Hvernig áttu að fara að því að tryggja ódauðleika þinn í hjarta einhvers? Þú sérð ekki eftir því að vera skapandi í nánum samböndum, sama hvernig und- irtektirnar verða. Naut (20. apríl - 20. maí)  Viðureignin hefur margar lotur og stigin eru ekki talin fyrr en bjallan glymur í síðasta sinn. Gefðu þér einkunn jafn- óðum. Sjálfsmat þitt verður mun þýð- ingarmeira en skoðanir annarra. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Tvíburinn er akkúrat þar sem hann þarf að vera. Trúðu því djúpt innra með þér. Rólyndi þitt hjálpar þér til þess að fást við milljónir smáatriða. Meyja kemur þér til hjálpar. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Framsýnihæfileikar krabbans eru í hæsta gír. Hvernig áttu að fara að því að útvega peninga til þess að gera allt sem þú sérð fyrir þér að veruleika? Haltu þínu striki, eins og þú sért þegar kom- inn með fé. Kraftaverkin gerast enn. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þroski felur það meðal annars í sér að fara eins hægt og þarf til þess að maður geti verið viss um hvert skref. Leyfðu samböndum þínum að þróast eðlilega. Leyfðu því sem þú skapar að gerjast áð- ur en þú setur það á markað. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Meyjan verður hissa þegar hún upp- götvar að vinir sem hún hefur átt um langt skeið virðast ekki muna hvar hún fæddist eða kunna að skrifa nafnið hennar rétt. Líttu á það sem tækifæri til þess að segja þína heillandi sögu frá upphafi. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Tilfinningar valda misskilningi víða í dag, en ekki hjá voginni. Notaðu innsæi þitt til þess að stjórna og beina tilfinn- ingunum í þá átt að skapa betri framtíð fyrir þig og ástvini þína. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Svo virðist sem sporðdrekinn lifi fyrir aðdáun þeirra sem hann dáist að, í seinni tíð. En þannig er það ekki. Þú getur endurheimt vald þitt hvenær sem er og ákveðið að láta þér líða eins og þér hentar, sama hvernig aðrir hegða sér. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Letin hefur á sér illt orð. En maður get- ur verið latur án þess að vera iðjulaus. Ef metnaður þinn kemur þér ekkert áleiðis, er kominn tími til þess að hægja aðeins á ferðinni. Vittu til, hvort þú kemur ekki tíu sinnum meiru í verk. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Skarpskyggni steingeitarinnar hjálpar henni við að greiða flækjurnar í einkalífi sínu. Gefðu eftir í litlu málunum og haltu þínu striki í þeim stóru. Einhver sem reiðir sig óþarflega mikið á þig lærir að hugsa um sig sjálfur. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Fagnaðu félagslyndinu í sjálfum þér, það á eftir að gera kraftaverk í við- skiptum og fjármálum að styrkja tengsl- anetið. Samband sem er þér kært nýtur góðs af yndislegri uppgötvun í kvöld. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Sambönd verða fyrir truflunum. Bæld sjálfstjáning kveikir eld sköpunarinnar innra með þér. Spilltu sjálfum þér og láttu eftir þér að láta ekki fundi íþyngja þér. Gerðu það sem þér sýnist. stjörnuspá Holiday Mathis Skemmtilegri manneskju, leiðist ekki neitt. Þó að maður sé ekki í sérlega góðu skapi gerist eitthvað skemmtilegt í dag sem verður gaman að segja frá á næstu vikum. Afstaða milli Merkúrs og Mars gerir að verkum að samkoma sem að jafnaði væri litlaus verður þróttmikil og viðburðarík. hef þurft að ganga í gegnum,“ segir söngkonan. Þá segir Fergie – sem heitir réttu nafni Stacey Ferguson — að það að leika hafi hjálpað til við að bæla fíknina. Fergie, sem nú er 31 árs, var að gefa út sína fyrstu plötu, The Dutchess.    