Morgunblaðið - 27.09.2006, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
Yf i r l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 24
Veður 8 Umræðan 26/29
Staksteinar 8 Bréf 29
Erlent 16 Minningar 30/34
Viðskipti 15 Myndasögur 40
Höfuðborgin 18 Dagbók 4242/43
Akureyri 18 Staður og stund
44/45
Suðurnes 19 Leikhús 45
Daglegt líf 20/23 Bíó 42/45
Menning 17 Ljósvakamiðlar 46
* * *
Innlent
Forystumenn stjórnarflokkanna
kynntu í gær samkomulag um nið-
urstöðu viðræðna um varnarmál við
bandarísk stjórnvöld. Samkvæmt
samkomulaginu verða varnir Íslands
tryggðar með svokölluðum hreyf-
anlegum herstyrk, sem kæmi í stað
fastrar viðveru Bandaríkjahers hér
á landi. » 10
Valgerður Sverrisdóttir utanrík-
isráðherra sagði í ræðu á allsherj-
arþingi Sameinuðu þjóðanna í gær
að framlög íslenskra stjórnvalda til
þróunarsamvinnu myndu nær þre-
faldast á næstu þremur árum og
aukast frekar árin á eftir. Mark-
miðið er að ná takmarki SÞ – 0,7% af
vergum þjóðartekjum. » 1
Íslensk erfðagreining hefur
höfðað mál í Bandaríkjunum á hend-
ur fimm fyrrverandi starfsmönnum
fyrirtækisins og Barnaspítala Fíla-
delfíuborgar fyrir stuld og misnotk-
un á eigum félagsins og ýmis brot á
ráðningarsamningum. » 4
Félagsmálaráðuneytinu hefur
verið falið að undirbúa lagabreyt-
ingu sem felur í sér að Íbúðalána-
sjóði verði heimilt að koma á fót fjár-
mögnunarkerfi á heildsölustigi og að
það verði rekið sem sjálfstæð rekstr-
areining innan Íbúðalánasjóðs. » 1
Mikill mannfjöldi, eða tíu til tólf
þúsund manns, tók þátt í mótmæla-
göngu gegn Kárahnjúkavirkjun nið-
ur Laugaveg og að Austurvelli í
gærkvöldi. Fjölmargir komu einnig
saman á Ráðhústorginu á Akureyri
til að mótmæla virkjuninni. » 48
Erlent
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins tilkynnti í gær að Búlgaría
og Rúmenía gætu fengið aðild að
sambandinu um áramótin en með
ströngustu skilyrðum sem sett hafa
verið til þessa fyrir inngöngu í sam-
bandið. » 16
George W. Bush Bandaríkja-
forseti sagði í gær að það væri
„barnalegt“ að draga þá ályktun að
stríðið í Írak hefði aukið hryðju-
verkaógnina í heiminum. „Mat mitt
er að [hryðjuverkamennirnir]
myndu finna einhverja aðra afsökun
ef við værum ekki í Írak,“ sagði
Bush. » 1
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, flutti ræðu á síðasta
flokksþingi sínu sem leiðtogi Verka-
mannaflokksins, en hann hyggst
draga sig í hlé á næsta ári. Forsætis-
ráðherranum var ákaft fagnað, eink-
um í lok ræðunnar. » 16
SLÖKKT verður á götuljósum í
öllum sveitarfélögum frá Reykja-
nesi og upp á Akranes milli klukk-
an 22 og 22.30 á morgun í tengslum
við upphaf Alþjóðlegrar kvik-
myndahátíðar í Reykjavík. Að
sögn Andra Snæs Magnasonar rit-
höfundar, sem átti frumkvæði að
myrkvuninni, var ákvörðun tekin
um það í Reykjanesbæ og á Akra-
nesi á mánudag að þau myndu slást
í hóp sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu, sem ætla að slökkva á
götuljósum sínum á morgun.
Andri segir að myrkvunin hafi
verið mjög vel skipulögð og und-
irbúin og öll lögregluumdæmi á
svæðinu hafi tekið þátt í henni.
