Morgunblaðið - 14.09.2006, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 14.09.2006, Blaðsíða 60
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 257. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Austlæg átt, 5– 13 m/s. Hvassast syðst. Skýjað m/ köflum SV- og V- lands. Annars skýjað. Rign- ing SA- og A-lands. » 8 Heitast Kaldast 15°C 9°C ÞÖRF er á endurnýjun á upplýsingatækni- markaði að mati Frosta Bergssonar, fyrr- verandi stjórnarformanns Opinna kerfa, en hann hefur, ásamt Símanum hf., gengið til liðs við upplýsingafyrirtækið Titan ehf., sem ætlað er að taka til starfa á næstu vikum. Eins og Morgunblaðið hefur áður sagt frá höfðu nokkrir lykilstarfsmenn Opinna kerfa frumkvæði að stofnun Titan og er gert ráð fyrir að þeir, ásamt fleira starfsfólki, muni eiga þriðjungshlut á móti Frosta og Síman- um í nýja fyrirtækinu. Óöryggi meðal starfsmanna Frosti Bergsson segist hafa komist að þeirri niðurstöðu, að vel athuguðu máli, að þörf væri á endurnýjun á þessum markaði og tækifæri væru nú fyrir hendi til að byggja upp öflugt fyrirtæki sem sérhæfði sig í að sinna þörfum stærri viðskiptavina hér heima og erlendis. „Vegna mikilla breytinga á eign- arhaldi Opinna kerfa undanfarin ár hefur skapast óánægja meðal þýðingarmikilla við- skiptavina félagsins og það hefur síðan vald- ið ákveðnu óöryggi meðal starfsmanna. Mér rennur til rifja að sjá gamla fyrirtækið mitt í slíkri stöðu og því ákvað ég að ganga til sam- starfs við þessa gömlu félaga mína,“ segir Frosti. Orri Hauksson, framkvæmdastjóri hjá Símanum, segir að Síminn hafi þegar gert endursölusamning um kaup á búnaði og þjónustu af Titan og í ljósi þess sé áhugavert fyrir Símann að fjárfesta í félaginu. Í næstu viku mun Titan auglýsa eftir starfsfólki og samningar um húsnæði hins nýja fyrirtækis eru á lokastigi. | Viðskipti Segir óánægju meðal við- skiptavina Opinna kerfa Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is NÆRRI 1.300 ökutæki hafa mælst á yfir 150 km hraða á vissum stöðum á þjóðvegunum í sumar, samkvæmt upplýsingum sem Vegagerðin hefur aflað með sérhönnuðum umferðar- greinum. 1.264 ökutæki voru á yfir 150 km hraða í Ártúnsbrekku, við Esjumela og í Langadal. Þar af voru 69 ökutæki sem óku á meira en 200 km hraða í Ártúnsbrekkunni og 36 voru á sama hraða í Langadalnum. Þetta þýðir að einungis á þessum tveim umræddu stöðum fóru 105 ökutæki yfir 200 km hraða í sumar. Bara við Esjumela mældust 1.159 ökutæki á yfir 150 km hraða. Vert er að geta þess að um bráðabirgða- tölur er að ræða. Umferðarstofa blæs til sóknar gegn hraðakstri og umferðarslysum með fundaherferð í dag undir kjör- orðinu: „Nú segjum við stopp“. Talsmaður Umferðarstofu, Einar Magnús Magnússon, segir að af þeim 19 mannslífum sem umferðin hefur kostað í sumar, hafi átta lífum verið fórnað fyrir fífldirfsku og leik- araskap. Á annað hundrað öku- tæki yfir 200 km hraða Ofsaaksturinn á vegunum stundaður af rúmlega eitt þúsund bílum í sumar  Ofsaaksturinn | 6 Fagleg oglögleg þjónusta í boði Löggilt menntun snyrtifræðinga, í Félagi íslenskra snyrti- fræðinga, tryggir viðskiptavinum faglega ráðgjöf og sérhæfða meðhöndlun andlits og líkama með heilbrigði og vellíðan að leiðarljósi - og þá er að finna á Meistarinn.is og dekur Hollusta í dagsins önn HÓPUR lögreglumanna og nema úr Lögregluskólanum tók sundsprett á Viðeyjarsundi í gær. „Það var svo mikill öldugangur að menn hurfu eiginlega sjónum þegar þeir fóru í öldudalina. Það hefur aldrei verið synt í svona vondu veðri áður,“ segir Eiríkur Óskar Jónsson, einn lög- reglumannanna. Hann segir að sundið hafi gengið vel þrátt fyrir veðrið, sjávarhiti hafi verið 10,2 gráður, og tveir bátar hafi fylgt sundmönnum. Morgunblaðið/Júlíus Syntu hálfa leið frá Viðey ÞEGAR hafa um 70 skemmtiferðaskip boðað komu sína hingað til lands næsta sumar, að sögn Ágústs Ágústssonar, markaðsstjóra Faxaflóahafna. Hann seg- ir líklegt að skipakomurnar verði fleiri en það, enda verði tekið við bókunum fram á næsta vor. „Við erum að markaðs- setja okkur og reyna að segja frá því hvað hægt sé að gera hérna,“ segir Ágúst um siglingar skemmtiferðaskipanna. Í sumar koma hingað alls um 75 skemmtiferðaskip, en það síðasta leggst að bryggju í Reykjavík 30. september næstkomandi. | 20 70 skemmti- ferðaskip boð- að komu sína Morgunblaðið/ÞÖK ♦♦♦ Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is SAMFYLKINGIN vill að gerð verði rammaáætlun um náttúru- vernd sem taki til allra náttúru- svæða landsins og að frekari ákvörðunum um stóriðju verði frestað þangað til fyrir liggur nauðsynleg heildarsýn yfir verð- mæt náttúrusvæði Íslands og verndun þeirra hefur verið tryggð. komið að því að stokka spilin upp á nýtt og gefa náttúrunni forgang. Samfylkingin vill einnig að heim- ild til að veita rannsóknar- og nýt- ingarleyfi vegna virkjanaáforma verði færð frá iðnaðarráðherra til Alþingis meðan á gerð rammaáætl- unar stendur og ákvörðun um nýt- ingu losunarheimilda samkvæmt Kyoto-bókuninni verði hjá Alþingi. lögur um að líta á náttúruvernd og umhverfisvernd á forsendum nátt- úrugæðanna, en ekki á forsendum virkjana og stóriðju, sem hefur verið alltof ríkur þáttur í stefnu- mótun stjórnvalda þegar kemur að þessum málaflokki,“ sagði hún. Rannsóknarleyfi til Alþingis Ingibjörg sagði að stóriðjan hefði notið slíks forgangs á Íslandi á undanförnum áratug að nú væri Þetta getur þýtt frestun stór- iðjuframkvæmda um allt að fimm ár, að því er fram kom hjá Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur, for- manni Samfylkingarinnar, á blaða- mannafundi í gær þar sem ný stefna í umhverfis- og náttúru- verndarmálum var kynnt. „Ég legg á það ríka áherslu að þessar tillögur sem við erum að kynna hér eru tillögur um náttúru- og umhverfisvernd. Þetta eru til- Vilja fresta frekari stóriðju  Tími til | 14 Í HNOTSKURN » Í ár hafa nítján manns lát-ist í umferðinni, þriðj- ungur þeirra í ágústmánuði. » Átak Umferðarstofu á aðvekja fólk til umhugsunar um þá öldu umferðarslysa sem gengið hefur yfir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.