Breska rokksveitin Arctic Mon-keys varð fyrsta hljómsveitin til að hagnýta sér undramátt nets- ins til fullnustu, en fólk í þús- undatali var farið að syngja með í lögum sveitarinnar á tónleikum, og ekkert hafði enn komið út með sveitinni. Góð nýting á myspace vefsetrinu olli því að tugþúsundir biðu í ofvæni eftir fyrstu breiðskífu sveitarinnar. Hún landaði svo samningi við hið virta neðanjarð- arfyrirtæki Domino, platan fyrsta, Whatever People Say I Am, That’s What I’m Not seldist í hundruðum þúsunda eintaka og Mercury verð- launin voru auk þess dregin í land fyrir stuttu. Reyndar seldist platan í 360.000 eintökum fyrstu vikuna er hún kom út, met sem enn stendur. Og þá er það „erfiða plata númer 2“, en stefnt er á að hún komi út í ársbyrjun 2007. Lögin ku vera skrifuð og næst er bara að smella sér í hljóðver og rúlla snilldinni inn á band. Leiðtoginn, Alex Turner, sem er rétt skriðinn yfir tvítugt, segir að lögin telji um fjórtán stykki. Þau séu komin mislangt á veg en hljóðversvinna hefjist í næsta mánuði. Bresku kvikmynda-gerðarmennirnir sem standa á bak við myndina Death of a President – sem fjallar um morð á núverandi forseta Bandaríkjanna, George Bush – hafa nú fengið líflátshótanir. Þeirra er nú gætt af öryggisvörslumönnum á kvikmyndahátíðinni í Toronto, þar sem þeir eru nú staddir. Myndin var frumsýnd síðastlið- inn sunnudag og var mikil örygg- isgæsla meðan á sýningunni stóð. Myndin fékk misjafnar viðtökur, en tölvutækni er notuð til að sýna George Bush myrtan af byssumanni. Það kemur ekki á óvart að Fox-stöðin bandaríska var yf- irmáta hneyksluð yfir því að fólki dytti svona lagað í hug. Kvik- myndagerðarmennirnir segja að myndin sé gagnrýni og hugleiðing um áhrif hins svokall- aða „stríðs gegn hryðjuverkum“ og hvernig réttindi banda- rískra þegna hafa verið skert. Myndin er sú nýjasta í röð ágengra og umdeildra heimild- armynda frá Bretlandi, sem hamast mikið gegn Bush/Blair-öxulveldinu. ÁRLEGUR haustmarkaður Kristni- boðssambandsins verður laugardag- inn 16. september kl. 13–16, í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28 í Reykjavík, og standa konur í Kristniboðsfélagi kvenna fyrir markaðnum. Til sölu verður ýmiss konar grænmeti, ávextir, ber o.fl. eftir því hvað kristniboðsvinir og aðrir velunnarar leggja fram af upp- skeru sumarsins, og einnig kökur, blóm og gjafavara. Ágóðinn af markaðnum rennur til kristniboðsstarfsins í Eþíópíu og Kenýu. Þar eru nú sjö íslenskir kristniboðar að störfum á vegum Kristniboðssambandsins, segir í fréttatilkynningu. Morgunblaðið/Þorkell Haustmarkaður Kristniboðssambandsins NEMENDUR og starfsfólk Borg- arholtsskóla halda tónleika í Graf- arvogskirkju í kvöld, fimmtudaginn 14. september kl. 20, til styrktar byggingar skóla í þorpinu Jar- anwala í Pakistan. Þeir sem fram koma eru Bogomil Font og Flís, Ell- en Kristjánsdóttir og Eyþór Gunn- arsson, Benni Hemm Hemm, Mr. Silla og Mongoose og Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson. Allir listamennirnir gefa vinnu sína. Miðaverð er 1000 kr. og rennur ágóði óskiptur til skólabygging- arinnar. Forsala aðgöngumiða er í 12 tónum, Grafarvogskirkju og Borgarholtsskóla. Einnig verða seldir miðar við innganginn. Íbúar þorpsins Jaranwala í Pakistan njóta góðs af afrakstri tónleikanna. Tónleikar í Grafar- vogskirkju Þann 11.september 2001 var fjórum flugvélum rænt. Þrjár þeirra flugu á skotmörk sín. Þetta er saga fjórðu vélarinnar. GEGGJUÐ GRÍNMYND Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna eeee Tommi - Kvikmyndir.is FRAMLEIDD AF TOM HANKS. FRÁBÆR OG FJÖRUG STAFRÆN TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖL- SKYLDUNA. „the ant bully“ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI. með Owen Wilson (Wedding Crashers) sem fer á kostum, ásamt Kate Hudson, Matt Dillon og Michael Douglas. eeee HJ, MBL eeeee LIB - topp5.is “ógleymanleg og mögnuð upplifun sem mun láta engan ósnortinn” eeee MMJ. Kvikmyndir.com "STÓRKOSTLEG MYND" STEP UP kl. 4 - 6:10 - 8 - 10:10 leyfð STEP UP VIP kl. 5:05 - 8 - 10:10 leyfð UNITED 93 kl. 5:45 - 8 - 10:20 B.i. 14 YOU, ME AND DUPREE kl. 5:45 - 8 - 10:20 leyfð LADY IN THE WATER kl. 6:15 - 8:20 - 10:30 B.i. 12 STEP UP kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 7 LADY IN THE WATER kl. 8:10 - 10:30 B.i. 12 DIGITAL PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 10 B.i. 12 DIGITAL MAURAHRELLIRINN Ísl. tal. kl. 6 Enskt tal kl. 6 - 8 leyfð MAURAHRELLIRINN Ísl tal. kl. 4 - 6 leyfð PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 8:20 B.i. 12 BÍLAR Ísl tal. kl. 4 leyfð OVER THE HEDGE Ísl tal. kl. 3:50 leyfð 5 CHILDREN AND IT Enskt tal kl. 3:50 leyfð / KRINGLAN/ ÁLFABAKKI eee S.V. - MBL eee V.J.V - TOPP5.IS eeeee blaðiðeee L.I.B. Topp5.is eee S.V. Mbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.