Líta megi á myrkvunina sem stór-
an gjörning og segja megi að hún
sé eins og ein myndin á kvik-
myndahátíðinni. „Það er alveg
frumsýningarskrekkur í mér,“
segir Andri Snær.
Hann bendir á að myrkvunin
fari fram á forvarnadegi fjölskyld-
unnar sem forsetaembættið hafi
átt frumkvæði að. Fólk sé því hvatt
til þess að vera heima hjá sér og
njóta myrkursins þar með sínum
nánustu. Fólk sé jafnframt hvatt til
þess að slökkva ljósin heima hjá
sér.
Myrkursins verði langbest notið
í heiðskíru veðri en samkvæmt
veðurspá Veðurstofu Íslands er út-
lit fyrir að skil gangi yfir landið á
morgun og að fram eftir kvöldi
verði fremur skýjað og þungbúið
veður. Andri segir að þótt ekki
verði heiðskírt sé um að gera að
njóta myrkursins. „Það eru margir
sem hafa ekki séð hvernig heim-
urinn lítur út og umhverfi okkar,“
segir hann. Þá ætli Þorsteinn Sæ-
mundsson að lýsa himninum fyrir
fólki í beinni útsendingu á Rás 2.
„Ef skilyrði verða eins og best
verður á kosið ættu menn að fara
út með lítið vasaútvarp og teppi og
leggjast út í garð og hlusta á lýs-
inguna.“
Myrkur um borg og bý
Götuljós víða slökkt annað kvöld í
tengslum við kvikmyndahátíð
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ljós og myrkur Rauð og græn norðurljós yfir Bláfjöllum.
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
FORMAÐUR veiðifélags Þingvalla-
vatns, Jóhannes Sveinbjörnsson, tel-
ur það algerlega siðlaust að stunda
urriðaveiðar í vatninu með rafeinda-
fiskisjá og telur athugunarefni hvort
veiðifélagið eigi ekki að setja reglur
um veiðiaðferðir.
„Það fer að verða spurning hvort
setja þurfi sérstakar reglur sem
banni notkun á tækni sem þessari,“
bendir hann á. „Það hefur verið reynt
að styrkja urriðastofninn í vatninu á
síðustu árum með því að taka fisk úr
vatninu og klekja út hrognum í klak-
stöð og sleppa seiðunum aftur í vatn-
ið. Það hefur verið kostað töluverðu
til, bæði fé og fyrirhöfn, og hefur
þetta verið styrkt m.a. af Landsvirkj-
un og unnið í samvinnu við Veiðimála-
stofnun og veiðifélag Þingvallavatns.
Þetta er gert í þeim tilgangi að efla
sportveiðimennsku í þeirri mynd sem
við þekkjum hana. Það er alger óhæfa
að menn skuli stunda magnveiðar. Að
veiða með fiskileitartækjum er ekki
það sem venjulegt fólk myndi álíta
sportveiðimennsku. Það er siðlaust og
væri eins og að fara til rjúpna með
ljóskastara og hríðskotabyssu.“
Veiðifélagið hefur fengið einhvern
ávæning af veiði með fiskileitartækj-
um en ekki fengið beinar tilkynningar
eða kvartanir vegna slíks veiðiskapar
og því hefur ekki verið brugðist við
með beinum hætti. Á hinn bóginn hef-
ur verið kvartað undan veiðimönnum
í heimildarleysi í vatninu og hefur
veiðifélagið brugðist við því að sögn
Jóhannesar.
„En það voru einhverjar fregnir
fyrir allnokkrum árum um að menn
væru að veiða með aðferðum í líkingu
við veiðar með fiskileitartækjum. Þá
var það umráðamaður lands sem tók
á því. Mín afstaða er sú að þetta sé al-
gerlega siðlaust.“
Telur leitartæki á urriðann
algert siðleysi í veiðiskap
Í HNOTSKURN
»Upplýsingar hafa boristum að fiskileitartæki hafi
einnig verið beitt á fisklausu
veiðisvæði í Blöndu í sumar.
»Kastað var út litlum sónarsem fann tvo fiska og sýndi
árangurinn á skjá á armbands-
úri veiðimanns sem kastaði
öngli fyrir fiskana á hár-
réttum stað og náði báðum.
»Fiskileitartæki kostanokkur hundruð dollara í
Bandaríkjunum og eru mjög
áhrifarík.
HAUSTIÐ er búið að vera mjög gott á Siglufirði eftir
frekar rysjótt sumar, að því er séra Sigurður Ægis-
son, sóknarprestur á Siglufirði, segir. Það er búið að
vera mikið um stillur og því geta bæði menn og mál-
leysingjar speglað sig í vatninu. Það er a.m.k. engu
líkara en þessi stokkandarsteggur hafi verið að
skoða sjálfan sig. Hann er dálítið óásjálegur, greyið,
enda að koma úr felubúningi. En þegar tilhugalífið
byrjar, innan skamms, verður bringan rauðbrún að
lit, hálskraginn alhvítur og höfuðið fagurgrænt,
sem getur þó farið út í blá litbrigði við ákveðin
birtuskilyrði.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Hauststemning á Siglufirði
Egilsstaðir | Á fundi bæjarráðs Fljótsdalshér-
aðs sl. mánudag var rætt um rýmingaráætlun
neðan Kárahnjúkastíflu. Þar kom fram að á
vegum bæjarstjórnar er búið að taka saman
upplýsingar um alla íbúa á þessu svæði, ásamt
heima- og símanúmerum þeirra, sem verður
komið fyrir í stjórnstöð almannavarnanefndar
og sent Landsvirkjun. Þá hafi borist upplýs-
ingar um að uppsetningu á gsm-símkerfi á um-
ræddu áhættusvæði ljúki í þessari viku.
Formlegt samstarf almannavarnadeildar
ríkislögreglustjóra og almannavarnanefndar
Fljótsdalshéraðs og Borgarfjarðar eystra,
vegna viðbragðsáætlunar við hugsanlegu rofi
stíflna við Kárahnjúkavirkjun er hafið og
stefnt að því að fyrstu drög verði tilbúin í byrj-
un næsta árs. Áætlunin verði svo tilbúin í apríl
eða maí á næsta ári.
Gert er ráð fyrir því að haldin verði æfing í
beinu framhaldi af útgáfu rýmingaráætlunar-
innar. Samstarf verður haft við lögreglu,
slökkvilið, björgunarsveitir, Rauða krossinn,
heilbrigðisþjónustu, Vegagerðina, Neyðarlín-
una og fleiri aðila við gerð viðbragðsáætlunar-
innar.
Rýmingar-
áætlun í vinnslu
íþróttir miðvikudagur 27.9. 2006
íþróttir mbl.is
Birgir er ánægður með golfvöllinn í Kasakstan >> 2
ÞRUMUFLEYGUR SAHA
FERGUSON KOM FRAM HEFNDUM Í LISSABON -
RAÚL BÆTIR ENN EIGIÐ MARKAMET » 2
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
„Við skiljum að ný stjórn velji sér
samstarfsmann og við skiljum því við
ÍA með góðu. Það var alltaf ljóst að
við værum ekki í myndinni hjá þeim
aðilum sem tóku við stjórnartaumum
félagsins í gær. Við erum ánægðir
með að hafa fengið skýr svör frá
Gísla Gíslasyni, formanni félagsins,
og við getum því farið að snúa okkur
að öðru,“ sagði Bjarki en hann telur
að Skagaliðið eigi eftir að eflast í
nánustu framtíð.
„Framtíðin er björt á Akranesi og
með nýrri aðstöðu á félagið eftir að
eflast enn frekar,“ sagði Bjarki en
heimildir Morgunblaðsins herma að
Guðjón Þórðarson verði kynntur til
sögunar sem nýr þjálfari liðsins á
næstu dögum.
„Ég veit ekkert meira en hver
annar en Guðjón er líklegasti kost-
urinn í stöðunni sem er komin upp.“
Spurður hvort það væri útilokað að
þeir bræður héldu áfram að leika á
Akranesi sagði Bjarki.
„Ég er í þannig ástandi líkamlega
að ég get ekki æft af krafti og ég
reyndi að koma mér af stað með KR.
Teitur Þórðarson, þjálfari KR, taldi
sig ekki getað notað mig þar sem ég
æfði ekki af krafti. Ég held að það
sama verði uppi á teningnum hjá
Guðjóni. Ég skil alveg slík sjónar-
mið. Við munum hins vegar ekki
leika með Skaganum á næsta ári –
það væri bara kjánalegt að gera
það.“
Ætlum ekki í þjálfun
Bjarki bætti því við að þjálfara-
starf væri ekki efst á óskalistanum
hjá þeim þessa stundina.
„Við bræðurnir vorum búnir að
skrá okkur á þjálfaranámskeið um
næstu helgi ef eitthvert framhald
yrði á þessu hjá okkur á Akranesi. Af
því verður ekki og við eigum ekki
von á því að fara að þjálfa á næstu
leiktíð. Það var óneitanlega gaman á
þessu tímabili sem var mjög sér-
stakt. Ég ætlaði ekkert að spila sjálf-
ur en endaði síðan sem leikmaður og
þjálfari ÍA. Við höfum verið að grín-
ast með það að loksins hafi þjálfarinn
skilið okkur sem leikmenn og af
þeim sökum gátum við leikið eins
mikið og við gerðum,“ sagði Bjarki
Gunnlaugsson, fyrrum leikmaður og
þjálfari ÍA.
Tvíburarnir á
förum frá ÍA
TVÍBURABRÆÐURNIR Arnar og
Bjarki Gunnlaugssynir verða ekki
áfram í herbúðum ÍA á næsta ári.
Þeir léku með liðinu í sumar og
tóku síðan við þjálfun liðsins hinn
30. júní af Ólafi Þórðarsyni þegar
iðið var í fallsæti. Liðið endaði í 6.
sæti í Landsbankadeildinni.
Bjarki sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að nýr formaður
rekstrarfélags mfl. karla, Gísli
Gíslason, hefði rætt við þá bræður í
gær og tjáð þeim að ný stjórn fé-
agsins ætlaði að ráða nýjan þjálf-
ara. Bjarki segir að þeir bræður
skilji við Akranesliðið í góðu og
þeir voni að liðinu gangi sem best.
Guðjón Þórðarson líklegur arftaki
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
Flest bendir nú þess að Ólafur Þórð-
arson verði næsti þjálfari úrvals-
deildarliðs Fram í knattspyrnu í stað
Ásgeir Elíassonar, sem lét af störf-
um á dögunum. Framarar, sem
tryggðu sér sæti í Landsbankadeild-
inni, settu sig í samband við Ólaf í
gær eftir að Heimir Guðjónsson, að-
stoðarþjálfari Íslandsmeistara FH,
hafnaði tilboði um að taka við þjálfun
Safamýrarliðsins.
,,Það þokaðist í átt að samkomu-
lagi okkar á milli og ég tel ágætar
líkur á að ég taki starfið að mér enda
líst mér vel á það,“ sagði Ólafur við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Ólafur lét af störfum hjá ÍA eftir
fyrri umferð Íslandsmótsins en hann
tók við þjálfun liðsins undir lok tíma-
bilsins 1999. ÍA varð Íslandsmeistari
undir stjórn Ólafs árið 2001 og vann
bikarinn tvívegis, 2000 og 2003. Ólaf-
ur hóf hins vegar þjálfaraferil sinn
hjá Fylkismönnum 1998 og ári síðar
stýrði hann liðinu upp í efstu deild.
Ólafur Þórðarson í
viðræðum við Fram
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
ÚRVALSDEILDARLIÐ Fylkis í
handknattleik fékk góðan liðsstyrk
gær. Þá kom til landsins Króatinn
Tomislav Broz og mun hann leika
með Árbæjarliðinu vetur.
Broz er 30 ára gömul vinstri-
handarskytta sem hefur leikið með
króatíska landsliðinu og var í leik-
mannahópi þess þegar það vann
sigur á Þjóðverjum í leik um gull-
verðlaunin á Ólympíuleikunum í
Aþenu í Grikklandi fyrir tveimur
árum. ,,Hann mætti á æfingu hjá
okkur í kvöld og mér sýnist á öllu
að hann geti orðið okkur góður liðs-
styrkur. Þetta er vel spilandi leik-
maður og fín skytta. Hann skortir
leikform en það kemur hjá honum,“
sagði Sigurður Valur Sveinsson,
þjálfari Fylkismanna, við Morgun-
blaðið í gærkvöldi.
Broz lék síðast með liði í heima-
landi sínu en hann hefur einnig
reynt fyrir sér í þýsku 2. deildinni.
Þá hafa Fylkismenn fengið Vla-
dimir Duric sem lék með Selfyss-
ingum á síðustu leiktíð. Hann varð
markahæstur í liði Selfyssinga þá,
skoraði 154 mörk í 23 leikjum liðs-
ins.
Fylkir, sem er spáð falli í 1.
deild, mætir HK í fyrsta leik sínum
í DHL-úrvalsdeildinni á laugardag-
inn. Nánar er fjallað um liðin í úr-
valsdeildinni í blaðaauka, sem fylgir
Morgunblaðinu í dag. Þar er rætt
við þjálfara og leikmannalistar lið-
anna átta byrtir, ásamt ýmsum
fróðleik.
Króatískur landsliðsmaður
í raðir Fylkismanna
Reuters
Markakóngur Raúl fer hér framhjá Andriy Nesmachniy úr Dynamo Kiev, í Madrid í gær. Raúl skoraði tvívegis í
5:1-sigri Real Madrid og er spænski landsliðsframherjinn markahæstur í Meistaradeildinni frá upphafi. B/3
miðvikudagur 27. 9. 2006
íþróttir mbl.is
GEYSILEGUR fögnuður braust út í
Safamýrinni sl. keppnistímabil þeg-
ar karlalið Fram varð fyrsta skipti
Íslandsmeistari í handknattleik í 34
ár, eða síðan Framarar fögnuðu
meistaratitli í Laugardalshöllinni
1972. Þá léku margir gamalkunnir
landsliðskappar með liðinu, eins og
Ingólfur Óskarsson, Þorsteinn
Björnsson, Sigurður Einarsson,
Sigurbergur Sigsteinsson, Axel Ax-
elsson og Björgvin Björgvinsson.
Ingólfur og Sigurður urðu meist-
arar með Fram í sjö skipti á ellefu
árum – 1962, 1963, 1964, 1967,
1968, 1970 og 1972.
Morgunblaðið/ÞÖK
Meistarar Framarar fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum í fyrsta skipti í 34 ár í Safamýrinni sl. keppnistímabil.
34 ára
bið á enda
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
HK er spáð fimmta sæti og ný sameinuðu liði
KA og Þórs, Akureyri, er spáð sjötta sæti.
Gangi spáin eftir kemur það í hlut leikmanna
Fylkis og ÍR að bíta í það súra epli að falla nið-
ur í 1. deild, þar sem einnig eru átta lið.
„Það er gaman að sjá að þjálfara og for-
ráðamenn andstæðinganna hafa trú á okkur
enda er Valsliðið afar vel skipað um þessar
mundir. Við fengum mjög skemmtilega leik-
menn til liðs við okkur í sumar auk þess sem
fyrir var hópur ungra leikmanna,“ segir Óskar
Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals og segist
hvergi banginn fyrir átök vetrarins.
Þess má til gamans geta að Valur varð síðast
Íslandsmeistari karla í handknattleik vorið
1998, en það ár vann félagið einnig bik-
arkeppninar í sögulegum úrslitaleik.
Leikið verður með nýju fyrirkomulagi í úr-
valsdeildinni á þessu keppnistímabili. Átta lið
eru í deildinni og verður spiluð þreföld umferð
og það lið sem trónir á toppnum eftir 21. um-
ferð hampar Íslandsmeistarabikarnum á vor-
mánuðum. Enginn úrslitakeppni verður í vor
frekar en við lok síðasta Íslandsmóts.
Óskar segir að það sé gott fyrir sjálfs-
traustið að vera spáð Íslandsmeistaratitili en
hafa ber í huga að ekkert sé í hendi ennþá og
lið úrvalsdeildarinnar hafi flest styrkst frá síð-
ustu leiktíð og því sé ljóst að afar jafnt og
skemmtilegt mót sé framundan.
„Vissulega er pressan á okkur núna og það
er gaman að sjá hvernig ungu mennirnir í lið-
inu taka þessari áskorun. Það er atriði sem ég
verð að hafa í huga og vinna með. Þar geri ég
kröfu til reynslumeiri manna liðsins að þeir
deili reynslu sinni til þeirra sem yngri og
óreyndari eru,“ sagði Óskar sem er með mjög
ungt og e.t.v. lítt reyndar hóp leikmanna í
höndunum. Elstu mennirnir eru Ólafur Hauk-
ur Gíslason og Markús Máni Michalesson
Maute, en þeir eru 26 ára gamli. Báðir komu
þeir til félagsins á ný í sumar, Markús eftir
tveggja ára veru hjá Düsseldorf í Þýskalandi
en Ólafur að lokinni áralangri fjarveru frá
Hlíðarenda hjá ýmsum félögum innan lands og
utan.
„Ég er með ungt og mjög skemmtilegt lið og
þar af leiðandi tel að spennandi tími sé fram-
undan. Við erum með tvo leikmenn í hverja
stöðu í sókninni,“ segir Óskar sem setur helst
spurningsmerki við varnarleikinn. Hann sé
svolítið óskrifað blað. „Okkur skortir ef til vill
meiri reynslu og sterkari vörn. Varnarleikinn
verðum við að taka fastari tökum reikna ég
með. En annars er ég með gríðarlega léttleik-
andi og skemmtilegt lið,“ segir Óskar Bjarni
Óskarsson, þjálfari Vals sem mætir Akureyri í
fyrsta leik í Laugardalshöll á laugardaginn
klukkan 16.
Gott fyrir sjálfstraustið
Valsmönnum spáð Íslandsmeistaratitli og þjálfari þeirra segist ekki óttast pressuna
VAL er spáð sigri á Íslandsmóti karla í ár-
legri spá forráðamann, þjálfara og fyrirliða
félaganna í úrvalsdeild karla, DHL–deildinni,
en flautað verður til leiks á Íslandsmóti karla
í kvöld. Samkvæmt spánni er reiknað með Ís-
landsmeistarar Fram veiti Val mesta keppni
og hafni í öðru sæti. Næst þar á eftir er talið
að Haukar og Stjarnan komi í þriðja og
fjórða sæti.
NIÐURSTAÐA spá forráðamanna, þjálf-
ara og fyrirliða þeirra félaga sem leika í úr-
valsdeild karla, DHL-deildinni. Hvert félag
fékk þrjá atkvæðaseðla og fékk efsta lið
hvers seðils 10 stig þannig að mest var
hægt að fá 240 stig.
Valur...................................................226 stig
Fram...................................................209 stig
Haukar ...............................................191 stig
Stjarnan .............................................159 stig
HK ......................................................155 stig
Akureyri.............................................123 stig
Fylkir .................................................101 stig
ÍR..........................................................84 stig
Val spáð sigri
handbolti
Sigurður Bjarnason fer í alla leiki til að fagna sigri » 10
BURT MEÐ TROMMURNAR
TROMMULEIKUR OG LÚÐRABLÁSTUR EIGA EKKI
HEIMA Á KAPPLEIKJUM Í ÍÞRÓTTAHÚSUM » 2